Morgunblaðið - 25.01.2019, Side 20
20 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. JANÚAR 2019
Á árunum kringum
1990 var ég heillaður af
þeirri hugsun að fá
tækifæri til að taka
þátt í atvinnurekstri.
Með því að kaupa
hlutabréf í ýmsum
landsþekktum fyrir-
tækjum var mjög gott
tækifæri að setja sig
inn í atvinnurekstur
fyrirtækja. Meðal
þeirra voru Íslandsbanki sem þá var
eini einkabankinn á Íslandi, en hann
varð til við sameiningu þriggja góðra
banka; Alþýðubankans, Iðn-
aðarbankans og Útvegsbankans,
fyrir nær þremur áratugum. Þá
bættist Olíufélagið við, en það hafði
skilað rekstrarhagnaði hátt í hálfa
öld, eða öll árin sem það hafði starf-
að, stofnað 1946. Árið 1993 var hafin
einkavæðing Jarðborana, sem höfðu
verið starfræktar um nálægt jafn
langan tíma og í sam-
eiginlegri eigu íslenska
ríkisins og Reykja-
víkurborgar. Þá var
Búnaðarbankinn
einkavæddur og varð
hann strax mjög vin-
sæll og skrifuðu um
10% þjóðarinnar sig
fyrir hlutafé en það
stóð ekki lengi, margir
hluthafar heltust úr
lestinni þegar stór-
fjárfestar keyptu upp
hluti hvers smáhlut-
hafa á fætur annars og ætluðu sér að
gleypa himin og haf.
Það var mjög áhugavert að sækja
hluthafafundi í þessum fyrirtækjum
og fá dálitla nasasjón af rekstri
fyrirtækja á Íslandi. Nær alltaf var
greiddur út hóflegur arður sem mið-
aðist af skynsamlegri stjórnun þess-
ara fyrirtækja. En það átti brátt eft-
ir að breytast.
Fjárfestingar smárra hluthafa
sem og lífeyrissjóða byggjast á lang-
tímasjónarmiðum. Það skiptir
meginmáli hvernig fyrirtækinu
gengur eftir áratug, aldarfjórðung,
kannski eftir lengra tímabil.
Þegar komið var fram yfir alda-
mótin 2000 var hafið að greiða mjög
háan arð úr þessum fyrirtækjum.
Um nokkurra ára skeið hafði ég
meiri arð af hlutabréfunum en laun-
aðri vinnu. Þetta þótti mér ein-
kennilegt en auðvitað var ég, sem
svo margir aðrir, gjörsamlega grun-
laus um hvernig þetta endaði. Því
miður keypti ég fleiri hlutabréf fyrir
arðgreiðslurnar og hugðist eiga góð-
an „varasjóð“ í ellinni.
Öll þessi fyrirtæki urðu n.k.
„fórnarlömb“ athafnamanna þeirra
sem útrásarvíkingar hafa verið
nefndir en á misjafnan hátt. Það
kallar á aðra grein mína.
Ég tapaði nær öllu mínu hlutafé í
öllum fyrirtækjunum sem ég hafði
fjárfest í!
En mér er minnisstæður aðdrag-
andi bankahrunsins haustið 2008. Í
ágúst 2008 stóðu Ólympíuleikarnir í
Kína. Íslenskir ráðherrar kepptust
hver um annan þveran að fljúga
þangað austur til að hvetja silfurliðið
okkar í handbolta til dáða. Þann 14.
ágúst kom út einkennileg yfirlýsing
Fjármálaeftirlitsins: Allir íslensku
bankarnir höfðu staðist svonefnt
álagspróf. En að 6-7 vikum síðar
voru þeir allir fallnir og fall þeirra
varð mikið!
Og svo kom þessi dæmalausa yfir-
lýsing Geirs Haarde þegar bönk-
unum varð ekki bjargað í byrjun
október 2008: „Guð blessi Ísland“!
