Morgunblaðið - 19.01.2019, Síða 26

Morgunblaðið - 19.01.2019, Síða 26
26 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. JANÚAR 2019 Seint á jólaföstu birt-ist frétt á vef RÚVþar sem stóð með-al annars: „Árlega deyja um það bil 300 þúsund börn undir 5 ára vegna sýkinga sem eru ollnar af þessari bakteríu þannig að hún getur verið mjög skaðleg …“ Sá mikli fróðleikur sem hér var miðlað fór fyrir ofan garð og neðan hjá mörgum vegna orðalagsins „eru ollnar“. Málfarspistlar og spjallþræðir loguðu. Ýmsir töldu þetta orðalag hreinlega rangt; eðlilegt væri að tala um sýkingar sem er valdið af bakteríunni. Aðrir reyndu að réttlæta orðfærið en gekk þó brösuglega. Spurningin er hvort um er að ræða sögnina valda eða vella. Út frá merkingu má búast við valda; bakterían veldur sýkingum. Meinið er að lýsingarháttur þátíðar af valda er venjulega valdið og í nefnifalli fleirtölu í kvenkyni þá vænt- anlega „valdnar“ en ekki „ollnar“. Orðmyndin sjálf bendir fremur til sagn- arinnar vella ‘sjóða, krauma’ og út af fyrir sig er ollnar rétt mynd af lýsingarhætti þeirrar sagnar. Það er þó erfitt að sjá fyrir sér að baktería „velli“ sýkingu. Hér virðast orðmynd og merking stangast illilega á. Glöggur maður kvað upp úr með að engin leið væri að fá botn í um- rætt orðalag með sögninni vella. Hins vegar skildist setningin ef um væri að ræða valda. Fyrir utan hina sérkennilegu orðmynd ollnar er þó að auki sá hængur á að valda stýrir þágufalli (valda einhverju); hún ætti því ekki að mynda þolmynd af þessum toga (rétt væri sýkingum er valdið eða ollið en ekki sýkingar eru ollnar). Er þetta þá tómt rugl? Kannski – en það er regla í óreiðunni. Við þurfum að átta okkur á tvennu. Í dæminu að ofan er ekki bara notuð óvenjuleg mynd af lýsingarhættinum (ollnar) heldur birtist þar líka nefnifallshneigð eða nefnifallssýki. Nefnifallssýki lætur lítið yfir sér enda hefur ekki verið amast við henni eins mikið og þágufallssýkinni alræmdu (t.d. mér langar í stað mig langar). Nefnifallssýki er þó tals- vert algeng með mörgum sögnum, t.d. úthluta, eins og þegar sagt er aflaheimildir voru úthlutaðar í stað aflaheimildum var úthlutað. Dæmið má þá útskýra svona: Hliðarmynd við lýsingarháttinn valdið er ollið (sem er væntanlega orðin til fyrir áhrif frá þátíðinni olli, ollum/ ullum). Hjá þeim sem hafa hliðarmyndina ollið er lýsingarháttur þá- tíðar í nefnifalli fleirtölu í kvenkyni rétt myndaður sem ollnar. Þar sem valda stýrir þágufalli hefði verið unnt að segja sýkingum er ollið. En sá sem setningin er höfð eftir er greinilega líka með nefnifallssýki og því víkur þágufallið fyrir nefnifalli þegar það gegnir hlutverki frumlags í þolmynd. Þar af leiðandi er alveg rökrétt (miðað við málfar mælandans) að segja sýkingar eru ollnar (og sýkingar sem eru ollnar). Þetta gefur augaleið þegar búið er að benda á það, ekki satt? Eða eins og virtur málfræðingur sagði eitt sinn í mín eyru: „Allt sem er sagt er rétt – nema það sem er augljóslega vitlaust.