Morgunblaðið - 19.01.2019, Qupperneq 31

Morgunblaðið - 19.01.2019, Qupperneq 31
MINNINGAR 31 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. JANÚAR 2019 ✝ Axel GrímurJulian Thor- steinson fæddist 13. september 1922 í Winnipeg í Kanada. Hann lést 29. desem- ber 2018. Axel var næstelst- ur albræðra, bræður hans eru Stein- grímur Harry Thor- steinson, f. 15. októ- ber 1920 í Pittsfield, Bandaríkjunum, lát- inn 11. ágúst 2002, og Halldór Thorsteinson, f. 4. febrúar 1930. Foreldrar þeirra voru Jeanne Lambertina Thorsteinson, fædd Fafin, f. 21. maí 1901, látin 24. júní 1984, og Axel Thorsteinson, Johnson og Kaaber eða þar til hann fluttist að Álftárósi um 1950. Halldór bróðir hans var einnig á Álftárósi á þessum árum og tóku þeir við búinu og ráku það ásamt Ólöfu næstu árin. Þeir eignuðust jörðina um 1960 og byggðu þar nýtt íbúðarhús og öll útihús. Axel vann ýmis trún- aðarstörf fyrir sveit sína, var í hreppsnefnd og skattanefnd allt þar til þær voru lagðar niður í sveitunum. Þeir bjuggu á Álftár- ósi til ársins 1980 þegar þeir fluttu til Reykjavíkur. Axel vann um tíma sem gæslumaður á Kleppi og vann hjá Póstinum til ársins 1994 er hann lét af störf- um fyrir aldurs sakir. Útförin fór fram í kyrrþey. f. 5. mars 1895, lát- inn 3. desember 1984. Systir sam- feðra var Sigríður Sigurðardóttir Breiðfjörð, f. 30. ágúst 1928, látin 15. maí 2003. Bræð- ur samfeðra eru Birgir, f. 24. ágúst 1941, og Gunnar Aðalsteinn, f. 27. apríl 1944. Axel stundaði nám við Héraðsskólann í Reyk- holti og síðar við Bændaskólann á Hvanneyri 1941. Hann starfaði um tíma sem túlkur hjá banda- ríska hernum til stríðsloka 1945. Hann starfaði einnig hjá O. Axel, frændi minn með mörgu nöfnin, lést 29. desember 2018. Hann notaði þau nú ekki öll nema svona spari. Grímsnafnið var eftir Grími Thomsen og Julian var eftir franska afa hans og svo auðvitað Axelsnafnið eftir föður hans. Hann átti nokkuð sérstæða ævi, kvæntist ekki og átti enga afkom- endur, en elskaði börn, sem hænd- ust mjög mikið að honum. Þegar ég gerðist ráðskona hjá þeim bræðrum var yngsta dóttir mín með í för, þær eldri og Palli mað- urinn minn komu að Álftárósi um helgar. Þá var oft glatt á hjalla. Þóra María var eins og frímerki á honum, fylgdi honum við allar gegningar og dundaði sér við það að greiða kúnum á mjaltatímum og veiða mýsnar úr fóðurtunnunum. Hann hafði nú gaman af því. Það var mjög þroskandi að kynnast þessum afabróður sem alltaf var tilbúinn að tala við litla frænku. Eftir að Axel flutti í bæinn og við að norðan var hann alltaf með okkur um jól og áramót meðan ég gat séð um það sjálf, og veit ég að hann kunni vel að meta það. Axel var mjög trúaður maður og bað fyrir fólkinu sínu heitt og innilega. Það var aðdáunarvert að hann hélt heimili fyrir þá bræður, eldaði og sá um aðdrætti nánast fram á síðasta dag. Ótrúlegt hjá 96 ára gömlum manni. Palli minn fór með honum að versla áður en Bónus kom í næsta hús og sagðist Axel oft sakna þess að hitta hann ekki lengur, það hefði verið svo notalegt að spjalla sam- an. Fyrst og síðast var Axel mjög góður maður sem mátti ekkert aumt sjá og var góður við alla í kringum sig, bæði menn og dýr. Að síðustu þakka ég