Morgunblaðið - 25.01.2019, Page 10

Morgunblaðið - 25.01.2019, Page 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. JANÚAR 2019 Laugavegi 178 | 105 Reykjavík | Sími 551 3366 | Opið virka daga kl. 10-18, laugardaga kl. 10-14 Misty Leggingsbuxur, Langermabolur, Rúllukragabolur Stærðir: S-XL Verð 6.850kr Fallegur hlýr fatnaður sem hefur frábæra endingu. Hægt að nota bæði sem insta lag eða eitt og sér. Warm Wear frá Elita Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Stefnt er að því að sementsflutningaskipið Fjord- vik yfirgefi Hafnarfjarðarhöfn í síðasta lagi um miðjan febrúar. Skipinu verður þó ekki siglt héð- an heldur verður því fleytt inn í siglandi flotkví (Roll-Dock) og flutt til niðurrifs í Belgíu. Giftusamleg björgun Fjordvik strandaði við hafnargarðinn í Helgu- vík aðfaranótt 3. nóvember. Áhöfn á þyrlu Land- helgisgæslunnar, TF-GNA, tókst að bjarga fimm- tán manns frá borði við erfiðar aðstæður, en skipið lamdist við stórgrýttan hafnargarðinn meðan á aðgerðum stóð. Tæpri viku síðar tókst að draga skipið af strandstað og inn til Keflavíkur. Þaðan var það síðan dregið yfir til Hafnarfjarðar 15. nóvember. Allar þessar aðgerðir tókust giftusamlega. Fjord- vik var tekin upp í þurrkví Orms og Víglundar þar sem meðal annars var soðið upp í gat á síðunni og skipið gert flothelt. Samkvæmt upplýsingum Lúðvíks Geirssonar, hafnarstjóra í Hafnarfirði, er búið að semja um að skipið fari í brotajárn í Belgíu, en það var smíðað árið 1976 og er því rúmlega 40 ára gamalt. Útgerð skipsins og tryggingafyrirtæki, sem fer með ábyrgð gagnvart höfninni, vinna að því að ganga frá pappírum og afla tilskilinna leyfa. Lúðvík segir að skipið sé illa farið og ljóst að það fengi hvorki tryggingaleyfi né önnur leyfi til að verða dregið yfir hafið. Svokallað Roll-Dock skip frá Hollandi er væntanlegt og á að sigla með Fjordvik til Belgíu þar sem skipið fer í brotajárn. Það er 99 metra langt, en siglandi flotkvíar sem oft eru kallaðar til þegar fjarlægja eða flytja þarf skip, eru af ýmsum stærðum og gerðum. Lúðvík segir að sements- farmurinn um borð sé að mestu óskemmdur og aðeins sé hörð skel efst í farminum. Hann verði væntanlega losaður úr skipinu í Belgíu. Gleypti dýpkunarskipið Undir lok síðasta árs voru þrír öflugir dráttar- bátar fyrirtækisins Icetug fluttir til landsins með sams konar flutningaskipi. Þeir bera nöfnin Herkúles, Grettir og Kolbeinn grön. Flutninga- skipið kom við á Reyðarfirði á útleiðinni þar sem dýpkunarskipinu Galilei 2000 var fleytt um borð, en skipið hefur unnið við dýpkun í Landeyjahöfn síðustu misseri. „Það var dálítið mögnuð sjón að sjá bláa skipið, Rolldock Sun, bókstaflega gleypa dýpkunarskipið Galilei 2000 inn í sig,“ mátti lesa á Austurfrétt um þá flutninga. Fjordvik í brotajárn í Belgíu Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Björgun Fjordvik á strandstað við Helguvík í byrjun nóvember. 15 manns var bjargað frá borði.  Skipið, sem er 99 metrar á lengd, verður sett um borð í „siglandi flotkví“  Fengi hvorki tryggingaleyfi né önnur leyfi til að verða dregið yfir hafið Vöruflutningar um hafnirnar í Hafnarfirði og Straumsvík hafa aukist síðustu ár. Yfir milljón tonn fóru um hafnirnar árið 2017 og á nýliðnu ári var vöruflæðið enn meira er 1.150 þúsund tonn fóru um hafnirnar. Það er meira en nokkru sinni áður að sögn Lúðvíks Geirssonar hafnar- stjóra. Hann segir að aukning hafi verið á flutning- um til og frá álverinu í Straumsvík, sem vegi þungt. Einnig hafi aukning í flutningum