Morgunblaðið - 31.01.2019, Síða 14
14 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. JANÚAR 2019
Hér er lýst á einfaldan og skýran hátt,
skref fyrir skref, hvernig hægt er að rækta
blómlegar og heilbrigðar pottaplöntur
ttaplöntur gefa heimilinu hlýlegt
rbragð og bæta andrúmsloftið
NÚ ER ÞAÐ GRÆNT!
Po
yfi
Bókabúð Forlagsins | Fiskislóð 39 | Opið alla virka daga 10–18 | laugardaga 11–16 | www.forlagid.is
LANDSINS MESTA ÚRVAL BÓKA
Bólusetningar skipta miklumáli og bjarga mannslífum.Alþjóðaheilbrigðismála-
stofnunin, WHO, áætlar að bólu-
setningar komi í veg fyrir um 2-3
milljónir dauðsfalla á hverju einasta
ári. Afleiðing þess að við náum ekki
að bólusetja öll börn eins og best
hefði verið á kosið er að um 1,5 millj-
ónir manna deyja árlega af völdum
sjúkdóma sem hægt hefði verið að
koma í veg fyrir með bólusetningum.
Áskorun að viðhalda árangri
Á heimasíðu Embættis land-
læknis kemur fram að þátttaka í
bólusetningum á Íslandi er misjöfn
frá ári til árs. Við erum stundum að
gleyma okkur og sífellt þarf að
minna á mikilvægi bólusetninga. Það
er mikil áskorun að viðhalda árangri
sem náðst hefur í fækkun sjúkdóma
og fá fólk til að mæta í bólusetn-
ingar. Búið er að útrýma sjúkdóm-
um með bólusetningum og er kúa-
bóla dæmi um slíkan sjúkdóm.
Kíghósti, barnaveiki, rauðir hundar
og mislingar sjást varla á Íslandi
lengur.
Bólusetning gegn sýklunum sem
heita Haemophilus influenzae og
meningokokkum hefur skilað ár-
angri og fækkað til muna afleið-
ingum þessara erfiðu sjúkdóma.
Andstæðingar bólusetninga tala
gjarnan um aukaverkanir bólusetn-
inga. Þegar við bólusetjum okkur er
verið að setja veiklaðan sýkil undir
húð og fá líkamann til að bregðast
við með tilheyrandi viðbrögðum.
Þetta er í raun alveg það sama eins
og við æfum þyrlusveitina, björg-
unarsveitir eða lögreglu að vera
viðbúin uppákomum. Hver vill fá
óþjálfaða þyrlusveit eða lögreglu í
útköll þegar lífið liggur við? Þá heyr-
ist stundum að fólk verði jafnvel
þreytt eða hálfþreytt eftir bólusetn-
ingu. Þá spyr maður sig hvort það sé
ekki bara gott merki um að líkaminn
sé að taka á og virkilega æfa sig í
viðbrögðum. Aukaverkanir af bólu-
setningum eru margfalt minni en
ávinningur og alvarlegar aukaverk-
anir afar sjaldgæfar.
Bjargað 1.000 mannslífum
Það getur verið gott að taka dæmi
máli sínu til stuðnings. Það er talað
um að við höfum afstýrt um 100 þús-
und tilfellum af kíghósta frá því að
bólusetningar hófust. Það er í raun
þá verið að segja að við getum hafa
bjargað um 1.000 mannslífum. Það
er talað um að ef við værum ekki að
bólusetja í dag gæti það verið að við
sæjum 17 dauðsföll á ári vegna kíg-
hósta.
Barnaveiki var á Íslandi mjög al-
varlegur smitsjúkdómur og voru það
stundum nokkur hundruð börn sem
veiktust ár hvert á árunum 1888-
1948. Bólusetningar í skólum hófust
1948 og síðan þá hefur ekki greinst
barnaveiki á Íslandi. Barnaveiki var
á þessum tíma alvarlegur sjúkdóm-
ur og um 10% barna sem fengu sjúk-
dóminn létust
Stífkrampa og
mænuveiki útrýmt
Stífkrampi hefur ekki sést á Ís-
landi eftir að almenn bólusetning
hófst 1955 og með betra bóluefni
1959.
Mænuveiki er alvarlegur smit-
sjúkdómur sem á árum áður olli löm-
unum. Núna verður þessa sjúkdóms
ekki vart á Íslandi og þær 6-7 lam-
anir sem sáust á hverju ári sjást ekki
vegna þessa.
Árið 1989 hófst bólusetning á Ís-
landi gegn svokölluðum ífarandi
HiB-sjúkdómi. Árlega lést eitt barn
vegna þessa áður en þessar bólu-
setningar hófust. Núna deyr ekkert
barn vegna þessa og höfum við því
bjargað 25 lífum barna síðan 1989.
Ert það þú eða barnið þitt sem
bjargað var?
Fyrir ykkur sem viljið kynna ykk-
ur málið vel er gott að fara inn á
heimasíðu Embættis landlæknis.
Þar er til að mynda talað um dánar-
tíðni vegna þessara sjúkdóma sem
við bólusetjum við. Hér eru nokkur
dæmi:
Stífkrampi, um 50% dánartíðni
Meningokokkar, C 15% dánartíðni og
20% fá heilaskaða eftir þessa
sýkingu
Haemophilus influenzae, 10%
dánartíðni
Barnaveiki, 10% dánartíðni
Morgunblaðið/Hari
Sprauta 1,5 milljónir manna í heiminum deyja árlega af völdum sjúkdóma sem hægt hefði verið að koma í veg fyrir
með bólusetningum, segir hér í greininni þar sem mikilvægi þessara fyrirbyggjandi en einföldu aðgerða er áréttað.
Bólusetningar bjarga mannslífum
Heilsuráð
Óskar Reykdalsson Sérfræð-
ingur í heimilislækningum og
stjórnun heilbrigðisþjónustu
og settur forstjóri Heilsugæslu
höfuðborgarsvæðisins
Unnið í samstarfi við Heilsugæslu
höfuðborgarsvæðisins