Ekki hefur komið fram nein af-
sökun frá Sjálfstæðisflokki um að á
þeim bæ hafi verið tekið á þessu máli
né neinum öðrum.
Núverandi fjármálaráðherra er
nú í dag að forminu til æðsti yfir-
maður skattrannsókna á Íslandi.
Hann er nátengdur ýmsu misjöfnu í
hruninu, hefur tekið þátt í að koma á
fót aflandsfélögum og leynireikn-
ingum ýmist sjálfur eða í samvinnu
við ýmsa nána í fjölskyldu sinni. Og
fyrir nokkrum árum bættist Borgun
við þegar mikil verðmæti voru af-
hent á niðursettu verði til fjölskyld-
unnar!
Síðan 2008 hefi ég ekki varið einni
einustu krónu til að taka þátt í at-
vinnurekstri. Ég hef ekki minnstu
trú á þessu þjóðfélagi braskara.
Við verðum að breyta þessu!
Að áratug liðnum – hvað varð um sparnaðinn?
Eftir Guðjón
Jensson »Um nokkurra ára
skeið hafði ég meiri
arð af hlutabréfunum en
launaðri vinnu. Þetta
þótti mér einkennilegt
en auðvitað var ég, sem
svo margir aðrir, gjör-
samlega grunlaus um
hvernig þetta endaði.
Guðjón Jensson
Höfundur er eldri borgari
í Mosfellsbæ og leiðsögumaður.
arnartangi43@gmail.com
Stjórnmálafólk og
menntaelítan eru upp-
tekin af bókum og að
varðveita tungumálið
okkar, enginn að tala
fyrir því að landið skuli
ekki selt eða gefið. Já
gefið, því að við hvern
veittan ríkisborgara-
rétt til handa farand-
og flóttafólki, sem ætti
að aðstoða heima fyrir
og á þeirra slóðum, er verið að gefa
af landi okkar.
10. desember 2018 verður í fram-
tíðinni svartur dagur, þar sem ís-
lensk stjórnvöld skrifuðu undir í
Marokkó um frjálst flæði farand-
fólks, það er frelsi til handa fólki,
sem kýs að flakka um heiminn í leit
að betra lífi. Á ég að sjá til þess að
þetta fólk finni sér betra líf? Nei, það
skal það gera sjálft og það í sínum
heimalöndum. Því eru stærstu hóp-
arnir karlmenn? Auðvitað kemur
þessi samningur frá mannréttinda-
ráði Sameinuðu þjóðanna. Séu Sádi-
Arabar í forsvari fyrir mannrétt-
indaráðinu, hver segir þá að þeir
nýti sér ekki pólitíska leið ásamt
Merkel til opnunar inn í önnur ríki.
Það er þegar búið að eyðileggja Evr-
ópu. Allmargar, og þar á meðal stór-
þjóðir, hafa neitað undirskrift á
þessum ömurlega samningi. En ör-
þjóðin íslenska skrifaði undir. Þetta
mál var ekki rætt á Alþingi og þjóðin
var ekki spurð hvort hún vildi vera
skjól farandfólks. Hvar er lýðræðið
og hvar eru mannréttindi þjóðar?
Það er ansi oft brotið á mannrétt-
indum vesturvelda í þágu annarra
þjóða. Enginn þingmaður eða þing-
kona sögðu nei við þessari undir-
skrift, með það í huga að vera kosin
til að varðveita land og þjóð.
Við erum örþjóð, „stormur í
vatnsglasi“ segir ung þingkona við
fyrirspurn um þetta mál. Hún gerir
sér ekki grein fyrir því að hún og
hennar niðjar verði minnihlutahópur
í eigin landi, þar til hún missir það
svo alveg. Þegar hún verður á mín-
um aldri eftir um 45 ár verður Ísland
ekki frjálst land. Því kunnið þið ekki
að meta og varðveita það sem við
eigum? Þið byggið allt á rangri hug-
mynd um að þið séuð heimsborg-
arar.
