Morgunblaðið - 31.01.2019, Qupperneq 37
37
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. JANÚAR 2019
Reykjavíkurhöfn Veður hamlar stundum sjósókn og stundum eiga sjómenn, einkum á smábátum, í erfiðleikum á hafi úti, en ekki er algengt að sjá fleyin frosin inni eins og í logninu í gær.
Eggert
Hvernig er Ísland
statt í upphafi árs?
Hvernig er Ísland statt
miðað við önnur ríki
veraldar? Öfundsverð
staða, segja útlending-
arnir og allar hagtölur.
Afrek hvernig eitt
verst stadda ríki Evr-
ópu í hruninu hefur
bjargað sér. Nú er lag
til að bæta enn lífskjör
landsmanna, sem eru
talin góð. Þó liggur fyrir að við eig-
um okkar „huldubörn“ sem sér-
staklega þurfa leiðréttingu kjara
sinna.
Hér í landi er friður, hér er kraft-
ur og bjartsýni, ekki til atvinnuleysi,
bara tækifæri, sé vel róið á bæði
borð. Ég tek samt eftir því að ýmsir
„spekingar“, hér telja eins og venju-
lega að allt sé verst hér heima og sér-
staklega í eldhúsi ríkisstjórnarinnar.
Telja að nokkuð sterk orð nýrrar for-
ystu verkalýðsins boði ragnarök,
verkföll og gul vesti.
En hvernig er staðan í samanburði
við stóru lýðræðisríkin? Förum fyrst
til Bandaríkjanna. Þar er forsetinn,
Trump, í vandræðum, kemur ekki
fjárlögum í gegnum þingið. Eldar
loga á götum Parísar og forseti
Frakklands í frjálsu falli. Theresa
May stödd í skelfilegu ölduróti í sínu
þingi. Merkel að stíga sinn síðasta
dans í pólitíkinni í Þýskalandi og
hnútar byrjaðir að rakna upp. Ekki
hægt að mynda ríkisstjórn í Svíþjóð.
Á Ítalíu slást þingmennirnir í þing-
salnum. Og ESB orðið ógnvænlegt
ofvaxið apparat sem lifir sjálfstæðu
lífi utan aðildarlandanna og fleiri og
fleiri vilja hverfa burt úr þessu gisti-
húsi vaxandi vandræða.
Kjarasamningar sem höggva
burt hnúta og fátækt
Og hver er svo raunveruleg staða
Íslands í þessum samanburði? Sterk
og breið ríkisstjórn, sem fer mátu-
lega mikið eða lítið fyrir, er að standa
sig vel á alla mælikvarða. Fjárlög
voru afgreidd hér löngu
fyrir jól með afgangi og
einni bestu stöðu Ís-
lands í hundrað ár.
Hvað kjaramálin varð-
ar eru allir sammála:
ríkisstjórnin, Alþingi,
verkalýðsforystan, at-
vinnulífið. Hver er þá
þessi eini vilji? Allir
vilja eitt og það sama:
bæta kjör þeirra á
vinnumarkaðnum sem
verst eru settir, koma
húsnæðismálum unga
fólksins og þeirra sem borga ok-
urleigu í lag. Draga fólk úr fátækt-
argildrunni, sem er og hefur verið
eins og snara um háls þeirra lægst
launuðu og aldraðra og öryrkja. Um
leið og kjarabætur, kauphækkanir,
hafa komið í hús hjá þessu fólki, oft
einstæðum mæðrum, en þá hefur
ríkið dregið að sér höndina og
minnkar húsnæðisbætur og bótarétt
þessa fólks. Hægri höndin virðist
alltaf vilja taka það góða sem vinstri
höndin gaf. Verkalýðshreyfingin er í
dag með nýtt forystufólk, þetta fólk
veit hvar hnífurinn stendur í
„kúnni,“ eða launþeganum. Ég hygg
að það séu áratugir síðan verkalýðs-
hreyfingin hefur staðið jafn nærri
þeim fátæka. Það er því mjög líklegt
að verkalýðshreyfingin og atvinnu-
lífið með ríkisstjórnina í aftursætinu
leysi kjarasamninga svona eins og
gert var í Þjóðarsáttinni 1991.
