Morgunblaðið - 19.01.2019, Side 32

Morgunblaðið - 19.01.2019, Side 32
32 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. JANÚAR 2019 ✝ Jón Sigurðssonfæddist 1. mars 1932 á Ljótsstöðum í Vopnafirði. Hann lést á hjúkrunar- heimilinu Fossahlíð á Seyðisfirði 14. janúar 2019. Foreldrar hans voru Sigurður Gunnarsson, f. 5.11. 1895, bóndi og odd- viti á Ljótsstöðum, d. 24.5. 1974, og Jóhanna Sigur- borg Sigurjónsdóttir, húsfreyja frá Ytri-Hlíð, f. 9.11. 1900, d. 5.6. 1992. Systkini Jóns eru Gunnar, f. 1924, d. 2015, Sigurjón, f. 1925, d. 2008, Ágúst, f. 1926, Sigurð- ur, f. 1928, d. 2010, Jörgen, f. 1930, d. 2000, Valgerður, f. 1933, Anna, f. 1935, Katrín, f. 1936, Jóhann, f. 1940, d. 1997, og Árni, f. 1943. Jón kvæntist 30.6. 1957 Svan- björgu Sigurðardóttur, f. 19.5. 1935 á Seyðisfirði, húsfreyju á Hánefsstöðum. Foreldrar henn- ar voru Sigurður Vilhjálmsson, kaupfélagsstjóri og síðar bóndi á Hánefsstöðum, f. 7.3. 1892, d. 25.2. 1968, og Svanþrúður Vil- hjálmsdóttir húsfreyja, frá Brekku í Mjóafirði, f. 7.5. 1894, d. 3.11. 1989. gekk í farskóla þar eins og þá tíðkaðist. Hann vann við búið heima og tilfallandi verkefni sem unglingur og var í póst- ferðum um sveitina. Hann fór á tvær vertíðir til Vestmannaeyja og vann í málningarverksmiðj- unni Hörpu í Reykjavík sem ungur maður. Árið 1958 tók hann ásamt Svanbjörgu við búi tengdaföður síns á Hánefs- stöðum. Jón gegndi ýmsum ábyrgðarstörfum á starfs- ævinni, sat m.a. í hreppsnefnd Seyðisfjarðarhrepps og var ár- um saman oddviti, þar til hrepp- urinn og Seyðisfjarðar- kaupstaður voru sameinaðir árið 1990. Hann tók að sér for- mennsku í sjúkrasamlagi Seyð- isfjarðarhrepps, sat í stjórn Kaupfélags Austfjarða, umboðs- maður Brunabótafélags Íslands ásamt því að sinna veðurathug- unum fyrir Veðurstofu Íslands og flugvallarumsjón á flugvell- inum á Seyðisfirði. Þá var hann meðal stofnenda Harmonikku- félags Seyðisfjarðar. Hann hélt dagbók eftir að hann hóf bú- skap á Hánefsstöðum og fylgd- ist grannt með veðurfari og skráði niður. Var ósjaldan leit- að til hans þegar verið var að meta snjóflóðahættu á Seyðis- firði. Útför Jóns fer fram frá Seyð- isfjarðarkirkju í dag, 19. janúar 2019, og hefst athöfnin klukkan 11. Börn Jóns og Svanbjargar: 1) Sigurður, f. 31.5. 1958, verkfræð- ingur á Seyðis- firði. 2) Vilhjálm- ur, f. 22.3. 1960, fv. bæjarstjóri á Seyð- isfirði. 3) Jóhann, f. 25.4. 1961, fram- kvæmdastjóri á Seyðisfirði, giftur Ragnhildi Billu Árnadóttur. Börn þeirra eru a) Eva, f. 27.5. 1992, í sambúð með Stefáni Rúnari Guðnasyni, b) Ingvar, f. 25.3. 1995, c) Jón Arn- ór, f. 3.3. 2000. 4) Gunnar, f. 29.10. 1965, bæjarritari í Fjarðabyggð, giftur Þórunni Gyðu Kristjánsdóttur. Börn þeirra eru a) Arnar Birgisson, f. 27.4. 1981, maki Patty Lum- inouz, b) Guðný Ósk, f. 17.4. 1992, maki Oleg Pesok, og c) Brynja, f. 19.4. 1994, unnusti Úlfur Björnsson. 5) María Svan- þrúður, f. 26.12. 1971, ráðu- nautur í Reykjahverfi. 6) Helgi, f. 16.2. 