Morgunblaðið - 14.02.2019, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 14.02.2019, Blaðsíða 10
SVIÐSLJÓS Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Skipverjar á Grindavíkurbátnum Sighvati GK 57 sem Vísir hf. gerir út hafa rótfiskað að undanförnu og slegið met. „Sjórinn er fullur af fiski og nú bregður svo við að mikið veiðist af þorski hér austur með suð- urströndinni. Það nær alveg frá Vestmannaeyjum og austur að Ing- ólfshöfða og jafnvel lengra. Þar er þorskurinn nánast uppi í fjöru,“ seg- ir Ólafur Óskarsson skipstjóri. Hinn 4. febrúar kom Ólafur í land og var þá var óslægður afli Sighvats GK eftir sjö daga á sjó 165 tonn; að stærstum hluta óslægður þorskur . Er þetta mesti afli sem vitað er að ís- lenskur línubátur hafi nokkru sinni komið með að landi eftir einn túr. Aflaverðmæti eftir túrinn var 37,5 milljónir kr. og hásetahluturinn nærri 700 þúsund kr. Síðastliðinn þriðjudag kom svo hinn skipstjórinn á bátnum, Óli Björn Björgvinsson, í land með 143 tonna afla óslægðan. Sá fiskur var í bland þorskur og ýsa sem veiddist undir Snæfellsjökli og djúpt vest- norðvestur af Garðskaga; á slóð sem sjómenn kalla gjarnan BÚR-bank- ann. Strax á þriðjudagskvöldið fóru Óli Björn og áhöfn hans svo aftur á sjó og sömu mið. Voru þar síðdegis í gær og fiskuðu grimmt á línuna, en lögnin er um 30 sjómílur og krók- arnir um 44.000 talsins. Mest á Meðallandsbugtinni „Það er gaman þegar veiðist svona vel,“ sagði Ólafur Óskarsson þegar Morgunblaðið hitti þá skip- stjórana um borð í Sighvati GK í Grindavíkurhöfn nú þriðjudaginn. „Síðustu árin hafa menn ekkert mikið verið að fiska hér austur með suðurströndinni. Það var eitthvað reynt í fyrra svo ég ákvað að prófa aftur nú og gekk svona ljómandi vel. Var þá mest á Meðallandsbugtinni, það er milli Skarðsfjöruvita og Ing- ólfshöfða. