Morgunblaðið - 31.01.2019, Side 20
20 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. JANÚAR 2019
Tæplega tvö þúsund einstaklingar
voru atvinnulausir lengur en í hálft
ár að jafnaði á seinasta ári. Fjölgaði
nokkuð í þeim hópi frá árinu á undan
og voru allir þeir sem höfðu verið
lengur en 6 mánuði á atvinnuleysis-
skrá um 42% atvinnulausra á nýliðnu
ári.
Þessar upplýsingar koma fram á
nýbirtu yfirliti Vinnumálastofnunar
yfir ástandið á vinnumarkaði allt
seinasta ár.
4.283 að jafnaði án atvinnu
Alls voru 4.283 manns að meðaltali
atvinnulausir hér á landi í fyrra, eða
2,4% af áætluðum mannafla á vinnu-
markaði. Þetta er lítilsháttar fjölgun
atvinnulausra frá árinu á undan þeg-
ar 3.899 manns vour skráðir án at-
vinnu að meðaltali.
Atvinnuleysi karla jókst um 0,2
prósentustig í fyrra og mældist 2,2%
en atvinnuleysi kvenna breyttist
ekki milli ára. Það var 2,5%.
Meðalatvinnuleysi var mest á Suð-
urnesjum 3,2% og á höfuðborgar-
svæðinu 2,5% árið 2018 en minnst á
Norðurlandi vestra, 1,2% samkvæmt
Vinnumálastofnun.
Fleiri ný atvinnuleyfi gefin út
Gefin voru út í fyrra samtals 705
ný tímabundin atvinnuleyfi saman-
borið við 690 á árinu 2017. ,,Auk þess
voru á árinu 2018 gefin út 550 náms-
mannaleyfi og 58 þjónustusamning-
ar.
Alls voru 1.107 útsendir starfs-
menn (EES-fyrirtæki) skráðir í 115
fyrirtækjum á árinu 2018 en 1.825
útsendir starfsmenn (EES-fyrir-
tæki) í 125 fyrirtækjum árið 2017.
Alls voru 3.582 starfsmenn skráðir
í 41 starfsmannaleigu árið 2018 en
3.205 starfsmenn í 36 starfsmanna-
leigum árið 2017,“ segir í samantekt
Vinnumálastofnunar.
Fram hefur komið að á seinasta
ári bárust Vinnumálastofnun 15 til-
kynningar um hópuppsagnir alls 864
einstaklinga sem sagt var upp störf-
um. Fram kemur í samantekt Vinnu-
málastofnunar að í fyrra fengu 547
einstaklingar greitt úr Ábyrgðar-
sjóði launa en þeir höfðu verið 252 á
árinu 2017.
,,Greiddar voru kröfur launa-
manna og lífeyrissjóða vegna alls 199
þrotabúa á árinu 2018 en 166 þrota-
búa árið 2017.“ omfr@mbl.is
Fjölgun í hópi
langtímaat-
vinnulausra
Atvinnuleysi mest á Suðurnesjum
3,2% en minnst á Norðurl. vestra 1,2%
Framkvæmdir 2,4% atvinnuleysi í
fyrra af áætluðum mannafla á
vinnumarkaði.
Morgunblaðið/Eggert
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
„Ég ætlaði að fara að hægja á mér
en svo var lagt að mér að vera
áfram. Ég tók áskoruninni og tók
að mér að vera fyrirliði og ríða með
í einhverjum greinum í nýju liði
með spennandi ungum krökkum
sem eru fullir af orku og tilhlökkun
til keppninnar,“ segir Sigurbjörn
Bárðarson hestamaður sem tekið
hefur þátt í meistaradeildinni í
hestaíþróttum frá upphafi og hefur
nú tekið að sér að vera fyrirliði í
nýju liði Torfhúsa.
Meistaradeildin hefst í kvöld með
keppni í fjórgangi í Samskipahöll-
inni á félagssvæði hestamanna-
félagsins Spretts í Kópavogi og
Garðabæ. Dagskráin hefst klukkan
18.30 með setningarathöfn. Meist-
aradeildin er liða- og einstaklings-
keppni þar sem keppt er hálfsmán-
aðarlega fram í apríl. Fyrstu þrjár
greinarnar verða í Samskipahöll-
inni og tvær þær síðustu í TH-
höllinni hjá Fáki í Reykjavík. Úti-
greinarnar verða væntanlega á Sel-
fossi. Átta lið taka þátt og ríða þrír
knapar frá hverju liði í hverri
keppni.
Vilja auka áhugann
Ingibjörg Guðmundsdóttir, for-
maður stjórnar meistaradeildar-
innar, segir að keppnin verði með
sama fyrirkomulagi og síðustu ár.