Annar þingmaður er orðinn
þreyttur á því hversu fólk sé hrætt
við útlendinga – hvaðan kemur
svona bull? Þessum þingmanni er
heldur ekki ljós ábyrgð sín og það að
hafa efann að leiðarljósi til verndar
landi og þjóð.
Ég endurtek: við erum örþjóð. Í
fimmtíu ár hef ég verið
meðal útlendinga og er
enn; ég hef lært mikið
því að ég horfi, hlusta
og spyr, því að ég tala
nokkur tungumál.
Reynslan er að varast
beri of mikla fjölmenn-
ingu, hana upplifði ég á
Balkanskaga, þar sem
hver togar í sína siði og
einkenni. Það vill nefni-
lega svo til að ekki eru
öll dýrin í skóginum
vinir, mennsk erum við öll, en langt í
frá bræður og systur.
Stjórnvöld, hafið það í huga og
farið milliveg, gleypið ekki svona við
öllu. Þið munuð ekki ráða við fjöl-
menningarmálin þegar fram í sækir.
Við sitjum uppi með forseta lands-
ins, forsætisráðherra og mennta-
elítu, sem segir okkur það nýjasta,
sem er: „Við verðum að deila full-
veldinu með öðrum þjóðum og al-
þjóðastofnunum – það er að vera
frjálst ríki.“ Hver fann upp þennan
ömurlega frasa?
Eitt er vitað: landamæralaus þjóð
tapar landi sínu og einkennum – og
það mun verða því að börnum okkar
er ekki kennt eða innrætt í uppeld-
inu að þau eigi sér land og haf til að
elska og varðveita. Auðvitað má ekki
innræta föðurlandsást því að þá
gargar hin ofurmenntaða elíta
„popúlismi“. Því fer sem fer og það
má bæta við að það henti stjórnvöld-
um að stjórnast yfir þjóð sem alin er
upp á stofnunum – ekki satt Svandís
Svavars og VG? Og sé einhver ósam-
mála eða óþekkur þá beitið þið bara
einelti, það kunnið þið svo sannar-
lega á hinu háa, óhæfa Alþingi Ís-
lendinga. Sjáið þið ekkert athuga-
vert við það að samfylkingarkona er
sett fyrir nefnd sem á að taka fyrir
siðferði pólitískra andstæðinga
sinna? Og hún byrjar á að tilkynna
okkur að þetta mál muni nú taka
tímann sinn, auðvitað þarf að ná sér í
laun, hvað annað! Ó, já, þið kunnið
þetta. Alþingi fær ekki mitt traust.
Svartur dagur
og fleira
Eftir Stefaníu
Jónasdóttur
» Landamæralaus
þjóð tapar landi sínu
og einkennum – og það
mun verða því að börn-
um okkar er ekki kennt
eða innrætt í uppeldinu
að þau eigi sér land og
haf til að elska og varð-
veita.
Stefanía Jónasdóttir
Höfundur býr á Sauðárkróki.
Grunnþarfir okkar
eru ekki mjög flóknar,
en það er mikilvægt að
gera sér grein fyrir
hverjar þær eru. Abra-
ham Maslov greindi
þarfir mannsins í svo-
kallaðan þarfa-
píramída (e. Maslov’s
hierarchy of needs).
Greiningin gerir ráð
fyrir að grunnþarfir
okkar, þær sem liggja neðst í píra-
mídanum og eru líkamlegar, um mat,
vatn, svefn o.s.frv., þurfi að uppfylla
áður en við uppfyllum aðrar þarfir
s.s. um félagslega viðurkenningu o.fl.
Ég verð hugsi þegar fólk sem leit-
ast við að hafa áhrif á samfélagið
(eins og stjórnmálamenn), og er þar
með samkvæmt þessari greiningu að
uppfylla eigin þarfir sem liggja efst í
þarfapíramídanum, virðist ekki skilja
samhengi hlutana þegar kemur að
fæðuörygggi og sjálfbærni okkar sem
þjóðar.
