Morgunblaðið - 31.01.2019, Síða 58
VIÐTAL
Einar Falur Ingólfsson
efi@mbl.is
Tilkynnt hefur verið að tillaga þýsku
myndlistarkonunnar Karin Sander,
Pálmatré, hafi borið sigur úr býtum í
samkeppni um útilistaverk í hinni
nýju Vogabyggð í Reykjavík. Verkið
gerir ráð fyrir að tveimur pálma-
trjám sé komið fyrir í stórum turn-
laga gróðurhúsum og að frá þeim
stafi ljós og hlýja. Þetta var ein viða-
mesta samkeppni um útilistaverk
sem efnt hefur verið til í Reykjavík
og í lokakeppnini tóku þátt kunnir
listamenn; auk Sander þau Alicja
Kwade, Carl Boutard, Elín Hans-
dóttir, Finnbogi Pétursson, Karin
Sander, Rósa Gísladóttir, Tomás
Saraceno og danski listamannahóp-
urinn þekkti A Kassen. Auk þess að
velja tillögu Sander til að útfæra
ákvað dómnefnd að kaupa verk eftir
A Kassen, Endless Lamppost, en
þar er lagt til að einn 30 metra ljósa-
staur komi í stað venjulegs staurs við
einhverja götu eða torg. Í umsögn
dómnefndar segir að verkið sé „óður
til verka Constantin Brancusi, End-
less Column, og vísar því í listasög-
una um leið og tillagan vekur spurn-
ingar um af hverju borgin lítur út
eins og hún gerir. Tillagan er húm-
orísk og bætir ljóðrænni vídd í
hversdaginn í þessu nýja hverfi.“
Allar tillögur listamannanna má
skoða á Kjarvalsstöðum.
Andblær suðrænna landa
Í samkeppninni var kallað eftir
verkum sem myndu styrkja þau
markmið að myndlist verði veiga-
mikill og afgerandi hluti umhverfis
og mannlífs í Vogabyggð og skapa
þannig örvandi umhverfi fyrir alla
aldurs- og þjóðfélagshópa. Mótuð
var sú metnaðarfulla hugmynd að
myndlist yrði hluti af innviðum
hverfisins og því er fjármögnum
listaverka þar samstarf lóðaeigenda
og Reykjavíkurborgar.
Dómnefnd var einhuga um að
velja tillögu Karin Sander og segir
að hún sé „óvænt, skemmtileg og
djörf. Pálmatrjám er komið fyrir í
tveimur sívölum, turnlaga gróð-
urhúsum sem sett eru niður við jaðar
miðlægs torgs við bakka Ketil-
bjarnarsíkis … Pálmatré bera með
sér andblæ suðrænna landa, eins og
höfundur tillögunnar bendir á. Þau
eru tákn heitra og framandi staða og
menningar og fela um leið í sér minni
um útópíu þar sem paradísarástand
ríkir. Hér skjóta þau rótum í köldu
og hrjóstrugu landi – rétt eins og
fólk frá framandi slóðum sem hefur
sest hér að.“
Sander er fædd árið 1957 og hefur
verið áberandi í alþjóðlegu myndlist-
arlífi. Hún hefur hlotið fjölda við-
urkenninga og verðlauna og eru
listaverk hennar í eigu virtra og
þekktra safna. Hún hefur unnið
fjölda stórra verka, bæði tímabundin
og varanleg verk í almenningsrými.
Sander býr í Berlín en hefur verið
tíður gestur hér á landi frá 1992.
Hún hefur átt verk hér á fjölda sýn-
inga og vinnur með i8 galleríi. Hún
segir að sér hafi strax þótt sam-
keppnin um verk í Vogabyggð
spennandi og hafi hún skilað inn
tveimur tillögum eftir að hún var val-
in í lokaúrtakið. Fyrst sýndi hún hér
á landi í hinum rómaða sýningarsal
Péturs Arasonar og Rögnu Róberts-
dóttur, Annari hæð, að Laugavegi
37.
„Það var árið 1992 sem ég var með
sýningu í safni í Mönchengladbach
og sá í dagblaði stóra ljósmynd af ís-
lensku landslagi. Ég hreifst af henni
og sagði að þangað langaði mig að
fara. Næsta dag barst mér svo boð
frá Pétri um að sýna – svona rætast
óskir,“ segir Sander og brosir.
„Þegar ég hafði sett upp þessa
fyrstu sýningu mína hér fór ég í
þriggja vikna ferð kringum landið,
tók mér góðan tíma hér. Og síðan hef
ég komið oft, eignast hér góða vini og
sýnt reglulega í i8.“
Þegar við ræðum tillöguna
Pálmatré þá segir Sander að þau
verk sem hún hefur skapað fyrir op-
inberan vettvang í mörg ár snúist á
vissan hátt um bakgrunn og að-
stæður þeirra rýma og stofnana þar
sem þau eiga að vera, á sögulegan og
félagslegan hátt. „Ég legg alltaf í
rannsóknir og heimildavinnu til að
finna réttu „myndina“ og þýði þær
hugmyndir á minn hátt í myndverk.