Verkalýðshreyfingin á sinn stærsta
séns að ávinningurinn fari til okkar
verst setta fólks í samfélaginu, sú er
óskin ein.
Eftir Guðna
Ágústsson
»Hvernig er Ísland
statt miðað við önn-
ur ríki veraldar? Öf-
undsverð staða, segja
útlendingarnir og allar
hagtölur.
Guðni
Ágústsson
Höfundur er fv. alþingismaður og
ráðherra.
Verkalýðshreyf-
ingin á nú sinn
stærsta séns?
Skógrækt er góður
fjárfestingakostur og
tækifæri til skógrækt-
ar á Íslandi miklir þar
sem landkostir á Ís-
landi eru góðir. Mik-
ilvægt er að efla skóg-
rækt sem
mótvægisaðferð gegn
loftslagsbreytingum
en talið er að 12%
skógarþekja geti
bundið sem samsvarar
næst losun allri losun CO2 á Ís-
landi. Skógrækt dregur úr söfnun
CO2 í andrúmsloftinu með bindingu
kolefnis. Aðlögun að loftlagsbreyt-
ingum felst í að færa sér í nyt
vaxtarmöguleika skóga á Íslandi.
Náttúruskógar voru meðal höf-
uðvistkerfa Íslands en þekja þeirra
hefur rýrnað um 95% frá landnámi.
Ósjálfbær nýting þeirra fram yfir
miðja 20. öld eyddi þeim að miklu
leyti. Ísland er því háð innflutningi
á nær öllum skógarafurðum. Mikil
verðmætasköpun gæti átt sér stað
ef markmið um að fimmfalda þekju
skóga á næstu 40 árum og fara úr
tæplega 1% í 6,0% af flatarmáli Ís-
lands og ná þannig að standa undir
atvinnusköpun og sjálfbærri
byggðaþróun. Verðmæti lands
eykst verulega með aukinni skóg-
rækt en öll ræktun í skjóli skóga
verður hagkvæmari og verðmætari.
Stefna þarf á sjálfbæra þróun sem
hefur að leiðarljósi að byggja upp
og varðveita skógarauðlind sem
þjónar hagrænum og um-
hverfistengdum markmiðum sem
auka lífsgæði og velferð Íslendinga
horft til langrar framtíðar.
Nú þarf að hefjast handa strax í
þessu mikilvæga umhverfismáli 21.
aldarinnar. Góð ræktarsvæði eru á
Suðurlandi, Vesturlandi, Norður-
landi og Austurlandi. Mikil tæki-
færi felast í að gera skógrækt að
sjálfbærum atvinnuvegi á Íslandi á
næstu 15-20 árum sem skilar veru-
legum gæðum til samfélagsins. Ný
hugsun í umhverfismálum og nátt-
úruvernd gera þetta mögulegt en
ljóst er að auka þarf fjárveitingar
til skógræktarmála þannig að fjár-
magn frá lífeyr-
issjóðum og fagfjár-
festum laðist að
fjárfestingum í ný-
skógrækt. Þegar skóg-
ar komast á nýting-
araldur má vænta
áhuga á skógar-
kaupum til fjárfest-
ingar. Á Íslandi á
Skógrækt ríkisins
t.a.m. helming af þeim
skógi sem er kominn á
nýtingu en annað er í
eigu skógræktarfélaga
en mestur hluti rækt-
aðra skóga er frekar ungur.
