Morgunblaðið - 31.01.2019, Blaðsíða 60

Morgunblaðið - 31.01.2019, Blaðsíða 60
60 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. JANÚAR 2019 VIÐTAL Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is „Við höfum að undanförnu haft það að leiðarljósi að opna Borgarleik- húsið enn frekar sem vettvang fyrir lifandi samtal. Í því samhengi má nefna flutninginn á Klausturupptök- unum og #metoo-frásögnum kvenna sem og viðtöl við flóttafólk á Stóra sviðinu. Í raun má segja að við séum núna að taka þetta skrefi lengra og innleiða þetta skýrar,“ segir Kristín Eysteinsdóttir borgarleikhússtjóri um framtíðarsýn leikhússins sem hún kynnti nýverið á starfsmanna- fundi í Borgarleikhúsinu samhliða kynningu á komandi leikári. „Breytt samfélag kallar á nýtt leikhús. Listrænt hlutverk okkar er að hreyfa við ólíkum hópum sam- félagsins með því að spyrja spurn- inga, gagnrýna, vekja gleði og segja hið ósagða. Mig langaði að skoða hvernig við getum náð til hópa sem við erum ekki að tala við í dag. Einnig fannst mér mikilvægt að hrista upp í hlutunum með það að markmiði að endurnýja okkur,“ seg- ir Kristín og bendir á að í mars séu fimm ár síðan hún tók við leikhús- stjórastöðunni. Framsækið alþýðlegt leikhús „Þegar ég tók við settum við okk- ur ákveðin markmið sem okkur finnst við vera búin að ná. Í því ljósi er eðlilegt að skoða hvert við stefnum næst og hvernig við ætlum að endurnýja okkur út frá samfélag- inu sem við erum að tala við. Ég er mjög spennt fyrir þeirri framtíðar- sýn sem nú hefur verið mörkuð og held að þetta sé mjög mikilvægt skref.“ Innt eftir því hvaða markmið þegar hafi náðst nefnir Kristín að hún hafi sett sér það markmið að efla íslenska leikritun. „Í því skyni var Hrafnhildur Hagalín sérstaklega ráðin til að vera ungum höfundum og höfundum í húsinu til ráðgjafar. Okkur langaði líka til að sviðsetja í auknum mæli heimildarleikhús líkt og við gerðum í Flóð. Svo var markmið hjá okkur að búa til sýningar sem væru í senn framsæknar og alþýðlegar, en Njála er gott dæmi um það. Þar tókst okk- ur að bjóða upp á mjög róttækt leik- hús sem á sama tíma höfðaði til breiðs hóps og þroskaði um leið smekk áhorfenda. Mér finnst mjög spennnandi að vinna með blöndu framsækins og alþýðlegs leikhúss,“ segir Kristín og bendir á að áhorf- endamet hafi verið sett í Borgarleik- húsinu fyrir þremur árum þegar 218 þúsund gestir komu í leikhúsið á einu ári. „Sýning ársins á Grímunni hefur síðustu fjögur árin verið í Borgarleikhúsinu,“ segir Kristín og bendir á að rekstrarniðurstaða Borgarleikhúsins hafi aldrei verið betri en síðustu tvö ár. „Staðan er því einstaklega góð og við viljum gera enn betur. Dirfska, mennska og samtal Við mótun framtíðarsýnar leik- hússins fórum við í gegnum þau gildi sem við viljum standa fyrir, bæði inn á við gagnvart starfsfólki sem snýr að því hvernig við viljum vinna sem fagfólk, og út á við. Lykil- orðin þar eru dirfska, mennska og samtal. Út frá því sprettur skýr sýn á það hvernig sýningar við viljum gera. Markmið okkar er að eiga opið samtal, nota margbreytilegar vinnu- aðferðir og skapa afgerandi sýn- ingar. Í framhaldinu skoðum við hvers konar verkefni og sýningar við getum búið til út frá þessum markmiðum. Við munum að sjálf- sögðu halda áfram að búa til mjög