Morgunblaðið - 31.01.2019, Side 48
48 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. JANÚAR 2019
✝ Þórunn Ólafs-dóttir fæddist í
Reykjavík 5.
september 1927.
Hún lést 24. janúar
2019.
Hún var dóttir
hjónanna Ólafs
Kristjánssonar frá
Sveinseyri í
Tálknafirði og
Oddnýjar Sölva-
dóttur frá Kúgili í
Þorvaldsdal, Eyjafirði.
Þórunn var þriðja elst af níu
systkinum en auk þess tóku for-
eldrar hennar að sér fóstur-
dóttur sem ólst upp eins og ein
af systkinunum. Eru þau flest
látin en eftir lifa Elísabet Krist-
ín, Sigríður Helga og Kolbrún.
Fimm ára fluttist hún til Pat-
reksfjarðar með foreldrum sín-
um vegna atvinnu föður hennar.
Nokkrum árum seinna fór Þór-
unn ásamt Kristjáni elsta bróður
sínum í fóstur til afa síns og
ömmu á Akureyri, þeirra Krist-
jáns Kristjánssonar og Þór-
unnar Jóhannesdóttur. Þar
dvaldi hún fram yfir fermingu
en flutti þá aftur vestur. Þegar
dóttur og eiga þau fjögur börn,
Sigfús, Hrafnhildi, Katrínu Ösp
og Elísabetu Þórunni, auk þess
sem Jón átti son áður, Þorstein
Hlyn. 3) Kristján Þór, f. 1958,
kvæntur Ágústu Magnúsdóttur
og eiga þau einn son, Magnús
Viðar, og auk þess á Kristján
einn fósturson, Friðrik Þór. 4)
Haukur, f. 1965, maki 1 Jónína
Sverrisdóttir, skildu, þeirra
dóttir er Sigurbjörg. Haukur er
í sambúð með Díönu Björk Ol-
sen sem á tvö börn frá fyrri sam-
búð.
Árið 1964 flutti fjölskyldan á
Skólastíg 9. Þá hóf Þórunn störf
við Gagnfræðaskóla Akureyrar
þar sem hún vann til 66 ára
aldurs.
Þórunn var virk í kórstarfi og
söng meðal annars með kirkju-
kór Glæsibæjarhrepps og kór
slysavarnafélagsins. Hinn 1.
nóv. 1988 lést Sigfús skyndilega.
Eftir það áfall fór heilsu Þór-
unnar að hraka og veiktist hún
alvarlega árið 1992. Árið 1994
flutti Þórunn með Ragnheiði
dóttur sinni og fjölskyldu henn-
ar á Ásveg 25. Það sambýli stóð
til ársins 2013 þegar Þórunn
flutti á Dvalarheimilið Hlíð.
Útför Þórunnar fer fram frá
Akureyrarkirkju í dag, 31. jan-
úar 2019, klukkan 13.30.
Þórunn var 17 ára
fór hún í heimsókn
til frændfólks á
Akureyri. Þar
kynntist hún Sig-
fúsi Jónssyni, f. 19.
júlí 1917, sem fædd-
ur var og uppalinn í
Eyjafirði og átti
eftir að verða
lífsförunautur
hennar.
Veturinn 1945-
’46 stundaði Þórunn nám við
Kvennaskólann á Ísafirði en fór
svo aftur til Akureyrar og gift-
ust þau Sigfús 11. júlí 1946.
Fyrstu árin bjuggu þau á
Hrafnagili en fluttust 1949 til
Akureyrar, fyrst í Aðalstræti 13
þar sem þau bjuggu í tvö ár en
síðan í Hlíð ofan bæjarins og
voru oft kennd við þann bæ.
