Morgunblaðið - 19.01.2019, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 19.01.2019, Blaðsíða 35
MINNINGAR 35 Hjónaminning MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. JANÚAR 2019 Hallgrímur Guð- jónsson var fæddur í Hvammi í Vatns- dal 15. janúar 1919 og hefði því orðið 100 ára núna 15. janúar síðastliðinn, en hann lést 3. ágúst 2018. Hann var sonur hjónanna Rósu Ívarsdóttur og Guðjóns Hall- grímssonar. Árið 1946 hóf Hallgrímur svo búskap á hálfum Hvammi sem hann keypti af föður sínum. Hall- grímur líktist forfeðrum sínum í mörgu. Hann var hægur og yf- irvegaður, traustur og framfara- sinnaður og bjó vel að sínu, var stálminnugur og sagði vel frá liðnum atburðum. Hallgrímur mun snemma hafa hugsað sér búskap sem lífsstarf, og sýndi fljótt að hann var bú- höldur góður. Hann ræktaði jörð sína og byggði við íbúðarhúsið og einnig nýtt fjós og fjárhús ásamt hlöðu. Svo að Hvammur varð fljótt með best setnu jörðum sveitarinnar. Hallgrímur kvæntist Sigur- laugu Fjólu Kristmannsdóttur frá Hlöðversnesi á Vatnsleysu- strönd, f, 29. nóvember 1921, d. 29. september 2010, árið 1952. Fjóla, eins og hún jafnan var kölluð, var myndarleg og dug- mikil kona sem stóð fast við hlið manns síns í blíðu og stríðu. Hún var hæglát í fasi og fram- komu, traust og hlýleg, var ekki að trana sér fram, en vann sín verk ekki síður en þeir sem gust- meiri eru, og var nærfærin við menn og málleysingja. Ekki gat Hallgrímur komist hjá því að taka að sér opinber störf fyrir sveit sína og hérað. Hann sat í hreppsnefnd og var hreppstjóri í mörg ár og gegn auk þess ýmsum öðrum trúnað- arstörfum. Þessi störf leysti hann vel af hendi og var maður sátta og samkomulags. Fjóla og Hallgrímur eignuðust þrjár dætur; Rósu, Þuríði og Margréti, auk þess átti Fjóla fyr- ir dreng, Hafstein Gunnarsson. Afkomendahópurinn er orðinn æði stór og efnilegt fólk. Þegar um fór að hægjast ferð- uðust þau hjón töluvert um land- ið, til dæmis þegar hringvegur- inn um Skeiðarársand opnaðist ferðuðust þau um þær slóðir, og hittu bændur og búalið og tóku tali, enda var þetta tímamótaat- Hallgrímur Guðjóns- son og Sigurlaug Fjóla Kristmannsdóttir burður í sögu þjóðarinnar. Einn- ig voru þau við opnun Hvalfjarð- arganga á sínum tíma, sem olli líka straumhvörfum í gangagerð og samgöngum. Þau hjón ferð- uðust einnig tvisvar til Vestur- heims, á Íslendingaslóðir í Winnipeg - ferðuðust þar víða um og höfðu mikla ánægju af þessum ferðum. Heim komin var eftir því tekið hvað Hallgrímur mundi allt vel úr ferðalaginu, nöfn á fólki og alla þá staði sem þau komu til, og ekki spillti frásagnarlistin. Hallgrímur var mikill bóka- maður og fróðleiksfús, hafði gaman af því að hitta menn og ræða málefni líðandi stundar og ekki síður gamla tíma og þekkti marga. Hann safnaði bókum og ritum og lét binda þau inn. Hann virtist alltaf hafa tíma til að ræða við gesti, hvernig sem á stóð í búskapnum og var sam- ræðugóður. Árið 1984 varð Hallgrímur fyrir heilsubresti sem leiddi til þess að hann varð að hætta bú- skap. Þau hjón seldu þá jörð sína og bú árið 1985. Það voru Hallgrími þung spor að geta ekki lengur stundað lífs- starf sitt en honum var það viss gleði í þeirri raun að getað litið yfir jörð sína og bú og séð hverju hann hafði fengið áorkað á bú- skaparárum sínum. Hve fram- kvæmdirnar höfðu verið miklar og allt skuldlaust. Þau fluttu til Reykjavíkur og bjuggu lengst af á Þorragötu 5 þar sem þau höfðu búið sér fal- legt heimili. Framkoma þeirra við sumar- dvalarunglinga til hjálpar við bú- störfin var til fyrirmyndar, enda komu mörg þeirra aftur og aftur. Ég undirritaður kom 11 ára til þeirra í Vatnsdalinn, og er þar enn, kominn á áttræðisaldur. Blessuð sé minning Hallgríms og Fjólu sem bjuggu í Hvammi í Vatnsdal. Jón Bjartmar Bjarnason. ✝ Unnur Guð-mundsdóttir fæddist í Minni- Brekku í Fljótum 17. desember 1921. Hún lést á Heil- brigðisstofnuninni á Sauðárkróki 12. janúar 2019. Foreldrar henn- ar voru Jóna Krist- ín Guðmunds- dóttir, f. 29.12. 