Morgunblaðið - 19.01.2019, Qupperneq 29

Morgunblaðið - 19.01.2019, Qupperneq 29
UMRÆÐAN 29 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. JANÚAR 2019 Ágæti Sigurður Ingi. Ég heiti Inda Björk Alexandersdóttir, rétt að verða 43 ára, gift og er móðir þriggja drengja á aldrinum 15 til 25 ára. Vegamál og umferð- aröryggi hafa verið mér ákveðið hugðar- efni í mörg ár. Ég sat í Umferðarráði í nokk- ur ár fyrir hönd Bifhjólasamtaka lýðveldisins, Snigla, og núna hef ég það að atvinnu að aka þjóðvegi landsins á 10 hjóla dráttabíl með heildarþunga upp á 44 tonn og 49 tonn á undanþágu sem er talsvert algengt í fiskflutningum. Hinn 5. október 2018 sátum við Sigurður Hafsteinsson, einn af eig- endum Sigga danska. ehf., umferð- arþing á Grand hóteli þar sem um- fjöllunarefni var aukin slysatíðni erlendra ferðamanna á Íslandi. Það kom okkur Sigurði verulega á óvart að hvorki þú né Þórdís Kolbrún Gylfadóttir ferðamálaráðherra gát- uð setið þingið vegna annarra anna þótt það hafi verið ákveðin bót að sjá ykkur taka þátt í umræðum á pallborði. Hins vegar var ég ein af þeim sem sátu þingið og fékk að skjóta fram spurningu sem hljóðaði svo: Hvað er hægt að gera? Hvernig getum við spornað við þeirri plágu sem erlendir ferðamenn eru orðnir úti á þjóðvegi? Ég sem atvinnubílstjóri og keyri flestar mínar ferðir austur á Seyðis- fjörð er farin að þekkja vegakerfið nokkuð vel, ég veit hvar hætturnar liggja, hvar slæmu kaflarnir eru, hvar er búið að vanta stikur í lang- an tíma, hvaða nýir viðgerðir kaflar eru illa gerðir og svo framvegis. Til að nefna þetta hörmulega banaslys sem varð á brúnni yfir Núpsá 27. desember sl. þá get ég líka sagt þér að í hvert sinn sem ég hef keyrt Suðurlandið hefur mér oft komið í hug á ákveðnum köflum og brúm: „hvenær verður banaslys hérna?“ og núna hefur það orðið, hörmulegt banaslys þar sem þrír láta lífið sök- um þess að öryggi í vegamálum og notkun á öryggisbúnaði er í lág- marki. Það sló okkur Sigurð líka á þessu málþingi – og hefur reyndar gert lengi – hvað vegagerðin er fjár- svelt. Ég veit að Vegagerðin hefur oftar en ekki verið öll af vilja gerð til að sjá vegakerfinu fyrir sóma- samlegri vetrarþjónustu en það er eitt sem við landflutningabílstjórar þurfum að lifa við; arfaslæm vetrar- þjónusta. Ég hef hringt í neyðar- þjónustu Vegagerðarinnar seint að kvöldi til og beðið um hálkuvörn á Námaskarðið austan við Mývatn og sá sem sat fyrir svörum spurði mig hvort ég væri í alvörunni að ætlast til þess að Vegagerðin ætti að þjón- usta okkur vörubílstjórana allan sólahringinn. Svar mitt var já; við erum nefnilega vinnandi fólk, við erum foreldrar, börn, systkini og allir vilja fá okkur heim. En þetta kvöld var Námaskarðið afar hált vegna gufu sem liggur yfir þjóðveg- inn í ákveðinni átt og myndar ís- ingu. Þetta kvöld fór ég niður skarðið með bílinn og vagninn í vinkil og vonaði að ég færi út af þeim megin sem ég dræpi mig ekki ef ég færi út af. Kaldhæðnin í þessu er að maðurinn sem þjón- ustar Námaskarðið býr á Mývatni og er allur af vilja gerður til að þjónusta skarðið betur og lengur, en hendur hans eru bundnar vegna fjárskorts Vegagerðarinnar. Það er ekkert vit í því að þjónusta t.d. Norðausturland ekki eftir kl. 19 á kvöldin á þeim forsendum að það er á þjónustusvæði 2 eða 3. Við sem keyrum vöruflutningabíla erum alltaf á ferðinni á þessum svæðum burtséð frá því hvað annarri um- ferð líður, við þurfum þjónustu. Hvað vegtollana varðar, Sig- urður Ingi, þá getum hvorki ég sem almennur bifreiðaeigandi eða maðurinn minn, sem er meðeigandi í fyrirtækinu Sigga danska