fyrir allt, Axel minn, hvað þú varst okkur fjöl- skyldunni góður. Kveðja, Margrét Fafin Thorsteinson. Núna ertu farinn til Týra þíns, elsku Axel minn. Það er með mik- illi hlýju og þakklæti sem ég kveð hann afabróður minn Axel. Ég var svo lánsöm að fara með mömmu minni ung að árum til sumardvalar á Álftárósi á Mýrum. Þar fékk ég dýrmætt veganesti út í lífið frá þeim bræðrum Axel og Halldóri. Axel mátti sinna bústörfum með mig sex ára skottuna í eft- irdragi allan liðlangan daginn, sjálfsagt síspyrjandi út í tilveruna eins og barna er siður. Ekki minn- ist ég þess að hann hafi nokkurn tímann kvartað eða beðist undan því að hafa mig með sér við gegn- ingarnar. Þess í stað sýndi hann mér og kenndi svo ótalmargt. Að fylgjast með honum og Hall- dóri bróður hans sinna skepnun- um á bænum af sinni alkunnu hlýju og virðingu fyrir dýrum og umhverfi var veganestið sem fylgdi mér inn í lífið. Ég eyddi löngum stundum í fjósinu þeirra að kemba kúnum og brasa við að bjarga músum úr fóð- urtunnum. Svo djúpstæð vinátta myndaðist í fjósinu að kýr ein er Búkolla hét var ekki felld eins og eðlilegt hefði talist þegar hún hætti að gagnast mjólkurbúinu, nei þeir frændur mínir leyfðu henni að lifa vegna vináttu okkar tveggja. Kindur og kýr áttu sín nöfn, sögurnar af Týra hundinum sem Axel átti og var grafinn undir svefnherbergisglugganum hans, bæjarferðirnar í Borgarnes þar sem ég bý í dag. Minningarnar svo ótal margar og það sem umvefur mig við að hugsa um þær allar er kærleikur og þakklæti. Þegar ég varð fullorðin og eign- aðist son minn kom ekkert annað til greina en að láta skíra hann í höfuðið á Axel frænda eða Axel afa eins og börnin mín kölluðu hann alltaf. Axel var heilsuhraustur nánast fram á síðasta dag og þegar hann fór á eftirlaun rúmlega sjötugur að aldri bauðst hann til að passa Pál Axel fyrir minn veturinn 1993-94 vegna þess að ég hafði ekki fengið leikskólapláss fyrir drenginn. Hann mátti ekki heyra á það minnst að verða sóttur á morgn- ana en gekk þess í stað heilan vet- ur úr Bústaðahverfinu upp í Ár- túnsholt til að gæta snáðans litla. Þar mynduðust dýrmæt tengsl og vinátta milli þeirra tveggja. Páll Axel varð fljótt altalandi og var eftir því tekið hve gott íslenskt mál hann hafði tileinkað sér. Þarna hafði sagan endurtekið sig því mér er sagt að ég hafi verið með orða- forða að góðum og gildum sveita- sið eftir dvöl mína á Álftárósi litlu eldri en Páll Axel minn var þegar þeir eyddu vetrinum saman. Það verður skrítið að tala núna bara um Halldór en iðulega komu nöfn þeirra bræðra fram í einu og sömu setningunni enda voru þeir bræður afar nánir alla tíð. En komin eru leiðarlok og lífsins kerti brunnið og þín er liðin æviönn á enda skeiðið runnið. Í hugann kemur minning mörg, og myndir horfinna daga, frá liðnum stundum læðist fram mörg ljúf og falleg saga. (Höf. ók.) Hvíl í friði, elsku Axel minn, og hafðu þökk fyrir allt og allt. Þín skotta úr sveitinni, Bjarnþóra María Pálsdóttir. Axel G.J. Thorsteinson ✝ María BjörkÞórsdóttir fæddist 22. maí 1933 á Bakka í Öxnadal. Hún lést á Hornbrekku, dvalarheimili aldr- aðra á Ólafsfirði, 25. desember 2018. Foreldrar Bjark- ar voru Þór Þor- steinsson, f. 19. október 