Morgunblaðið - 19.01.2019, Side 10

Morgunblaðið - 19.01.2019, Side 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. JANÚAR 2019 GABOR 14.997 VERÐ ÁÐUR 24.995 11.997 VERÐ ÁÐUR 19.995 40% AFSLÁTTUR LHG.IS Kynning á skipulagslýsingu Nýtt deiliskipulag öryggissvæðisins á Keflavíkurflugvelli Utanríkisráðuneytið hefur falið Landhelgisgæslu Íslands að vinna deiliskipulag fyrir öryggissvæðið á Keflavíkurflugvelli. Í samræmi við 1. mgr. 40. gr. skipulagslaga er unnin lýsing fyrir deiliskipulagið. Deiliskipulagið fjallar m.a. um afmörkun nýrra svæða fyrir hættulegan farm, svæði fyrir skammtíma gistiaðstöðu, efnis- vinnslusvæði, gistisvæði, geymslusvæði og aðra landnotkun og starfsemi, svo sem þyrlupall og girðingar. Skilalýsingin verður aðgengileg á samráðsgátt stjórnvalda (samradsgatt.is) og á vefsíðum utanríkisráðuneytisins og Landhelgisgæslu Íslands. Ábendingar og athugasemdir skulu berast skriflega og má skila þeim til Landhelgisgæslu Íslands, b.t. Sveinn Valdimarsson, skipulagsfulltrúa, Þjóðbraut 1, 235 Keflavíkurflugvöllur eða í tölvupósti á skipulagsfulltrui@lhg.is. Frestur til að skila athugasemdum er til 6. febrúar 2019. DIMMALIMM Laugavegi 53 | Sími 552 3737 | Opið mán.-fös. 10-18, lau. 10-17 Skoðið úrvalið á facebook DimmalimmReykjavik ÚTSALA - ÚTSALA Enn meiri verðlækkun! útigallar og úlpur 30% afsláttur 50%afslátturaf útsöluvörum Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Orkustofnun telur að útmörk á fyrirhuguðu friðlýstu svæði á Reykjatorfunni fyrir ofan Hvera- gerði séu algerlega óraunhæf og svæðið of víðtækt í og kringum Reykjadal, að teknu tilliti til varma- orkuhagsmuna íbúa í Hveragerði og Ölfusi, nema að ætlunin sé að setja því sérstaka friðlýsingarskilmála er leyfðu orkurannsóknir og sjálfbæra orkuvinnslu innan þess svæðis. Jarðhitanýting í áratugi Þetta kemur meðal annars fram í umsögn Orkustofnunar um áform um friðlýsingu Reykjatorfunnar í Ölfusi. Bent er á að á því svæði sem fyrirhugað er að friðlýsa hafi verið jarðhitanýting í áratugi. Í umsögninni segir: „Reykjatorf- an ásamt Hveragerði og nágrenni er á miklu jarðskjáftasvæði og er jarð- hitinn á svæðinu undir áhrifum frá því. Meðal þeirra áhrifa er möguleg tilfærsla á jarðhita í kjölfar jarð- skjálftahrina. Orkustofnun lýsir hér með áhyggjum sínum af því að gætt hef- ur erfiðleika að undanförnu í rekstri Veitna ohf. vegna hitaveitu fyrir Hveragerðisbæ og þarfa Landbún- aðarháskóla íslands, eftir jarð- skjálftana 2008, vegna breytinga í jarðhitavirkni. Ljóst er að slíkar jarðskjálftahrinur munu halda áfram að eiga sér stað á svæðinu. Stofnunin leggur áherslu á að hafa þarf borð fyrir báru vegna þessa, ekki aðeins í framtíð heldur einnig í nútíð, varðandi möguleg ný vinnslusvæði jarðhita til húshitunar, gróðurhúsaræktunar, iðnaðar og annarrar atvinnusköpunar í Hvera- gerði.“ Þrjár stoðir sjálfbærni Orkustofnun telur það mjög já- kvætt að áformum um friðlýsingu sé lýst og færi gefið á athugasemdum og ábendingum, áður en að sjálfu friðlýsingarferlinu kemur. Bent er á að gera þurfi fullnægjandi úttekt sem nái til allra þriggja stoða sjálf- bærni, þ.e. umhverfislegra, efna- hagslegra og samfélagslegra þátta áður en að friðlýsingu Reykjatorf- unnar kemur. Of víðtæk friðlýsing Morgunblaðið/Sigurður Bogi Jarðhiti og útivist Unnið við gerð göngustíga í Reykjadal, en straumur ferðamanna hefur síðustu ár legið um svæðið.  Orkustofnun gerir athugasemdir við fyrirhugaða friðlýsingu í Reykjadal  Vandamál í rekstri vegna hitaveitu í Hveragerði Sala á þorrabjór hefst fimmtudag- inn 24. janúar en upphaf þorrans er á Bóndadaginn, föstudaginn 25. janúar. Í ár er áætlað að 14 teg- undir af þorrabjór verði í boði, að því er fram kemur á heimasíðu Vín- búðanna. Af tegundum má nefna Þorrakalda, Hval 2 þorraöl frá Steðja, þrjár tegundir af Surti, Bónda, Víkings-þorra, þorrabjór frá Ölvisholti, Segul 67 og Þorra- gull. Árstíðabundinn bjór verður sí- fellt fyrirferðarmeiri hérlendis og sérstakur bjór er seldur fyrir jól, páska og þorra. Vörur sem tengjast tiltekinni hátíð eða tímabili eru ein- ungis til sölu í ákveðinn tíma. Þann- ig lýkur sölutímabili þorrabjórs 23. febrúar. Fjórtán tegundir af þorrabjór Atvinna

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.