„Það stefnir í harða keppni. Keppn-
ishestarnir verða sífellt betri. Flest-
ir þeirra eru á húsi allt árið og
koma í góðu formi. Í kvöld verðum
við meðal annars með sigurvegara
frá landsmótum og Íslandsmótum.
Svo erum við með 24 af okkar hæf-
ustu knöpum að keppa hverju
sinni,“ segir Ingibjörg.
Meistaradeildin hefur samið við
Ríkisútvarpið um að annast beinar
útsendingar frá keppnum deild-
arinnar. Útsendingarnar verða á
RÚV 2, í opinni dagskrá, en undan-
farin ár hefur deildin verið sýnd á
sportrásum Stöðvar 2.
„Það er hugsun okkar að auka
áhorfið á deildina og áhuga á hesta-
mennsku almennt. Fleiri hafa að-
gang að efninu í opinni dagskrá á
RÚV 2 en áður og síðan verður efn-
ið aðgengilegt í efnisveitu RÚV,“
segir Ingibjörg. Hún segir að
meistaradeild í hestaíþróttum sé
ein öflugasta keppnin í hestaíþrótt-
um og áhugi sé á að auka áhorf og
áhuga hestaáhugafólks erlendis.
Vill vera í hringiðunni
Í liði Torfhúsa sem Sigurbjörn
leiðir eru Agnes Hekla Árnadóttir,
Arnar Bjarki Sigurðsson, Hanne
Smidesang og John Kristinn Sigur-
jónsson. Allt er þetta ungt fólk en
fyrirliðinn heldur uppi meðalaldr-
inum. Sigurbjörn er þrefaldur
sigurvegari í einstaklingskeppni
meistaradeildarinnar og John
Kristinn hefur einnig keppt þar.
Hin eru nýliðar á þessum vettvangi.
Sigurbjörn segir að sitt hlutverk
verði meðal annars að stilla upp liði
í hverja keppni og hjálpa knöp-
unum að fínpússa sýningar sínar.
„Það er mikil og góð samvinna á
milli okkar og allir vilja leggja sig
fram,“ segir hann.
Eins og fram kom í upphafi var
Sigurbjörn á útleið úr meistara-
deildinni þegar kallið kom frá þessu
nýja liði. Hann viðurkennir að til
þess að heltast ekki úr lestinni í
efsta lagi hestamennskunnar þurfi
hann að vera í hringiðunni miðri.
Þar vill hann vera, ekki síst til þess
að fylgjast vel með og sinna sem
best starfi sínu sem liðsstjóri lands-
liðs Íslands í hestaíþróttum.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Fyrsta keppni Meðal keppenda í meistaradeild í hestaíþróttum í vetur eru Sigurður Sigurðarson og Sigurbjörn Bárð-
arson. Sigurbjörn hefur sigrað þrisvar í einstaklingskeppninni og Sigurður tvisvar. Þeir eru enn til alls líklegir.
Var lagt að mér að
vera áfram með
Sigurbjörn Bárðarson er fyrirliði nýs liðs með ungum
knöpum í meistaradeild í hestaíþróttum Byrjar í kvöld
Morgunblaðið/Ómar
Hestakona Ingibjörg Guðmunds-
dóttir stýrir meistaradeildinni.
Reykjavík-Akureyri-Selfossi-Bolungarvík-Vestmannaeyjum
www.dyrarikid.is - s:537-5000
VERIÐ VELKOMIN
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfa-
dóttir, ferðamála-, iðnaðar- og við-
skiptaráðherra, mun leggja til
þriggja ára átak í að flýta þrífösun
rafmagns í væntanlegri fjármála-
áætlun ríkisstjórnarinnar fyrir árin
2020-2024, segir í tilkynningu frá
ráðuneytinu.
Í dag er meira en fjórðungur af
öllu dreifikerfi RARIK einfasa, sem
takmarkar bæði flutningsgetu kerf-
isins og það hve öflugan rafbúnað
er hægt er að nota á hverjum og
einum stað.
Samkvæmt núgildandi áætlunum
verður þrífösun ekki lokið fyrr en
eftir 16 ár eða
árið 2035. Til-
lagan gengur út
á tvennt; í fyrsta
lagi aukið fjár-
magn, um 80
milljónir króna á
ári í þrjú ár, og í
öðru lagi breytta
forgangsröðun.
Í þessum
þriggja ára
áfanga, árin 2020-2022, verður lögð
áhersla á að ljúka þrífösun á tveim-
ur svæðum á landinu; Skaftár-
hreppi og Mýrum.
Þriggja ára átak í að flýta
hér þrífösun rafmagns
Þórdís Kolbrún
R. Gylfadóttir