“ Málsvörn málvillunnar Tungutak Þórhallur Eyþórsson tolli@hi.is Nefnifallssýki virðist ónæm fyrir sýklalyfjum. Þar sem ég sat á morgunfundi Landsvirkjunarsl. þriðjudagsmorgun þar sem fjallað var umorkumarkaði í mótun varð mér hugsað tilfyrstu ára minna á Morgunblaðinu, þar sem ég hóf störf á sama ári og Landsvirkjun var stofnuð. Þá var eitt mál öðrum fremur reglulega á dagskrá í umræðum á ritstjórninni: Stórvirkjanir og stóriðja. Landsvirkjun var að verða til, Búrfellsvirkjun til um- ræðu svo og viðræður við Svissneska álfélagið um byggingu álversins í Straumsvík. Ráðamönnum þjóðarinnar var orðið ljóst að sjávar- útvegurinn einn gat ekki staðið undir nútíma þjóð- félagi á Íslandi. Það varð að skjóta fleiri stoðum undir rekstur þjóðarbúsins. Og við blasti að það hlaut að vera nýting á annarri mestu auðlind þjóðarinnar á þeim tíma, orku fallvatnanna. Ekki voru allir sammála um það eins og við mátti búast. Það urðu harðar deilur á Alþingi um hvort byggja ætti stórvirkjun við Búrfell og hvort reisa ætti fyrsta álverið á Íslandi. Utan þings voru tveir kraftmiklir baráttumenn fyrir þeirri stefnubreytingu, sem þarna var í mótun í at- vinnumálum Íslendinga. Það voru Jóhannes Nordal, sem þá var orðinn seðlabankastjóri og stjórnar- formaður Landsvirkjunar, og Eyj- ólfur Konráð Jónsson, einn af þrem- ur ritstjórum Morgunblaðsins. Með því að hlusta á umræður þeirra í milli varð mér ljóst að þeir sóttu innblástur í þessari baráttu til Einars Benedikts- sonar, skálds, sem einna fyrstur manna sá fyrir sér mikil orkuver rísa á Íslandi. Þeir Jóhannes og Eykon voru að berjast fyrir því að hugsjónum hans yrði hrint í framkvæmd. Skáldið kom hins vegar ekki við sögu á morgunfundi Landsvirkjunar á dögunum en ekki úr vegi að fyrir- tækið haldi því til haga að rætur þess má rekja rúm- lega hundrað ár aftur í tímann, til hugsjóna Einars Benediktssonar. Næstu áratugi urðu áfram harðar deilur um stór- virkjanir og stóriðju en smátt og smátt breyttust for- sendur fyrir þeim deilum og þar kom að umhverfis- málin urðu meginálitaefnið en ekki hvort við værum að hleypa erlendum auðhringum inn í landið og selja þeim orku á of lágu verði. Eftir að sigur vannst í þorskastríðunum við Breta var farið að huga meira að uppbyggingu fiskistofnanna við landið og kannski má segja að aðhald umhverfis- verndarsinna í umræðum um stórvirkjanir hafi verið slíkt uppbyggingarstarf í annarri mynd vegna þess að óspillt náttúra landsins er auðvitað undirstaðan að því að á þessari öld hefur orðið til nýr undirstöðu- atvinnuvegur, sem er ferðaþjónustan. Á ráðstefnu um sjávarútvegsmál í Hörpu um miðjan nóvember sl. varð ljóst að sjávarútvegurinn hefur gengið í endurnýjun lífdaga og er allt önnur og breiðari atvinnugrein en áður. Upplifunin á ráðstefnu Landsvirkjunar á dögunum var sú, að það sama væri að gerast í orkugeiranum, þar væru að verða breytingar, sem væru að breikka mjög og efla þennan þátt í atvinnulífi þjóðarinnar. Um þann þátt var fjallað í Viðskiptablaði Morgun- blaðsins í fyrradag. Þar var rætt við Stefaníu