1899, d. 26. október 1985, og Guðrún Björg Jóhannesdóttir, f. 4. apr- íl 1911, d. 4. september 1984. Eldri bróðir Bjarkar hét Símon Beck Þórs- son, f. 9. sept- ember 1931, d. 8. janúar 1981. Eft- irlifandi þeirra systkina er Ólöf Steinunn Þórs- dóttir, f. 11. mars 1939. Björk ól allan sinn aldur heima á Bakka, utan síð- ustu tvö ár ævinn- ar. Björk var ógift og barnlaus. Útför Bjarkar fór fram frá Bakkakirkju 8. janúar 2019. Það var sumardaginn fyrsta árið 2000 sem ég kom fyrst á kirkjustaðinn Bakka í Öxnadal. Þar bjuggu myndarbúi systurnar Ólöf og María Björk Þórsdætur og sonur Ólafar, Helgi Þór. Samstundis myndaðist með okkur og systrunum hlý vinátta. Björk var einstök kona sem hafði svo ótal margt að gefa. Hún var afar fróð, víðlesin og einstaklega minnug. Hún miðlaði af fróðleik sínum á svo eftirminnilegan hátt að því var seint gleymt. Svo átti hún pennavini sem hún ræktaði sam- bandið við fram á elliár. Það er sérstakt hlutverk að sitja kirkjustað og mikil ábyrgð. Þó að Ólöf og Helgi sinntu hinum ytri málum kirkjunnar var hlut- verk Bjarkar ekki síðra. Þó að líkamlega væri hún fötluð var andinn að sönnu reiðubúinn og því má með sanni segja að hún hafi hlúð að kirkjunni sinni and- lega enda afar trúuð kona. Hún talaði alltaf vel um alla og kímni- gáfan var á sínum stað. Í kirkjunni og á heimilinu á Bakka minnist ég þess að hafa haldið jólin hátíðleg í 12 ár eða þann tíma sem ég þjónaði á Möðruvöllum í Hörgárdal. Það var ævinlega síðasta verk Ólafar áður en hún hringdi kirkjuklukk- unum að leiða systur sína á fremsta bekk í kirkjunni. Í hinu veglega messukaffi annan í jólum var Björk ætíð hrókur alls fagn- aðar og ljúft var að sjá hve sveit- ungarnir báru mikla virðingu fyr- ir henni og sýndu henni væntumþykju. Dætur mínar minnast þessara stunda með hlýju. Oftar milli hátíða var kom- ið við á Bakka og fyrir þær heim- sóknir erum við hjónin ævarandi þakklát. Síðustu misserin hefur Björk dvalið í Ólafsfirði. Þaðan eigum við líka góðar minningar frá heimsóknum okkar til henn- ar. Guð blessi allar góðu minning- arnar um Maríu Björk og styrki Ólöfu systur hennar og Helga Þór. Solveig Lára, Hólum. María Björk Þórsdóttir Elsku afi. Mér finnst svo óraun- verulegt að þurfa að kveðja þig. Ég á svo ótal margar góðar minningar um þig. Þú varst dásamlegur afi og langafi. Þú varst alltaf tilbúinn að hjálpa og reyndist mér svo vel. Hvort sem það var að sækja mig, skutlast eitthvað með mig, stússast með mér að leita að rétta sund- bolnum eða finna réttu gjöfina handa pabba. Alltaf varstu til stað- ar með bros á vör. Gleymi ekki þegar ég fékk að fara með þér í vinnuna og sjá allar risastóru prentvélarnar og blaða- rúllurnar og hvað mér fannst merkilegt hvað þú vissir mikið um allt. Og ekki bara í vinnunni. Þú varst svo uppfullur af fróðleik um allskonar enda alltaf að lesa. Kunnir svo margt og vissir svo margt. Það er erfitt að missa báða af- ana sína á sama árinu og enn erf- iðara að vera ekki á staðnum til að kveðja. Ég er svo þakklát fyrir að hafa kvatt þig vel síðasta sumar og hugsa um allar góðu stundirnar sem við áttum, sem voru svo marg- ar. Öll jólin í Völvufellinu. En það voru ekki jól nema afi opnaði