1975, verkfræðingur í Reykjavík, giftur Sonju Rúd- ólfsdóttur Jónsson. Börn þeirra eru Katarina Björg, f. 20.9. 2007, og Tómas Björn, f. 25.7. 2012. Jón ólst upp á Ljótsstöðum og Elsku pabbi minn. Nú skilur leiðir okkar en þú kvaddir þenn- an heim á mánudaginn var. Minningarnar eru margar frá okkar samverustundum. Ein fyrsta minning mín er þegar þú komst að mér að kvöldi þar sem ég sofnaði á gólfinu, væntanlega út frá því að dóta mér eitthvað lengur en átti að vera. Þá tókst þú mig upp og færðir mig í rúm- ið mitt en ég man eftir hlýjum faðmi þínum þar sem þú hefur verið að koma frá verkum úti við. Og þær eru svo fjöldamargar góðu minningarnar upp í gegn- um uppvaxtarár mín. Eflaust hefur það oft reynt á þig hversu athafnasamur ég var og þá í ýmsu því sem ég átti ekki að gera. Með aldrinum lærðist mér þó það sem ekki mátti. Mér hefur oft orðið hugs- að til þess hvernig þú leiðbeindir og fræddir með þínum hætti. Það var gert af yfirvegun, með rólega og hógværa fasinu sem alla tíð einkenndi þig. Þessa eiginleika þína ásamt þrautseigju, raunsæi og ósér- hlífni kunni ég svo vel að meta og fannst alltaf svo einstaklega gott að vera með þér bæði í leik og starfi. Það eru mikil forrétt- indi að alast upp með foreldrum sínum í sveit við margþætt störf. Í það minnsta kenndi það mér svo fjöldamargt og ekki síst er það að þakka þolinmæði þinni. Þau voru ekki fá verkefnin sem þú tókst á við með bjartsýni að vopni og sigraðist á. Að fá að taka þátt í þeim með þér voru forréttindi. Með söknuði kveð ég þig. Gunnar. Þegar langri samfylgd lýkur eru ótal hugsanir og minningar sem vakna í huganum. Faðir minn ólst upp á Ljótsstöðum í stórum systkinahópi við lítil efni. Það var mikil vinna að sinna búinu auk þess sem hann tók að sér póstferðir um sveitina oft við erfiðar aðstæður. Hann naut ekki langrar skólagöngu en afl- aði sér þekkingar og reynslu í skóla lífsins og lærði af færum einstaklingum sem voru honum samtíða eins og fólk hefur gert í gegnum aldirnar og tíðkaðist áð- ur en formlegt skólakerfi varð til. Hann varð með því móti vel að sér á mörgum sviðum. Það er fátt sem er betra veganesti í líf- inu en yfirvegun, hófsemi og heilbrigð skynsemi og það hafði hann í ríkum mæli. Hann hafði heilbrigð gildi og lifði og starfaði ætíð í samræmi við þau. Búið á Hánefsstöðum þegar foreldrar mínir tóku við var lítið í fyrstu. Smám saman var aukið við ræktun og framleiðslu. Efni voru lítil og vinnan mikil og það þurfti að fara vel með. Það fylgdi þeim alla tíð en að sama skapi skorti ekki áræði til að ráðast í framkvæmdir og byggja upp. Byggð voru ný hús fyrir reksturinn og nýtt íbúðarhús. Í endurminningunni eru þessi framkvæmdaár eftirminnileg og skemmtileg þótt vinnan hafi ver- ið mikil og oft mikið álag. Hann var ósérhlífinn og eins og það er góður kostur þá var hann stund- um ofnotaður. Bygging virkjun- ar fyrir búið árið 1986 var mikil framkvæmd sem tók á en hann hafði mikla ánægju af henni, var stoltur af virkjuninni og að vera sjálfum sér nógur með rafmagn og