Morgunblaðið - 25.01.2019, Síða 27

Morgunblaðið - 25.01.2019, Síða 27
í mörg ár erlendis, bæði vestan og austan ála og í Suður- Ameríku. Skarpur greinandi og vel les- in enda fær í mörgum tungu- málum: Íslensku, ensku, spænsku og sænsku og í tungu- máli hagfræðinnar, þróunar- fræðinnar og sjálfbærninnar enda áherslurnar í doktorsnám- inu á þeim nótum. Hún gerði kröfur til sjálfrar sín og til ann- arra og þoldi ekki fúsk en kunni að njóta stundarinnar, dansaði listilega salsa, elskaði falleg föt, menningu og listir og síðast en ekki síst fræðin. Elsu kynntumst við árið 2005 og myndaðist skjótt góð og djúp vinátta á milli okkar og þeirra Björgólfs. Við hittumst oft enda stutt á milli okkar í Vesturbæ Reykja- víkur og þau héldu eftirminni- leg matarboð fyrir nána vini sína. Þau voru góð í því að stefna fólki saman til að spjalla og gleðjast. Elsa og Friðbjörg unnu saman eitt ár og voru síð- ar saman í nokkur ár í stjórn UNIFEM með öflugum konum sem stóðu meðal annars fyrir umfangsmikilli fjáröflun fyrir félagið árið 2007, þar sem Frí- múrarahúsið var tekið undir kvennagyðjukvöldverð sællar minningar. Elsa fylgdi eftir draumum sínum og bjó yfir forvitnilegum töfrum og andstæðum. Hún var mikill Íslendingur og unni land- inu en það féll henni betur að búa erlendis. Henni fannst Ís- land hvað fallegast um hávetur og alltof kalt hér á landi á sumrin. Hún var í ásatrúarsöfnuðin- um og sótti gjarna listileg blót þeirra á Þingvöllum en fór með Maríubænir þegar hún þurfti liðsinnis við. Elsa sýndi oft fádæma styrk og viljafestu en vegna viðvar- andi veikinda og verkja þurfti hún oft að draga sig í hlé og jafnvel svo vikum skipti. Það má ætla að þjáningarnar hafi aukið enn frekar á innsæi henn- ar og næmi, því hún sá meira en margur. Það var alltaf tilhlökkunar- efni að hitta Elsu og ræða við hana um heims- og þróunarmál. Hún var svo greind og henni var svo lagið að finna ný sjónarhorn. Við ræddum til dæmis um náttúrusýn frá ýms- um hliðum og henni tókst ævin- lega að bæta við óvæntum en mikilvægum atriðum sem köll- uðu á endurskoðun eða mat. Það var með öðrum orðum allt- af gefandi að hitta hana, þegar hún sagði frá náminu í London, rannsóknum sínum í Kosta Ríka, fyrra lífi í New York og í Hollandi, starfinu á Ísafirði, af móðurfólkinu sínu í Vest- mannaeyjum og föðurfólkinu í Skjaldabjarnarvík. Hún sagði einstaklega vel frá – var sagna- meistari. Hún tók veikindum af ein- stakri skapfestu og sagði: Kæru vinir, ég vil lifa sem best og skála sem oftast í kampavíni með ykkur og Björgólfi mínum. Já, „Þökk sé þessu lífi, hve það var mér örlátt,“ eins og Violeta Parra syngur svo fallega. Við þökkum vináttuna og kærleikann, viðmótið og góðan hug. Við gleymum aldrei þess- ari dýrmætu vinkonu og send- um innilegar samúðarkveðjur til Björgólfs, Guðjóns Inga, fjölskyldunnar og vina. Friðbjörg Ingimarsdóttir og Gunnar Hersveinn. Lífsþráður þinn, elsku Elsa, er skreyttur fögrum og blæ- brigðaríkum perlum. Ég hitti þig fyrst árið 1993 á Ísafirði og okkur var sagt að við yrðum að hittast og kynnast. Það var góð sögn og gæfurík. Þú varst ferskur blær, for- dómalaus heimskona og bóhem, þú fórst óhefðbundnar leiðir, sjálfstæð, brautryðjandi, falleg, fáguð og glæsileg, álfkona sem skynjaðir og sást það sem okk- ur flestum er hulið. Fórst þínar