Morgunblaðið - 31.01.2019, Qupperneq 55

Morgunblaðið - 31.01.2019, Qupperneq 55
um verið á sviði efnafræði tannfyll- ingarefna, endingar tannfyllinga og tíðni tannátu meðal barna og ung- linga á Íslandi. Einnig á tannheilsu Íslendinga til forna. „Það er athygl- isvert að tennur í ungum Íslend- ingum fyrir 1.000 árum eru með gler- ungseyðingu svipaða og hjá ung- lingum í dag sem drekka of mikið gos, en þá var líklega súrmeti og mysu- drykkju um að kenna. Mitt starf hefur semsagt fyrst og fremst verið kennslan í tannlækna- deildinni og svo rak ég tannlækna- stofu sem var nauðsynlegt til að geta verið klínískur kennari og fram- kvæmt það sem ég var að kenna.“ Sigfús hefur skrifað margar grein- ar í fræðirit bæði heima og erlendis og sat í ritstjórn Operative Dentistry 2000-2018. Þá er hann félagi í mörg- um fag og vísindafélögum heima og erlendis. Einnig hefur hann haldið fyrirlestra á ráðstefnum víða um heim. Sigfús var hvatamaður að stofnun Tannverndarráðs Íslands og fulltrúi Tannlæknadeildar frá stofnun 1986-2004. „Við hjónin eigum sumarbústað fyrir austan fjall. Í fyrstu var maður að planta trjám í gríð og erg en nú stendur maður í skógarhöggi til að sjá út, og grætur hvert tré sem fellur. Einnig hef ég haft gaman af því að fara í silungs- og laxveiði, og við hjón- in höfum líka ferðast töluvert. Konan mín segir reyndar að það sé alltaf ráðstefna með í pakkanum! Svo er ég í Frímúrarareglunni og hef tekið töluverðan þátt í því mannrækt- arstarfi sem þar er unnið og eignast marga góða félaga.“ Fjölskylda Eiginkona Sigfúsar er Ólafía Guð- rún Ársælsdóttir, f. 11.11. 1956, tann- tæknir og húsmóðir, fædd og uppalin á Akranesi. Foreldrar hennar eru hjónin Erla Hansdóttir, f. 19.9. 1938, d. 23.2. 2018, húsmóðir og Ársæll Ey- leifsson, f. 6.3. 1929, d. 2.3. 2001, sjó- maður á Akranesi. Börn Sigfúsar Þórs eru: a). Heið- rún Ósk f. 27.11. 1979, viðskiptafræð- ingur, maki: Kjartan Gunnsteinsson; b) Elías Þór, f. 17.3. 1988, endurskoð- andi, maki: Ásdís Svava Hallgríms- dóttir; c) Sævar Þór, f. 26.6. 1992, nemi í tölvunarfræði, maki: Hildur Eva Ómarsdóttir. Börn Ólafíu úr fyrra sambandi eru: d) Eyþór Guð- jónsson (uppeldissonur Sigfúsar) f. 20.9. 1982, löggiltur endurskoðandi, maki: Lilja Erlendsdóttir; e) Eng- ilbert Guðjónsson, f. 23.5. 1978, d. 23.8. 2010. f) Ársæll Þór Bjarnason f. 26.3. 1973, framkvæmdastjóri, maki: Kamilla Sveinsdóttir. Sigfús og Ólafía eiga samtals ellefu barnabörn. Systkini Sigfúsar eru Einar Pálm- ar, f. 20.7. 1935, iðnrekandi og stjórn- arformaður Röraverksmiðjunnar SET á Selfossi; sammæðra er Sigur- bergur Hávarðsson f. 12.11. 1927, d. 30.8. 2015, útvarpsvirki í Vestmanna- eyjum og síðar iðnskólakennari í Reykjavík; samfeðra eru Ágúst f. 29.9. 1927, d. 4.11. 1948, sjómaður í Vestmannaeyjum, og Erna Kristín, f. 27.3. 1926, húsmóðir á Egilsstöðum og síðar í Kópavogi. Foreldrar Sigfúsar Þórs eru hjónin Guðfinna Einarsdóttir f. 22.7. 1906, d. 16.10. 1999, húsmóðir og verkakona í Vestmannaeyjum, og Elías Sigfússon f. 17.3. 1900, d. 7.5. 