1899, d. 19.12. 2003, og Guð- mundur Benediktsson, f. 19.7. 1893, d. 7.10. 1970. Systur Unnar voru: 1) Guð- rún Ólöf Guðmundsdóttir, f. 28.9. 1926, d. 6.1. 2015, eigin- maður hennar var Kristinn Jónasson, f. 17.8. 1914, d. 24.8. 1996, börn þeirra eru tvö. 2) Ingibjörg Guðmundsdóttir, f. 12.2. 1929, d. 2.9. 2004, maður hennar var Jón Árnason, f. 27.6. 1927, d. 10.3. 2004. Eiginmaður Unnar var Sveinn Þorsteinsson, f. 13.5. 1911, d. 3.3. 1997. Börn þeirra eru: 1) Jónmundur, f. 15.9. 1945, d. 16.5. 1958. 2) Þórólfur, f. 19.9. 1949. Kona hans er Sig- ríður Inga Kristjánsdóttir, f. 16.5. 1949. Börn þeirra eru: A) Unnur, f. 27.2. 1976, maður hennar er Kristján Jóhannes- son, f. 21.2. 1974. Börn þeirra eru Inga Sól og Jóhannes Þór. B) Sveinn, f. 12.4. 1977, eigin- kona hans er Ólöf María Birnu og Brynjarsdóttir, f. 9.10. 1980. Börn þeirra eru Brynjar Hall- dór, Arndís Inga, Páll Kristþór og Guðrún Katrín. 3) Reynir, f. 6.4. 1954, eiginkona hans er Anna Kristín Jóns- dóttir, f. 11.6. 1950. Börn þeirra eru: A) Ragnheiður Ásta, f. 13.6. 1973, eiginmaður hennar er Árni Björn Björnsson, f. 29.2. 1968. Börn Ragn- heiðar eru Kristján Reynir, Birkir Örn og Arnar Bjarki. Börn Árna eru Sig- ríður Vava og Guðný Vaka. B) Unnur Berglind, f. 13.1. 1981, eiginmaður hennar er Ragnar Karel Gunnarsson, f. 1.11. 1977 . Börn þeirra eru Helena Kar- en, Kamilla Lind og Nadía Klara. C) Sveinn Ingi, f. 23.1. 1983, sambýliskona hans er Alexandra Kjeld, f. 1.6. 1983, barn þeirra er Símon Reynir. D) Jón Þorsteinn, f. 12.8. 1988, eiginkona hans er Rakel Hin- riksdóttir, f. 25.5. 1986, börn þeirra eru Úlfur Már og Atli Hrafn. Starfsvettvangur Unnar var í Fljótum, bæði við bústörf og heimilisstörf. Hún og Sveinn bjuggu stuttan tíma í Vík, á Sjöundastöðum og á Sigríðar- stöðum, en árið 1951 fluttu þau að Berglandi og þar áttu þau heima þar til árið 1991 að þau fluttu á Sauðárkrók. Sveinn lést 1997, en Unnur bjó áfram í íbúð þeirra á Skógargötu 6 til ársins 2015, en eftir það dvaldi hún á Heilbrigðisstofnuninni á Sauðárkróki. Útför Unnar fer fram frá Sauðárkrókskirkju í dag, 19. janúar 2019, klukkan 11. Elsku amma okkar Unnur Guðmundsdóttir frá Berglandi er látin 97 ára að aldri. Mikið erum við heppin að hafa fengið að hafa þig hjá okkur svona lengi, elsku amma. Minningarnar streyma fram og bera okkur aftur í tímann, þegar við vorum börn og heim- sóttum ykkur afa að Berglandi. Þá sátuð þið afi oft bæði við að prjóna ullarsokka. Það var alltaf gott að koma til ykkar afa, þið áttuð ótakmarkað magn af vænt- umþykju, hlýju, glensi og tíma fyrir okkur og alltaf var stutt í húmorinn. Í minningunni var alltaf gott veður á Berglandi hvort sem það var sumar eða vetur, á veturna þurftum við oft að moka okkur í gegnum skafla til að komast heim að bænum. Það var gaman að heimsækja ykkur, þið afi alltaf tilbúin í spil eða spjall, fullt búr af bakkelsi og bláberjum og rjóma og alltaf nóg að hafa fyrir stafni. Við tókum þátt í því sem þurfti að gera og þið kennduð okkur til verka. Við fórum með að gefa kindunum, fengum að gefa hænunum og taka eggin frá þeim og einhver á minningu um að læra að þvo upp leirtau hjá ömmu. Mörg listaverkin urðu til í heimsóknum til ykkar afa sem þið geymduð og tókuð fram þeg- ar listamaðurinn kom aftur í heimsókn. Hlýjan, væntumþykjan, húm- orinn og gestrisnin breyttist ekk- ert við flutningana á Sauðárkrók. Það var alltaf jafn gott að koma til ykkar í Skógargötuna fyrst til ykkar afa og svo til þín þegar afi var farinn. Elsku amma, við þökkum fyrir stundirnar með þér og yljum okkur við góðar minningar. Við vitum að það hefur verið tekið vel á móti þér á nýja áfangastaðnum og örugglega mikið rætt og hleg- ið. Barnabörnin frá Mýrakoti, Ragnheiður Ásta, Unnur Berglind, Sveinn Ingi, Jón Þorsteinn, og fjölskyldur, Á Berglandi var mögnuð