eigin leiðir. Engri lík, elsku vinkona. Hvað segir þú, Elsa, ætlar þú að mæta myrkrinu í Þernu- vík alein um jólin? Alveg viss? Já, alveg viss, enda ein af mörgum leiðum þínum. Þú færðir landamæri og varst bjargvættur hals úr hafi. Heyrðir ákall úr öðrum heimi. Fórst með þínar Maríubænir. Vináttan spannaði ekki at- burði heldur skynjun og virð- ingu. Þú varst Elsa beib, fersk- ur andblær, brosandi, klár. Þú trúðir á okkur, fannst til okkar koma, hvetjandi brosið, hið smáa var hið stóra ... kenndir okkur að halda áfram veginn, kenndir okkur. Okkar spor voru auðnuspor, þú dansaðir salsa, varst sólin sem umvafði mig snemmsum- ars þitt síðasta sumar, með þéttu faðmlagi. Þá grét ég lífið og þig og það sem koma skyldi. Þú huggarinn minn. Hvað er skrifað í skýin? Dýr- mætar minningar og myndir um þig, kæra vinkona, heims- borgari, hagfræðingur, hugsuð- ur, bóhem, drottning, dansari, ljósálfur, konan hans Björgólfs. Um stund í kosmótískum tíma vorum við á sporbaug hvor um aðra, í nálægð og fjar- lægð líkt og sólin, tunglið og stjörnurnar. Það var gott, lærdómsríkt, stundum krefjandi en nærandi ... Það var lífið sem ber að þakka, þetta var okkar salsa- músík og okkar salsaspor. Guðrún Guðmundsdóttir. Kveðja frá At-konum á Vestfjörðum Það var mikill fengur fyrir rúmum tuttugu og fimm árum þegar við At-konur fengum Elsu Guðmundsdóttur hagfræð- ing til liðs við okkur sem verk- efnastjóra við átaksverkefni í atvinnumálum kvenna. Verk- efnið hlaut nafnið Snerpa sem merkir forystuær en At-konur stóðu fyrir verkefninu á Vest- fjörðum 1993-1995 í samstarfi við Byggðastofnun. Elsa kom með ferskan vind með sér eftir nám og störf erlendis og nýja hugsun um hvernig mætti val- defla konur með því að hugleiða eigin atvinnurekstur og afla sér þekkingar og menntunar. Elsa hélt ótrauð um alla Vestfirði og hélt hugarflug- sfundi með konum og fékk þær til að skoða drauma og mögu- leika til að efla sig og sam- félagið. Veitti ráðgjöf til frum- kvöðlakvenna og sáði fræjum til framtíðar. Ávöxturinn varð að atvinnusköpun kvenna á Vestfjörðum, bæði fyrirtækjum og samvinnuverkefnum í formi handverkshúsa sem spruttu upp um alla Vestfirði sem er ákveðið form reksturs þar sem konur skapa sér hlutastarf af handiðnaði. Við lok átaksverk- efnisins leiddi hún undirbúning ráðstefnu en niðurstaða hennar var að það þyrfti að stofna At- vinnuþróunarfélag á Vestfjörð- um. Góð ráð frá Elsu voru ómetanleg þegar við At-konur lögðum af stað í næsta verkefni að stofna Atvinnuþróunarfélag Vestfjarða sem hefur verið með starfsemi hér á Vestfjörðum og sinnt frumkvöðlum og fyrir- tækjum um tveggja áratuga skeið. Það brautryðjandastarf sem Elsa vann í atvinnuþróunarmál- um og ráðgjöf var afar dýr- mætt og viljum við hér við hinstu kveðju þakka fyrir sam- starfið, framsýnina og hvatn- inguna og votta fjölskyldu og ástvinum hennar okkar dýpstu samúð. F.h. At-kvenna, Guðrún Stella Gissurar- dóttir og Sigurborg Þorkelsdóttir. MINNINGAR 27 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. JANÚAR 2019 ✝ Signý Gunnars-dóttir fæddist á Bangastöðum í Kelduhverfi í Norður-Þingeyjar- sýslu 17. janúar 1939. Hún lést á líknardeild Land- spítalans 18. janúar 2019. Foreldrar henn- ar voru Gunnar Jónatansson, f. 5. maí 1877, d. 25. júní 1958, og Vilfríður Guðrún Davíðsdóttir, f. 