Morgunblaðið - 31.01.2019, Qupperneq 60
60 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. JANÚAR 2019
VIÐTAL
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
„Við höfum að undanförnu haft það
að leiðarljósi að opna Borgarleik-
húsið enn frekar sem vettvang fyrir
lifandi samtal. Í því samhengi má
nefna flutninginn á Klausturupptök-
unum og #metoo-frásögnum kvenna
sem og viðtöl við flóttafólk á Stóra
sviðinu. Í raun má segja að við séum
núna að taka þetta skrefi lengra og
innleiða þetta skýrar,“ segir Kristín
Eysteinsdóttir borgarleikhússtjóri
um framtíðarsýn leikhússins sem
hún kynnti nýverið á starfsmanna-
fundi í Borgarleikhúsinu samhliða
kynningu á komandi leikári.
„Breytt samfélag kallar á nýtt
leikhús. Listrænt hlutverk okkar er
að hreyfa við ólíkum hópum sam-
félagsins með því að spyrja spurn-
inga, gagnrýna, vekja gleði og segja
hið ósagða. Mig langaði að skoða
hvernig við getum náð til hópa sem
við erum ekki að tala við í dag.
Einnig fannst mér mikilvægt að
hrista upp í hlutunum með það að
markmiði að endurnýja okkur,“ seg-
ir Kristín og bendir á að í mars séu
fimm ár síðan hún tók við leikhús-
stjórastöðunni.
Framsækið alþýðlegt leikhús
„Þegar ég tók við settum við okk-
ur ákveðin markmið sem okkur
finnst við vera búin að ná. Í því ljósi
er eðlilegt að skoða hvert við
stefnum næst og hvernig við ætlum
að endurnýja okkur út frá samfélag-
inu sem við erum að tala við. Ég er
mjög spennt fyrir þeirri framtíðar-
sýn sem nú hefur verið mörkuð og
held að þetta sé mjög mikilvægt
skref.“ Innt eftir því hvaða markmið
þegar hafi náðst nefnir Kristín að
hún hafi sett sér það markmið að
efla íslenska leikritun.
„Í því skyni var Hrafnhildur
Hagalín sérstaklega ráðin til að vera
ungum höfundum og höfundum í
húsinu til ráðgjafar. Okkur langaði
líka til að sviðsetja í auknum mæli
heimildarleikhús líkt og við gerðum
í Flóð. Svo var markmið hjá okkur
að búa til sýningar sem væru í senn
framsæknar og alþýðlegar, en Njála
er gott dæmi um það. Þar tókst okk-
ur að bjóða upp á mjög róttækt leik-
hús sem á sama tíma höfðaði til
breiðs hóps og þroskaði um leið
smekk áhorfenda. Mér finnst mjög
spennnandi að vinna með blöndu
framsækins og alþýðlegs leikhúss,“
segir Kristín og bendir á að áhorf-
endamet hafi verið sett í Borgarleik-
húsinu fyrir þremur árum þegar 218
þúsund gestir komu í leikhúsið á
einu ári. „Sýning ársins á Grímunni
hefur síðustu fjögur árin verið í
Borgarleikhúsinu,“ segir Kristín og
bendir á að rekstrarniðurstaða
Borgarleikhúsins hafi aldrei verið
betri en síðustu tvö ár. „Staðan er
því einstaklega góð og við viljum
gera enn betur.
Dirfska, mennska og samtal
Við mótun framtíðarsýnar leik-
hússins fórum við í gegnum þau
gildi sem við viljum standa fyrir,
bæði inn á við gagnvart starfsfólki
sem snýr að því hvernig við viljum
vinna sem fagfólk, og út á við. Lykil-
orðin þar eru dirfska, mennska og
samtal. Út frá því sprettur skýr sýn
á það hvernig sýningar við viljum
gera. Markmið okkar er að eiga opið
samtal, nota margbreytilegar vinnu-
aðferðir og skapa afgerandi sýn-
ingar. Í framhaldinu skoðum við
hvers konar verkefni og sýningar
við getum búið til út frá þessum
markmiðum. Við munum að sjálf-
sögðu halda áfram að búa til mjög
fjölbreyttar sýningar á öllum svið-
um, en með framtíðarsýn okkar er-
um við í raun að stækka rammann
okkar. Leiðarljós okkar er að vera
meira en leikhús. Við viljum vera í
meira lifandi samtali við borgina,
samfélagið og áhorfendur – ekki síst
nú um stundir þegar við erum að
upplifa stórar þjóðfélagslegar breyt-
ingar. Samfélagsgerðin er að breyt-
ast, sífellt fleiri eiga uppruna sinn í
öðrum löndum en Íslandi. Við hljót-
um því að velta fyrir okkur hvernig
við getum talað við þessa hópa og
verið leikhúsið þeirra líka. Við hljót-
um líka að þurfa að takast á við öll
stóru pólitísku málin eins og
umhverfismálin,“ segir Kristín og
tekur fram að framtíðarsýnin muni
bæði hafa áhrif á hefðbundið verk-
efnaval auk þess að vera hrein við-
bót við núverandi starfsemi.
