Morgunblaðið - 31.01.2019, Blaðsíða 57

Morgunblaðið - 31.01.2019, Blaðsíða 57
DÆGRADVÖL 57 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. JANÚAR 2019 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Það sem þú skilur ekki verður út- skýrt – seinna. Ef plönin eru of smá í snið- um heilla þau þig ekki. Farðu varlega í um- ferðinni. 20. apríl - 20. maí  Naut Það er hægt að vera of hrein- skilin/n. Næmi þitt ætti að vera nægilegt til að þú gerir þér grein fyrir hvað má segja og hvað ekki. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Þú gefur endalaust af þér í sam- bandi, meira en góðu hófi gegnir finnst sumum. Stendur þú fast á þínu? Besta leiðin til að hafa áhrif á aðra er að sýna gott fordæmi. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Það hefur verið mikið að gera hjá þér að undanförnu og það verður það áfram næstu vikurnar. Þú ert í bílahugleið- ingum, skoðaðu alla kosti. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Reyndu að tjá tilfinningar þínar betur því það á eftir að gera bæði þig og mak- ann ánægðari. Fylgdu leiðbeiningum því þá takast hlutirnir betur. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Í dag er ekki rétti tíminn til þess að skrifa undir neina pappíra. Truflanir og taf- ir á samgöngum gera þér lífið leitt í dag. Andaðu djúpt. 23. sept. - 22. okt.  Vog Þú ert gædd/ur góðum hæfileikum en hefur ekki nægilegt sjálfstraust til að nýta þér þá. Slepptu tökunum á gömlu máli sem hefur haldið fyrir þér vöku. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Þú ert í ójafnvægi og veist ekki í hvorn fótinn þú átt að stíga. Fyrr eða síðar munu vinir þínir sjá hversu gáfu- lega þú kemur hugmyndum þínum á fram- færi. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Góð orka er í kringum þig og jákvæðrar niðurstöðu er að vænta í deilu- máli. Slakaðu á taumnum í uppeldinu. 22. des. - 19. janúar Steingeit Þér gæti fundist einhver vera að senda þér misvísandi skilaboð í dag. Veruleikinn er oft lygilegri en besta skáld- saga. Þú fagnar í kvöld. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Takturinn í lífi þínu verður hrað- ari á næstunni og á næstu vikum getur þú átt von á meira annríki en venjulega. Hafðu vaðið fyrir neðan þig í samningum. 19. feb. - 20. mars Fiskar Það er eitt og annað sem þig lang- ar til þess að framkvæma en lætur ógert vegna þess að þú veist ekki hvar þú átt að byrja. Treystu innsæinu. Víkverji stendur uppi með pálmanní höndunum, þó ekki þann sem á að kosta 140 milljónir sem skreyting á einhverju nýju hverfi Reykjavík- urborgar sem Víkverji hafði aldrei heyrt minnst á áður. Þegar Víkverji heyrir fréttir af slíkum verkefnum veltir hann aðallega fyrir sér hvort að íbúar ráðhússins séu endanlega búnir að missa jarðtenginguna. Ekki að hún hafi endilega verið það mikil til að byrja með. x x x Ekki að Víkverji hafi neitt á mótiþví að reynt sé að fegra nær- umhverfið. Og raunar er það alveg bráðnauðsynlegt ef maður vill ekki bara búa í gráum steinsteypuhlunk alla ævi og jafnvel aldrei drepa niður fæti á gras og mjúka jörð. Engu að síður væri alveg gott ef fólkið sem þarna hefur mest áhrif myndi aðeins staldra við og íhuga hvort þarna sé peningum vel varið, og þá einnig hversu vel viðkomandi hlutur end- urspeglar íslenskan raunveruleika. Það er eitt að setja listaverk eftir einn dáðasta listamann þjóðarinnar á gafl í Breiðholtinu þar sem það sést ekki og allt annað að flytja til lands- ins strá og pálmatré til punts. Eða hvað? x x x En nóg um það. Víkverji ætlar aðjáta það að síðustu daga hefur tekið sig upp gamalt bros í fótbolta- legum skilningi. Hann hefur nefni- lega stutt lið á Englandi, sem eitt sinn var kallað „Manst’eftir United?