20. nóvember 1897, d. 25. maí 1973. Signý giftist 12. desember 1970 Ragnari Þór Magnússyni, f. 5. apríl 1937, d. 8. febrúar 2013. Foreldrar hans voru Magnús Þorsteinsson, f. 4. september 1891, d. 25. maí 1969, og Magnea Ingibjörg Sigurðardóttir, f. 2. maí 1901, d. 20. júní 1995. Systkini Signýjar eru: Óli Jónatan, samfeðra, f. 19. júlí 1911, d. 1. ágúst 1986, Jónína Guðný, f. 13. maí 1927, d. 8. september 1988, Kristjana Elínborg, f. 7. desember 1928, d. 12. nóvember 2013, Anna Sig- ríður, f. 11. september 1930, d. 11. janúar 2011, Aðalheiður, f. 4. október 1932, Davíð, f. 15. mars 1935, Sigurbjörg, f. 27. september 1940 og Soffía Björk, f. 27. september 1940, d. 2. júní 1996. Börn Signýjar og Ragnars eru: 1) Svanhildur, f. 31. janúar 1964, gift Ragnari Páli Aðal- steinssyni, f. 30. mars 1964, eiga þau þrjú börn a) Signý Hrund, f. 12. apríl 1982 og á hún synina Gunnar Nökkva, f. 17. nóvember 2001, og Myrkva Þór, f. 12. febrúar 2011. b) Almar Freyr, f. 19. desember 1987, í sambúð með Hlín Pálsdóttur, f. 18. nóvember 1989, og eiga þau soninn Hlyn Frey, f. 14. janúar 2019. c) Gígja Dröfn, f. 15. janúar 1990, í sam- búð með Eiríki Hjartarsyni, f. 8. janúar 1983, og á hún börnin Amelíu Carmen, f. 25. júní 2008, og Christopher Darra, f. 30. jan- úar 2010, Agnarsbörn og Rögnu Caritas Kúld Eiríksdóttur, f. 17. desember 2015. 2) Gunnar, f. 16. ágúst 1970. Signý ólst upp á Bangastöð- um til ársins 1953 þegar fjöl- skyldan fluttist í Voladal á Tjör- nesi. Eftir að Signý lauk skyldu- námi árið 1954 fór hún í vist til Húsavíkur og starfaði þar við ýmis störf þar til hún fluttist til Reykjavíkur árið 1960. Í Reykjavík starfaði hún sem saumakona hjá Últíma þar til hún gerðist dagmamma árið 1967 og starfaði sem slík í 50 ár. Signý verður jarðsungin frá Bústaðakirkju í dag, 25. janúar 2019, og hefst athöfnin klukkan 13. Elsku mamma. Það er svo erfitt að takast á við andlát þitt. Við eigum engin orð til að lýsa tilfinningum okkar og söknuði. Þú varst okkur allt. Það er ekki hægt að hugsa sér já- kvæðari og bjartsýnni mann- eskju en þig. Þú mættir öllum áskorunum í lífinu með einstakra jákvæðni, bjartsýni og trú á hið góða eins og sást best í þau þrjú skipti sem þú greindist með krabbamein. Það var aldrei bil- bug á þér að finna. Bænir áttu stóran þátt í þínu lífi og mætti segja að bænirnar Nú er ég klæddur og Láttu nú ljósið þitt hafi skipað sérstakan sess. Allt sem þú upplifðir var svo yndis- legt. Þú sást fegurð í öllu og öll- um enda var fegurð þín einstök bæði að utan sem innan. Að hafa sig til og líta vel út var þér mikils virði og þrátt fyrir að veikindin höfðu gengið mjög nærri þér kom aldrei til greina að hafa sig ekki til þó þú lægir í sjúkrarúmi og gætir þig vart hreyft. Þú varst baráttujaxl og komst því í verk sem þú ætlaðir. Tvennt var það umfram annað sem þú ætlaðir þér áður en yfir lyki en það var að sjá nýjasta barna- barnabarnið og halda upp á átt- ræðisafmælið. Hugurinn er uppfullur af minningum og erfitt að festa hendur á einni umfram aðra, þær eru allar svo dýrmætar og góðar. Áttræðisafmælisdagurinn mun aldrei líða okkur úr minni og vit- um við að þú upplifðir hann jafn dásamlegan og við þrátt fyrir að þú svæfir djúpum svefni. Sérstaklega minnisstæðar eru utanlandsferðirnar sem við systkinin fórum með þér til