ehf., samþykkt þessa vegtolla. Það er verið að margrukka okkur um gjöld sem hafa ekki skilað sér í vegakerfið. Með öðrum orðum þá er það staðreynd að við erum búin að borga fyrir uppbyggingu vega- kerfisins og alla þá þjónustu sem Vegagerðinni ber að veita okkur með sérstökum sköttum eins og þungaskatti og bifreiðaskatti. Í mörg ár hafa hefur einungis brota- brot af þeim sköttum skilað sér til vegakerfisins og lögbundinnar þjónustu, sem er arfaslæm í ákveðnum landshlutum. Við bif- reiðaeigendur og atvinnumenn úti á þjóðvegum söknum þessa fjár- magns og ég fyrir mitt leyti og fyr- ir hönd fyrirtækisins Sigga danska ehf. neita að samþykkja þessa veg- tolla. Þetta er ekki siðferðislega rétt og ég hvet þig og ykkur til að finna aðra lausn á þessu máli því við þjóðin eigum rétt á því að aka um á öruggu vegakerfi án þess að vera margsköttuð og rukkuð fyrir það án alls öryggis um að það skili sér, en það er nákvæmlega það sem hef- ur verið að gerast hér á landi und- anfarin ár. Ég spurði á umferðarþinginu hvað væri hægt að gera og það sem mig langar til að leggja af mörkum er að bjóða ykkur Þórdísi Kolbrúnu í för með mér og okkur sem ferð- umst austur á Seyðisfjörð. Mig langar til að sýna ykkur vinnutækið okkar, þjóðveginn með okkar aug- um, sýna ykkur ástandið, benda ykkur á hættulegu kaflana og hvað hefur verið gert gott. Ég hvet ykkur eindregið til að þiggja þetta boð mitt. Ég lofa þér og ykkur áhugaverðu ferðalagi í okkar allra bestu dráttarbílum, þetta verður líka gaman. Opið bréf til Sigurðar Inga Jóhannssonar Eftir Indu Björk Alexandersdóttur » Vegakerfið, úrbætur og fjárlög til vega- framkvæmda. Sýn at- vinnufólks í akstri úti á þjóðvegum á vegakerf- inu og þjónustu Vega- gerðarinnar. Inda Björk Alexandersdóttir Höfundur er landflutningabílstjóri hjá Sigga danska ehf. inda@simnet.is Vantar þig ráðleggingar við sölu eignar þinnar? s 893 6001 Kópavogi | Selfossi | s 893 6001 | beggi@fasteignasalan.is Guðbergur Guðbergsson Löggiltur fasteignasali og leigumiðlari Mælum við það með fjölda þeirra olíutunna sem spik hans gefur okkur? Eða kjötmagninu sem við skerum af, og neytum svo eða selj- um? Eða metum við virði hvala út frá skemmtun og fræðslu, út frá hvala- skoðun og þá eftir því hversu miklum fjár- munum ferðamenn eyða til að fá að sjá dýrin í sínu náttúrulega umhverfi? Fyrir sumum er gildi hvala gef- ið. Gildi tilveru þeirra og áhyggjur af velferð hvers dýrs, hvort sem það fær í sig sprengiskutul, flæk- ist í net humarveiðimanna eða verður fyrir flutningaskipi. Viðhorf okkar breytast með tím- anum. Saga hvala í menningu okk- ar er í laginu eins og stundaglas. Neðri hlutinn táknar ríkulega for- tíð goðsagna og hefða sem voru til staðar áður en iðnaðarhvalveiðar hófust fyrir alvöru. Efri hlutinn er svo síaukinn áhugi á hvölum sem birtist í hvalaskoðun og hvala- söngvum – og eftir stendur þá þessi örmjói bútur í miðjunni, frá 1930 til rúmlega 1960, örþunnt mittið. Sérhver veidd- ur hvalur var smætt- aður niður í það hvernig hann stóðst samanburð við stærstu skepnu sem hefur lifað á jörðinni, fullorðna steypireyði, og olíuna sem hægt var að draga úr hon- um. 110 tunnur eða 15 þúsund lítra. Á þeim tíma þegar hvalveiðifyrirtæki stóðu í blóðugri sam- keppni við Suðurheimskautið var notast við „steypireyðareiningu“ til að fylgjast með veiðunum. Hver hvalur var mældur út frá stærsta dýri sem uppi hefur verið á jörð- inni, því magni af olíu sem hægt var að vinna úr steypireyði. Tvær langreyðar voru eitt steypireyðar- gildi eða eitt BWU. Tveir og hálf- ur hnúfubakur voru sömuleiðis eitt