Börn þeirra urðu fjögur: 1)
Ragnheiður, f. 1947, maki 1 Ótt-
ar Baldvinsson, skildu. Þeirra
börn Þórunn, Sigfús, Úlfhildur
og Snorri. Maki 2 Þorgeir Jó-
hannesson og eiga þau þrjár
dætur, Kristínu, Hólmfríði og
Jóhönnu. 2) Jón Ólafur, f. 1949,
kvæntur Öldu Skarphéðins-
Elsku amma. Þá kom afi og
sótti þig í hinsta sinn. Eftir sit ég
í peysu af þér, nýt þess að finna
ömmulyktina áður en hún dofnar
og breytist í lykt af mér sjálfri.
Ég kynntist aldrei honum afa, og
amma á Króknum átti svo mörg
barnabörn að oft fannst mér ég
bara eiga þig.
Ég öfundaði vinkonur mínar
fyrir að eiga margar ömmur og
marga afa. Ég ímyndaði mér að
eiga mörg sett af þér.
Ó hvað það hefði verið ljúft. En
þar sem það varst bara þú, þá
fékkst þú að fylla upp í svo stóran
part af hjarta mínu. Þú fylltir upp
í öll ömmu- og afahólf og í dag
finnst mér ég hafa verið einstak-
lega heppin.
Ég var alltaf velkomin til þín
og það var ótrúlega gott að geta
kúrt uppi í hjá ömmu þegar ég
vildi gista með frænkum mínum.
Ég nefnilega var alveg óþolandi,
vildi alls staðar gista, en þorði
aldrei þegar á hólminn var komið,
því var gott að skríða upp í
ömmuholu.
Um nokkurra ára skeið urðum
við eins konar „tvennutilboð“ á
Bægisá. Það varla leið helgi sem
við fórum ekki í sveitina til
Hauks, Jónínu og Sigurbjargar
Ástu. Þar fannst okkur svo gott
að vera. Á sumrin gerðum við
ýmislegt og nutum við Sigur-
björg þess að hafa alltaf ömmu
með í liði. Það varð fastur liður að
fá ömmukoss fyrir nóttina og öm-
muknús á morgnana.
Á unglingsárunum eignuð-
umst við einstakt samband. Ég
gat talað við þig um svo margt og
leitað til þín með þau spil sem
mér voru gefin. Þú sást til þess að
mér liði vel, hringdir í mig og
bauðst mér í kók og bleika glass-
úrtertu eða bragga. Það var svo
gott að ræða við þig. Ég man að
ég vildi fyrst ekki segja þér frá
erfiðum hlutum, því ég vildi ekki
leggja það á þig. En þú sagðir
mér að þú vissir þegar eitthvað
bjátaði á. Þá væri miklu betra að
tala saman svo þú þyrftir ekki að
fylla sjálf í eyðurnar. Það var al-
veg rétt hjá þér. Þú varst búin að
lifa svo mörg ár og þekktir svo
vel inn á lífið að þú varst með öll
þau svör sem ég þurfti að heyra.
Amma, þú sagðir svo oft að
pabbi minn væri með alla góða
eiginleika afa. Þeir væru báðir al-
veg einstaklega góðir menn. Þar
hafðir þú rangt fyrir þér. Allt það
góða í pabba ert þú. Einlægnin,
góðvildin og forvitnin kemur frá
þér; þið pabbi eruð eins.
Ég er þakklát fyrir að við
Svenni og strákarnir ákváðum að
eyða síðasta aðfangadagskvöldi
með þér, pabba og mömmu. Það
er svo dýrmæt minning. Þú sagð-
ir við mig að ég mætti sko vera
stolt af strákunum mínum, þeir
væru svo stilltir og prúðir.
Ég á eftir að sakna þín gríðar-
lega mikið og ég hefði viljað fá
fleiri ár, fleiri knús og fleiri sam-
töl. En þótt ég hafi ekki verið
tilbúin varst þú það svo sannar-
lega.
Þín ömmustelpa
Elísabet Þórunn (Ella Tóta).
Kæra fjölskylda.
Við erum hér saman komin til
að kveðja kjarnakonu og eina
mest gefandi sem ég hef kynnst.
Ég man ekki eftir ömmu öðruvísi
en á sífelldum þeytingi, hugandi
að þörfum allra annarra en sjálfr-
ar sín.
