Morgunblaðið - 31.01.2019, Page 28
28 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. JANÚAR 2019
Anna Lilja Þórisdóttir
annalilja@mbl.is
Hún er svört og látlaus með tveimur
hvítum bókstöfum. En Fokk ofbeldi-
húfan, sem landsnefnd UN Women á
Íslandi hefur sölu á í dag, er engin
venjuleg húfa því allur ágóði af henni
rennur til upp-
byggingar at-
hvarfs fyrir Jasída-
konur í Írak.
„Hún lýsir upp
myrkrið á tvenns
konar hátt,“ segir
Stella Samúels-
dóttir, fram-
kvæmdastýra
landsnefndar UN
Women á Íslandi,
og vísar þar til
þess að stafirnir FO, sem prýða húf-
una og eru skammstöfun fyrir Fokk
ofbeldi, eru úr endurskinsefni og gerir
þannig þann sem húfuna ber sýni-
legan í vetrarmyrkrinu. „En ágóðinn
af húfunum lýsir líka upp líf Jasída-
kvennanna,“ bætir Stella við.
UN Women heyrir undir Samein-
uðu þjóðirnar og fer með umboð
þeirra til að vinna að jafnrétti
kynjanna og veita stuðning til verk-
efna sem ætlað er að efla réttindi
kvenna og auka þátttöku þeirra í sam-
félaginu. Þetta er í fjórða skipti sem
landsnefnd UN Women á Íslandi selur
húfur til að safna fé til að uppræta of-
beldi gegn konum á heimsvísu, húfan
er með nokkuð öðru sniði nú en þær
fyrri og ástæða þess er að nefndin
fagnar 30 ára afmæli sínu í ár. Mark-
miðið er að safna fé til að byggja at-
hvarf í borginni Mósúl í Írak fyrir Ja-
sídakonur, sem hafa verið neyddar í
kynlífsþrælkun af liðsmönnum víga-
sveita Íslamska ríkisins.
Oft útskúfað vegna ofbeldis
Jasídar eru trúarhópur af kúrd-
ískum uppruna í Írak sem framan af
bjuggu víða um landið, en eftir að þeir
urðu skotspónn samtakanna sem
kenna sig við Íslamska ríkið hafa
margir flúið land eða verið myrtir.
Þúsundum Jasídakvenna hefur verið
rænt af vígasveitunum bæði í Írak og
Sýrlandi og þeim haldið í kynlífs-
ánauð. Talið er að a.m.k. 7.000 konum
og börnum hafi verið rænt á þennan
hátt og að um 3.000 séu enn í haldi.
Ef konurnar sleppa úr prísundinni
tekur við erfiður tími; margar þeirra
stríða við áfallastreituröskun og því
til viðbótar eiga þær erfitt með að
komast aftur inn í samfélagið því
þeim er gjarnan hafnað af því vegna
þess ofbeldis sem þær hafa orðið fyrir
og þeim hreinlega útskúfað.
Írakski mannréttindafrömuðurinn
Nadia Murad vakti athygli alheims-
ins á þessari skelfilegu stöðu Jasída-
kvenna þegar hún hlaut friðar-
verðlaun Nóbels í fyrra. Hún er Jasídi
og henni var rænt af hryðjuverka-
samtökunum fyrir fimm árum og var
haldið sem kynlífsþræl í þrjú ár áður
en henni tókst að flýja. Murad er nú
orðin talskona þolenda þjóðarmorða
og kynferðisofbeldis í stríði á al-
þjóðavettvangi.
Nokkrum athvörfum fyrir Jasída-
konur í þessari stöðu hefur nú þegar
verið komið á stofn, en þörf er á fleir-
um og íslenska landsnefndin vill
leggja sitt af mörkum í þeim efnum.