á möl og sandi til malbikunar verið áberandi, en sá innflutningur fór úr 80 þúsund tonnum 2017 í um 130 þúsund tonn í fyrra. Landanir á innlendum afla hafa dregist sam- an í Hafnarfirði frá því sem áður var og námu um tíu þúsund tonnum í fyrra og hittifyrra. Enginn togari er nú gerður út frá Hafnarfirði, en Baldvin Njálsson úr Garði landar þar reglulega. Þá er nokkuð um að skip sem eru að veiðum undan Suður- og Vestur- landi landi í Hafnarfirði og er aflinn síðan keyrður til vinnslu annars staðar. Uppistaðan í löndunum á fiski í Hafnarfirði er úr frystiskipum frá Grænlandi og Rússlandi. Þessi afli hefur verið yfir 50 þúsund tonn sam- tals tvö síðustu ár. Auknir flutningar HAFNIRNAR Í HAFNARFIRÐI OG STRAUMSVÍK Lúðvík Geirsson Birgir Guðjóns- son, formaður Kjarafélags við- skiptafræðinga og hagfræðinga (KVH), mótmæl- ir þeim ummæl- um Ragnars Þórs Ingólfs- sonar, formanns VR, í Morgun- blaðinu í gær að KVH sé farþegi í yfirstandandi kjaraviðræðum. „Slík staðhæfing lýsir vanþekk- ingu á umhverfi kjara- og réttinda- mála háskólamenntaðra starfs- manna sem starfa undir hatti BHM. Félagsmenn KVH, viðskipta- fræðingar og hagfræðingar, starfa á öllum vinnumarkaðnum óháð starfsvettvangi, vinnuveitanda og ráðningarformi og eru 55% fé- lagsmanna starfandi á almennum vinnumarkaði,“ segir Birgir. Með samning við SA Birgir rifjar svo upp að KVH sé, ásamt 14 öðrum BHM-félögum, með kjarasamning við Samtök at- vinnulífsins sem tók gildi 1. október 2017. „KVH hefur í undanförnum kjarasamningum barist fyrir bætt- um kjörum og réttindum sinna fé- lagsmanna og einnig lagt sínar hug- myndir á vogarskálarnar í hags- muna- og kjarabaráttu innan BHM, en KVH er þriðja stærsta félag innan þeirra samtaka. Þess má einnig geta að BHM var aðili að skýrslu forsætisráðherra sem birtist í vikunni vegna átaks- verkefna í húsnæðismálum. Hafa flestir tekið undir þá niðurstöðu skýrslunnar að umbætur í húsnæð- ismálefnum séu til mikilla hagsbóta fyrir launþega og allt samfélagið í núverandi og komandi kjara- viðræðum,“ segir Birgir um hús- næðistillögurnar. baldura@mbl.is Afhjúpi vanþekk- ingu sína  Formaður KVH svarar formanni VR Birgir Guðjónsson Logi Einarsson þingmaður er ásamt Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur, formanni utanríkismálanefndar, og fleiri norrænum þingmönnum í heimsókn í Malaví. Heimsóknin er skipulögð af UNICEF og fleiri að- ilum í þróunarsamvinnu. „Við höfum fundað með fulltrúum stjórnvalda í Malaví og kynnt okkur þróunarstarf í landinu, einkum á heilbrigðis- og menntasviði. Meðal þess er átak í bólusetningu barna, aðgerðir til að koma í veg fyrir HIV- smit og meðhöndlun smitaðra, bar- átta gegn berklum og malaríu, og mæðravernd og umönnun barna í heilbrigðiskerfinu,“ segir Logi, sem nýtir seinni hluta heimsóknarinnar til að skoða íslenskt þróunarsam- vinnuverkefni í Mangochi-héraði, m.a. skóla, heilsugæslustöðvar, fæð- ingardeildir og vatnsveitur. „Um leið og ég er ánægður með gott framlag Íslands finnst mér aug- ljóst að við ríkari þjóðir þurfum, ætt- um og getum gert miklu betur til að skapa öllum íbúum jarðar betra líf,“ segir Logi, sem telur að það sé hægt með því að standa við markmið SÞ um 0,7% af vergum þjóðartekjum. Dans Logi Einarsson, þingmaður og formaður Samfylkingar, sýnir tilþrif í dansi með íbúum Malaví í heimsókn á vegum UNICEF og fleiri aðila. „Getum gert betur“  Kynna sér skipulagða þróunarsam- vinnu í Malaví  Framlag Íslands gott

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.