Morgunblaðið - 31.01.2019, Side 39
UMRÆÐAN 39
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. JANÚAR 2019
Canada Goose Langford Parka er framúrskarandi vörn
gegn kuldanum og glæsileg hönnun fyrir borgarlífið. Okkar
verð er sambærilegt eða betra en í flestum öðrum löndum.
CANADA GOOSE FÆST Í NORDIC STORE LÆKJARGÖTU
www.nordicstore.is
Opið kl . 9 -22 alla daga
C
a
n
a
d
a
G
o
o
se
L
a
n
g
fo
rd
P
a
rk
a
k
r.
11
9
.9
9
0
Kuldaþol: -25°C
m.
Lítil og létt loftpressa. Kemur með
fjórum stútum sem passa á dekk,
bolta, vindsængur og fleira.
REDLITHIUM-ION™ rafhlaða.
Sveigjanlegt rafhlöðukerfi sem virkar
með öllum Milwaukee® M12™ rafhlöðu
Verð 16.900 kr. (án rafhlöðu)
M12 Inflator
Alvöru loftpressa
fráMilwaukee
vfs.is
VERKFÆRASALAN • SÍÐUMÚLA 9, REYKJAVÍK • DALSHRAUNI 13, HAFNARFIRÐI • DALSBRAUT 1, AKUREYRI • S: 560 8888
Á dögunum sendi
Hagfræðistofnun Há-
skóla Íslands frá sér
skýrslu um „Þjóð-
hagsleg áhrif hval-
veiða“. Var skýrslan
gerð að beiðni Krist-
jáns Þórs, sjávar-
útvegsráðherra, en frá
upphafi var þessi beiðni
vafasöm, þar sem HÍ
hafði unnið þróun-
arverkefni fyrir Hval hf. Var því um
hagsmunatengsl milli HÍ og Hvals hf.
að ræða.
Helzta niðurstaða skýrslunnar er
að fækka skuli langreyðum við landið
um 40%, en það muni auka verðmæti
íslenzks fiskafla um á annan tug
milljarða á ári, að sögn höfunda. Ein-
falt mál það.
Skv. upplýsingum Hafrannsókna-
stofnunar munu vera 40.000 lang-
reyðar á svæðinu um Ísland. Þessi
tillaga þýðir því, að drepa skuli
16.000 langreyðar.
Í fyrra hafði Hvalur hf. leyfi til að
veiða 209 langreyðar, en fyrirtækinu
tókst ekki að veiða nema 144 dýr. Á
tíu ára tímabilinu frá 2009-2018 hefði
Hvalur mátt veiða um 2.000 dýr, en
ekki tókst að veiða nema 843.
Hvernig dettur skýrsluhöfundum
þá í hug að gera það að megintillögu
sinni að 16.000 langreyðar verði
drepnar til að auka fiskafla!?
Miðað við veiðigetu Hvals hf. í
fyrra tæki það fyrirtækið 111 ár að
veiða 16.000 dýr!
Síðasta vitneskja um meint afrán
hvala og þátt þeirra í lífríki sjávar
virðist líka hafa farið algjörlega fram
hjá skýrsluhöfundum, en þeir liggja
helzt í því að lista upp og tína til alls
konar eldgamlar og úreltar upplýs-
ingar og talnaverk.
Í apríl 2017 var haldið málþing í
Öskju um „Hlutverk hvala í lífrík-
inu“. Þar kynntu þeir Gísli Víkings-
son, hvalasérfræðingur, og Joe Rom-
an, rannsóknarprófessor, niður-
stöður umfangsmikilla rannsókna
sinna á hlutverki og þætti hvala í líf-
ríki sjávar.
Fréttablaðið birti frétt af mál-
þinginu undir þessari fyrirsögn:
„Hvalurinn gefur mun meira en hann
tekur“. Inngangsorð fréttarinnar
voru: „Unnið er með þá kenningu að
sterkir hvalastofnar styðji við vist-
kerfið og byggi undir stofna smádýra
og fiska. Gengur þvert á kenninguna
um að nauðsynlegt sé að veiða hval til
að stöðva afrán þeirra á
nytjastofnum.“
Að öðru leyti hlýtur út-
tekt á hvalveiðum að
byggjast á þessum fjór-
um spurningum:
1. Samræmast þær nú-
tímalegum sjón-
armiðum um dýra-,
náttúru- og umhverf-
isvernd?
2. Hver er efnahags-
legur ávinningur af
þeim?
3. Hverjir eru efna-
hagslegir ókostir veiðanna?
4. Hvaða áhrif hafa þær á ímynd
og orðspor Íslendinga á al-
þjóðavettvangi?
Í skýrslunni er ekki mikið komið
inn á þessar lykilspurningar, en á bls.
41 virðast höfundar telja það gott mál
að skv. veiðiskýrslu frá 2014, sem
nær til veiða á 50 langreyðum, hafi
84% þeirra, 42 dýr, drepist „sam-
stundis“, sem reyndar hefur reynst
sveigjanlegt hugtak hjá hval-
veiðimönnum, og að „aðeins“ átta
mínútur hafi að meðaltali tekið að
drepa hin átta dýrin.
Yfirfært á langreyðaveiðar Hvals
hf. 2018, þar sem 144 langreyðar
voru veiddar, þýðir þetta að minnst
23 dýr hafi þurft að ganga í gegnum
skelfilegt dauðastríð, en þessi 23 dýr
hefur þurft að skjóta tvisvar, og mun
endurhleðsla skutulbyssu taka 6-8
mínútur.
