Morgunblaðið - 31.01.2019, Qupperneq 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. JANÚAR 2019
Kolbrún Baldursdóttir borg-arfulltrúi Flokks fólksins
skrifar: „Listaverk verða hluti af
heildarhönnun hverfisins en
Reykjavíkurborg og lóðareigendur
munu saman verja
140 milljónum króna
til kaupa á verkinu“
var sagt í fréttum í
kvöld. Og allir skála
fyrir þessu!
Fjárhæð semverja á til
kaupa á listaverki eða listaverkum í
Vogabyggð nemur 140 milljónum
króna og er verkefnið kostað sam-
eiginlega af Reykjavíkurborg og
lóðareigendum Vogabyggðar.
Hér er klár staðfesting á hvarforgangsröðun borgarinnar
liggur! Og það er ekki hjá börnum
og fólki sem bíður á biðlista eftir
húsnæði eða nær engan veginn end-
um saman. Eigum við nokkuð að
tala um biðlista í flest alla þjónustu
fyrir börn, sálfræðiþjónustu, tal-
meinaþjónustu...
Ég vil minna á biðlista í húsnæði,fólk sem nær ekki endum
saman. Þrá borgarbúar suðrænt
loftslag? Hvar hefur það verið stað-
fest?
Er ekki tímabært að meirihlutinn
reyni að fara að snerta jörð?
Borgarmeirihlutinn lifir í ein-hverjum allt öðrum heimi en
hinn almenni borgarbúi, segi ég,
borgarfulltrúi Flokks fólksins sem
vill að allir hafi fyrst og fremst
fæði, klæði og húsnæði. Ekki étur
maður pálmatré?
Fólkið fyrst! svo má spá í aðflytja inn pálmatré í lista-
verkaformi eða hvað eina sem
þessu fólki kann að detta í hug að
gera.“
Kolbrún
Baldursdóttir
Borgin braggast
og stráin stækka
STAKSTEINAR
Árleg Bridshátíð hefst í Hörpu í
Reykjavík í kvöld og mun Katrín Jak-
obsdóttir forsætsiráðherra segja
fyrstu sögnina. Rúmlega 120 bridspör,
þar af á fjórða tug erlendra, eru skráð
til leiks í tvímenningskeppni og á átt-
unda tug sveita.
Meðal erlendra gesta er Zia
Mahmood, sem oft hefur spilað áður á
Bridshátíð og unnið bæði sveitakeppn-
ina og tvímenninginn. Zia spilar við
Englendinginn David Gould, sem hefur
undanfarin ár átt fast sæti í enska
landsliðinu.
Af öðrum spilurum má nefna Norð-
manninn Boye Brogeland, sem fyrir
þremur árum vakti alþjóðlega athygli
fyrir að fletta ofan af svindlmálum í
brids.
Daninn Dennis Bilde og Argentínu-
maðurinn Augustin Madala spila sam-
an en þeir eru báðir atvinnumenn í al-
þjóðlegri bridssveit sem Maria Teresea
Lavazza stýrir. Sabine Auken og Roy
Welland, sem hafa undanfarið spilað í
þýska landsliðinu, eru einnig meðal
þátttakenda en þau hafa saman unnið
bæði heims- og Evrópumót í tvímenn-
ingi. Þá er Sabine margfaldur heims-
meistari og Evrópumeistari kvenna.
Tvímenningskeppni Bridshátíðar
hefst í kvöld klukkan 19 og lýkur annað
kvöld. Sveitakeppnin hefst á laugar-
dagsmorgun og lýkur síðdegis á sunnu-
dag en þá fer fram verðlaunaafhend-
ing.
Tugir erlendra spilara í Hörpu
Yfir 120 pör á bridshátíð um helgina
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Spilað Það var þétt setinn bekk-
urinn á Bridshátíð í Hörpu í fyrra.
Magnús Heimir Jónasson
mhj@mbl.is
Embætti landlæknis hefur enn sem
komið er ekki rekist á fölsuð um-
sóknargögn vegna starfsleyfa fyrir
erlenda lækna og hjúkrunarfræð-
inga hérlendis. Þetta kemur fram í
svari embættisins við fyrirspurn
Morgunblaðsins.
Nýlega var fjallað um það í sænsk-
um fjölmiðlum að fjöldi hjúkrunar-
fræðinga frá Rúmeníu væri með
fölsuð námsskírteini. Að minnsta
kosti 27 starfsmenn í heilbrigðiskerfi
Svíþjóðar höfðu blekkt heilbrigðisyf-
irvöld. Í fréttinni kom einnig fram að
um 335 læknar í Svíþjóð væru starf-
andi án þess að farið hefði fram full-
nægjandi bakgrunnsrannsókn.
„Embættinu er vel kunnugt um
efni þessarar fréttar og kom þetta
m.a. til umræðu á síðasta samstarfs-
fundi starfsleyfateyma Norðurlanda
í nóvember sl. Embættið er með-
vitað um þennan möguleika og hagar
yfirferð umsóknargagna með þenn-
an möguleika í huga,“ segir í svari
landlæknis. Spurt var hvort mörgum
umsóknum erlendra lækna og hjúkr-
unarfræðinga hefði verið synjað á
síðustu árum. Embætti landlæknis
var ekki með haldbærar tölur um
fjölda synjana en tók fram að þær
hefðu ekki verið margar.
Fleiri starfsleyfi veitt en áður
Fjöldi erlendra lækna og hjúkr-
unarfræðinga sem hafa fengið
starfsleyfi á Íslandi hefur aukist til
muna á síðustu tveimur árum. Árið
2017 fengu 17 erlendir hjúkrunar-
fræðingar og 24 erlendir læknar
starfsleyfi á Íslandi. Árið 2018 fengu
54 erlendir hjúkrunarfræðingar
starfsleyfi á Íslandi og 33 erlendir
læknar.
Engin fölsuð gögn
enn sem komið er
Starfsleyfum er-
lendra lækna og hjúkr-
unarfræðinga fjölgar
Fjöldi starfsleyfa
2017 2018
54
17
33
24
Heimild: Embætti landlæknis
Fjöldi erlendra lækna og
hjúkrunarfræðinga sem fengu
starfsleyfi 2017 og 2018
Læknar Hjúkrunarfræðingar
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Eikjuvogur 29 - 104 Rvk.
s: 781-5100
Opið: Mán-fim: 12-18
fös: 12-16
ÚTSALA!
40-60%
AFSLÁTTUR