London, Kaupmannahafnar og Parísar á fullorðinsárum. Einnig eru ferðalögin innan- lands þegar við vorum krakkar dýrmætar minningar. Okkar „verstu“ minningar frá æsku okkar eru þegar við fórum með þér í sjoppu að kaupa sæl- gæti og við báðum um kúlur eða litla súkkulaðikarla, þá var keypt ein kúla eða einn lítinn súkku- laðikarl. Þetta þótti okkur ferlegt og kunnum við betur við „óhófið“ í pabba, eins og þú kallaðir það, því hann keypti alltaf nokkrar kúlur eða súkkulaðikarla og jafn- vel hvort tveggja. Okkar elsku besta mamma, við biðjum góðan Guð að blessa þig og varðveita og vitum að þú munt lifa með okkur um alla tíð. Svanhildur og Gunnar. Elsku amma okkar, að sitja hér og skrifa minningargrein um þig er ekki eitthvað sem við vor- um tilbúin til að gera strax. Að hafa alist upp með þig í okkar lífi hefur kennt okkur svo margt, all- ar minningarnar um þig og með þér eru svo dýrmætar. Allar sumarbústaðaferðirnar sem dæmi. Skínandi sól, þú í stuttermabolnum, gallastuttbux- unum og grænu stígvélunum, úti í miðju blómabeði að sinna blóm- unum þínum og reyta arfa. Afi í sólbaði á veröndinni og við að leika okkur, að sippa, í körfubolta eða bara hvað sem er. Að spila óþokka við ykkur afa, allir páskarnir þegar þú eyddir löngum tíma í að fela eggin og við að leita. Þú syngjandi og dans- andi inni í eldhúsi. Aldrei munum við gleyma hversu gott það var að vera í kringum þig. Þú varst alltaf svo glöð og brosandi. Það var alveg sama hvað gekk á, það var alltaf svo stutt í brosið. Ó, Jesús bróðir besti og barnavinur mesti, æ breið þú blessun þína á barnæskuna mína. Mér gott barn gef að vera og góðan ávöxt bera, en forðast allt hið illa, svo ei mér nái’ að spilla. (Páll Jónsson) Elsku amma, takk fyrir allt. Við vitum að þú og afi vakið yfir okkur öllum. Gígja, Almar og Signý. Nú er hún Signý okkar dáin eftir harða baráttu við þennan ill- víga sjúkdóm sem svo margir þurfa að berjast við og bíða lægri hlut. Hún Signý var yndisleg manneskja. Í yfir 30 ár var hún félagi í vinahópnum okkar og alltaf mætt fyrst af öllum og tilbúin að taka til hendinni þar sem þurfti. Signý hafði yndi af söng og hafði bjarta og fallega rödd og kunni alla texta sem sungnir voru og miklu fleiri. Og Signý var allt- af glöð og kát og ósjaldan bauð hún okkur heim til sín og þá var talað um landsins gagn og nauð- synjar, spjallað og mikið hlegið og ekki voru veitingarnar af verri endanum. Signýjar verður sárt saknað af hópnum og hennar skarð vandfyllt. Við kveðjum þig vina, hér og nú. Ert kölluð til æðri starfa. Þakklát fyrir að það varst þú. Þér Rósirnar kveðju bera. Og við sendum okkar dýpstu samúðarkveðjur. Fyrir hönd Blandaðra Rósa, Guðbjörg Ellertsdóttir. Okkar yndislega Signý er fall- in frá. Það er undarleg tilfinning. Hún háði snarpa og erfiða bar- áttu við veikindi síðasta árið og gerði það af svo miklu æðruleysi að ekki var annað hægt en að fylgjast fullur aðdáunar með. Tíminn var vel nýttur og góðu dagarnir notaðir til að gera eitt- hvað skemmtilegt. Signý var hrífandi persónu- leiki, glaðvær, jákvæð, falleg og elskaði lífið. Börn skipuðu stóran sess í hennar lífi en hún starfaði sem dagmóðir nánast allan sinn starfsaldur og lét ekki af störfum fyrr en á sjötugasta og níunda aldursári og nutu mörg börn í fjölskyldunni góðs af. Hún elskaði börnin