1997, verkamaður og fyrrverandi formaður Verkalýðs- félags Vestmannaeyja og síðar starfsmaður í Kassagerð Reykja- víkur. Sigfús Þór Elíasson Vilborg Jónsdóttir húskona á Kaldbak á Rangárvöllum Magnús Árnason vinnumaður á Rangárvöllum og í Fljótshlíð Þórhildur Magnúsdóttir verkakona í Hafnarfirði Elías Sigfússon verkamaður og fv. form. Verkalfél. Vestmannaeyja Sigfús Þórðarson sjómaður í Hafnarfirði Þórunn Ólafsdóttir húsfr. í Móhúsum Þórður Sigurðsson sjómaður í Móhúsum á Miðnesi Bergsteinn Einarsson forstjóri SET Einar Pálmar Elíasson eigandi röraverksmiðjunnar SET á Selfossi Magnús Sigfússon sjómaður og fiskmatsmaður í Hafnarfirði Aðalheiður Árnadóttir kaupmaður í estmannaeyjumV Kári Birgir Sigurðsson fv. vélstjóri og útgerðarmaður í Vestmannaeyjum Ragna Árnadóttir aðstoðarforstjóri Landsvirkjunar og fv. ráðherra Pálína Árnadóttir húsfreyja í Rvík Árni Björn Jónasson verkfræð- ingur Sigríður Árnadóttir húsfreyja á Norðfirði Óskar Óskarsson viðskiptafræðingur og fv. sendiherra Noregs íAfríku Vilhjálmur Árnason frkvstj. Straums og Þvottahúss Vestmannaeyja Þór Vilhjálmsson fv. formaður ÍBV Guðjón Sigurðsson formaður MND félagsins Helga rnadóttir húsfreyja Dölum í Eyjum Á í Árnný Guðjónsdóttir fv. skrifstofu- maður í Rvík Sigurbjörg Sigurðardóttir húsfreyja í Vestmannaeyjum Guðfinna Árnadóttir húsfreyja á Stuðlum Sigurður Finnbogason bóndi og sjómaður á Stuðlum í Norðfirði Úr frændgarði Sigfúsar Þórs Elíassonar Guðfinna Einarsdóttir verkakona og húsmóðir í Vestmannaeyjum Oddbjörg Sigurðardóttir húsfreyja á Bjarnastöðum Einar Einarsson sjómaður á Bjarnastöðum á Álftanesi Einar Einarsson sjómaður á Mjóafirði ÍSLENDINGAR 55 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. JANÚAR 2019 FOSSBERG Dugguvogi 6 • 104 Reykjavík • www.fossberg.is • 5757600 Slípivélar í úrvali 95 ára Guðlaug Lovísa Ólafsdóttir 90 ára Rannveig Guðbjörg Magnúsdóttir 85 ára Guðrún R. Guðjohnsen Sæmundur Ingólfsson 80 ára Ólafía Bjarnveig Matthíasdóttir 75 ára Hadda Guðmundsdóttir Reynir Reimarsson 70 ára Einar Þorvaldsson Elín H. Jónsdóttir Fredericus Marinus Emiel Schalk Kristófer Emil Þorgrímsson Ósk Magnúsdóttir Samúel Guðmundsson Sigrún Björk Kristjánsdóttir Vilhelm Frímann Frímannsson Þuríður Jónsdóttir 60 ára Árni Sigfinnur Þorgeirsson Ásdís Guðnadóttir Elín Kristjánsdóttir Gunnar Bjarni Ólafsson Gunnar Freyr Stefánsson Lúðvík Jóhann Ásgeirsson Páll Elíasson Páll Heiðar Hartmannsson Páll Lúðvík Einarsson Páll Skúlason Stella Dröfn Guðjónsdóttir Sturla Janus Aðalsteinsson Svanhildur Óskarsdóttir Unnur Lilja Elíasdóttir Þorvaldur Friðþjófsson 50 ára Erikas Peciauskas Guðbjörg Þura Gunnarsdóttir Guðjón Sæberg Finnbogason Jolanta Maria Arendarska Kristín Hrönn Hafþórsdóttir Kristjana Halldórsdóttir Kristófer Heiðarsson Magnús Árni Skúlason Magnús Kristinsson Marta Martin Ólína Fjóla Þorkelsdóttir Ólöf Einarsdóttir Valborg Inga Guðjónsdóttir 40 ára Benedikt Brynleifsson Eiríkur Jónsson Herdís Elísabet Kristinsdóttir Inga Birna Barkardóttir Margrét Nilsdóttir Marín Manda Magnúsdóttir Nura G. Silva Sarmiento Sigurlaug Rúna Rúnarsd. Sólveig Dögg Jónsdóttir 30 ára Agata Popko Birkir Eyþór Ásgeirsson Bjarki Vigfússon Dóra Hrund Gísladóttir Hildur Kathleen Harðard. Jóhann Páll Kulp Karl Sigurðsson Lena Gunnlaugsdóttir Margrét Herdís Jónsdóttir Mirjana Mudresa Ryan Andrew Tomei Sigríður Guðrún Elíasdóttir Sigurður Páll Jósteinsson Vedad Babic Þorleifur Andri Harðarson Til hamingju með daginn 40 ára Margrét ólst upp í Höfðahverfi en býr á Akureyri. Hún er listmál- ari og