Morgunblaðið - 19.01.2019, Síða 20

Morgunblaðið - 19.01.2019, Síða 20
20 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. JANÚAR 2019 Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Bjóðum MESTA úrval á Íslandi af smáum og stórum vogum Ylströndin Nauthólsvík Sími: 411 5000 • www.itr.is Mánudagar – Föstudagar 11-14 og 17-20 Laugardagar 11-16 Lengri afgreiðslutími á ylströnd Verið velkomin í Nauthólsvík garður og Suðurgarður og við Norð- urgarðinn á nú enn að bæta og hefur verið auglýst útboð þar sem óskað er eftir tilboðum í sjófyllingu undir lenginguna í tveimur hlutum og skal þeim fyllingum ásamt viðhalds- dýpkun vera lokið fyrir 1. október næsta haust.    Góð hafnaraðstaða gefur stór- um skipum möguleika á að leggjast að bryggju og landa afla sínum í Grundarfirði en sú var raunin sl. mánudagskvöld þegar eitt af flagg- skipum Samherja, Björg EA 7, heiðr- aði Grundfirðinga í fyrsta sinni með nærveru sinni. Ekki spillti það fyrir að skipstjórinn, Guðmundur Freyr, er hér öllum hnútum kunnugur frá sínum æsku- og unglingsárum en hér sleit hann barnsskónum. Bæjarstjóri Grundfirðinga, Björg Ágústsdóttir, sem er vakin og sofin í starfi sínu, lét sig ekki vanta til að taka á móti hinu glæsta skipi og snaraði sér um borð þótt komið væri fast að miðnætti til að heilsa upp á nöfnu sína sem og skipstjórann. Gerði hún heimsókn sinn góð skil í máli og myndum á fa- cebooksíðu Grundarfjarðarbæjar.    Skipulagsmál voru á dagskrá síðasta bæjarstjórnarfundar en end- urskoðun aðalskipulags hefur nú staðið yfir í þrjú ár. Í ljósi þess taldi bæjarstjórnin að taka þyrfti til breyttra forsendna á þessu tímabili og ákvað að óska eftir frekari vinnu við gerð aðal- skipulags þar sem m.a yrði tekið til- lit til sívaxandi ferðamannastraums eins og fram kemur í fundargerð en þar segir m.a. að það „þurfi að beina sjónum enn frekar að því að styrkja ímynd og aðdráttarafl Grundar- fjarðar sem lykiláfangastaðar með Kirkjufellið í forgrunni“. Einnig þurfi að „tengja þéttbýlið og áning- arstaðinn við Kirkjufellsfoss og Kirkjufell betur saman og skil- greina annan lykiláningarstað í þéttbýlinu sjálfu“.    Í pípunum er nú bygging hótels í landi Skerðingsstaða rétt vestan við Grundarfjörð og er á heimasíðu Grundarfjarðar auglýst eftir at- hugasemdum við verkefnislýsingu á gerð deiliskipulagstillögu vegna bygginga í landi Skerðingsstaða. Arkitektastofan Zeppelin hefur gert uppdrátt að allt að 100 her- bergja hótelbyggingu ásamt fleiri stökum byggingum á um 4,5 hekt- ara reit á þessu landi og mun sinna gerð deiliskipulagstillögunnar. Morgunblaðið/Gunnar Kristjánsson Vetrarbirta Frá síðustu sólardögum í nóvember á síðasta ári. Grundarfjörður og Kirkjufell í baksýn. Sjá ekki sólina fyrir fjöllunum ÚR BÆJARLÍFINU Gunnar Kristjánsson Grundarfirði Þótt margir dásami fegurð og nánd fjallanna sem umkringja Grundarfjörð eru þeir til sem finnst nánd þeirra fullmikil. Slík nánd hef- ur óhjákvæmilega í för með sér nokkra ókosti. Fjöllin magna vind- inn oft um helming þannig að vindur sem nær 20 metrum á sekúndu þeg- ar hann kemur sunnan að fjallgarð- inum er kominn á 40 metra hraða þegar hann skellur niður í byggðina. Annan ókost má telja að menn sjá ekki sólina fyrir fjöllunum frá því í byrjun nóvember þangað til langt er liðið á janúar en þá er líka tilefni til að fagna með sólarpönnukökum þegar sólin gægist stutta stund yfir fjallgarðinn og nú er bara vika í að slíkt geti gerst.    