og þau hana enda var hún afar eftirsótt og vinsæl dagmóðir. Lífsvilji hennar var svo mikill og sterkur að hún var staðráðin í að halda upp á áttræðisafmælið sitt og sjá litla langömmubarnið sem von var á þrátt fyrir að vera orðin afar veikburða og komin á líknardeildina. Hvort tveggja tókst og áttum við fjölskyldan og nánustu vinir Signýjar þar afar dýrmæta og fallega stund á afmælisdaginn. Signý var mikil fjölskyldu- manneskja og naut samvista við sína nánustu og átti hún afar fal- legt samband við ömmu- og lang- ömmubörnin sín sem sóttu í fé- lagsskap hennar og hún í þeirra. Gott er að geta minnst ferðar- innar til Kaupmannahafnar fyrir rétt rúmlega ári þar sem þær mágkonur Signý og Stella léku á als oddi. Þar var mikið hlegið og margt skemmtilegt gert, farið í smur- brauð til Idu Davidsen, í Tívolí í jólabúningi, búðaráp og lífsins notið til hins ýtrasta. Til stóð að endurtaka gleðina en ekki gafst færi á því, því mið- ur. En við erum afar þakklátar fyrir að eiga þessar skemmtilegu minningar. Aldrei var komið að tómum kofunum hjá Signýju hvort held- ur var heima í Hörðalandi eða í sumarbústaðnum þeirra Ragga í Grímsnesinu. Borðin svignuðu undan ómótstæðilegum kræsing- um. En í sumarbústaðnum naut hún sín í náttúrunni innan um blómin og gróðurinn. Að leiðarlokum viljum við þakka Signýju samfylgdina, til- veran verður fátæklegri án henn- ar en fallegar minningar um þessa einstöku konu verma hjartað. Gráttu ekki yfir góðum liðnum tíma. Njóttu þess heldur að ylja þér við minningarnar, gleðjast yfir þeim og þakka fyrir þær með tár í augum, en hlýju í hjarta og brosi á vör. Því brosið færir birtu bjarta, og minningarnar geyma fegurð og yl þakklætis í hjarta. (Sigurbjörn Þorkelsson) Svanhildi, Gunnari og öðrum ástvinum Signýjar vottum við okkar dýpstu samúð. Minningin lifir. Jórunn, Alma og fjölskyldur. Láttu nú ljósið þitt loga við rúmið mitt. Hafðu þar sess og sæti, signaði Jesús mæti. (Höf. ók.) Eins láttu ljósið þitt lýsa í hjarta mitt, skína í sál og sinni, sjálfur vaktu þar inni. Lát húmið milt og hljótt hlúa að mér í nótt og mig að nýju minna á mildi arma þinna. Ég fel minn allan hag einum þér nótt og dag, ljósið af ljósi þínu lifi í hjarta mínu. (Sigurbjörn Einarsson) Elsku amma, takk fyrir að vera þú fyrir okkur. Gunnar Nökkvi, Amelía Carmen, Christopher Darri, Myrkvi Þór, Ragna Caritas og Hlynur Freyr. Signý Gunnarsdóttir Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, LÁRA BERNDSEN, Úthlíð 13, lést á líknardeild Landspítalans 17. janúar. Útförin hefur farið fram í kyrrþey. Þökkum auðsýnda samúð. Jón Karl Scheving Kristjana S. Jónsdóttir Jón Arnórsson Lilja Guðrún Jónsdóttir Hjörleifur F. Þórarinsson Hanna Lára Scheving og barnabörn Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, JÓN LÁRUS SIGURÐSSON, fyrrverandi yfirlæknir, lést á hjúkrunarheimilinu Eir mánudaginn 21. janúar. Útförin fer fram frá Neskirkju miðvikudaginn 30. janúar klukkan 13. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki á Eir fyrir hlýju og góða umönnun. Sif Sigurvinsdóttir Jóhanna H. Jónsdóttir Halldór Páll Ragnarsson Ágústa Ragna Jónsdóttir Elín Margrét Hjelm Sigrún Edda Jónsdóttir Egill Þór Sigurðsson Sigurvin Lárus Jónsson Rakel Brynjólfsdóttir og barnabörn

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.