Sjö hugmyndir af um fjörutíu
til framkvæmda á næsta leikári
Að sögn Kristínar skilaði hug-
myndavinnan innan leikhússins að
undanförnu um fjörutíu tillögum.
„Það er auðvitað miserfitt og mis-
kostnaðarsamt að útfæra þessar
hugmyndir þannig að við tökum
þetta í nokkrum skrefum. Við reikn-
um með að sjö tillögur komist til
framkvæmda þegar á næsta leikári
og stefnum svo að því að innleiða
fleiri á næstu árum,“ segir Kristín
og bendir á að strax á næsta ári
verði sýningar á Stóra sviðinu text-
aðar á ensku og pólsku. „Markmiðið
er að fleiri eigi kost á að koma í leik-
húsið og skilja það sem þar fer fram.
Vonandi getum við líka textað allar
sýningar á minni sviðum hússins frá
og með þarnæsta leikári,“ segir
Kristín og leggur áherslu á mikil-
vægi þess að leikhúsið sé fjölþjóð-
legra og tali til fleiri hópa sam-
félagsins.
„Önnur hugmynd snýr að því að
opna nýtt svið á þriðju hæð hússins
sem við nefnum Umbúðalaust: Stúd-
íó Borgarleikhússins. Þar er ætlun
okkar að gefa ungum leikskáldum,
leikstjórum og leikhópum tækifæri
til að setja upp sýningar með ein-
faldri umgjörð. Leikmyndin verður í
algjöru lágmarki, enda markmiðið
fremur að vinna með innihaldið en
umbúðirnar. Þetta verður vett-
vangur fyrir rannsóknir og tilraunir.
Þetta er líka vettvangur fyrir sviðs-
höfunda að stíga sín fyrstu skref,“
segir Kristín og bendir á að þátttak-
endur þurfi að vera yngri en 35 ára,
en auglýst verður eftir umsóknum
strax í næstu viku.
„Ráðgert er að þrjú til fjögur
verkefni verði valin til sýningar á
næsta leikári,“ segir Kristín og
bindur vonir við að yngri áhorf-
endur skili sér á þessar sýningar,
enda verði miðaverði stillt í hóf.
„Þetta er því hrein viðbót við þá
starfsemi sem hér er fyrir og hugs-
að sem nýtt krydd í flóruna. Það
hefur vantað vettvang fyrir meiri til-
raunir og tækifæri fyrir unga sviðs-
höfunda að spreyta sig.“
Leiksýning sem verði skúbb
Þriðja hugmyndin snýr að því að
fá þekkta pólska leikara til að setja
upp sýningu í leikhúsinu sem textuð
yrði á íslensku. „Við erum í við-
ræðum um að fá hingað gestasýn-
inguna Óskastundina í leikstjórn
Yönu Ross,“ segir Kristín og vísar
þar til leikgerðar Ross á Request
concert eftir þýska leikskáldið
Franz Xaver Kroetz sem upp-
haflega var sett upp á vegum leik-
hússins TR Warszawa. „Ég sá þessa
sýningu á leiklistarhátíð fyrir
nokkrum árum og hreifst af. Pólska
leikkonan Danuta Stenka fer með
eina hlutverkið í sýningunni,“ segir
Kristín.
Fjórða nýjungin á komandi leik-
ári felur í sér flutning fyrirlestra.
