Morgunblaðið - 31.01.2019, Side 28

Morgunblaðið - 31.01.2019, Side 28
28 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. JANÚAR 2019 Anna Lilja Þórisdóttir annalilja@mbl.is Hún er svört og látlaus með tveimur hvítum bókstöfum. En Fokk ofbeldi- húfan, sem landsnefnd UN Women á Íslandi hefur sölu á í dag, er engin venjuleg húfa því allur ágóði af henni rennur til upp- byggingar at- hvarfs fyrir Jasída- konur í Írak. „Hún lýsir upp myrkrið á tvenns konar hátt,“ segir Stella Samúels- dóttir, fram- kvæmdastýra landsnefndar UN Women á Íslandi, og vísar þar til þess að stafirnir FO, sem prýða húf- una og eru skammstöfun fyrir Fokk ofbeldi, eru úr endurskinsefni og gerir þannig þann sem húfuna ber sýni- legan í vetrarmyrkrinu. „En ágóðinn af húfunum lýsir líka upp líf Jasída- kvennanna,“ bætir Stella við. UN Women heyrir undir Samein- uðu þjóðirnar og fer með umboð þeirra til að vinna að jafnrétti kynjanna og veita stuðning til verk- efna sem ætlað er að efla réttindi kvenna og auka þátttöku þeirra í sam- félaginu. Þetta er í fjórða skipti sem landsnefnd UN Women á Íslandi selur húfur til að safna fé til að uppræta of- beldi gegn konum á heimsvísu, húfan er með nokkuð öðru sniði nú en þær fyrri og ástæða þess er að nefndin fagnar 30 ára afmæli sínu í ár. Mark- miðið er að safna fé til að byggja at- hvarf í borginni Mósúl í Írak fyrir Ja- sídakonur, sem hafa verið neyddar í kynlífsþrælkun af liðsmönnum víga- sveita Íslamska ríkisins. Oft útskúfað vegna ofbeldis Jasídar eru trúarhópur af kúrd- ískum uppruna í Írak sem framan af bjuggu víða um landið, en eftir að þeir urðu skotspónn samtakanna sem kenna sig við Íslamska ríkið hafa margir flúið land eða verið myrtir. Þúsundum Jasídakvenna hefur verið rænt af vígasveitunum bæði í Írak og Sýrlandi og þeim haldið í kynlífs- ánauð. Talið er að a.m.k. 7.000 konum og börnum hafi verið rænt á þennan hátt og að um 3.000 séu enn í haldi. Ef konurnar sleppa úr prísundinni tekur við erfiður tími; margar þeirra stríða við áfallastreituröskun og því til viðbótar eiga þær erfitt með að komast aftur inn í samfélagið því þeim er gjarnan hafnað af því vegna þess ofbeldis sem þær hafa orðið fyrir og þeim hreinlega útskúfað. Írakski mannréttindafrömuðurinn Nadia Murad vakti athygli alheims- ins á þessari skelfilegu stöðu Jasída- kvenna þegar hún hlaut friðar- verðlaun Nóbels í fyrra. Hún er Jasídi og henni var rænt af hryðjuverka- samtökunum fyrir fimm árum og var haldið sem kynlífsþræl í þrjú ár áður en henni tókst að flýja. Murad er nú orðin talskona þolenda þjóðarmorða og kynferðisofbeldis í stríði á al- þjóðavettvangi. Nokkrum athvörfum fyrir Jasída- konur í þessari stöðu hefur nú þegar verið komið á stofn, en þörf er á fleir- um og íslenska landsnefndin vill leggja sitt af mörkum í þeim efnum. „Nauðganir og kynferðisofbeldi eru markviss hluti af hernaði og notað sem aðferð í stríði til að brjóta niður samfélög og fjölskyldur. Þarna eru líkamar kvenna, og oft líka barna, gerðir að vígvelli,“ segir Stella. „Kon- urnar hafa upplifað hræðilegar að- stæður og margar þeirra hafa þolað nauðganir mörgum sinnum á dag. Þessi athvörf, sem UN Women hefur verið að koma upp, eru óskaplega mikilvæg því þar geta konurnar byggt sig upp og fengið það skjól og þá að- stoð sem þær þurfa. Sumar þessara kvenna verða ófrískar eftir nauðg- anirnar, þær fæða þá börn óvinanna og eiga enn erfiðara með að komast aftur inn í samfélagið. Þarna er leitast við að veita þeim þá valdeflingu sem þær þurfa á að halda til að halda áfram með sitt líf.“ Stella er bjartsýn á að húfunum verði vel tekið eins og endranær, en fyrri útgáfur af húfunum hafa selst upp á skömmum tíma. Þær fást á vef- síðu UN Women á Íslandi og í versl- unum Vodafone frá og með deginum í dag. Fokk ofbeldi séríslenskt slagorð Að sögn Stellu hefur húfusala ís- lensku landsnefndarinnar vakið at- hygli systurnefnda hennar víða um heim, reyndar hafi allt starf lands- nefndar UN Women hér á landi vakið eftirtekt fyrir frumleika og hversu vel landsnefndinni hefur tekist að vekja athygli á málstað sínum. Til dæmis hefur myndbandaherferð íslensku landsnefndarinnar sem sýnir karl- menn fordæma kynbundið ofbeldi vakið athygli víða um heim. Yfir hálf milljón hefur horft á myndböndin og þau m.a. verið sýnd á vegum UN Wo- men í New York. „Það er séríslenskt að selja húfur með áletruninni Fokk ofbeldi, en við höfum kynnt húfurnar víða um heim og margir ætla að fara að fordæmi okkar,“ segir Stella. Spurð um hvort búast megi við að landssamtök í öðrum löndum muni þá selja húfur sínar með samsvarandi áletrunum á erlendum málum, eins og t.d. „Fuck Violence“ á ensku, segist Stella ekki viss um að svo verði. „Þetta þyrfti væntanlega að aðlaga hverju samfélagi fyrir sig. Þetta er sterkt orðalag, vissulega ögrandi en það gengur hér á landi. Slagorðið Fokk ofbeldi hentar okkar samfélagi, hugsanlega vegna þess að við erum komin lengra í jafnréttisbaráttunni en mörg önnur lönd.“ Svarta húfan sem lýsir upp myrkrið  UN Women selur nú Fokk ofbeldi-húfur í fjórða sinn  Allur ágóði fer til að byggja upp athvarf fyrir Jasídakonur í Írak sem hafa verið neyddar í kynlífsþrælkun  Íslenska nálgunin þykir frumleg Ljósmynd/Saga Sig Fjölskylda Saga Garðarsdóttir, Snorri Helgason og litla dóttirin Edda Kristín Snorradóttir, öll með svarta Fokk ofbeldi-húfu á höfði. Feðgar Fokk ofbeldi-húfur á höfðum bræðranna Unnsteins Manúels og Loga Pedro Stefánssona og föður þeirra, Stefáns Unnsteinssonar. Athvarf Allur ágóði af sölu húfanna rennur óskiptur til athvarfs fyrir Ja- sídakonur í Írak sem hafa þurft að þola grimmilegt kynferðisofbeldi. Jasídakonur „Þessi athvörf, sem UN Women hefur verið að koma upp, eru óskaplega mikilvæg því þar geta konurnar byggt sig upp,“ segir Stella. Stella Samúelsdóttir AFP Nadia Murad Hún er Jasídi og fékk friðarverðlaun Nóbels í fyrra.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.