“ á Íslandi, þar sem svo langt var síðan það hafði unnið eitthvað. Svo kom langt tímabil þar sem liðið gat ekki annað en unnið allt sem hreyfðist. x x x Síðustu ár hefur liðið varla unniðleik eða farið yfir miðju í minn- ingu Víkverji og þykist hann nú ekki vera að ýkja um of. En nú er öldin önnur, og annar knattspyrnustjóri, Sólskær hinn norski, hefur unnið átta og gert eitt jafntefli í níu leikjum. En jafnvel þó að liðið hefði tapað öllum leikjunum hefði það varla skipt máli, því að liðið spilar allt í einu blússandi sóknarbolta. „Manst’eftir United?“ Þetta er allavegana það lið sem Vík- verji man eftir. vikverji@mbl.is Víkverji Drottinn, Guð vor, hversu dýrlegt er nafn þitt um alla jörðina. Þú breiðir ljóma þinn yfir himininn. (Sálmarnir 8.2) Progastro | Ögurhvarfi 2, Kópavogi | Sími 540 3550 progastro.is | Opið alla virka daga kl. 9–17. JAPANSKIR HNÍFAR Allt fyrir eldhúsið Hágæða hnífar og töskur Allir velkomnir Einstaklingar og fyrirtæki Vefverslunokkarprogastro.iser alltaf opin! Á sunnudag skrifaði Ólafur Stef-ánsson í Leirinn og reyndist sannspár: Að blóta þorra bætir ekki neitt, því brunakulda getur samt fram reitt. Snjóalögin sniðin fyrir hann, og snælduvitlaus hríðin feikna beitt. Sigmundur Benediktsson svaraði um hæl: – „Já Ólafur, hann á eftir að rausa meira hann þorri“, – „Þor- raspá“: Þorri yljar engum hér argur bylja steytir, glaður dylja Frónið fer fanna kyljum beitir. Og á þriðjudag skrifaði Sigmund- ur: „NB! Þessi vísa er á engan hátt ætluð sem kvörtun um vísnaþurrð, það hefur verið fjör á leir um helgina og eðlilegt að taka hlé. Ég þarf oft að hnoða saman vísugreyi fyrir svefn- inn til að róa hugann. Leirinn varð bara fórnarlambið núna“: Dvína kostir daprast fró dylur nosturs óma. Allur lostinn angurs ró undir frostsins dróma. Davíð Hjálmar Haraldsson svar- aði: Svefnlaus kemur karlinn inn, kveður nokkrar vísur og finnur óðar svæfil sinn sæll og dregur ýsur. Björgvin Rúnar Leifsson orti á föstudag án skýringa: Ekkert traust né trúnaður, tökum nú til varna: Hann er heilabilaður, helvítið atarna. Indriði Aðalsteinsson á Skjald- fönn gerði þá athugasemd að þessi Björgvin minnti sig á vísuna gömlu: Best er að fara stillt af stað, nú steyptist einhver þarna. Skyldi ’ann hafa hálsbrotnað, helvítið að tarna? Ég hef alltaf gaman af heimspeki- legum vangaveltum, – Benedikt Jó- hannsson yrkir: Flögrar um huga mörg flugan er fæddist sem lirfa myrks svarðar. Himinninn togar í hugann en holdið það leitar til jarðar. Bjarni Gunnlaugur Bjarnason yrkir um „Krata sem elska konur (eða konur sem elska krata)“: Í klaustri er verra að klæmast í laumi en kynbundið áreiti niður að þagga; við Dag eru konur ei tregar í taumi og til með að spreða í ónýtan bragga! Alltaf er gott að rifja upp Örn Arnarson: Sorgin léttist, sárið grær, sólin gegnum skýin hlær, hreinni útsýn hugur fær, himinninn nær í dag en gær. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Þorraraus á Leir „segÐU mömmu þinni aÐ þaÐ sé komiÐ aÐ sækja hana.” „hann er feiminn viÐ ókunnuga.” Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... málamiðlanir. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann „kæra spurÐu hundinn. hversu margar hundategundir eru til?” VOFF VOFF TVÆR. GÓÐIR HUNDAR OG SLÆMIR HUNDAR AUÐVITAÐ EKKI! ÞAÐ ER VIÐBJÓÐSLEGT! ALLIR EFTIRRÉTTA- DISK ARNIR VIRÐAST GLJÁFÆGÐIR! SLEIKTI SNATI ÞÁ? ÉG SLEIKTI ÞÁ!
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.