Hér fengum við sem vorum valin í
samkeppnina framúrskarandi kynn-
ingu á svæðinu og öllum aðstæðum.
Nú er mikið byggt hér í Reykjavík
og í Vogabyggð er verið að móta nýtt
hverfi. Markmiðið með þátttöku
listamannanna í samvinnu við arki-
tekta og hönnuði er að það verði ekki
einkennalaust úthverfi heldur staður
með merkingu og sérkenni, með
ríkuleg lífsgæði.“
Hún segist ekki hafa fengið hug-
myndina að vinningsverkinu strax,
það gerist aldrei. „Ég velti þessu öllu
fyrir mér, teikningum, umhverfinu,
tek myndir, og ég skoðaði líka vel
þau listaverk sem þegar eru fyrir í
almenningsrými í Reykjavík og á Ís-
landi, og þau eru mörg. Svo þróaði
ég tvær hugmyndir og hvor þeirra
hefði getað verið tvö verk eða vinna
má út frá þeim… fólk mun búa á
þessu svæði og ég reyndi að sjá að-
stæður þess fyrir mér.“
Tilfærsla með ímyndun
Sander segir tillöguna Pálmatré
fjalla um landslag og hið exótíska,
um fjarlæg lönd og hvað fólk ferðist
nú auðveldlega út um heiminn. Og
hvað ímyndunaraflið er öflugt.
„Í þessu verki tekst ég á við um-
hverfið og samfélagið og set í al-
þjóðlegt samhengi. Við að hugsa um
pálmatré hér á landi kviknar tilfinn-
ing um að vera í fríi á fjarlægum
stað. Ímyndunaraflið færir mann að
pálmatrjám á ströndu þar sem legið
er í sól og synt í sjónum. Það er til-
færsla með ímyndun, rétt eins og
þegar fólk setur í gluggana hjá sér
kaktusa ættaða úr eyðimörkum,
plöntur sem kveikja drauma í huga
þess. Í þessu verki stækka ég þá
hugmynd.“
Sander segir verkið líka stuðla að
óvenjulegum og óvæntum sam-
skiptum. Fólk getur hist við
pálmatré á torgi hér á Íslandi og get-
ur líka farið inn til trjánna og jafnvel
sest þar niður í augnablik, og upp-
lifað að það sé einhversstaðar langt í
burtu. Á sumrin þegar veðrið sé gott
hér, og veðurfar fari hlýnandi með
hnattrænni hlýnun, þá eigi pálminn
mögulega sífellt betur heima hér. En
á veturna þegar veðrið sé í sínum
kaldasta ham þá vísi pálmatrén til
suðurhafa og hlýjunnar annars-
staðar á jörðinni. Og vissulega er
spennandi að sjá pálmatré á torgi í
Vogabyggð fyrir sér í kuldatíð og
snjó eins og er í borginni núna.
Blaðamaður hefur á orði að vissu-
lega væri áhugavert að sitja í rak-
anum inni hjá pálmatré núna og
horfa í átt að svævi þakinni Esjunni.
„Já, og þegar snjó kyngir niður í
skammdeginu þá verða trén svo
sannarlega staðir fyrir drauma,“
segir Sander. „Auðvitað skiptir líka
máli að hér er orkan til staðar, grænt
rafmagn fyrir lýsinguna og heita
vatnið fyrir upphitunina í sívalning-
unum með trjánum. Nú er víst átta
gráðu frost í Reykjavík; við að stíga
inn til pálmatrjánna myndi hitinn
hækka um einar þrjátíu gráður.“
Verða „ekta“ pálmatré
Fyrirhugað er að koma pálma-
trjánum fyrir á torgi í byggðinni
miðri, þar sem göngubrú liggur yfir
að smábátahöfninni; verða gróð-
urhúsin með pálmunum eins konar
hlið við inn- eða útganginn í hverfið.
„Nú þarf að breyta teikningunum og
hugmyndunum í strúktúra sem
virka. Það er eitt að hafa hugmynd,
fantasíuna, annað að útfæra hana
tæknilega,“ segir Sander.