Bændur og landbúnaður eru
grunnstoð samfélagsins. Þeir fram-
leiða matvæli. Tilvera bænda og
framleiðsla þeirra eru grundvöllur
þess að við getum einbeitt okkur að
öðrum hlutum sem skipta máli eins
og húsaskjóli, fjölskyldu og tilfinn-
ingum.
Sumir bera lítið skynbragð á hvað
þarf til að framleiða matvæli. Matur-
inn á bara að vera til í búðunum!
Kosta sem minnst!
Flestar þjóðir líta svo á að með
neytendastyrkjum megi halda niðri
matvælaverði og minnka margföld-
unaráhrif prósentuálagningar milli-
liða og smásala. Þannig megi bjóða
þegnunum matvæli á viðráðanlegu
verði, óháð stöðu og tekjum. Þannig
stuðlum við einnig að bættri lýð-
heilsu. Það er nefnilega svo að mat-
væli teljast til frumþarfa, þau eru
neðst í píramídanum. Það er því
hverri þjóð mikilvægt að tryggja sínu
fólki aðgang að góðum og heil-
næmum matvælum eins
og fremst er kostur.
En hvað kosta þessir
neytendastyrkir? Sam-
kvæmt tölum Bænda-
samtaka Íslands voru
heildarútgjöld hins op-
inbera 14,9 ma króna ár-
ið 2016, eða 1,49% af út-
gjöldum ríkisins.
Heildarframleiðsluvirði
landbúnaðar á Íslandi
var 65,9 ma króna á
sama tíma. Tekið er
fram að framleiðsluverð er það verð
sem framleiðandi fær í sinn hlut frá
kaupanda og innifelur ekki vöru-
tengda styrki s.s beingreiðslur. Bú
sem framleiða vörur á Íslandi eru um
3150. Á þessum búum er einnig í
sumum tilfellum stunduð ferðaþjón-
usta, skógrækt, landgræðsla og
hlunnindanýting. Tæplega 3800
manns hafa atvinnu beint af landbún-
aði og um 10.000 manns hafa atvinnu
af landbúnaði og afleiddum eða
tengdum greinum. Af þessum tölum
má draga þá ályktun að framlag ríkis-
ins uppá um 149 þús. kr á starf skili
sér í 10.000 störfum sem annars væru
ekki fyrir hendi og tæplega 6,6 millj-
óna framleiðsluverðmæti á hvert
starf. Það er mín skoðun að því
skattfé sé vel varið.
Þegar fólk á bíl, snjallsíma, tölvu,
húsnæði, aðgang að góðu heilbigðis-
og menntakerfi og stöðugan aðgang
að hollum matvælum og hreinu vatni,
má segja að fólk hafi það líklega betra
en 70-80% jarðarbúa, það hlutfall
gæti þó verið hærra. Slíkt fólk á það
til að gleyma að þakka fyrir það
„sjálfsagða“. Þegar sumir líkja bú-
vörusamningum við „glæpsamlegan
gjörning“, „ríkisstyrkt dýraníð“ eða
„sambærilegan kostnað“ og Icesave
reikninginn sem átti að senda þjóð-
inni, mætti segja að fólk sé orðið
virkilega veruleikafirrt. Þessir sömu
telja sig svo sjáfskipaða hagsmuna-
gæsluaðila þjóðarinnar. Þeir vilja
flytja inn matvæli án takmarkana og
skila þannig ódýrari matvöru í versl-
anir. Þau matvæli eru að vísu niður-
greidd af þegnum annarra ríkja, en
það skiptir þá ekki máli. Þessir sömu
aðlilar myndu síðan hagnast lítið sem
ekkert á þessum innflutningi og við-
skiptum vegna góðmennsku sinnar
eða hvað?
