Morgunblaðið - 25.01.2019, Side 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. JANÚAR 2019
Páll Vilhjálmsson stingur ágömlu og viðkvæmu kýli:
Þegar launa-maður ræður
sig í vinnu er hann
ekki spurður hvaða
stéttarfélagi hann
vilji tilheyra – eða
alls engu.
Verkalýðshreyfingin hefurkomið málum svo fyrir að
stéttarfélög eiga heilu starfs-
greinarnar.
Mannréttindi vinnandi fólkseru brotin þegar stéttar-
félag þvingar launamenn í félags-
skap og rukkar gjald af hverjum
og einum.
Félagsgjöldin eru notuð í pólit-íska starfsemi sem launþegar
eru oft hjartanlega ósammála.
Stjórnendur og sérfræðingareiga svigrúm til að færa sig
úr einu stéttarfélagi í annað.
En allur þorri launþega er einsog sláturfé, rekið á bás og
félagsgjöld hirt af þeim áður en
launin eru greidd.
Vitanlega á að koma málum svofyrir að upplýst samþykki
launþega liggi fyrir áður en við-
komandi er skráður í stéttarfélag.
Jafnframt þarf að tryggja aðlaunamenn eigi fleiri en einn
valkost.
Skylduaðild að verkalýðsfélagiog nauðungarinnheimta á fé-
lagsgjöldum er arfur liðins tíma
sem við ættum að losa okkur við.
Páll Vilhjálmsson
Úrelt og gallað
STAKSTEINAR
Bláu húsin Faxafeni ◊ S. 588 4499 ◊ Opið mán.-fös. 11-18, lau. 11-16 ◊ www.mostc.is
Allt á 2.000-
5.000 kr.
VERÐ-
HRUN
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Skipulagsfulltrúi Reykjavíkurborgar
tekur jákvætt í að stærð og lögun
fyrirhugaðrar kirkju Rússnesku rétt-
trúnaðarkirkjunnar Mýrargötu 21
verði breytt samkvæmt svonefndri
tillögu A. Mælt er með því að kirkjan
verði staðsett sem næst innan núver-
andi byggingarreits deiliskipulags-
ins.
Unnið hefur verið með tvær hug-
myndir að kirkjuhúsinu. Einar Ólafs-
son arkitekt hjá Arkiteo, sem lagði
fyrirspurn fyrir skipulagsfulltrúa
vegna kirkjunnar, sagði að nú væri
unnið samkvæmt tillögu A. Hún gerir
ráð fyrir minni kirkju, færri fermetr-
um og lægra kirkjuskipi með tveimur
turnum en ráð var fyrir gert í tillögu
B. Tillaga A þykir falla betur að um-
hverfinu. Heildar brúttó flatarmál
kirkjunnar er 583 m2, stærð grunn-
flatar 304 m2, hæð kirkjuskips 10,8
metrar og hæsti turn 17,7 metrar.
Í greinargerð segir að samkvæmt
tillögu A fari kirkjan út fyrir bygg-
ingarreit gildandi deiliskipulags. Þá
hafi Einar arkitekt lagt fram hug-
mynd að tilfærslu þannig að kirkjan
myndi aðeins fara lítils háttar út fyrir
byggingarreit að austanverðu. Einn-
ig mætti hugsa sér staðsetningu
byggingarinnar mitt á milli inn-
sendrar tillögu og tillögu Arkiteo.
Breytingin væri því óveruleg en þó
þyrfti að vinna deiliskipulagsbreyt-
ingu vegna frávika frá byggingarreit,
sem kynnt yrði skipulags- og sam-
gönguráði. Ráðið tæki þá afstöðu til
breytingarinnar og einnig tæki það
ákvörðun um í hvernig kynningar-
ferli breytingartillagan færi.
gudni@mbl.is
Rússneska rétttrúnaðarkirkjan Tillaga A gerir ráð fyrir minni kirkju.
Minna kirkjuhús
Ný tillaga að kirkju við Mýrargötu
Klamydíusýkingum fækkaði um-
talsvert á síðasta ári frá því sem
var árin á undan, samkvæmt
embætti sóttvarnalæknis. Þá dró
einnig úr tilfellum af sárasótt á
árinu. Hins vegar fjölgaði lekand-
tilfellum og HIV-smitum á árinu
2018.
Í Farsóttafréttum, fréttabréfi
sóttvarnalæknis, segir að samtals
hafi 1.634 tilfelli af klamydíu
greinst á árinu 2018 en 2.197 til-
felli árið 2017, en það er um 26%
fækkun. Þá er tekið sérstaklega
fram að konur hafi verið 54%
þeirra sem greindust á árinu, en
karlmenn eru í meirihluta þeirra
sem greinast með sárasótt, lek-
anda eða HIV-smit.
Dregið úr kynjamun
Þrjátíu ný tilfelli af sárasótt
greindust á árinu, sem er nokkur
fækkun frá árinu 2017 en svipað
og árið þar á undan. Segir í far-
sóttafréttum að það sé há tíðni og
að verulega hafi dregið úr kynja-
mun frá árinu 2015. Það ár voru
90% þeirra sem smituðust af sára-
sótt karlmenn, en karlar voru ein-
ungis um 60% þeirra sem smit-
uðust árið 2018. Þá segir að flestir
þeirra sem hafi greinst með sára-
sótt hafa verið íslenskir ríkis-
borgarar en að á síðasta ári hafi
skipting sárasóttartilfella verið
jöfn milli fólks með erlent og inn-
lent ríkisfang.
Annað árið í röð greindust fleiri
en hundrað manns með lekanda
og segir í fréttabréfi sóttvarna-
læknis að það sé fyrst og fremst
fólk með innlent ríkisfang sem
greinist með lekanda. Þá eru karl-
menn í miklum meirihluta þeirra
sem greindust á árinu, eða 84%.
Þá fjölgaði þeim mikið sem
greindust með HIV á síðasta ári,
en 39 greindust árið 2018 miðað
við 28 árið áður. Sérstaklega er
tekið fram í fréttabréfinu að 30 af
þeim 39 voru af erlendu bergi
brotnir. Talið er að fimm ein-
staklingar hafi smitast á Íslandi
og tveir af þeim vegna fíkniefna-
neyslu.
Færri greindust með klamydíu