Jólaboðin frægu á Skólastíg 9
þar sem börn hennar, barnabörn
og fleiri ættingjar hittust og áttu
góða stund saman. Þessum
stundum gleymi ég aldrei svo
lengi sem ég hef einhvern til að
minna mig á þær þegar ég verð
orðinn gamall minnislaus karl.
Ég varði mörgum, mörgum
mínútum hjá ömmu sem kjúk-
lingur á meðan mamma lærði
sjúkraliðann sem tók hana einnig
margar, margar mínútur að læra
og var það alveg magnaður tími
þar sem amma kenndi mér margt
nytsamlegt.
Við fórum snemma morguns í
sundlaugina þar sem hún tók
sinn sundsprett og kenndi mér
svo fyrstu sundtökin. Eftir það
var farið heim og fengið sér í
svanginn en amma settist við eld-
húsvaskinn og kveikti sér í rettu.
Hún bakaði oft köku sem var
smurð með glassúr sem mér þyk-
ir enn í dag ein sú besta sem ég
fæ. Svo ef sól skein á svalirnar þá
fékk ég stækkunarglerið hennar
stóra lánað og brenndi gat á kló-
settpappír.
Amma gerði heiðarlega tilraun
til að kenna mér að syngja og
sungum við t.d. sönginn um hinn
glaða söngvasvein og fleiri lög en
ég hafði ekki hæfileikana með
mér í sönglistinni, er svona rétt
partífær en það er ekki henni að
kenna. Það er einfaldlega ekki á
allra færi að syngja þannig að
fólk nenni að hlusta á mann.
Í stuttu máli sagt þá var amma
þannig manneskja að hún setti
sig ávallt í síðasta sæti, einstak-
lega hjartahlý og góð kona sem
ég á eftir að sakna ákaflega
mikið.
Að lokum viljum við í Horsens,
Danaveldi, votta öllum nærstödd-
um samúð okkar.
Þinn
Snorri.
Elsku amma okkar. Við biðj-
um að heilsa afa sem þú hefur nú
loksins fengið að hitta aftur eftir
öll þessi ár. Við sendum ykkur
þetta ljóð, Nú skil ég stráin, sem
okkur finnst hæfa endurfundum
ykkar vel. Takk fyrir allt.
Nú skil ég stráin, sem fönnin felur
og fann þeirra vetrarkvíða.
Þeir vita það best, sem vin sinn þrá,
hve vorsins er langt að bíða.
Að haustnóttum sá ég þig sigla burtu,
og svo kom hinn langi vetur.
Þótt vald hans sé mikið, veit ég þó,
að vorið, það má sín betur.
Minningin talar máli hins liðna,
og margt hefur hrunið til grunna ...
Þeir vita það best, hvað vetur er,
sem vorinu heitast unna.
En svo fór loksins að líða að vori
og leysa mjallir og klaka.
Ég fann, að þú varst að hugsa heim
og hlaust að koma til baka.
Þú hlýtur að vera á heimleið og koma
með heita og rjóða vanga,
því sólin guðar á gluggann minn,
og grasið er farið að anga.
(Davíð Stefánsson)
Göggu-börn,
Þórunn, Sigfús, Úlf-
hildur, Snorri, Kristín,
Hólmfríður og Jóhanna.
Í dag kveð ég ástkæra frænku
mína, hana Tótu. Hugur minn
reikar aftur í tímann til barn-
æsku og minnist ég þess þegar
við fjölskyldan heimsóttum Tótu
frænku og Fúsa á Skólastíginn.
Alltaf var gott að koma á hlýlegt
heimili þeirra og vel tekið á móti
okkur.
Ég minnist þess einnig þegar
ég fór með mömmu í vinnuna en
þær systur, Tóta og hún, unnu
um tíma í Gagganum við þrif og
þegar önnur var búin að þrífa
sinn part þá hjálpaði hin við að
klára og enduðu þær vinnuna
sína saman, enda voru þær syst-
ur afar samrýndar.
