Morgunblaðið - 19.01.2019, Page 23

Morgunblaðið - 19.01.2019, Page 23
FRÉTTIR 23Erlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. JANÚAR 2019 Talið er að um 245 milljónir krist- inna manna sæti miklum ofsóknum vegna trúar sinnar í 50 ríkjum sem eru á nýjum lista hreyfingarinnar Open Doors yfir lönd þar sem staða kristinna manna er álitin verst. Þeim sem sæta miklum ofsóknum fjölgaði um 30 milljónir á einu ári, að sögn hreyfingarinnar. Þetta er 27. árið sem Open Doors birtir slíkan lista og hann byggist á rannsóknum hreyfingarinnar á stöðu kristinna manna í heiminum. Þær benda til þess að einn af hverj- um níu kristnum mönnum í heim- inum sæti ofsóknum og að þær hafi aukist mest í Asíu á síðustu fimm ár- um. Talið er að þriðji hver kristinn maður í Asíu sæti miklum ofsóknum, að sögn Open Doors. Ofsóknirnar hafa aukist í tveimur fjölmennustu löndum heims, Kína og Indlandi. Hreyfingin rekur versn- andi stöðu kristinna manna í Kína til hertra reglna um trúariðkun og her- ferða yfirvalda sem leggi kapp á að uppræta hvers konar starfsemi sem geti ógnað einræðisvaldi Xi Jinping, forseta landsins. Auknar ofsóknir gegn kristnu fólki á Indlandi eru aft- ur á móti raktar til þjóðernissinn- aðra hindúa sem hafa fært sig upp á skaftið og beitt trúarminnihlutahópa ofbeldi. Vaxandi þjóðernishyggja hefur einnig leitt til aukinna ofsókna gegn kristnu fólki og öðrum trúar- minnihlutahópum í löndum á borð við Búrma, Nepal og Bútan. Ofsóknarnar eru álitnar mestar í Norður-Kóreu sem hefur verið í efsta sæti á listanum í átján ár. Meira en 4.300 drepin Að sögn Open Doors voru 4.305 kristnir menn drepnir í heiminum vegna trúar sinnar á liðnu ári. Þar af voru rúmlega 3.700 morðanna fram- in í norður- og miðhluta Nígeríu þar sem kristið fólk hefur þurft að flýja þorp sín vegna árása vopnaðra manna sem hafa lagt þau undir sig. Heilu fjölskyldurnar hafa verið myrtar. Til að mynda voru nær 2.000 kristnir menn drepnir í Plateau-fylki í árásum múslíma. Þing Nígeríu hef- ur skilgreint vígin sem „hópmorð“. Heimild: NGO Open Doors (gögn frá nóv. 2017 - okt. 2018) Meira en 4.000 kristnir menn drepnir vegna trúar sinnar 3.066 4.305 7.106 Fjöldi kristinna manna sem voru drepnir vegna trúar sinnar 1 3 1011 4 6 8 7 10 29 5 Sómalía AfganistanÍran Pakistan Súdan Jemen Eritrea Líbíagífurlegar mjög miklar miklar IndlandSýrland Norður-Kórea 171 Búrma* 100 100 Kína* Rúanda 98Indland 40Mexíkó 28Pakistan 569 Nígería 1.847 Kirkjur sem voru eyðilagðar, skemmdar eða bannaðar 1.207 Nígería Sómalía Austur-Kongó Mósambík Suður-Súdan Önnur Eþíópía Eftir löndum 4.305 Alls Hreyfingin Open Doors hefur birt lista yfir lönd þar sem kristið fólk sætti mestum ofsóknum á liðnu ári Mið-Afríkulýðv. Önnur 3.731 146 232 50 43 42 31 30 741 2015 2016 2017 2018 *Áætlað Vaxandi ofsóknir gegn kristnu fólki Bogi Þór Arason bogi@mbl.is Stefan Löfven, leiðtogi Sósíaldemó- krataflokksins í Svíþjóð, myndar nýja minnihlutastjórn í næstu viku eftir að hafa náð kjöri í embætti forsætisráð- herra á þinginu í gær, 131 degi eftir þingkosningar. Niðurstaðan var álitin sigur fyrir Löfven, sem hefur getið sér orð fyrir að vera slyngur samninga- maður, en sigurinn gæti þó reynst hon- um dýrkeyptur vegna tilslakana sem hann féllst á til að halda völdunum. Andreas Norlén, forseti þingsins, hafði tilnefnt Löfven í forsætisráð- herraembættið og tilnefningin fékk nægan stuðning á þinginu þótt hún fengi ekki meirihluta atkvæða. Aðeins 115 þingmenn greiddu atkvæði með tilnefningunni, 153 voru á móti, 77 þingmenn sátu hjá og fimm þingmenn voru ekki viðstaddir atkvæðagreiðsl- una. Tilnefningin þurfti ekki að fá meirihluta atkvæða, en hefði fallið ef meirihluti þingmanna hefði greitt at- kvæði gegn henni. Mjög erfiðar viðræður Löfven hafði náð samkomulagi um að Sósíaldemókratar og Umhverfis- flokkurinn mynduðu minnihlutastjórn