langaði til að virkja meira. Meðfram störfum við búið sinnti hann ýmsum félagsstörfum en þar ber hæst störf fyrir Seyð- isfjarðarhrepp þar sem hann var lengi oddviti. Hann vann öll verk sín af alúð og árvekni, gætti þess að sinna þeim skyldum sem hann tók að sér eins vel og hann gat. Mikil og oft erfið vinna tók sinn toll og um fimmtugt fór að bera á sliti í líkamanum, einkum í bakinu. Stundum svo að hann var óvinnufær. Þá sótti hann í eiginleika sem hann hafði í svo ríkum mæli sem var þrautseigja og oft var ótrúlegt hvað hann gat gert og hverju hann áorkaði þrátt fyrir veikindi og erfiðleika. Honum var það mikilvægt að geta unnið og fannst erfitt þegar hann gat það ekki lengur. Hann var ákaflega laginn og næmur og sá eiginleiki var ekki síst mikilvægur í umgengni við skepnurnar. Hann hafði næmt tóneyra og hafði yndi af tónlist. Hann og Jörgen bróðir hans söfnuðu sér fyrir harmonikku sem þeir keyptu í félagi þegar þeir voru unglingar á Ljótsstöð- um. Hann spilaði á harmonikku og hljómborð, þekkti ekki nótur en var mjög fær að spila eftir eyranu og næmur á tóntegundir. Hann kunni að meta góðan og vandaðan flutning, söng og hljóðfæraleik og gæði hljóðfær- isins skiptu hann máli. Mér þykir mjög vænt um að hafa getað lagt honum lið eftir því sem ég hef getað í gegnum tíðina, stundum á erfiðum stund- um þegar erfiðleikar og veikindi sóttu að. Eins og síðustu árin þegar heilsan fór að gefa sig og hann þurfti á meiri aðstoð að halda. Það sem mér er efst í huga á þessari stundu er þakklæti. Þakklæti fyrir ríkuleg og gef- andi samskipti alla tíð. Hann var ákaflega hjálpsamur við fólkið í kringum sig þegar á þurfti að halda og oft var það ekki síst hlý og yfirveguð nærvera sem skipti mestu máli. Sigurður. Tengdafaðir minn, Jón á Há- nefsstöðum, kvaddi þessa jarð- vist 14. janúar sl. Margar minn- ingar um hann hafa rifjast upp síðustu daga. Hann kenndi mér að umgangast dýr. Ég, dýra- hrædda konan, var allt í einu komin á fullt að mjólka kýrnar með honum, orðin mjög fróð um kindur og hlaupandi upp fjöll að smala. Gat meira að segja klapp- að kindunum á kollinn án vett- linga. Jón kenndi mér að bakka með stóra kerru aftan í traktor, bakka traktor að henni og tengja við. Þetta lét hann mig gera aleina því hann sagðist ætla að skreppa inn og fá sér kaffi- sopa. En ég sá hvar hann stóð á bak við stóran bíl á hlaðinu og reykti pípuna sína, að fylgjast með hvort tengdadóttir hans til- vonandi væri nú ekki búin að læra þetta nógu vel hjá honum. Jón var góður afi. Hann elsk- aði barnabörnin sín enda voru þau mjög hænd að honum. Hann bókstaflega gerði allt fyrir þau. Hann var mjög glaður þegar hann fékk nafna og þó að hann segði að Jón væri ekki nafn, fannst honum ekki leiðinlegt að fá Jón Arnór í fangið á skírn- ardaginn. Tengdafaðir minn var bóndi af lífi og sál. Sauðfé var hans uppáhald; hann talaði við það svo unun var að horfa á. Jón var einstaklega laghentur og alveg fram á síðasta dag vöfðust hlut- irnir ekki fyrir honum. Eitt