fjölbreyttar sýningar á öllum svið- um, en með framtíðarsýn okkar er- um við í raun að stækka rammann okkar. Leiðarljós okkar er að vera meira en leikhús. Við viljum vera í meira lifandi samtali við borgina, samfélagið og áhorfendur – ekki síst nú um stundir þegar við erum að upplifa stórar þjóðfélagslegar breyt- ingar. Samfélagsgerðin er að breyt- ast, sífellt fleiri eiga uppruna sinn í öðrum löndum en Íslandi. Við hljót- um því að velta fyrir okkur hvernig við getum talað við þessa hópa og verið leikhúsið þeirra líka. Við hljót- um líka að þurfa að takast á við öll stóru pólitísku málin eins og umhverfismálin,“ segir Kristín og tekur fram að framtíðarsýnin muni bæði hafa áhrif á hefðbundið verk- efnaval auk þess að vera hrein við- bót við núverandi starfsemi. Sjö hugmyndir af um fjörutíu til framkvæmda á næsta leikári Að sögn Kristínar skilaði hug- myndavinnan innan leikhússins að undanförnu um fjörutíu tillögum. „Það er auðvitað miserfitt og mis- kostnaðarsamt að útfæra þessar hugmyndir þannig að við tökum þetta í nokkrum skrefum. Við reikn- um með að sjö tillögur komist til framkvæmda þegar á næsta leikári og stefnum svo að því að innleiða fleiri á næstu árum,“ segir Kristín og bendir á að strax á næsta ári verði sýningar á Stóra sviðinu text- aðar á ensku og pólsku. „Markmiðið er að fleiri eigi kost á að koma í leik- húsið og skilja það sem þar fer fram. Vonandi getum við líka textað allar sýningar á minni sviðum hússins frá og með þarnæsta leikári,“ segir Kristín og leggur áherslu á mikil- vægi þess að leikhúsið sé fjölþjóð- legra og tali til fleiri hópa sam- félagsins. „Önnur hugmynd snýr að því að opna nýtt svið á þriðju hæð hússins sem við nefnum Umbúðalaust: Stúd- íó Borgarleikhússins. Þar er ætlun okkar að gefa ungum leikskáldum, leikstjórum og leikhópum tækifæri til að setja upp sýningar með ein- faldri umgjörð. Leikmyndin verður í algjöru lágmarki, enda markmiðið fremur að vinna með innihaldið en umbúðirnar. Þetta verður vett- vangur fyrir rannsóknir og tilraunir. Þetta er líka vettvangur fyrir sviðs- höfunda að stíga sín fyrstu skref,“ segir Kristín og bendir á að þátttak- endur þurfi að vera yngri en 35 ára, en auglýst verður eftir umsóknum strax í næstu viku. „Ráðgert er að þrjú til fjögur verkefni verði valin til sýningar á næsta leikári,“ segir Kristín og bindur vonir við að yngri áhorf- endur skili sér á þessar sýningar, enda verði miðaverði stillt í hóf. „Þetta er því hrein viðbót við þá starfsemi sem hér er fyrir og hugs- að sem nýtt krydd í flóruna. Það hefur vantað vettvang fyrir meiri til- raunir og tækifæri fyrir unga sviðs- höfunda að spreyta sig.“ Leiksýning sem verði skúbb Þriðja hugmyndin snýr að því að fá þekkta pólska leikara til að setja upp sýningu í leikhúsinu sem textuð yrði á íslensku. „Við erum í við- ræðum um að fá hingað gestasýn- inguna Óskastundina í leikstjórn Yönu Ross,“ segir Kristín og vísar þar til leikgerðar Ross á Request concert eftir þýska leikskáldið Franz Xaver Kroetz sem upp- haflega var sett upp á vegum leik- hússins TR Warszawa. „Ég sá þessa sýningu á leiklistarhátíð fyrir nokkrum árum og hreifst af. Pólska leikkonan Danuta Stenka fer með eina hlutverkið í sýningunni,“ segir Kristín. Fjórða nýjungin á komandi leik- ári felur í sér