Þegar móðir mín veiktist al-
varlega þá stóð Tóta frænka eins
og klettur við hlið hennar og
flutti inn til hennar um tíma og
sinnti mömmu af alúð. Fyrir það
erum við systkinin afar þakklát.
Þegar Tóta frænka var komin
á dvalarheimilið Hlíð þá heim-
sótti ég hana stundum og þá
spjölluðum við saman og var fjöl-
skyldan alltaf efst í huga hennar,
börnin hennar, barnabörn og
barnabarnabörn og svo börnin
hennar Boggu systur. Hún vildi
vita allt, hvað hver væri að gera
og hvernig gengi. Stundum bauð
ég frænku á sunnudagsrúnt og
einn dag fórum við í ísrúnt til
Dalvíkur.
Þegar við vorum komnar á Ár-
skógsströndina þá sagði Tóta
frænka mér frá ættingjum okkar
sem bjuggu þar en amma Oddný
var þaðan.
Þarna fræddist ég um ættina
mína og heyrði frásagnir sem ég
hafði ekki heyrt áður.
Tóta frænka var viskubrunn-
ur, hún hafði mikinn áhuga á ætt-
fræði og var oft gott að leita til
hennar. Ekki er hægt að kveðja
frænku án þess að minnast á
glæsileika hennar en hún var allt-
af svo fín, hlý og yndisleg og
söngröddin hennar dásamleg en
hún söng um tíma í kór Akur-
eyrarkirkju .
Með hlýhug í hjarta þakka ég
frænku fyrir allt.
Ástarfaðir himinhæða,
heyr þú barna þinna kvak,
enn í dag og alla daga
í þinn náðarfaðm mig tak.
Einn þú hefur allt í höndum,
öll þér kunn er þörfin mín,
ó, svo veit í alnægð þinni
einnig mér af ljósi þín.
Anda þinn lát æ mér stjórna,
auðsveipan gjör huga minn,
og á þinnar elsku vegum
inn mig leið í himin þinn.
(Steingrímur Thorsteinsson)
Hvíl í friði, elsku frænka.
Ættingjum og ástvinum Tótu
frænku sendi ég mínar innileg-
ustu samúðarkveðjur.
Emma Hulda Steinarsdóttir.
Elsku amma.
Fúsi afi hefur loksins komið og
náð í þig þegar þú sofnaðir að-
faranótt fimmtudagsins, alveg
eins og þú varst búin að tala um
og óska þér.
Þú varst búin að bíða lengi eft-
ir þessari stundu, í örugglega 20
ár hefur þú talað um að þú sért
alveg að fara að deyja en náðir
rúmlega 91 árs aldri. Þú elskaðir
Fúsa þinn meira en allt og það
var aldrei inni í myndinni að finna
nýjan maka þótt þú hafir orðið
ekkja rétt um sextugt. Nú eruð
þið saman á ný.
Þú hafðir svo gaman af því að
fylgjast með fólkinu þínu, spurðir
um alla fjölskyldumeðlimi og
vildir okkur allt það besta. Með
hlýjum orðum hvattir þú okkur
áfram og réttir fram hjálparhönd
ef hallaði undan fæti. Hlynur
fékk að búa hjá ykkur afa einn
vetur og sá vetur rennur honum
seint úr minni.
Þú varst brúin yfir bilið sem
var á milli okkar alsystkinanna
og Hlyns. Fyrir það verðum við
ævinlega þakklát.
Það var alltaf gaman að segja
þér fréttir af komandi erfingjum,
brúðkaupum og þess háttar, þá
sagðir þú alltaf: „Jæja, ég verð nú
að tóra áfram til að geta séð nýj-
asta erfingjann“ eða „vera með í
veislunni“.
Þú varst ávallt stórglæsileg og
tilbúin mörgum klukkutímum áð-
ur. Þú lést þig að sjálfsögðu ekki
vanta í brúðkaupið hjá Ellu Tótu
og Svenna í sumar, þá að verða 91
árs og varst eins og drottning.