„Nauðganir og kynferðisofbeldi eru
markviss hluti af hernaði og notað
sem aðferð í stríði til að brjóta niður
samfélög og fjölskyldur. Þarna eru
líkamar kvenna, og oft líka barna,
gerðir að vígvelli,“ segir Stella. „Kon-
urnar hafa upplifað hræðilegar að-
stæður og margar þeirra hafa þolað
nauðganir mörgum sinnum á dag.
Þessi athvörf, sem UN Women hefur
verið að koma upp, eru óskaplega
mikilvæg því þar geta konurnar byggt
sig upp og fengið það skjól og þá að-
stoð sem þær þurfa. Sumar þessara
kvenna verða ófrískar eftir nauðg-
anirnar, þær fæða þá börn óvinanna
og eiga enn erfiðara með að komast
aftur inn í samfélagið. Þarna er leitast
við að veita þeim þá valdeflingu sem
þær þurfa á að halda til að halda
áfram með sitt líf.“
Stella er bjartsýn á að húfunum
verði vel tekið eins og endranær, en
fyrri útgáfur af húfunum hafa selst
upp á skömmum tíma. Þær fást á vef-
síðu UN Women á Íslandi og í versl-
unum Vodafone frá og með deginum í
dag.
Fokk ofbeldi séríslenskt slagorð
Að sögn Stellu hefur húfusala ís-
lensku landsnefndarinnar vakið at-
hygli systurnefnda hennar víða um
heim, reyndar hafi allt starf lands-
nefndar UN Women hér á landi vakið
eftirtekt fyrir frumleika og hversu vel
landsnefndinni hefur tekist að vekja
athygli á málstað sínum. Til dæmis
hefur myndbandaherferð íslensku
landsnefndarinnar sem sýnir karl-
menn fordæma kynbundið ofbeldi
vakið athygli víða um heim. Yfir hálf
milljón hefur horft á myndböndin og
þau m.a. verið sýnd á vegum UN Wo-
men í New York. „Það er séríslenskt
að selja húfur með áletruninni Fokk
ofbeldi, en við höfum kynnt húfurnar
víða um heim og margir ætla að fara
að fordæmi okkar,“ segir Stella.
Spurð um hvort búast megi við að
landssamtök í öðrum löndum muni þá
selja húfur sínar með samsvarandi
áletrunum á erlendum málum, eins og
t.d. „Fuck Violence“ á ensku, segist
Stella ekki viss um að svo verði.
„Þetta þyrfti væntanlega að aðlaga
hverju samfélagi fyrir sig. Þetta er
sterkt orðalag, vissulega ögrandi en
það gengur hér á landi. Slagorðið
Fokk ofbeldi hentar okkar samfélagi,
hugsanlega vegna þess að við erum
komin lengra í jafnréttisbaráttunni en
mörg önnur lönd.“
Svarta húfan sem lýsir upp myrkrið
UN Women selur nú Fokk ofbeldi-húfur í fjórða sinn Allur ágóði fer til að byggja upp athvarf
fyrir Jasídakonur í Írak sem hafa verið neyddar í kynlífsþrælkun Íslenska nálgunin þykir frumleg
Ljósmynd/Saga Sig
Fjölskylda Saga Garðarsdóttir, Snorri Helgason og litla dóttirin Edda
Kristín Snorradóttir, öll með svarta Fokk ofbeldi-húfu á höfði.
Feðgar Fokk ofbeldi-húfur á höfðum bræðranna Unnsteins Manúels og
Loga Pedro Stefánssona og föður þeirra, Stefáns Unnsteinssonar.
Athvarf Allur ágóði af sölu húfanna rennur óskiptur til athvarfs fyrir Ja-
sídakonur í Írak sem hafa þurft að þola grimmilegt kynferðisofbeldi.
Jasídakonur „Þessi athvörf, sem UN Women hefur verið að koma upp, eru
óskaplega mikilvæg því þar geta konurnar byggt sig upp,“ segir Stella.
Stella
Samúelsdóttir
AFP
Nadia Murad Hún er Jasídi og fékk
friðarverðlaun Nóbels í fyrra.