„Við undirbúning tillögunnar vann
ég með verkfræðingum að útfærsl-
unni, sem og garðyrkjufræðingum
og fyrirtæki í Hollandi sem hefur
gert gróðurhús og sívalninga eins og
þá sem trén standa inni í. Eins var ég
í sambandi við fyrirtæki sem hefur
gert ker til að geyma fiska í í hafinu,
fyrir rótakerfið. Þessi gróðurhús
verða að geta staðist verstu veður
hér og verða að halda hita og raka
eins og vera ber. Einangrunin verð-
ur að vera mjög góð hér í norðrinu
og strúktúrarnir verða að vera
sterkir. Húsin verða kynt með hita-
veitu og í þeim logar útfjólublátt ljós
alla daga ársins, svo þau verða fal-
lega upplýst í skammdeginu. Það er
mikilvægt fyrir trén en líka fólkið
sem horfir á þau. Við vitum hvað
gróðurhúsin hér á landi eru falleg
þar sem þau ljóma upplýst á vet-
urna.“ Og hún bætir við að nú sé
komið að því að reikna þetta allt í
smáatriðum og gera lokaútfærslu en
turnarnir séu hugsaðir 11 metra há-
ir, fjögurra metra breiðir og
dyrnar sem hægt er að ganga
inn um 2,3 metra háar. „Svo
nú verður reiknað og
rætt, í samstarfi með
borgarskipulaginu,
arkitektum og verk-
fræðingum; og það er
ekki útilokað að út-
færslan breytist, þetta
gæti orðið einn turn,
enn stærri, eða þrír…“
Þegar spurt er um
pálmatrén, sem margir
hafa eflaust áhuga á,
segir hún að þau verði
ekki lítil þegar þau verði
sett upp, til dæmis um
tveggja metra há. Og
muni svo stækka. Þá
verði mikilvægt að velja
réttu tegundina, „ekta“
pálmatré, til að hafa
ímynd suðrænna pálma
sem sterkasta í huga
þeirra sem sjá verkið.
Alparnir á engið
Áhugasamir geta
kynnt sér hin fjöl-
breytilegu verk Kar-
in Sander á heimasíðu
hennar, bæði mini gall-
eríverk, eins og hún hefur til að
mynda sýnt hér, og stærri sam-
félagsleg verkefni og útilistaverk.
„Hver staður sem ég tekst á við að
gera verk á hefur sín sérkenni en ef
rauð lína gengur gegnum verkin mín
þá er það að hugsa um landslag og
umhverfi á samtímalegan hátt og
sem einhverskonar draumalands-
lag,“ segir hún. „Sem dæmi býr fólk í
Miðausturlöndum við veðurblíðu alla
daga ársins og til að upplifa sitt
draumalandslag þá ferðast það upp í
Alpana og vill kynnast rigningu og
snjókomu, því sem við köllum slæmt
veður. Við hér í norðrinu njótum
þess hins vegar að fara til hlýrri
landa og þykir ekki verra að ekki
rigni.
Einu sinni var mér boðið að gera
verk í safni í Hannover, þar sem 10
til 15 listamenn unnu út frá út-
hverfum borgarinnar. Mér var út-
hlutað fagurgrænu engi fyrir framan
húsagötu og hvað átti ég að gera með
það? En ég stakk upp á því að skipt
yrði á landslagi, að við sendum hluta
engisins upp í Alpana en fengjum í
staðinn hluta af fjallalandslagi,
kletta og mosa. Þannig varð til
draumalandslag andspænis þessum
húsum. Hér í þessu verkefni í
Reykjavík má segja að þessi hug-
mynd skjóti aftur upp kollinum, á
gjörólíkan hátt. Fyrir miðju fram-
kvæmdasvæðisins í nýju hverfi mun
verða til draumalandslag sem gerir
staðinn enn sérstakari.“
Draumur verður staðreynd
Nú þegar búið er að velja sigurtil-
lögu í samkeppninni segir Sander að
hin raunverulega vinna hefjist.
„Draumurinn er að breytast í stað-
reynd, draumalandslagið verður
raunverulegt,“ segir hún og
brosir.
„Nú verður verkið fellt inn í
skipulagið og fínstillt
svo hlutföllin og ásýnd-
in passi við bygging-
arnar umhverfis. Því
auðvitað taka öll verk
breytingum á leiðinni
frá hugmynd að end-
anlegri útfærslu, hvort
sem þau birtast í galleríi
eða á nýju borgartorgi.
Ég hlakka til að sjá hvað
gerist þegar veruleikinn
tekir verkið einu skrefi
lengra.
Aðrir munu glíma við
tæknileg atriði og út-
reikninga en ég þarf að
hafa yfirsýnina og verð
með í ferlinu alla leið.“
Hún bætir við að upp-
bygging hverfisins og
þar með uppsetning
verksins muni taka ein-
hver ár en hún mun hafa
hugann við það. „Sem
er ánægjulegt því þá
get ég komið enn oft-
ar til Íslands! Það er
ekki amalegt á svona
fallegum vetrardögum.“
Raunveru-
legt drauma-
landslag
Tillaga Karin Sander um útilista-
verk í Vogabyggð var valin sú besta
Pálmatrén Teikning sem sýnir mögulega útfærslu með tveimur 11 metra háum sívalningum með pálmatrjám.
Suðrænt
Svona munu
sívalning-
arnir líta út.
Morgunblaðið/Einar Falur
Sigurvegari „Þegar snjó kyngir niður í skammdeginu þá verða trén svo
sannarlega staðir fyrir drauma,“ segir Karin Sander um pálmatrén.
58 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. JANÚAR 2019