Þegar við systkinin fórum að
ræða þessa minningargrein þá
voru sumir hlutir sem komu strax
upp í hugann, s.s. súkku-
laðibraggi, bleik glassúrterta, ör-
bylgjuostabrauð, við að koma
með vini okkar til þín, forvitnin
þín, áhugi á fólkinu þínu, söngur,
jólin, sögurnar, stuðningurinn og
hversu dásamleg amma þú varst.
Við gætum skrifað svo margt
um þig og við munum sakna þín
svo mikið.
Auðvitað erum við þakklát fyr-
ir öll þau ár sem við fengum með
þér en hver vill ekki eina heim-
sókn í viðbót, eitt samtal, eitt
knús …?
Okkar kæra amma, takk fyrir
að vera alltaf til staðar fyrir okk-
ur, fyrir hreinskilin svör og enda-
lausa ást. Við erum þakklát fyrir
að hafa átt þig að. Við elskum þig
og biðjum að heilsa afa.
Þorsteinn Hlynur, Sigfús,
Hrafnhildur, Katrín Ösp og
Elísabet Þórunn.
Þórunn Ólafsdóttir
Við önnumst alla þætti undirbúnings og fram-
kvæmd útfarar ásamt vinnu við dánarbússkiptin.
Við þjónum með virðingu og umhyggju að
leiðarljósi og af faglegum metnaði.
Við erum til staðar
þegar þú þarft á
okkur að halda
Lára Árnadóttir,
umsjón útfara
Útfararþjónusta
& lögfræðiþjónusta
Vesturhlíð 9, Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is
Með kærleik og virðingu
Útfararstofa Kirkjugarðanna
Ástkær móðir okkar, amma og langamma,
JÓHANNA JÓNSDÓTTIR,
Skeiðháholti,
lést 14. janúar sl.
Útförin fer fram frá Skálholtskirkju
laugardaginn 2. febrúar klukkan 14.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki á dvalarheimilinu Lundi
á Hellu fyrir umönnun og hlýju.
Jóhanna Sigríður Ólafsdóttir
Margrét Jóna Ólafsdóttir Gestur Þórðarson
Áslaug Birna Ólafsdóttir
Auður Harpa Ólafsdóttir Ingi Heiðmar Jónsson
Jón Bragi Ólafsson Kristín Gunnarsdóttir
Gunnar Þór Ólafsson Álfheiður Ingimarsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
JÓHANNA GUNNARSDÓTTIR,
sambýlinu Roðasölum 1,
Kópavogi,
lést föstudaginn 18. janúar.
Sálumessa verður í Dómkirkju Krists
konungs í Landakoti föstudaginn 1. febrúar klukkan 13.
Baldur Hermannsson Jóna I. Guðmundsdóttir
Helgi Torfason Ella B. Bjarnarson
Anna G. Torfadóttir Gunnar J. Straumland
Flosi Þorgeirsson
ömmu- og langömmubörn
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi
og langafi,
HAFSTEINN GUNNARSSON,
Grandavegi 47,
lést á hjúkrunarheimilinu Eir mánudaginn
28. janúar.
Útför hans fer fram frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 5. febrúar
klukkan 13.
Anna G. Hafsteinsdóttir Gunnar þór Geirsson
Elsa Hafsteinsdóttir
Ingi Þór Hafsteinsson Ragnhildur A. Jónsdóttir
Hrönn Hafsteinsdóttir
afabörn og langafabörn
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma,
langamma og langalangamma,
JÓHANNA ÓLAFSDÓTTIR
frá Garði í Kelduhverfi,
lést á dvalarheimilinu Hlíð á Akureyri
laugardaginn 26. janúar. Útförin fer fram
frá Garðskirkju föstudaginn 1. febrúar klukkan 13.
Ólafur Brynjar Sigurðsson Kristbjörg Ágústa Magnúsd.
Jón Sigurðsson Þorbjörg Bragadóttir
Sigurgeir Sigurðsson Aðalheiður Magnúsdóttir
Kristín Björnsdóttir Valur Magnússon
og fjölskyldur