Morgunblaðið - 31.01.2019, Page 42

Morgunblaðið - 31.01.2019, Page 42
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. JANÚAR 2019 Funahöfða 7, 110 Reykjavík | Sími 577 6666 KIEL/ - OG FRYSTITJEKI ., '*-�-��,�rKu�, Kæli- & frystibúnaður í allar gerðir sendi- og flutningabíla Smiðjuvegur 68, Kópavogi | S. 587 1350 | bifreidaverkstaedi.is Höfum sérhæft okkur í Toyota viðgerðum síðan 1995 Fljót, örugg og persónuleg þjónusta Allar almennar bílaviðgerðir Sæl Elínrós. Mig langar að falast eftir upplýs- ingum tengdum meðvirkni á vinnu- stöðum. Tekur þú að þér að skoða slíkt? Málið er að ég vinn á frábærum vinnustað þar sem mikils er ætlast til af manni, verkefnin eru frekar skýr og endurgjöf góð. Hins vegar hef ég grun um að það sé undir niðri rosa- leg meðvirkni í gangi hér. Það er mjög margt ekki sagt upp- hátt, heldur liggur í loftinu. Fólk vinnur hér löngum stundum, þó að við fáum einungis greitt fyrir átta stundir á dag. Einhvers staðar erum við öll í leik, til að þóknast yfirmanni okkar. Við dönsum í kringum einn millistjórnanda sem er að þróa með sér áfengisfíkn að ég held. En eng- inn segir neitt. Sem dæmi þá fórum við öll út sam- an nýverið og þessi millistjórnandi missti sig alveg í drykkju. Hann byrjaði að ýta við okkur sem störf- um með honum, sagði hluti sem ég skil ekki alveg hvaðan koma og þar fram eftir götunum. Síðan mætum við öll í vinnu eftir helgina og enginn segir neitt. Ég sé að mannauðsstjórinn er að reyna að taka á þessu af sínum veika mætti. En hvernig get ég sem vinn með honum látið í ljós að hann sé að fara yfir mörkin mín? Hvernig get ég tekið þátt í að vera ekki meðvirk með þessu ástandi? Þetta er góður starfskraftur, en hann er ekki heiðarlegur þegar kemur að vinnu eða einkalífi sínu. Hvað myndir þú gera til að að- stoða okkur? Hvað myndir þú gera sem stjórnandi fyrirtækisins í þessu máli? Kærar, ein meðvirk. Sæl og takk fyrir að senda þessa spurningu. Það sem þið þurfið er utanaðkom- andi einstaklingur sem kann að tak- ast á við fíknivanda og meðvirkni. Fíkn er sjúkdómur sem fer vanalega versnandi með tím- anum. Hægt er að þróa með sér fíkn í mat, áfengi, vímuefni og fólk (ástarfíkn) svo eitthvað sé nefnt. Einn af hverjum tíu körlum í landinu hefur leitað sér aðstoðar á Vogi vegna áfengis- og/eða vímuefnaneyslu. Mörg hjónabönd upplifa stjórn- leysi og talsvert margir í þessu landi eru í basli með þyngd sína. Af þessum sökum verðum við að gera ráð fyrir því að hluti fólks á vinnu- stöðum sé í vanda og sumir jafnvel að byrja að þróa með sér fíkn. Af því að þú spyrð mig beint hvað ég myndi gera til að aðstoða ykkur og hvaða ráð ég myndi gefa stjórnanda ykkar þá myndi ég gera eftirfarandi: Stjórnandi ykkar þarf að vita hvernig hann getur orðið hluti af lausninni. Ég veit að ef hann fær aðstoð frá fagaðila til að taka það sem kallast „intervention“ fengi hann fræðslu um fíknisjúkdóminn, hvernig best er að taka á honum og hvernig hann getur orðið hluti af bata þess sem er að þróa með sér fíknina. Meðvirkni er að láta sem ekkert hafi gerst. Það þarf hugrekki í þessa aðgerð. Samtalið er vanalega gert undir handleiðslu og fer fram á þann hátt að stjórnandi sest niður með starfsmanni og bendir á að hann telji að um vandamál sé að ræða. Best er að hafa samtalið hlýlegt og þægilegt. Eins er mikilvægt að vera með hugmynd að lausn í sjón- máli. Flottustu leiðtogarnir bjóða upp á nokkrar lausnir í samtalinu. En það þarf góðar upplýsingar til þess að vita næstu skref og þau ættu að vera leidd áfram af fagfólki. Ég er á því að minnsta inngripið sé alltaf best, en mjög oft er nauð- synlegt að viðkomandi starfsmaður fari í meðferð. Ef stjórnandinn getur leitt starfs- mann sinn í áttina að bata, mun hann án efa vera með afar þakklátan ein- stakling í vinnu til frambúðar. Mikilvægast er að gera samninga í þessum viðtölum. Það sem vinnustaðurinn þarf að- stoð með að skilja er að það velur sér enginn að vera ekki með stjórn á því sem hann borðar, hvern hann elskar eða hvað hann drekkur mikið. En það er alltaf staður og stund til að taka ábyrgð og gera eitthvað í hlut- unum. Að takast á við meðvirkni á vinnu- staðnum er áhugavert verkefni. Starfsmenn sem ná tökum á með- virkni eru opnari og ánægðari í vinnunni en þeir sem eru meðvirkir. Hægt er að vera með vinnustofur, einstaklingsfundi og fræðslu um heilbrigð samskipti og meðvirkni. Rithöfundurinn Norman Vincent Peale sagði að hluti af því að vera lif- andi væri að vera með vandamál og verkefni að leysa. Heilbrigðustu vinnustaðirnir að mínu mati gera ráð fyrir því. Kær kveðja, Elínrós Líndal. Meðvirkni á vinnustaðnum Lesandi sendir bréf vegna þess að einn millistjórnandi í fyr- irtækinu þar sem hún vinnur er að þróa með sér áfengisfíkn. Hún veltir fyrir sér hvernig hún geti orðið hluti af batanum og ekki verið meðvirk með ástandinu. Meðvirkni Vinnustaður getur haft mikil áhrif á ánægju starfsmanna í vinnunni. Ráðgjafi Elínrós Líndal Ljósmynd/Thinkstockphotos

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.