Þurfa dýrin þá að berjast um með
skutul fyrsta skotsins í holdinu – en
hann breytist í stálkló sem rífur og
tætir innyfli, líffæri og hold – minnst
þann tíma. – Vart samræmast þessar
aðfarir nútímalegum hugmyndum
um dýra- og umhverfisvernd. 1.
Skýrsluhöfundar viðurkenna á bls.
16: „Veiðarnar stóðu ekki undir sér
rekstrarárin 2014-2017“. Enda engin
furða, þar sem allar helztu þjóðir
heims eru aðilar að CITES-
samkomulaginu sem bannar verzlun
með afurðir langreyða. – Efnahags-
legur ávinningur er því skýrlega ekki
til staðar..2.
Steypireyður og langreyður eru
stærstu spendýr veraldar. Þetta eru
háþróuð dýr, sem verða allt að 100
ára. Talið er meira að segja, að
Grænlandshvalurinn geti orðið 200
ára, en hann mun hafa sigrast á
krabbameini. Grænlandshvalur, sem
fæddist á tímum Napóleons Bóna-
parte, gæti því enn verið á lífi.
Þúsundir og milljónir manna um
allan heim dá og elska þessi einstöku
dýr og er augljóst að langreyðaveiðar
Íslendinga fara illa í allt þetta fólk.
Skýrsluhöfundar nefna líka sjálfir
dæmi þess að leiðandi verzlana-
keðjur, t.a.m. Aldi, ein helzta smá-
sölukeðja Evrópu, hafi hætt að selja
íslenzkar afurðir vegna hvalveiðanna,
og að Guðmundur í Brimi hafi skýrt
frá því í fyrrahaust að vandi hafi
komið upp í hans fyrirtækjum við
sölu erlendis vegna hvalveiðanna. –
Efnahagslegir ókostir veiðanna eru
því augljósir. 3.
Skýrsluhöfundar benda á að ferða-
mannastraumur til landsins hafi au-
kizt, þrátt fyrir hvalveiðar. Á þetta að
sanna að hvalveiðar hafi ekki nei-
kvæð áhrif á komu ferðamanna.
Þetta er vitaskuld út í hött.
Spurningin er ekki hvort ferða-
mannastraumur hafi aukizt, heldur
hver áhrif hvalveiðarnar hafi á hann.
Ekki höfðu höfundar samráð við
Samtök ferðaþjónustunnar, Íslands-
stofu eða Hvalaskoðunarsamtökin,
sem bezt um þetta mál vita, um þessa
grunnspurningu.
Allir sem til þekkja – ofangreind
samtök meðtalin – sjá margvísleg
merki þess, að ferðamannastraum-
urinn hefði getað aukist miklu meira
en orðið er ef Íslendingar hefðu látið
af hvalveiðum.
Í nýlegri greiningu Google lendir
Ísland í þriðja sæti yfir draumastaði
netverja.
Eftir Ole Anton
Bieltvedt
Ole Anton Bieltvedt
»Hvernig dettur
skýrsluhöfundum í
hug að gera það að meg-
intillögu sinni að 16.000
langreyðar verði drepn-
ar til að auka fiskafla!?
Höfundur er stofnandi og formaður
Jarðarvina.
Þegar bullið flæðir yfir bakkana
Ísland þúsund ár?
Ís. Hland. Þú! Sund?
Á!rrrrrrrrr...
Ég er Íslendingur.
En ekki leiðinlegur.
Ísland afmarkast ekki
við guð. Ég trúi. Ekki?
Kannski.
Hver er litli bróðir
minn og af hverju sé
ég hann ekki. Ég á lít-
inn bróður. Er það
ekki? Veit ekki. Hann er allavega
flottur.
Það sást til mín í gær. Þegar ég
var að hjóla. Eða svo er mér sagt.
Ég ber engar tilfinningar til Guðna.
Hann þekkir mig ekki. Og þó.
Gísli, Eiríkur, Helgi Seljan. Helgi
kveljast. Ég seljan.
Uno, dos, tres, gullbringusýsla.
Nálægt mér. Atsjúúú. Hundur með
kvef.
Hún elskar mig. Hún elskar mig
ekki. Hún elskar mig. Hún elskar
mjólkurkekki. Af hverju? Ég er með
laktósaóþol. Af hverju?
Gamalt fólk er
skraut? Veit ekki. Skoð-
un. Mín? Kannski.
Smyglaðu þér hingað
og láttu mig í friði.
Hvað er að frétta?
Spurðu Moggann.
Spurðu drekann? Nei,
bara Moggann.
Eitt þúsund og tutt-
ugu krónur. Eitt þús-
und og þrjátíu hug-
myndir. Eitt þúsund og
fjörutíu sálir. Allar að
borða kornfleks.
Innanríkisráðherra heimsins. Ut-
anríkisráðherra líkamans. Óstöðv-
andi veira. Hundurinn er ennþá með
kvef. Hann hefur smitað mig. Hann
hefur elskað mig? Já. Og ég hann.
Kvefumst saman, kæri hundur.
ATSJÚÚÚ að eilífu.
Ari og Ari og
Ari – Morgunblaðið?
Eftir Ara
Hallgrímsson
Höfundur er nemi við MH.
Ari Hallgrímsson
» Vangaveltur auk
nærveru hunds?
Vonandi, já.