Morgunblaðið - 31.01.2019, Qupperneq 46
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. JANÚAR 2019
– merki um gæði –
Oakley hjálmar,
bretta- og skíðagleraugu,
margar gerðir.
Hulda Bjarnadóttir
hulda@k100.is
Ragga, eða Ragnhildur Þórð-
ardóttir, starfar sem sálfræðingur
og heilsuráðgjafi í Danmörku og á
Íslandi. Hún segist í miklu betra
formi í dag en fyrir tíu árum þegar
hún tókst á við síþreytu og erfitt
tímabil eftir vaxtarræktarkeppni.
Hún segir muninn liggja í æfing-
unum og ákefðinni, eða „meira
crossfit og ég get hoppað hærra,
lyft þyngra og hlaupið hraðar“,
segir hún. Auk þess borði hún
meira og þá um leið fjölbreyttari
fæðu. Sjálf segist hún ætla að vera
í betra formi um fimmtugt en fer-
tugt.
Ragga hefur vakið athygli fyrir
vasklega og hreinskiptna nálgun á
hlutina og hlutirnir sagðir eins og
þeir eru. Hún hefur boðið upp á
hefðbundna fjarþjálfun frá árinu
2007 og hjálpað þúsundum að gera
heilsuna að lífsstíl, efla sjálfs-
traustið og komast í betra líkam-
legt form, en nú leggur hún
áherslu á sálfræðimeðferð og ráð-
gjöf þar sem unnið er með hugs-
anir og hugarfar til að auka lík-
urnar á varanlegum lífsstílsbreyt-
ingum. Á heimasíðu hennar segir
að flestir kúrar, mataræðisstefnur
og lífsstílsbækur gangi út frá að
fólk búi yfir hugrænum verkfærum
Formið batnar með
„Ég er í miklu betra
formi sko núna, korteri í
fertugt, en ég var þegar
ég var þrítug,“ segir
Ragga nagli í síðdegis-
þættinum á K100 þegar
hún lýsir tíu ára saman-
burðarmynd sem hún
setti á samfélagsmiðla
með myllumerkinu
„10yearchallenge“.
K100
Ánægð Ragga nagli segist í miklu betra formi í dag en fyrir tíu árum þegar
hún tókst á við síþreytu og erfitt tímabil eftir vaxtarræktarkeppni.
Iðin Ragga situr ekki aðgerðarlaus. Nýlega hóf hún að taka upp hlaðvarp
með sérfræðingum þar sem hún fer yfir fimm máttarstólpa góðrar heilsu.