G. Hall- dórsdóttur, framkvæmdastjóra hjá Landsvirkjun, um raforkusölu til gagnavera, sem nú kaupa um 6% þeirr- ar orku, sem fer til svokallaðra stórnotenda. Um gagnaverin segir Stefanía í þessu viðtali: „Við höfum lengi átt viðskiptasamband við mjög stóra og trausta kaupendur. Nú hafa bæst fleiri fyrir- tæki á listann og þau hafa aðrar þarfir. Þau þurfa meiri sveigjanleika í viðskiptum við okkur og einkenni á þessari starfsemi er að þau byrja gjarnan smátt, t.d. í 10 MW í fyrsta áfanga en færa sig á nokkrum árum upp í 50-60 MW.“ Gagnaverin koma greinilega víða við sögu því að Stefanía segir: „...en gagnaverin hér á Íslandi eru t.d. nýtt í bílaiðnaði en einnig í lyfjahermum sem notast er við í stað lyfjaprófana á fólki. Þar er um að ræða svokallaða ofurtölvureikn- inga sem alþjóðleg stórfyrirtæki nýta í sífellt meira mæli.“ Ráðstefna Landsvirkjunar sýndi að við erum ber- sýnilega á réttri leið í uppbyggingu margvíslegs iðn- aðar, sem byggist á orku fallvatnanna og að það er hægt að nota hana til fleiri þarfa en að knýja álver. Fyrir samfélag okkar er gríðarlega mikilvægt að svo mikil endurnýjun skuli hafa orðið og standa yfir bæði í sjávarútvegi og orkuiðnaði. Og augljóst að hún byggist að verulegu leyti á nýjum kynslóðum Íslend- inga, sem hafa haft meiri og betri tækifæri til mennt- unar en eldri kynslóðir. Menntunin er að skila sér. Á næstu árum hlýtur athyglin að beinast í stór- auknum mæli að ferðaþjónustunni, sem er að slíta barnsskónum. Þar eru alls konar byrjunarvandamál á ferð, sem takast þarf á við strax, en þegar horft er yfir atvinnulífið allt er ástæða til bjartsýni. Það er mikilvægt vegna þess að það er orðið brýnt að takast á við annars konar vandamál, sem tengjast bæði félagslegum þáttum og líka því, sem kalla má sál- arlífi þjóðarinnar. Þar eru á ferð viðfangsefni, sem hafa verið vanrækt og snúa ekki sízt að yngri kyn- slóðum. Vandamál æsku Íslands á 21.öldinni eru annars kon- ar en áður hafa verið til staðar en ekki auðveldari við- ureignar. Og kannski er svolítið erfitt fyrir eldri kyn- slóðir að skilja þau. En einmitt þess vegna er það átak í barnamálum, sem Ásmundur Einar Daðason, félags- og barna- málaráðherra, setti af stað í upphafi ráðherraferils síns og Erna Kristín Blöndal, lögfræðingur, leiðir, um snemmtæka íhlutun í málefnum barna, líklega miki- vægasta mál, sem er á dagskrá núverandi ríkis- stjórnar. Orkugeirinn í endurnýjun Landsvirkjun á að halda hlut Einars skálds Benediktssonar til haga. Af innlendum vettvangi … Styrmir Gunnarsson styrmir@styrmir.is Vel færi á því í íslenskri tungu aðkalla það, sem Þjóðverjar nefna Wohlfartsstaat og Bretar welfare state, farsældarríki, en nafnið vel- ferðarríki er líklega orðið hér rót- fast, þótt af því sé erlendur keimur. Átt er við ríki, þar sem margvíslegur bótaréttur hefur tekið við af hefð- bundinni fátækraframfærslu. En hvað sem króginn er kallaður, leikur enginn vafi á um faðernið. Þýski járnkanslarinn Otto von Bismarck er jafnan talinn faðir velferðarríkis- ins. Bismarck varð kanslari