Morgunblaðið - 25.01.2019, Page 30

Morgunblaðið - 25.01.2019, Page 30
30 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. JANÚAR 2019 Afmælisdagurinn verður lúxus. Við hjónakornin ætlum aðskreppa barnalaus austur í Mývatnssveit og vera þar á hótelieina nótt. Njóta þess þar að slappa af, fara í gönguferðir og gera eitthvað skemmtilegt. Það er nauðsynlegt að komast í nýtt um- hverfi öðru hvoru,“ segir Indiana Ása Hreinsdóttir á Akureyri, sem er 42 ára í dag. Indiana ólst upp á Svalbarðseyri og á góðar minningar þaðan og frá unglingsárunum í Hrafnagilsskóla í Eyjafjarðarsveit. Hún tók stúd- entspróf frá VMA og fór síðan suður til Reykjavíkur, þar sem hún nam mann- og fjölmiðlafræði til BA-gráðu við Háskóla Íslands. Fór svo í meistaranám í blaða- og fréttamennsku og átti síðan eftir að starfa við fjölmiðla í mörg ár. „Ég var í mörg ár á DV og Fréttablaðinu, fyrst fyrir sunnan en svo seinna hér á Akureyri og skrifaði þá efni úr öllum landshlutum. Mest var ég í viðtölum og lagði mig þá eftir því að spjalla við venjulegt fólk sem hafði mikilvægar sögur að segja,“ segir Indiana sem 2015-2017 ritstýrði Akureyri vikublaði. Fyrir nokkrum misserum var hún svo ráðin kynningar- og markaðsstjóri Menningarfélags Akureyrar, en undir hatti þess eru Leikfélag Akureyrar, Sinfóníuhljómsveit Norður- lands og Menningarhúsið Hof. „Hér er ýmislegt spennandi að gerast. Sýningum á Kabarett fer að ljúka og núna standa yfir æfingar á barna- og fjölskyldusöngleiknum Gallsteinar afa Gissa sem ég trúi að slái í gegn. Svo verða hér ýmsir tónleikar á næstunni og fleiri áhuga- verðar samkomur,“ segir Indiana sem er gift Stefáni Frey Jóhanns- syni. Þau eiga fjórar dætur; tvíburana Marsibil og Ísabel sem eru 11 ára, Hreindís Anna er 8 ára og Sóldögg Jökla er 5 ára. sbs@mbl.is Akureyri Hér er ýmislegt spennandi að gerast, segir Indiana Ása. Lúxus við Mývatn Indiana Ása Hreinsdóttir er 42 ára í dag J óhann Rúnar Skúlason fæddist 25. janúar 1969 á Sauðárkróki og ólst þar upp. Hann gekk í grunn- skóla á Sauðárkróki og út- skrifaðist sem gagnfræðingur og fór síðar til Óðinsvéa að læra mjólk- urfræði. Hann kláraði námið 1993 en hefur aldrei starfað sem mjólkur- fræðingur heldur hefur hann alla tíð unnið við hesta. „Foreldrar mínir voru ekki hesta- fólk, en ég kynntist hestum hjá frændfólki mínu á Flugumýri, Hofs- ósi, á Kjartansstöðum í Ölfusi og þá varð ekki aftur snúið.“ Jóhann hefur lengst af verið bú- settur í Danmörku og keypti sér bóndabæ rétt hjá Silkiborg á Jót- landi, sem heitir Slippen, og hóf þar hestarækt árið 2007. Á síðustu fimm Jóhann R. Skúlason, hestamaður og -ræktandi – 50 ára Margfaldur heims- meistari í hestaíþróttum Knapi ársins Jóhann ásamt foreldrum sínum á uppskeruhátið hestamanna þegar hann var valinn knapi ársins 2013. Fjölskyldan Jóhann og Stína ásamt Jóhanni Árna. Garður Elmar Ingi Eyberg Jónsson fæddist 13. júní 2018 kl. 21.04. Hann vó 2.326 g og var 43 cm langur. Foreldrar hans eru Árný Þöll Ómarsdóttir og Jón Eyberg Helgason. Nýr borgari Íslendingar Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Breiðumörk 1c, 810Hveragerði / www.hotelork.is / booking@hotelork.is / sími: +354 4834700 / fax: +354 4834775 Fallegt umhverfi og fjölmargir möguleikar til afþreyingar tryggja betri fundarhlé. Fundarfriður áHótelÖrk ÁHótel Örk er öll aðstaða til fundahalda til fyrirmyndar. Starfsfólk okkar býr yfir mikilli reynslu og metnaði til að aðstoða stóra og litla hópa, fyrirtæki og félagasamtök við skipulagningu og undirbúning á fundum og ráðstefnum. Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.