Morgunblaðið - 25.01.2019, Page 33

Morgunblaðið - 25.01.2019, Page 33
DÆGRADVÖL 33 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. JANÚAR 2019 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Að búa við sálarfrið er mesta ham- ingjan. Taktu eftir litlu hlutunum í lífinu og þakkaðu fyrir allt sem þú hefur og átt. 20. apríl - 20. maí  Naut Brjóttu odd af oflæti þínu og þiggðu aðstoð. Rómantíkin mun blómstra hjá þér næstu vikurnar. Þú færð fréttir sem munu fá þig til að breyta um skoðun. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Helsta ástæðan fyrir því að fólk nær ekki markmiðum sínum er sú að það hefur engin markmið. Skrifaðu þín markmið niður og sjáðu hvað gerist. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Mundu að kapp er best með forsjá. Breytingar standa fyrir dyrum og samræður við fjölskyldumeðlimi varpa ljósi á ýmislegt sem þú vissir ekki. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Viljirðu leita í einveruna skaltu láta það eftir þér og vertu ekkert að afsaka þig fyrir öðrum. Ef einhver lætur þér líða illa er viðkomandi sennilega ekki réttur félags- skapur. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Einhver hjálpar þér við að víkka sjón- deildarhring þinn. Taktu lífinu með ró, þér liggur ekkert á. Kappkostaðu að kenna börnum þínum að bera ábyrgð. 23. sept. - 22. okt.  Vog Þú svífur um á sæluskýi ástarinnar. Ekki kasta höndunum til verkefnis sem þú þarft að sinna, þú færð það bara í hausinn aftur. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Ástamálin kunna að ganga brösuglega um þessar mundir. Gerðu þér far um að hlusta með athygli og smám saman rennur upp fyrir þér hvað þú þarft að gera. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Þú ert önnum kafinn þessa dag- ana, þótt einhverjum finnist ef til vill ekki mikið ganga undan þér. Sníddu þér stakk eftir vexti. 22. des. - 19. janúar Steingeit Heppnin er með þér í dag og því ekki úr vegi að taka áhættu, sama hversu langsóttur árangurinn virðist. Oft veltir lítil þúfa þungu hlassi. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Einhvern spenna virðist einkenna samskipti þín við makann í dag. Sambandið er byggt á ást og mun standa þó það hvessi lítillega. 19. feb. - 20. mars Fiskar Þú ert svoddan bjartsýnismanneskja, að þú sérð lífið í framtíðinni innihalda það sem þig langar í. Reyndu að nálgast aðra á jafnréttisgrundvelli. Nú hefur blessaður snjórinn komiðsér vel fyrir á flestum stöðum landsins. Sumum til ama og öðrum til mikillar gleði. x x x Víkverji telur að snjórinn laði framþað besta og versta í mann- skepnunni og snjórinn geti verið mikill skaðvaldur en líka gleðigjafi. Sérstaklega fyrir yngri kynslóðina sem elskar að renna sér á snjóþotu eða dekki, fara á skauta og skíði, búa til snjókarla og fara í saklaust snjó- boltastríð. Eldri einstaklingar hafa líka gaman af leikjum í snjó og verða gjarnan börn á ný ef þeim tekst að sleppa fram af sér beislinu. x x x Þegar snjórinn sest kemur í ljóshverjir bera umhyggju fyrir náunganum. Hverjir það eru sem moka frá ruslageymslunni til að auð- velda sorptæknum vinnu sína. Hverjir moka gönguleið til þess að létta póstburðarfólki og blaðberum lífið. Hverjir moka fyrir nágrannana eða hlaupa til á næsta götuhorni til þess að ýta föstum bíl. x x x Vissulega er það svo að ekki getaallir mokað snjó eða ýtt bílum og ekkert við því að segja. Enginn er skyldugur að moka snjó og létta öðr- um lífið og hver og einn