„Andri Snær Magnason er að vinna
að bók sem væntanleg er næsta
haust. Þetta verður, líkt og Drauma-
landið, algjör bomba þegar bókin
kemur út,“ segir Kristín og bendir á
að margra ára rannsóknarvinna
liggi að baki bókinni. „Andri Snær
er að tala um loftslagsmálin og þær
breytingar sem eru að verða í haf-
inu, en nálgast þetta á persónulegan
og fallegan hátt,“ segir Kristín sem
reiknar með að Andri Snær flytji
fyrirlestur sinn einu sinni í viku
fram eftir vetri.
Í fimmta lagi hyggst Borgarleik-
húsið á næsta leikári vinna sýningu í
samstarfi við rannsóknarblaða-
mann. „Við höfum verið í samtali og
samstarfi við blaðamenn á Stund-
inni. Það er stór áskorun fyrir leik-
húsið hvernig við getum tekið á mál-
efnum líðandi stundar. Hugmyndin
er að rannsaka tiltekið efni og setja
upp sýningu sem inniheldur skúbb,“
segir Kristín og tekur fram að sýn-
ingin verði aðeins sýnd einu sinni.
Opna hugmyndagátt á vefnum
Í takt við þróunina erlendis ætlar
Borgarleikhúsið að opna dyr sínar
fyrir vinsælum íslenskum útvarps-
þáttum og hlaðvörpum. „Við erum
að sjá það erlendis að hlaðvörp eru í
auknum mæli að færast inn á leik-
sviðið,“ segir Kristín og bendir á að
sífellt aukin þörf sé fyrir ákveðið
mótvægi við hraðann í samfélaginu.
„Vera Illugadóttir ætlar að vinna
sérstaka þætti af Í ljósi sögunnar
sem einungis munu hljóma á sviði,“
segir Kristín og bendir á að Hallur
Ingólfsson muni vinna hljóðmynd
þáttarins sem flutt verði lifandi á
sviðinu. „Þetta verða væntanlega
fjórir til sex þættir til að byrja með
einu sinni í viku,“ segir Kristín og
tekur fram að þótt sjónræna um-
gjörðin verði í lágmarki verði sýn-
ingarnar engu að síður sjónrænt
spennandi. „Samstarfið við RÚV
fyrr í vetur gafst mjög vel,“ segir
Kristín og vísar þar til flutnings
heimildarverksins Með gat á hjart-
anu í laginu eins og Guð sem tekið
var upp sem útvarpsleikrit á Nýja
sviðinu. „Það er magnað að sitja í sal
og upplifa raunverulegt samtal
áhorfenda við leikarana.“
Síðasta nýjungin sem Borgarleik-
húsið kynnir að sinni er sérstök
hugmyndagátt leikhússins sem opn-
uð verður á vef Borgarleikhússins
frá og með næsta hausti. „Mark-
miðið með hugmyndagáttinni er að
fleiri, hvort heldur er innanhúss eða
utan, eigi kost á því að koma inn
með hugmyndir að sýningum, um-
fjöllunarefnum og leikritum.“
Morgunblaðið/Eggert
„Breytt samfélag kallar á nýtt leikhús“
Borgarleikhússtjóri kynnir framtíðarsýn leikhússins Sýningar textaðar á ensku og pólsku frá
og með næsta leikári Nýr vettvangur fyrir unga sviðshöfunda Markmiðið að eiga opið samtal
»Mig langaði að skoða hvernig við getum náð til hópa sem við erum ekki að tala við í dag.
Einnig fannst mér mikilvægt að hrista upp í hlut-
unum með það að markmiði að endurnýja okkur.
Farsæl Kristín Eysteinsdóttir
hefur senn gegnt stöðu
borgarleikhússtjóra í fimm ár.
HURÐIR
Tunguháls 10, 110 Reykjavík, sími 567 3440, vagnar@vagnar.is, vagnar.is
• Stuttur afhendingartími
• Hágæða íslensk
framleiðsla
• Val um fjölda lita í
RAL-litakerfinu
• Vindstyrktar hurðir
Bílskúrs- og iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir með gönguhurð
Bílskúrshurðir
Hurðir í trékarma
Tvískiptar hurðir
Smíðað eftir máli
Fyrsta flokks þjónusta og ráðgjöf