Morgunblaðið - 31.01.2019, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 31.01.2019, Blaðsíða 14
14 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. JANÚAR 2019 Hér er lýst á einfaldan og skýran hátt, skref fyrir skref, hvernig hægt er að rækta blómlegar og heilbrigðar pottaplöntur ttaplöntur gefa heimilinu hlýlegt rbragð og bæta andrúmsloftið NÚ ER ÞAÐ GRÆNT! Po yfi Bókabúð Forlagsins | Fiskislóð 39 | Opið alla virka daga 10–18 | laugardaga 11–16 | www.forlagid.is LANDSINS MESTA ÚRVAL BÓKA Bólusetningar skipta miklumáli og bjarga mannslífum.Alþjóðaheilbrigðismála- stofnunin, WHO, áætlar að bólu- setningar komi í veg fyrir um 2-3 milljónir dauðsfalla á hverju einasta ári. Afleiðing þess að við náum ekki að bólusetja öll börn eins og best hefði verið á kosið er að um 1,5 millj- ónir manna deyja árlega af völdum sjúkdóma sem hægt hefði verið að koma í veg fyrir með bólusetningum. Áskorun að viðhalda árangri Á heimasíðu Embættis land- læknis kemur fram að þátttaka í bólusetningum á Íslandi er misjöfn frá ári til árs. Við erum stundum að gleyma okkur og sífellt þarf að minna á mikilvægi bólusetninga. Það er mikil áskorun að viðhalda árangri sem náðst hefur í fækkun sjúkdóma og fá fólk til að mæta í bólusetn- ingar. Búið er að útrýma sjúkdóm- um með bólusetningum og er kúa- bóla dæmi um slíkan sjúkdóm. Kíghósti, barnaveiki, rauðir hundar og mislingar sjást varla á Íslandi lengur. Bólusetning gegn sýklunum sem heita Haemophilus influenzae og meningokokkum hefur skilað ár- angri og fækkað til muna afleið- ingum þessara erfiðu sjúkdóma. Andstæðingar bólusetninga tala gjarnan um aukaverkanir bólusetn- inga. Þegar við bólusetjum okkur er verið að setja veiklaðan sýkil undir húð og fá líkamann til að bregðast við með tilheyrandi viðbrögðum. Þetta er í raun alveg það sama eins og við æfum þyrlusveitina, björg- unarsveitir eða lögreglu að vera viðbúin uppákomum. Hver vill fá óþjálfaða þyrlusveit eða lögreglu í útköll þegar lífið liggur við? Þá heyr- ist stundum að fólk verði jafnvel þreytt eða hálfþreytt eftir bólusetn- ingu. Þá spyr maður sig hvort það sé ekki bara gott merki um að líkaminn sé að taka á og virkilega æfa sig í viðbrögðum. Aukaverkanir af bólu- setningum eru margfalt minni en ávinningur og alvarlegar aukaverk- anir afar sjaldgæfar. Bjargað 1.000 mannslífum Það getur verið gott að taka dæmi máli sínu til stuðnings. Það er talað um að við höfum afstýrt um 100 þús- und tilfellum af kíghósta frá því að bólusetningar hófust. Það er í raun þá verið að segja að við getum hafa bjargað um 1.000 mannslífum. Það er talað um að ef við værum ekki að bólusetja í dag gæti það verið að við sæjum 17 dauðsföll á ári vegna kíg- hósta. Barnaveiki var á Íslandi mjög al- varlegur smitsjúkdómur og voru það stundum nokkur hundruð börn sem veiktust ár hvert á árunum 1888- 1948. Bólusetningar í skólum hófust 1948 og síðan þá hefur ekki greinst barnaveiki á Íslandi. Barnaveiki var á þessum tíma alvarlegur sjúkdóm- ur og um 10% barna sem fengu sjúk- dóminn létust Stífkrampa og mænuveiki útrýmt Stífkrampi hefur ekki sést á Ís- landi eftir að almenn bólusetning hófst 1955 og með betra bóluefni 1959. Mænuveiki er alvarlegur smit- sjúkdómur sem á árum áður olli löm- unum. Núna verður þessa sjúkdóms ekki vart á Íslandi og þær 6-7 lam- anir sem sáust á hverju ári sjást ekki vegna þessa. Árið 1989 hófst bólusetning á Ís- landi gegn svokölluðum ífarandi HiB-sjúkdómi. Árlega lést eitt barn vegna þessa áður en þessar bólu- setningar hófust. Núna deyr ekkert barn vegna þessa og höfum við því bjargað 25 lífum barna síðan 1989. Ert það þú eða barnið þitt sem bjargað var? Fyrir ykkur sem viljið kynna ykk- ur málið vel er gott að fara inn á heimasíðu Embættis landlæknis. Þar er til að mynda talað um dánar- tíðni vegna þessara sjúkdóma sem við bólusetjum við. Hér eru nokkur dæmi:  Stífkrampi, um 50% dánartíðni  Meningokokkar, C 15% dánartíðni og 20% fá heilaskaða eftir þessa sýkingu  Haemophilus influenzae, 10% dánartíðni  Barnaveiki, 10% dánartíðni Morgunblaðið/Hari Sprauta 1,5 milljónir manna í heiminum deyja árlega af völdum sjúkdóma sem hægt hefði verið að koma í veg fyrir með bólusetningum, segir hér í greininni þar sem mikilvægi þessara fyrirbyggjandi en einföldu aðgerða er áréttað. Bólusetningar bjarga mannslífum Heilsuráð Óskar Reykdalsson Sérfræð- ingur í heimilislækningum og stjórnun heilbrigðisþjónustu og settur forstjóri Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins Unnið í samstarfi við Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.