Morgunblaðið - 19.01.2019, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 19.01.2019, Qupperneq 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. JANÚAR 2019 Glæsilegt nýlegt 3ja herbergja parhús ásamt bílskúr. Vandaðar innréttingar og gólfefni. Stór sólpallur með heitum potti. Stærð 130,9 m2 Verð kr. 42.500.000 Breiðhóll 23, 245 Sandgerði Nánari upplýsingar á skrifstofu s. 420 6070 eða eignasala@eignasala.is Hluti af ofurskattheimtuReykjavíkurborgar var ræddur í borgarráði á fimmtudag.    Borgarráðs-fulltrúar Sjálf- stæðisflokksins bókuðu meðal ann- ars: „Í fyrradag fengu húseigendur álagningarseðil sem er 15% hærri að jafnaði en sá síð- asti. Þetta er mikið högg. Sjálfstæðisflokkurinn lagði fram tillögu í borgarstjórn hinn 18.10. 2018 og aftur 4.12. 2018 þess efnis að fasteignaskattar á atvinnuhúsnæði lækkuðu úr 1,65% í 1,60% enda fyrirséð að fasteigna- mat myndi hækka, sem leiðir til hærri fasteignaskatta. Tillagan var felld tvívegis á fundi borgar- stjórnar. Í lögum um tekjustofna sveitarfélaga segir að skatthlut- fall fasteignaskatts af atvinnu- húsnæði skuli vera að hámarki 1,32% af fasteignamati ásamt lóðaréttindum. Lögin veita þó heimild til að innheimta 25% álag. Reykjavíkurborg beitir þessu álagi og innheimtir því 1,65% af fasteignamati, sem er það hámark sem lög leyfa.“    Þá er í bókuninni bent á að lík-legt megi telja að aukaálagið sem lögin leyfa hafi verið ætlað þeim sveitarfélögum þar sem fast- eignamat sé lágt. Það eigi ekki við um Reykjavík þar sem fast- eignamat sé með því sem hæst gerist.    Það er með miklum ólíkindumað í Reykjavík skuli vera nýtt sérstök undanþáguheimild til að leggja aukinn skatt á fasteigna- eigendur. Og ekki má gleyma því að Reykjavík nýtir sér einnig lög- bundið hámarksútsvar, öfugt við það sem var þegar vinstri menn tóku yfir stjórn borgarinnar. Dagur B. Eggertsson Ofurskattar Reykjavíkur STAKSTEINAR Staða miðlunarlóna Landsvirkjunar er nú mun betri en á sama tíma í fyrra. Úrkoma í lok ársins 2018 og upphafi þessa árs bætti stöðu miðl- unarlóna og bætti fyrir frekar úr- komulítinn október. Ekki er algengt að það bæti í lónin um hávetur. Á móti kemur að lítill snjór hefur safnast fyrir á hálendinu, að því er fram kemur á heimasíðu Lands- virkjunar. Útlitið fyrir raforku- afhendingu á árinu er gott, segir þar ennfremur. Í byrjun desember var vatnshæð í Þórisvatni 576 metrar yfir sjávar- máli. Um miðjan janúar hafði vatns- hæðin aukist um einn metra og hef- ur aldrei verið meiri á þessum árstíma. Vatnshæð Hálslóns er nú 617,6 metrar yfir sjávarmáli og er hún þremur metrum meiri en á sama tíma í fyrra. Vatnshæð í Blöndulóni er nú 475,7 metrar yfir sjávarmáli, tæpum 50 sentimetrum meiri en á sama tíma í fyrra. sisi@mbl.is Ljósmynd/Landsvirkjun Búrfellsstöð Útlitið fyrir raforkuafhendingu á árinu er gott eftir hlýindin. Hækkar um hávetur í lónum á hálendinu Hæstarétti bárust á árinu 2018 alls 64 beiðnir um áfrýjunar- og kæruleyfi. Um áramót höfðu 54 beiðnir verið afgreiddar og fallist á að veita leyfi í 10 tilvikum sem er 18,5% hlutfall. Til samanburðar má geta þess að Hæstarétti Nor- egs bárust 800 beiðnir á árinu 2017 um leyfi til áfrýjunar dóma og var leyfi veitt í 114 tilvikum sem er 14,25% hlutfall. Dómarar í Hæstarétti Íslands eru 8 en 20 í Hæstarétti Noregs. Þessar upplýsingar komu fram þegar Katrín Jakobsdóttir for- sætisráðherra heimsótti Hæstarétt á fimmtudag ásamt fylgdarliði og kynnti sér starfsemi réttarins. Er þetta í fyrsta skipti sem forsætis- ráðherra heimsækir réttinn í þess- um tilgangi í 99 ára sögu hans, að því er fram kemur í frétt á heima- síðu Hæstaréttar. Í heimsókninni var rætt um starfsemi réttarins allt frá stofnun hans árið 1920 og þá sérstaklega hvaða breytingum ný dómstóla- skipan, sem tók gildi 1. janúar 2018, veldur í starfsemi Hæsta- réttar. Með þeim breytingum tók Landsréttur við hlutverki Hæsta- réttar sem áfrýjunardómstóll en Hæstiréttur dæmir einungis í for- dæmisgefandi málum. sisi@mbl.is Hæstiréttur veitti 10 áfrýjunarleyfi  Fyrsta heimsókn forsætisráðherra landsins í réttinn í 99 ára sögu hans Heimsókn Forsætisráðherra ritar nafn sitt í gestabók Hæstaréttar. Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.