BWU. Það er ekki nema um áratugur síðan vísindamenn byrjuðu að meta víðtækt hlutverk hvala í vist- fræði hafsins. Fyrir þann tíma snérust vistfræðilegar rannsóknir á hvölum einkum um afrán þeirra – hve mikinn fisk og átu þeir éta. Niðurstöður þessara rannsókna voru stundum settar fram sem hagsmunaárekstur á milli manna og hvala og gefið í skyn að hvalir væru í beinni samkeppni við fisk- veiðar. Þar af leiðandi bæri að halda fjölda þeirra í skefjum. Ný- leg yfirlýsing frá Hafrannsókna- stofnun á Íslandi endurtekur þess- ar hugmyndir þar sem því er haldið fram að hvalir éti í kringum 6 milljónir tonna af fiski og svifi árlega. En hvalir eru miklu meira en aðeins neytendur. Þeir eru líf- fræðilegir verkfræðingar sem gegna margvíslegu vistfræðilegu og efnahagslegu hlutverki. Hér eru örfá dæmi: Hvalir færa næringarefni frá djúpsævinu, þar sem margir þeirra nærast, upp á yfirborðið, þar sem þeir hvílast og gefa frá sér úrgang. Þetta ferli, sem kall- ast hvalapumpan, losar um köfn- unarefni, járn, fosfór og önnur næringarefni í úrgangi (hægðum) sem þörungar svo neyta, sem eyk- ur grundvallarframleiðni sjávar. Þessi vöxtur getur aukið fjölda svifþörunga og jafnvel lífmassa fiska í hafinu. Hvalir geta líka einangrað kol- efni þegar þeir drepast, í formi hvalhræja. Þessi náttúrulegi hvaladauði er líka nauðsynlegur vistkerfi hundraða djúpsjávarteg- unda, en sumar þeirra hafa hvergi fundist nema á hvalhræjum og eiga á hættu að verða útdauðar ef þetta búsvæði þeirra hverfur. Þetta vistfræðilega hlutverk og gagnsemi þess fyrir okkur mann- fólkið hefur nýlega verið viður- kennt af Alþjóðahvalveiðiráðinu í ályktun um hvalastofna og vist- kerfi, og gagnsemi þess fyrir manninn. Rannsóknir okkar og skilningur er enn að mótast. Undanfarið ár, sem styrkhafi Fulbright NSF Arctic, hef ég rannsakað flutning næringarefna með skíðishvölum sem ferðast frá norðurhöfum í mildari og suð- rænni höf, ferli sem kallast hið mikla hvalafæriband. Margar hvalategundir ferðast nær heim- skautunum til að nærast á sumrin og fara svo í hlýrri höf á veturna til þess að fjölga sér og eignast kálfa. Þeir nærast venjulega ekki í þessum næringarlitlu vistkerfum, en þeir skilja eftir næringu frá heimskautasvæðunum í formi hvalhræja ef þeir drepast á þess- um slóðum. Ég mun mæla vistfræðileg áhrif þessara næringarefna, sem geta orðið fæða fyrir hákarla, háhyrn- inga og önnur lífsform, sem og næringarefni sem geta ýtt undir framleiðni í hafinu. Þessar ferðir hvalanna tryggja beina tengingu á milli hafsvæða á hæstu og lægstu breiddargráðunum. Nú í vetur meta Íslendingar virði hvala. Meta þeir það aðallega út frá tekjum af sölu á kjöti? Tekjum af skipulagðri hvala- skoðun eða er virði hvala mest í formi líffræðilegs hlutverks þeirra, náttúrlegri tilveru þeirra? Sem stærstu dýr hnattarins, sem koma reglulega upp á yfir- borðið til að ná sér í súrefni, eru hvalir einhverjar sýnilegustu, og oft umdeildustu, skepnur sjávar- ins. Geta þeir hjálpað okkur að berjast við loftslagsbreytingar, eða endurvakið ævafornar boðleið- ir næringar, lífríki hafsins sem og mannkyni til gagns? Um leið og fjöldi þeirra vex og þeir snúa aft- ur á fornar fengistöðvar þá mun- um við komast að því. Hvers virði er hvalur? Eftir Joe Roman » Afurðir hvala hafa löngum verið mik- ilvægar en þeir gegna einnig mikilvægu hlut- verki í vistkerfi sjávar. Joe Roman Höfundur er fræðimaður og styrkhafi hjá Fulbright-National Science Foundation í Háskóla Íslands og höfundur bókarinnar Whale (Reaktion). romanjoe@gmail.com

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.