Fjárfesting í skógrækt
eykur áhættudreifingu og
sveiflujöfnun
Skógrækt er langtíma fjárfest-
ingavalkostur fyrir langtíma-
fjárfesta sem vilja áhættudreifingu
og litla fylgni við sveiflur á verð-
bréfamörkuðum. Fjárfesting í
skógrækt er langtímafjárfesting
þar sem tekjur af skógræktinni
byrja að skila tekjum eftir 15-20
ár. Mikil þekking á skógrækt hefur
byggst upp hjá skógræktarfélögum
landsins og mörgum bændum sem
eru vörslumenn landsins. Markmið
íslenskra lífeyrissjóða er að greiða
lífeyri og ávaxta eignir á sem best-
an hátt. Ef skógræktarverkefni þar
sem horft er til 15-20 ára og ávöxt-
un með tilliti til áhættu er innan
þeirra marka sem lífeyrissjóðir
gera væri hægt að hefjast handa
við stórfellda skógrækt á Íslandi í
samstarfi íslenskra lífeyrissjóða, ís-
lenskra stjórnvalda, skógrækt-
arfélaga og bænda um allt land.
Verðmæti lands, hreinna landbún-
aðarafurða og stórkostlegrar nátt-
úru og náttúruauðlinda Íslands fá
nýtt vægi í heimi þar sem nátt-
úruvernd og umhverfismál verða
stærstu og mikilvægustu mál 21.
aldarinnar. Landsbyggðin á Íslandi
er sannkallaður óslípaður demantur
og það er ljóst að skógrækt með
skipulögðum hætti hefur mikil áhrif
til styrkingar byggðar um allt land
og ekki er ólíklegt að störfum við
skógrækt myndi fjölga verulega á
landsbyggðinni sem fjölgar þeim
mikilvægu vörslumönnum sem
gæta ómetanlegra verðmæta sem
eru í náttúru og náttúruauðlindum
Íslands.
Fjárfesting í skógrækt er lang-
tímafjárfesting sem þarf þolinmæði
fjárfesta og gæti hentað lífeyr-
issjóðum og fellur vel að fjárfest-
ingastefnu sem horfir til sjálfbærni,
umhverfisverndar, náttúruverndar,
áhættudreifingar og sveiflujöfn-
unar.
Auk þess munu fjárfestingar
stærstu fjárfesta heims til fram-
tíðar horfa meira til gildismats og
náttúrulögmála sem gilda um líf á
jörðinni. Verndun á viðkvæmri
náttúru, auðæfum hafsins og nátt-
úrulögmálum lífsins munu fá aukið
vægi við fjárfestingar hjá stærstu
og öflugustu fjárfestum heimsins
en þar munu lífeyrissjóðir um allan
heim vera í forystu. Ávinningur af
stórfelldri skógrækt á Íslandi horft
til framtíðar er augljós en leiða
þarf saman helstu hagsmunaðila
sem geta hrint hugmyndinni í
framkvæmd þannig að fjárfestingin
skili nægilegri ávöxtun með tilliti
til áhættu fyrir þá langtíma-
fjárfesta sem koma að fjárfesting-
unni. Hagsmunir Íslands og Íslend-
inga eru miklir í að skógrækt á
Íslandi sem hafi umhverfisvernd og
verðmætasköpun að leiðarljósi
komist í framkvæmd með afgerandi
hætti en nú þarf að láta verkin
tala.
Eftir Albert Þór
Jónsson » Stefna þarf á sjálf-
bæra þróun sem hef-
ur að leiðarljósi að
byggja upp og varðveita
skógarauðlind sem
þjónar hagrænum og
umhverfistengdum
markmiðum sem auka
lífsgæði og velferð Ís-
lendinga horft til langr-
ar framtíðar.
Albert Þór
Jónsson
Höfundur er viðskiptafræðngur,
MCF í fjármálum fyrirtækja og með
30 ára starfsreynslu á fjármálamark-
aði. albertj@simnet.is
Skógrækt á Íslandi er umhverf-
isvernd og verðmætasköpun