sinn sagði ég við hann að mig langaði svo í snúrustaur í garðinn hjá mér og nokkrum dögum seinna mætti hann á traktor með tvo snúrustaura á kerrunni. Jóni fannst ég þurfa tvo snúrustaura vegna þess að það var svo góður yfirbyggður gangur á milli húss og bílskúrs. Hann var mjög músíkalskur, spilaði á harmon- ikku og orgel. Hann hafði gott tóneyra og sat oft með barna- börnin sín við orgelið og spilaði fyrir þau gamlar dægurlagaperl- ur, bara svona eftir eyranu. Jón var mjög stríðinn. Stund- um vissi ég ekki hvort ég ætti að taka hann alvarlega. Sagði ég oft við hann að hann þyrfti að fá lyf við stríðninni en hann sagðist taka nóg af lyfjum og glotti. Marga kaffisopana drukkum við við eldhúsborðið á Hánefs- stöðum og þá rifjaði hann upp gamlar sögur úr æsku frá Vopnafirði, sem mér fannst svo gaman að hlusta á. Pólitískur var hann og tók ég þá ákvörðun fljótt eftir okkar fyrstu kynni að vera ekkert að ræða pólitík við hann. Framsóknarflokkurinn átti allan hans stuðning og þar vorum við ekki sammála. Hann mátti ekkert aumt sjá hvorki hjá mönnum eða dýrum. Hann var alltaf mættur ef við Jóhann þurftum á hjálp að halda. T.d. mætti hann með orf og ljá að slá garðinn hjá okkur. Það var ekk- ert rafmagns- eða bensíndót. Síðasta árið hans var honum mjög erfitt. Alzheimer sótti hart að mínum manni. En hann átti góða að sem hjálpuðu honum. Ekki síst starfsfólkið á hjúkr- unarheimilinu Fossahlíð þar sem Jón var síðasta árið. Þar leið honum vel. Stundum fannst hon- um of vel hugsað um sig. Hafði hann stundum á orði að hann ætti það bara alls ekki skilið. Skrifaði hann oft þakkir til starfsfólks á servíettu og skildi eftir á borði. Að leiðarlokum vil ég þakka Jóni tengdaföður mínum fyrir samfylgdina, alla hans vináttu og elsku. Við hittumst síðar minn kæri. Þín tengdadóttir, Ragnhildur Billa. Afi minn, Jón Sigurðsson, kvaddi þennan heim síðastliðinn mánudag. Afi grínaðist oft með það hversu löng og leiðinleg skóla- gangan hans hefði verið, en formleg skólaganga var mjög stutt. Þrátt fyrir það mun mér reynast erfitt að finna jafn vel lesinn mann og með jafn sterka réttlætiskennd og hann afa minn. Það var sömuleiðis aldrei langt í húmorinn hjá honum afa og ef maður var ekki viss um hvort um væri að ræða alvöru eða grín þá sá maður fljótt svar- ið á svipnum hans þar sem hann setti upp góðlegt stríðnisglott ef um grín var að ræða, þetta sama góðlega stríðnisglott sé ég oft hjá föður mínum og systkinum hans. Afi hafði dálæti á því að tína ber á haustin, og ekki verra ef hann var með pípuna sína líka, en þegar ég var lítil gaf ég afa viðurnefnið „afi með pípu“, hann reykti pípu þegar ég var yngri. Þannig kýs ég að muna eftir honum; að tína ber undir Há- nefsstaðafjallinu með pípuna sína. Takk fyrir allt sem þú kennd- ir mér, allar sögurnar sem þú deildir með mér og allt hlaupið og súkkulaðið sem þú gafst mér úr nammiskápnum, elsku afi minn, þín verður sárt saknað. Guðný Ósk Gunnarsdóttir. Þessa seinustu daga hefur ein minning um