hins sam- einaða þýska keisaraveldis í janúar 1871 og tók þegar til við að treysta ríkisheildina og berja niður þá, sem hann taldi ógna völdum sínum. Fyrst sneri hann sér að kaþólsku kirkjunni, sem laut að hans dómi er- lendu valdi, leysti upp Kristmunka- regluna, sleit stjórnmálasambandi við Páfagarð, hóf eftirlit með trúar- bragðafræðslu í skólum, skyldaði fólk til að ganga í borgaralegt hjóna- band og varpaði jafnvel nokkrum óhlýðnum biskupum í fangelsi. Kirkjan tók snarplega á móti, en eft- ir margra ára þóf náði járnkanslar- inn samkomulagi við hana. Næst sneri Bismarck sér að sósí- alistum, en þýski jafnaðarmanna- flokkurinn hafði verið stofnaður 1875, og hlaut hann 9% atkvæða í kosningum til þýska Ríkisdagsins 1877. Notfærði Bismarck sér, að árið 1878 var tvisvar reynt að ráða keis- arann af dögum, og takmarkaði með lögum ýmsa starfsemi flokksins. Voru þau lög í gildi næstu tólf ár. En jafnframt reyndi Bismarck að kippa stoðunum undan jafnaðarmönnum með því að taka sjálfur upp ýmis baráttumál þeirra. Árið 1883 voru sjúkratryggingar teknar upp í Þýskalandi og árið 1884 slysatrygg- ingar. Elli- og örorkutryggingar voru teknar upp 1889, ári áður en Bismarck hrökklaðist frá völdum. Fóru mörg önnur ríki næstu áratugi að fordæmi Þjóðverja. Ekki varð hinum grálynda kansl- ara að þeirri von sinni, að í velferðar- ríkinu þryti jafnaðarmenn erindi. Þeir uxu upp í að verða um skeið stærsti flokkur Þýskalands. Og af- kvæmi hans, velferðarríkið, óx líka ört á tuttugustu öld. Er það líklega víða orðið ósjálfbært, og rætist þá vísuorðið: Í draumi sérhvers manns er fall hans falið. Athugasemdir og leiðréttingar vel þegnar Hannes H. Gissurarson hannesgi@hi.is Fróðleiksmolar úr sögu og samtíð Faðir velferðar- ríkisins Norðurgrafarvegur 4 - 116 Kjalarnes Lager- og iðnaðarhúsnæði við Norðurgrafarveg 4 á Esjumelum. 150 m2 iðnaðarbil, þar af ca 50 m2 milliloft, til leigu við Norðurgrafarveg. Frágangur á húsinu er mjög góður, málað gólf, burðarmikið milliloft, hitablásari í lofti, 3ja fasa rafmagn til staðar og salerni. Niðurföll eru í gólfi. Háar innkeyrsludyr eru á húsnæðinu (4,8 m). Góð aðkoma. Laust strax. Fallegt ca 206 m2 raðhús með bílskúr, þar af eru ca 60 m2 óskráðir í ósamþykktum kjallara. Eignin skiptist í fjögur svefnherbergi, forstofu, baðherbergi, gestasnyrtingu/þvottahús, eldhús, sjónvarpshol, stofu, borðstofu og bílskúr. Í kjallara er stórt gluggalaust herbergi, geymsla og þvottahús með sturtuaðstöðu. Eignin hefur verðið mikið endurnýjuð á síðustu árum. Eignin er skráð hjá Þjóðskrá Íslands 146,6 m2, þar af íbúð 118,6 m2 og bílskúr 28 m2. Kjallari er óskráður. V. 67,9 m. Einar Páll Kjærnested, löggiltur fasteignasali Þverholti 2 // Mosfellsbæ // Sími 586 8080 fastmos.is // fastmos@fastmos.is Svanþór Einarsson Löggiltur fasteignasali S. 698 8555 Sigurður Gunnarsson Löggiltur fasteignasali S. 899 1987 Opið hús í dag laugardag frá kl. 15:00 til 15:30 Stóriteigur 19 - 270 Mosfellsbær Til leigu

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.