klukka með kólfum sem ég minn- ist þess að hafa staðið frammi fyrir, starað upp á með andakt og beðið þess að hún slægi. Svo hef- ur Unnur frænka komið inn í stofuna, sem bara var notuð spari, til að bjóða mér kleinu og kalda mjólk. Unnur var glettin, gestrisin og geysilega skemmtileg frænka. Þessi ömmusystir var í augum barnsins alltaf á mjög óræðum aldri. Ég á minningar um nota- legar heimsóknir til hennar og Sveins, í Bergland og síðar á Skógargötuna. Aðalstaðurinn var eldhúsborðið þar sem þjóðmálin voru krufin, fréttir sagðar og gantast. Það var alltaf stutt í brosið hjá Unni, að minnsta kosti við okkur krakkana. Ég minnist hennar með hlýju og þakklæti fyrir kærleiksríkt viðmót og nær- veru og sendi fólkinu hennar og vinum mínar innilegustu samúð- arkveðjur. Kristrún Heiða Hauksdóttir. Unnur Guðmundsdóttir Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem sýndu okkur vináttu og hlýhug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, GUÐBJARGAR FLYGENRING, Hringbraut 67, Hafnarfirði, Ingólfur Flygenring Magnús Flygenring Hildur Guðfinnsdóttir Þóra Flygenring Sigurður Arnórsson Unnur Flygenring Gunnlaugur Bjarnason barnabörn og barnabarnabörn Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, BJÖRN HAFSTEINN JAKOBSSON, Grænumörk 3, Selfossi, lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands miðvikudaginn 9. janúar. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Helgi Björnsson Grétar Jakob Björnsson Ellen Sæbjörg Erlingsdóttir Birna Margrét Björnsdóttir Einar Haukur Björnsson Ruth Kjærnested barnabörn og barnabarnabörn Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför ÖNNU PÁLU GUÐMUNDSDÓTTUR. Sérstakar þakkir til starfsfólks deildar 5 á Heilbrigðisstofnun Norðurlands á Sauðárkróki. Leifur Ragnarsson Páll Ragnarsson Margrét Steingrímsdóttir Árni Ragnarsson Ásdís Hermannsdóttir Hólmfríður Ragnarsdóttir Ólöf Sigríður Ragnarsdóttir Pétur Heimisson Örn Ragnarsson Margrét Aðalsteinsdóttir Úlfar Ragnarsson Auðbjörg Friðgeirsdóttir Eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, GEIRÞRÚÐUR SIGURÐARDÓTTIR, Lilla, Vaðlatúni 28, Akureyri, áður til heimilis í Norðurgötu 46, lést á Sjúkrahúsinu á Akureyri 13. janúar. Útför hennar fer fram frá Akureyrarkirkju föstudaginn 25. janúar klukkan 13.30. Jón Þórisson Sigurður Jónsson Annette J. de Vink Þuríður Anna Sigurðardóttir Alexander Sundquist Líney Rut Sigurðardóttir Jónína Maj Sigurðardóttir og barnabarnabörn Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar móður okkar, tengdamóður, ömmu, langömmu og langalangömmu, LILJU ARADÓTTUR, Víkurbraut 32, Höfn í Hornafirði. Sérstakar þakkir sendum við starfsfólki heimaþjónustunnar fyrir góða umönnun. Börn, tengdabörn, barnabörn og fjölskyldur Allar minningar á einum stað MINNINGAR er fallega innbundin bók sem hefur að geyma æviágrip og allar minningargreinar sem birst hafa um viðkomandi í Morgunblaðinu eða á mbl.is. Bókina má panta á forsíðu mbl.is eða á slóðinni mbl.is/minningar. Hægt er að kaupa minningabækur með greinum sem birst hafa frá árinu 2000 til dagsins í dag. Morgunblaðið birtir minningargrein- ar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota inn- sendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðs- lógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa bor- ist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skilafrestur rennur út. Formáli | Minningargreinum fylgir for- máli sem nánustu aðstandendur senda inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hvenær sá sem fjallað er um fæddist, hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og klukkan hvað útförin fer fram. Þar mega einnig koma fram upp- lýsingar um foreldra, systkini, maka og börn. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í formálanum, sem er feitletraður, en ekki í minningargreinunum. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.