Höfnin í Grundarfirði hefur hægt og bítandi verið að stækka í takt við vaxandi umsvif. Við höfnina er ekki lengur verið að tala um bryggjur enda hafa þær sem eitt sinn voru bara stubbar sem ekki náðu nema fram í sjóinn á flóði feng- ið annað heiti og eru nú kallaðar garðar. Þar eru Norðurgarður, Mið- Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Sala á svínakjöti jókst um 460 tonn á síðasta ári, eða um 7,3%. Með sömu þróun mun svínakjötið sem framleitt er í landinu verða söluhærra en lambakjötið fljótlega á þessu ári. Sala á alifuglakjöti jókst lítillega á nýliðnu ári, miðað við árið á undan, samkvæmt bráðabirðatölum Mat- vælastofnunar. Þó er alifuglakjöt langvinsælasta kjöttegundin af inn- lendri framleiðslu. Kindakjötið er enn í öðru sæti, með tæplega fjórð- ungs markaðshlutdeild. Jókst sala á því um 1,8% á árinu. Svínakjötið er í þriðja sæti og er næst vinsælasta kjöttegundin á markaði hér ef inn- fluttu kjöti er bætt við innlendu fram- leiðsluna. Sala á nautakjöti jókst einnig en sala á hrossakjöti minnkaði. Allar miðast þessar tölur við sölu á kjöti sem framleitt er í landinu. Tölur um innflutning á síðasta ári liggja ekki fyrir en hann hefur aukist hratt á undanförnum árum. Á árinu 2017 nam sala á innfluttu kjöti af alifugl- um, svínum og nautgripum 20-30% af heildarsölu kjöts af þessum skepn- um. Duga birgðirnar? Framleiðsla á kindakjöti nam alls 10.487 tonnum á síðasta ári. Er það 1,2% samdráttur frá árinu á undan. Samdráttur í framleiðslu og aukin sala gera það að verkum að offram- leiðslan minnkaði og þar með þörfin fyrir útflutning við lágu verði. Þó voru flutt út um 3.800 tonn. Birgðir voru um 5.000 tonn um áramót sem er 750 tonnum minna en í byrjun árs. Birgðirnar samsvara sölu á kindakjöti í rúma 8 mánuði, og því má búast við að skortur verði orðinn á einstaka tegundum kindakjöts áður en sláturtíð hefst í haust. Mesta aukning varð í sölu á svínakjöti  Birgðir kindakjöts í lágmarki Sala kjöts 2018 tonn tonn Heimild: Matvælastofnun Hlutdeild í % +0,8% +1,8% +7,3% +3,6% -6,8% Breyting í % frá 2017 Kindakjöt NautakjötAlifuglakjöt Svínakjöt Hrossakjöt 10.000 9.000 8.000 7.000 6.000 5.000 2009 2010 2011 2012 2013 2014 2015 2016 2017 2018 10.000 8.000 6.000 4.000 2.000 0 Birgðir kindakjöts, tonn Sala kjöts 2018 5.751Ársbyrjun 5.003Árslok 33,3% 24,7%23,4% 16,6% 2,1% 9.606 6.262 7.142 6.357 7.104 6.728 Skógræktin hefur gert samkomulag við Límtré Vírnet og Nýsköpunar- miðstöðina um tilraunavinnslu á ís- lensku timbri til límtrésframleiðslu. Öflun viðar hefst í næstu viku. Í samningi sem undirritaður var 10. janúar kemur fram að Skógrækt- in leggi fram án endurgjalds alls fjóra rúmmetra af flettu efni úr furu, ösp, greni og lerki í tilraunavinnslu með þurrkun og límingu. Gerðar verða límtrésprufur úr öllum fjórum viðartegundunum en Límtré Vírnet sér um að þurrka efnið og líma í fyrirfram uppgefnar stærðarein- ingar. Einnig verður styrkur efnis- ins prófaður og sér Nýsköpunar- miðstöð Íslands um að túlka niður- stöður mælinganna. Á heimasíðu Skógræktarinnar er haft eftir Birni B. Jónssyni, verk- efnastjóra afurðamála hjá Skóg- ræktinni, að hann finni fyrir miklum áhuga á vinnslu sem þessari, bæði innan Skógræktarinnar og hjá sam- starfsaðilunum. Timburvinnslufyrir- tækjum sé akkur í því að geta sýnt fram á að tiltekið hlutfall framleiðsl- unnar sé unnið úr heimafengnu hrá- efni og vaxandi kröfur verði um slíkt í framtíðinni. Einnig sé áhugavert að finna aðferðir til að búa til aukin verðmæti úr þeim grönnu bolum sem til falla við grisjun. aij@mbl.is Límtré úr íslensku timbri

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.