flutning fyrirlestra. „Andri Snær Magnason er að vinna að bók sem væntanleg er næsta haust. Þetta verður, líkt og Drauma- landið, algjör bomba þegar bókin kemur út,“ segir Kristín og bendir á að margra ára rannsóknarvinna liggi að baki bókinni. „Andri Snær er að tala um loftslagsmálin og þær breytingar sem eru að verða í haf- inu, en nálgast þetta á persónulegan og fallegan hátt,“ segir Kristín sem reiknar með að Andri Snær flytji fyrirlestur sinn einu sinni í viku fram eftir vetri. Í fimmta lagi hyggst Borgarleik- húsið á næsta leikári vinna sýningu í samstarfi við rannsóknarblaða- mann. „Við höfum verið í samtali og samstarfi við blaðamenn á Stund- inni. Það er stór áskorun fyrir leik- húsið hvernig við getum tekið á mál- efnum líðandi stundar. Hugmyndin er að rannsaka tiltekið efni og setja upp sýningu sem inniheldur skúbb,“ segir Kristín og tekur fram að sýn- ingin verði aðeins sýnd einu sinni. Opna hugmyndagátt á vefnum Í takt við þróunina erlendis ætlar Borgarleikhúsið að opna dyr sínar fyrir vinsælum íslenskum útvarps- þáttum og hlaðvörpum. „Við erum að sjá það erlendis að hlaðvörp eru í auknum mæli að færast inn á leik- sviðið,“ segir Kristín og bendir á að sífellt aukin þörf sé fyrir ákveðið mótvægi við hraðann í samfélaginu. „Vera Illugadóttir ætlar að vinna sérstaka þætti af Í ljósi sögunnar sem einungis munu hljóma á sviði,“ segir Kristín og bendir á að Hallur Ingólfsson muni vinna hljóðmynd þáttarins sem flutt verði lifandi á sviðinu. „Þetta verða væntanlega fjórir til sex þættir til að byrja með einu sinni í viku,“ segir Kristín og tekur fram að þótt sjónræna um- gjörðin verði í lágmarki verði sýn- ingarnar engu að síður sjónrænt spennandi. „Samstarfið við RÚV fyrr í vetur gafst mjög vel,“ segir Kristín og vísar þar til flutnings heimildarverksins Með gat á hjart- anu í laginu eins og Guð sem tekið var upp sem útvarpsleikrit á Nýja sviðinu. „Það er magnað að sitja í sal og upplifa raunverulegt samtal áhorfenda við leikarana.“ Síðasta nýjungin sem Borgarleik- húsið kynnir að sinni er sérstök hugmyndagátt leikhússins sem opn- uð verður á vef Borgarleikhússins frá og með næsta hausti. „Mark- miðið með hugmyndagáttinni er að fleiri, hvort heldur er innanhúss eða utan, eigi kost á því að koma inn með hugmyndir að sýningum, um- fjöllunarefnum og leikritum.“ Morgunblaðið/Eggert „Breytt samfélag kallar á nýtt leikhús“  Borgarleikhússtjóri kynnir framtíðarsýn leikhússins  Sýningar textaðar á ensku og pólsku frá og með næsta leikári  Nýr vettvangur fyrir unga sviðshöfunda  Markmiðið að eiga opið samtal »Mig langaði að skoða hvernig við getum náð til hópa sem við erum ekki að tala við í dag. Einnig fannst mér mikilvægt að hrista upp í hlut- unum með það að markmiði að endurnýja okkur. Farsæl Kristín Eysteinsdóttir hefur senn gegnt stöðu borgarleikhússtjóra í fimm ár. HURÐIR Tunguháls 10, 110 Reykjavík, sími 567 3440, vagnar@vagnar.is, vagnar.is • Stuttur afhendingartími • Hágæða íslensk framleiðsla • Val um fjölda lita í RAL-litakerfinu • Vindstyrktar hurðir Bílskúrs- og iðnaðarhurðir Iðnaðarhurðir Iðnaðarhurðir með gönguhurð Bílskúrshurðir Hurðir í trékarma Tvískiptar hurðir Smíðað eftir máli Fyrsta flokks þjónusta og ráðgjöf
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.