skáp- hurð á hausinn á sér. Eða svona næstum. Við grínuðumst allavega mikið með það. Afi gerði bestu kjötsúpu í heimi. Afi var mjög fær smiður. Hann og amma smíðuðu heilt hús á Ingvar Ágústsson ✝ Ingvar Ágústs-son fæddist 8. febrúar 1939. Hann lést 19. desember 2018. Útför Ingvars fór fram 17. janúar 2019. Hellu, hann og pabbi voru líka alltaf eitt- hvað að smíða í bú- staðnum. Svo ekki sé minnst á stóra kof- ann sem þeir smíð- uðu handa mér á sín- um tíma. Þar var sko hægt að halda náttfatapartí í hlýju veðri. Og bara allar góðu samverustundirnar uppi í bústað bæði þegar ég var lítil og svo í seinni tíma með Sæmund. Það var dásamlegt að horfa á þig keyra hann um í hjólbörunum og sjá gleðina á meðan þú fylgdist með honum hlæjandi að leika sér. Elsku, elsku afi. Við munum sakna þín svo mikið. En komin eru leiðarlok og lífsins kerti brunnið og þín er liðin æviönn á enda skeiðið runnið. Í hugann kemur minning mörg, og myndir horfinna daga, frá liðnum stundum læðist fram mörg ljúf og falleg saga. (Höf. ók.) Hver minning dýrmæt perla að liðnum lífsins degi, hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér. Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem gleymist eigi, og gæfa var það öllum, er fengu að kynn- ast þér. (Ingibjörg Sigurðardóttir.) Ég kveð þig, hugann heillar minning blíð, hjartans þakkir fyrir liðna tíð, lifðu sæl á ljóssins friðar strönd, leiði sjálfur Drottinn þig við hönd. (Guðrún Jóhannsd.) Lilja Rós og Sæmundur Kristinn. Frímann & hálfdán Útfararþjónusta Frímann 897 2468 Hálfdán 898 5765 Ólöf 898 3075 Sími: 565 9775 www.uth.is uth@uth.is Cadillac 2017 Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, STEFÁN HELGASON, Kolbeinsgötu 26, Vopnafirði, lést á Sundabúð sunnudaginn 13. janúar. Útförin fer fram frá Hofskirkju miðvikudaginn 23. janúar klukkan 13.30. Oddný Jóhannsdóttir Helgi Stefánsson Hjördís Jónsdóttir Rafn Stefánsson Harpa Þ. Hólmgrímsdóttir Hjördís Valgarðsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Ástkær dóttir mín og systir okkar, RANNVEIG PÁLSDÓTTIR, læknir, Strandvegi 7, Garðabæ, lést miðvikudaginn 16. janúar. Jarðarför auglýst síðar. Soffía Stefánsdóttir Svana Pálsdóttir Guðbjörg Pálsdóttir Gísli Pálsson Soffía Pálsdóttir og fjölskyldur Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, HILDIGUNNUR EYFJÖRÐ JÓNSDÓTTIR frá Finnastöðum, lést á Grenilundi Grenivík 14. janúar. Útför hennar fer fram frá Grenivíkurkirkju laugardaginn 26. janúar klukkan 14. Fanney S. Ásmundsdóttir Elísa Jóna Ásmundsdóttir Grétar Jón Pálmason Kristinn Hólm Ásmundsson Erna Rún Friðfinnsdóttir Kristján Þór Ásmundsson Hanna Björg Margrétardóttir ömmu- og langömmubörn Ástkær sambýlismaður minn, VIGNIR JÓNSSON, Ljósheimum 14a, Reykjavík, lést á Kanaríeyjum mánudaginn 14. janúar. Bálför hefur farið fram. Útför auglýst síðar. Guðrún Ólafsdóttir Ástkær bróðir okkar, AXEL GRÍMUR JULIAN THORSTEINSON, Stúfholti 1, áður bóndi á Álftárósi í Mýrasýslu, lést á Landspítalanum, Fossvogi, laugardaginn 29. desember 2018. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Halldór Thorsteinson Birgir Thorsteinson Gunnar Thorsteinson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.