með stuðningi Miðflokksins og Frjáls- lynda flokksins sem hafa verið í banda- lagi með hægriflokknum Moderaterna og Kristilega demókrataflokknum. Stuðningur Miðflokksins og Frjáls- lynda flokksins dugði þó ekki því að Löfven þurfti einnig að semja við Vinstriflokkinn um að hann greiddi ekki atkvæði gegn tilnefningunni. Stjórnarmyndunarviðræðurnar voru mjög erfiðar vegna þess að hvor- ug gömlu fylkinganna í sænskum stjórnmálum fékk meirihluta þingsæta í kosningunum 9. september. Sósíal- demókratar, Umhverfisflokkurinn og Vinstriflokkurinn fengu einu þingsæti meira en bandalag hægri- og miðflokk- anna fjögurra. Þjóðernisflokkurinn Svíþjóðardemókratarnir styrkti odda- stöðu sína á þinginu, varð þriðji stærsti flokkurinn og fékk 17,6% atkvæðanna. Niðurstaða stjórnarmyndunarvið- ræðnanna endurspeglar þá niðurstöðu kosninganna að mikill meirihluti þing- mannanna er andvígur því að mynda ríkisstjórn með þjóðernisflokknum. Hann á rætur að rekja til nasistahreyf- inga og er talinn eiga langt í land með að þvo af sér öfgastimpilinn, m.a. vegna hatursfullra yfirlýsinga fulltrúa hans á samfélagsmiðlum um innflytjendur. Stjórnmálaskýrendur segja að Löf- ven hafi náð tveimur helstu markmið- um sínum í viðræðunum: að halda völd- unum og kljúfa bandalag mið- og hægriflokkanna fjögurra. Það geti þó reynst honum dýrkeypt og komið Sósíaldemókrötum í koll í næstu kosn- ingum sem eiga að fara fram árið 2022. Fimmtán síðna stjórnarsáttmáli, sem samþykktur var í vikunni sem leið, endurspeglar að miklu leyti stefnu Miðflokksins og Frjálslynda flokksins og tilslakanir Löfvens gætu orðið til þess að Sósíaldemókratar misstu stuðning vinstrimanna sem hafa kosið flokkinn. „Til að halda embætti for- sætisráðherra þurfti Löfven að greiða fyrir það með frjálslyndum umbótum,“ sagði sænska dagblaðið Dagens Nyheter. Á meðal þeirra tilslakana sem Löfven féllst á voru skattalækk- anir, tillaga um að leigjendur greiddu markaðsverð fyrir nýtt leiguhúsnæði og breytingar á vinnulöggjöfinni – allt tillögur sem forsætisráðherrann hafði hafnað fyrir kosningarnar. Vatn á myllu Vinstriflokksins? Þótt Jonas Sjöstedt, leiðtogi Vinstri- flokksins, féllist á að flokkurinn greiddi ekki atkvæði gegn Löfven í gær hótaði hann að leggja fram vantrauststillögu gegn stjórninni ef hún reynir að ná fram breytingum á vinnulöggjöfinni eða húsaleigulögum. Talið er þó ólík- legt að Vinstriflokkurinn standi við þessa hótun. Hann er aðeins með 28 sæti á þinginu og til að vantrauststil- laga verði tekin til afgreiðslu þurfa a.m.k. 35 þingmenn að styðja hana. Til að knýja fram vantrauststillögu þyrfti Vinstriflokkurinn að leita eftir stuðn- ingi þingmanna Moderaterna, Kristi- legra demókrata eða Svíþjóðardemó- kratanna. Stjórnmálaskýrendur telja að það myndi jafngilda „pólitísku sjálfsmorði“ ef Vinstriflokkurinn felldi stjórn Sósíaldemókrata og Umhverfis- flokksins í samstarfi við hægriflokk- ana. Talið er líklegt að tilslakanir Löf- vens verði til þess að fylgi Vinstri- flokksins aukist á kostnað Sósíaldemó- krata í næstu kosningum. Sigurinn gæti reynst dýrkeyptur  Stefan Löfven þurfti að fallast á miklar tilslakanir í viðræðum við Miðflokkinn og Frjálslynda flokk- inn til að halda völdunum  Mikill meirihluti á þinginu andvígur stjórnarmyndun með þjóðernissinnum AFP Myndar minnihlutastjórn Stefan Löfven (t.h.) brosir eftir að hafa náð kjöri í embætti forsætisráðherra með minnihluta atkvæða á sænska þinginu. Óseyrarbraut 12, 220 Hafnarfirði | Klettagörðum 5, 104 Reykjavík | stolpigamar@stolpigamar.is Gámaleiga Er gámur lausnin fyrir þig? Við getum líka geymt gáminn fyrir þig 568 0100 stolpigamar.is HAFÐU SAMBAND Búslóðageymsla z Árstíðabundinn lager z Lager z Sumar-/vetrarvörur Frystigeymsla z Kæligeymsla z Leiga til skemmri eða lengri tíma

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.