Hver ætli raunkosnaður þessara
matvæla sé þegar allt er tekið inn í
myndina? Flutningur á vöru, álag á
náttúru vegna þeirra flutninga, nátt-
úruvernd yfir höfuð, sýklalyf sem
notuð voru til framleiðslu, skordýra-
eitur o.s.frv? Hverjar eru aðstæður,
kaup og kjör fólksins sem vinnur á
þessum búum, tyggingar og réttindi
þeirra? Breytir það kannski engu?
Hvernig og hver á að skapa gjald-
eyrinn til að kaupa þessar vörur sem
við getum þó framleitt sjálf.
Staðreyndin er sú að landbúnaður
á Íslandi skilar 10.000 störfum og er
lykilatriði í að halda byggð í landinu,
sem aftur er ein lykilforsenda fyrir
þeirri uppbyggingu á ferðaþjónustu
sem malar nú gull fyrir okkur. Hon-
um yrði a.m.k. hampað, stjórnmála-
manninum sem gæti barið sér á
brjóst fyrir að skapa þennan fjölda
starfa. Einnig má hafa í huga að það
eru ekki öll útgjöld ríkisins sem skila
sér ríflega fjórfalt til baka.
Fólksfjöldaspár gera ráð fyrir að
jarðarbúar verði um 9 milljarðar árið
2050 sem er á næsta leiti. Matvæla-
og landbúnaðarstofnun Sameinuðu
þjóðanna (FAO) spáði árið 2012 að
matvælaframleiðsla þyrfti að aukast
um 70% frá árinu 2012 til ársins 2050
í ljósi vaxandi mannfjölda. Á Íslandi
er mikið ræktarland, hreint vatn og
verkþekking til að nýta þessa fram-
tíðarauðlind. Munum að óvíða er að
finna hreinni og heilnæmari afurðir
en þær sem íslenskir bændur fram-
leiða og eftirspurn eftir slíkum vörum
fer vaxandi sem skapar tækifæri fyrir
bændurna okkar til framtíðar. Í ljósi
þessa vil ég sjá íslenskan landbúnað
vaxa og blómstra. Ég vil sjá þjóðina
standa vörð um íslenskan landbúnað.
Íslenski bóndinn og framleiðsla hans
tryggir grunnþarfir okkar.
Í þessum skrifum studdist ég að hluta
til við pistilinn „Vegna glæpsamlegra
búvörusamninga“ eftir Helga Eyleif
Þorvaldsson, sem birtist 16.9. 2016,
með góðfúslegu leyfi höfundar.
Bændur, hver þarf þá?
Eftir Jón Þór
Þorvaldsson
» Tilvera bænda og
framleiðsla þeirra
eru grundvöllur þess
að við getum einbeitt
okkur að öðrum hlutum
sem skipta máli eins
og húsaskjóli, fjölskyldu
og tilfinningum.
Jón Þór Þorvaldsson
Höfundur er fyrsti varaþingmaður
Miðflokksins í NV-kjördæmi.
Móttaka aðsendra greina
Morgunblaðið er vettvangur lifandi umræðu í landinu og birtir aðsendar greinar
alla útgáfudaga.
Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota
innsendikerfi blaðsins. Kerfið er auðvelt í notkun og tryggir öryggi í sam-
skiptum milli starfsfólks Morgunblaðsins og höfunda. Morgunblaðið birtir ekki
greinar sem einnig eru sendar á aðra miðla.
Kerfið er aðgengilegt undir Morgunblaðslógóinu efst í hægra horni forsíðu
mbl.is. Þegar smellt er á lógóið birtist felligluggi þar sem liðurinn „Senda inn
grein“ er valinn. Í fyrsta skipti sem innsendikerfið er notað þarf notandinn að
nýskrá sig inn í kerfið. Ítarlegar leiðbeiningar fylgja hverju þrepi í skráningar-
ferlinu. Eftir að viðkomandi hefur skráð sig sem notanda í kerfið er nóg að slá
inn kennitölu notanda og lykilorð til að opna svæðið. Hægt er að senda greinar
allan sólarhringinn.
Nánari upplýsingar í síma 569-1100 frá kl. 8-18 alla virka daga.