hefur val um hvað hann gerir. En að mati Vík- verja hafa ökumenn ekki val um hvort þeir skafi af bílum sínum eða ekki, það er að segja ætli þeir að fara út í umferðina. x x x Víkverja finnst það alveg með ólík-indum hvernig sumum öku- mönnum dettur í hug að fara út í umferðina með mjög svo takmarkað útsýni út úr bílnum. Það er óhugnan- legt að sjá ökumenn rýna út um framrúðuna í allri umferðarkösinni og sjá hvorki aftur fyrir bílinn né til hliðar. x x x Að mati Víkverja eiga slíkir öku-menn frekar að sitja heima eða nýta sér almenningssamgöngur til öyggis fyrir sjálfa sig og aðra veg- farendur. vikverji@mbl.is Víkverji Allir vegir Drottins eru elska og trú- festi fyrir þá sem halda sáttmála hans og boð. (Sálm: 25.10) Á miðvikudaginn birtist hérþorralimra eftir Guðmund Arnfinnsson. Hún olli því, að Ing- ólfur Ómar gaukaði að mér tveim vísum – og sagðist fá vatn í munn- inn af að hugsa um þorramat en í dag er fyrsti dagur í þorra: Nú er best að kýla kvið, kjamsa vel og lengi. Hangikjöt og söltuð svið, súran pung og rengi. Svo má ekki gleyma hákarlinum: Bragðið kæsta bætir geð, bros ég set á trýnið. Hákarlsbita í trantinn treð og teyga brennivínið. Í bók Árna Björnssonar „Sögu daganna“ segir frá því, að á fyrstu árum síðustu aldar hafi maður heyrt getið um „hrútaveislur“ við norðanverðan Breiðafjörð á þess- um degi. Á mannmörgu heimili var þá soðið mikið reykt kjöt af vænum hrútum. Um það kunni hann þessa saknaðarvísu: Nú eru úti allstaðar allar hrútaveislurnar, þá í kútinn kveðið var og kindahnútur nagaðar. Eins og við er að búast er marg- víslegur skáldskapur og misjafn að gæðum tekinn upp í bókinni og tek ég þetta erindi sem sýnishorn: Hér er átveisla stór. Hér er ólgandi bjór. Drukkinn ákaft í skrautlegum sal. Hér er hangikjöt heitt. Hér er hnakkaspik feitt. Hér er hákarl og magála val. Eftir eitt þorrablótið á Egils- stöðum varð þessi vísa til: Á Egilsstöðum enn er mót sem ýmsra léttir buddu. Þar var haldið þorrablót og þar fékk Stebbi Guddu. Eftir miðja síðustu öld tók Hall- dór Gröndal veitingamaður í Naustinu upp þá nýbreytni að bjóða upp á þorramat og naut það mikilla vinsælda. Helgi Sæmundsson orti: Inni á Nausti aldrei þver ánægjunnar sjóður. Þorramaturinn þykir mér þjóðlegur og góður. Ég tók „brennivínsbókina“ fram úr bókaskápnum og rifjaði upp brag, sem var mjög vinsæll á mín- um menntaskóla- og stúdentsárum og er eflaust enn. Þetta er fyrsta erindið: Þegar hnígur húm að Þorra, oft ég hygg til feðra vorra og þá fyrst og fremst til Snorra sem framdi Háttatal. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Á fyrsta degi þorra og af þorrablóti Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „þetta er BESTA ÞJÓFAVÖRNIN SEM VIÐ BJÓÐUM. SETTU BARA PAR AF ÞESSUM UPP VIÐ ÚTIDYRNAR.” Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... fyrsta skrefið. HELDURÐU AÐ ALLIR EIGI SÉR TILGANG? ALGERLEGA! MINN TILGANGUR ER AÐ HALDA FJÖLDA KLEINUHRINGJA Í SKEFJUM HELGA FÓR MEÐ BÖRNIN Í HELGARHEIMSÓKN TIL FRÆNKU SINNAR Í SVÍÞJÓÐ! BORÐARÐU ÞÁ BARA OSTABRAUÐ Í KVÖLDMATINN Í FJARVERU HENNAR? ÉG HEF BORÐAÐ HEIMA HJÁ MÖMMU HELGA ER EKKI SÚ EINA Í FJÖLSKYLDUNNI SEM GETUR ELDAÐ! Útivist & ferðalög NÁNARI UPPLÝSINGAR: Katrín Theódórsdóttir Sími: 569 1105 kata@mbl.is PÖNTUN AUGLÝSINGA fyrir mánudaginn 28. janúar. SÉRBLAÐ Morgunblaðið gefur út glæsilegt sérblað um Útivist og ferðalög föstudaginn 1. febrúar Meira fyrir lesendur

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.