Morgunblaðið - 31.01.2019, Síða 16
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. JANÚAR 2019
Tilbúinn til neyslu, en má hita.
Afbragðs vara, holl og
næringarík.
Söluaðilar: Hagkaup, Iceland verslanir, Melabúðin, Kjörbúðir,
Krambúðir, Nettó verslanir um allt land og Pure Food Hall í flugstöðinni Keflavík.
Heitreyktur lax
SVIÐSLJÓS
Guðrún Erlingsdóttir
ge@mbl.is
Þjóðskrá vinnur nú að lokaund-
irbúningi nýrra vegabréfa. Verða
þau jafnvel tilbúin á morgun, 1.
febrúar, og í síðasta lagi hinn
þriðja. „Þeir sem eru með gild
vegabréf þurfa ekkert að óttast,
þau eru alveg jafn örugg og nýja
útgáfan,“ segir Margrét Hauks-
dóttir, forstjóri
Þjóðskrár Ís-
lands.
Margét segir
að þeir sem eru
með vegabréf í
gildi geti fengið
nýju útgáfuna en
það sé engin
þörf á því. Ef
fólk hins vegar
kjósi að fá sér
nýju útgáfuna
sæki það um hjá
sýslumanni, skili gamla vega-
bréfinu og greiði rúmlega 12.000
krónur fyrir það nýja, sem er
sama verð og á gömlu vegabréf-
unum. Margrét segir afgreiðslu-
tíma vegabréfa nú tvo daga og svo
hafi verið frá miðju sumri. Mark-
viss og mikil vinna hafi verið lögð í
það hjá Þjóðskrá að bæta þjónustu
og straumlínulaga alls kyns ferla.
Árangurinn hafi skilað sér m.a. í
tveggja daga afgreiðslufresti á
vegabréfum.
Margrét segir helstu breyting-
arnar í nýja vegabréfinu felast í
auknu öryggi í framleiðslukerfi og
breyttu útliti vegagerðarbóka.
Kápan áfram blá
„Helstu útlitsbreytingarnar fel-
ast í landslagsmyndum á hverri
opnu úr öllum landshlutum. Ekki
er eingöngu um hefðbundna ferða-
mannastaði að ræða en staðirnir
voru valdir í samráði við lands-
byggðina. Á blaðsíðunni við hlið
landslagsmyndarinnar er Íslands-
kort þar sem staðsetning mynd-
arinnar er merkt með punkti,“
segir Margrét og bætir við að
heiðlóan sé áberandi í nýja vega-
bréfinu og það sé mannbætandi að
horfa á fallegar landslagsmyndir.
Að sögn Margrétar verður kápan
áfram í bláa litnum sem einkennt
hefur íslensk vegabréf um langa
hríð.
Þrír þættir voru boðnir út á evr-
ópska efnahagssvæðinu; fram-
leiðslukerfið, vegabréfabókin og
vottorðakerfið. Hagstæðast hafi
verið talið að láta framleiða vega-
bréfabækurnar í Póllandi hjá fyr-
irtæki sem einnig sjái um fram-
leiðslu á peningaseðlum, en
svipaðir öryggisþættir þurfi að
vera fyrir hendi við prentun vega-
bréfabóka og peninga.
Margrét segir Þjóðskrá Íslands
sjá um að gefa út öll vegabréf og
persónugera þau með mynd og rit-
handarsýnishorni.
Að sögn hennar hefur ný útgáfa
verið í undirbúningi síðan 2015.
Gamla framleiðslukerfið hafi ekki
verið nógu öruggt að mati Þjóð-
skrár, hvorki uppfyllt öryggis-
kröfur Evrópusambandsins né al-
þjóðlega staðla.
Stolt af verkefninu
„Með nýju vegabréfunum er ver-
ið að taka skref í átt að auknu ör-
yggi bæði hvað varðar fram-
leiðsluferlið og vegabréfa-
bækurnar. Það var okkar
frumkvæði að auka öryggi í fram-
leiðslukerfinu og með útboðinu
náðum við einnig fram hagræð-
ingu. Þetta er flókið og mikilvægt
verkefni sem við erum afar stolt
af,“ segir Margrét og bendir á að
kostnaðurinn við nýju útgáfuna sé
um 200 milljónir. Þjóðskrá, dóms-
málaráðuneyti og styrkur úr
landamærasjóði Evrópusambands-
ins standi straum af þeim kostnaði.
Vegabréf á 21 stað erlendis
„Útgáfa nýrra vegabréfa er hjá
sýslumönnum landsins. Við höfum
stórbætt þjónustuna við Íslendinga
búsetta erlendis og nú er hægt að
sækja vegabréf í 19 sendiráðum og
hjá fastanefndum í New York og
Genf,“ segir Margrét og bendir á
að fá megi allar upplýsingar um
vegabréf á vegabref.is.
Litir Ný útgáfa vegabréfa er litskrúðugri en gömlu vegabréf-
in. Í nýju útgáfunni er meira öryggi í framleiðslukerfinu.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Ísland Í nýju vegabréfunum eru myndir af fallegu íslensku
landslagi á einni síðu og staðsetning þess á Íslandskorti.
Morgunblaðið/Eggert
Vegabréf Landslagsmyndir í nýju vegabréfunum sem Þjóðskrá Íslands gefur út og komast í gagnið í byrjun febrúar
gætu stytt landanum stundir á flugvöllum um allan heim á meðan beðið er eftir vegabréfaskoðun.
Íslensk vegabréf í nýrri útgáfu
Landslagsmyndir í vegabréfum Aukin þjónusta við Íslendinga erlendis Öruggara fram-
leiðsluferli Gömlu vegabréfin jafn örugg og nýju Kostnaður við nýju bréfin 200 milljónir
Sigríður Á.
Andersen
dómsmála-
ráðherra seg-
ir Þjóðskrá
hafa staðið
vel að breyt-
ingum á út-
gáfu vega-
bréfa á
Íslandi síð-
astliðin fjögur ár. „Breyting-
arnar auka öryggi íslenskra
vegabréfa en mikilvægt er að
við séum ávallt vakandi fyrir
nýjum leiðum til að tryggja ör-
yggi á þessum vettvangi í takt
við alþjóðlegar kröfur og
staðla,“ segir Sigríður og bæt-
ir við að það hafi verið
ánægjulegt að sjá verkinu
vinda fram hratt og örugglega
en verkefnið hafi klárast innan
þeirra áætlana sem lagt var
upp með. Hún segir gott að sjá
þann mikla árangur sem náðst
hefur við að stytta afgreiðslu-
tíma vegabréfa, sem nú er að-
eins tveir dagar.
Vegabréf á
tveimur dögum
DÓMSMÁLARÁÐHERRA
Sigríður Á.
Andersen
Margrét
Hauksdóttir
Öryggi Hagstætt og öruggt er að framleiða nýju vegabréfabæk-
urnar í Póllandi hjá fyrirtæki sem framleiðir peningaseðla.