þig, afi minn, staðið mjög nærri mér. Við fórum einu sinni saman í berjamó á Hánefs- stöðum til að tína aðalbláber. Mér finnst þessi berjamór lýsa þér ágætlega. Við gengum aðeins upp og út fyrir bæinn í fallegu haustveðri með hund með okkur. Síðan skildi leiðir þar sem hvort okkar leitaði að bestu lautinni. Ég ætl- aði sko að sýna að ég væri ekki einskis nýt og hamaðist við að tína. Þú virtist nú bara vera í ró- legheitum við tínsluna og ég taldi að ég hlyti nú allavega að ná jafn miklu og þú. En jæja, á daginn kom að ég hafði tínt helmingi minna. Þú hrósaðir mér samt eins og ég hefði tínt tí- falt á við þig. Ég hafði lítið spáð Jón Sigurðsson Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi, langafi og langalangafi, NJÁLL TRAUSTI ÞÓRÐARSON, andaðist á Hrafnistu Nesvöllum mánudaginn 7. janúar. Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju þriðjudaginn 22. janúar klukkan 13. Kolfinna Árnadóttir Ástfríður Svala Njálsdóttir Árný Dalrós Njálsdóttir Gísli Sigurðsson Jóhanna Njálsdóttir Kári Þorgrímsson Þórdís Anna Njálsdóttir Erlendur Salómonsson Kolfinna Njálsdóttir Óskar Birgisson og fjölskyldur Elskulegur bróðir og frændi okkar, ÞÓRARINN BRANDUR ÞÓRARINSSON, lést þriðjudaginn 8. janúar. Útför fer fram í Fossvogskirkju fimmtudaginn 24. janúar klukkan 15. Stefán Þórarinsson Sæunn Stefánsdóttir Svava Lóa Stefánsdóttir Pétur Helgason Helena Helgadóttir Helga Björk Helgadóttir Gunnar Þór Helgason Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og systir, GUNNLAUG EYGLÓ SIGFÚSDÓTTIR, Efstaleiti 71, Reykjanesbæ, lést á Landspítalanum við Fossvog föstudaginn 11. janúar. Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju fimmtudaginn 24. janúar klukkan 13. Ragnheiður Halldórsdóttir Ásgeir Torfason Halldóra M. Halldórsdóttir Hafsteinn Hilmarsson Halldór, Hilmar, Gunnlaugur Sveinn, Fanndís Harpa og systkini Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, SIGURÐUR EIÐSSON, andaðist í Brákarhlíð, Borgarnesi, þriðjudaginn 15. janúar. Útför hans fer fram frá Borgarneskirkju fimmtudaginn 24. janúar klukkan 14. Jónasína Halldórsdóttir Þorgerður Sigurðardóttir Ólafur F. Ólafsson Eiður Sigurðsson Genalyn Dela Cruz Halldór Steinar Sigurðsson Ingibjörg Ósk Sigurðardóttir og afabörn Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, MAGNÚS Þ. HAUKDAL JÓNSSON, frá Höll í Haukadal, lést á hjúkrunarheimilinu Sóltúni 10. janúar. Útförin fer fram frá Neskirkju föstudaginn 25. janúar klukkan 13. Sigurjón Kristjánsson Bodil Kristjánsson Jón Magnússon Nína Agnarsdóttir Ása Magnúsdóttir Sigurður Karlsson Sigurlína Magnúsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, TEITUR JENSSON, lést á Hrafnistu DAS Boðaþingi miðvikudaginn 9. janúar. Jarðarför hans fer fram frá Digraneskirkju í Kópavogi föstudaginn 25. janúar klukkan 13. Elsie Sigurðardóttir Sigmar Teitsson Hafdís Hlöðversdóttir Vilborg Teitsdóttir Helgi V. Sverresson barnabörn og barnabarnabörn

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.