nemi í sálfræði við Háskólann á Akureyri. Maki: Daníel Gunnarsson, f. 1979, nemi í félags- vísindum við Háskólann á Akureyri. Dóttir: Elísabet, f. 2008. Foreldrar: Nils Gíslason, f. 1943, hugvitsmaður, og Þóra Zophoníasdóttir, f. 1952, húsmóðir. Þau eru bús. á Akureyri. Margrét Nilsdóttir 30 ára Birkir er Garðbæ- ingur og er grafískur hönnuður hjá RÚV. Hann er menntaður flugmaður, bifreiðasmiður og útskrif- aðist úr Margmiðlunar- skólanum. Maki: Guðlaug María Sveinbjörnsdóttir, f. 1994, meistaranemi í sálfræði við Háskóla Íslands. Foreldrar: Ásgeir Þor- valdsson, f. 1947, og Hall- dóra Lára Ásgeirsdóttir, f. 1958, bús. í Garðabæ. Birkir Eyþór Ásgeirsson 30 ára Bjarki er úr Kópa- vogi en býr í Reykjavík. Hann er hagfræðingur að mennt og er sérfræðingur hjá Fjármálaeftirlitinu. Maki: Sigríður Erla Sturludóttir, f. 1992, laga- nemi við Háskóla Íslands. Foreldrar: Vigfús Hall- grímsson, f. 1960, sér- fræðingur á skólaskrif- stofu Hafnarfjarðar, og Sigríður Þórisdóttir, f. 1961, kennari í Snælands- skóla. Bjarki Vigfússon  Kevin Tanguy Elian Dini hefur var- ið doktorsritgerð sína í eðlisfræði við Háskóla Íslands. Ritgerðin heitir Ljósfræðileg stýring leiðnieiginleika tvívíðra Dirac-kerfa. Andmælendur voru dr. Polina Kuzhir, stjórnandi við NanoElectro- Magnetics Laboratory, Belarusian State University, og dr. Andre Xue- reb, dósent við University of Malta. Leiðbeinandi var Ivan Shelykh, pró- fessor við raunvísindadeild Háskóla Íslands, og einnig í doktorsnefnd sátu dr. Hafliði Pétur Gíslason, pró- fessor við raunvísindadeild Háskóla Íslands, dr. Viðar Guðmundsson, prófessor við raunvísindadeild Há- skóla Íslands, og dr. Andrei Mano- lescu, prófessor við Háskólann í Reykjavík. Víxlverkun milli ljóss og efnis er umræðuefni innan eðlisfræðinnar sem hefur stækkað ört undanfarna áratugi og orðið að einu mikilvæg- asta rannsóknarsviði. Sviðið blandar saman áhrifum úr þéttefnisfræði og skammtaljósfræði og hefur sína ein- stöku eiginleika. Það að skoða hvaða eiginleika þessara tveggja sviða er best að setja saman getur leitt til nýjunga og betri skilnings. Í þessari rit- gerð var rann- sakað fræðilega hvaða áhrif skautað rafseg- ulsvið hefur á einn þekktasta klasa tvívíðra kerfa: Dirac- efni. Til að ná markmiðinu voru fyrst skoðuð áhrif svokallaðs klæðningarsviðs á einfaldasta efnið, eitt lag af grafíni. Síðan var farið í flóknari kerfi sem eru Dirac-efni með orkugeil eins og hliðarmálma- díkalkógeníðar (e. transition metal dichalcogenides) og grafín sem hef- ur vaxið á undirlagi úr bóron-nítriði eða rafeindir sem hafa massa í tveggja laga grafíni. Loks var skoð- uð aðferð til að stýra eiginleikum rafeinda með ljósi í grafíni og að sía rafeindir þar eftir dalavísi þeirra. Til þess að framkvæma þessa vinnu var notast við tvö verkfæri til að meðhöndla kerfi sem eru lotubundin í tíma. Eitt er Floquet-Magnus formalisminn og hitt er hermun raf- einda í Dirac-kerfum með Gauss-bylgjupökkum. Kevin Dini Kevin Tanguy Elian Dini er franskur ríkisborgari sem hefur klárað fyrstu tvö stig háskólanáms við Blaise Pascal-háskólann í Clermont Ferrand, Frakklandi. Eftir að hafa lært öreindafræði fyrst um sinn, ákvað hann að breyta um stefnu og læra þéttefnisfræði. Doktor
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.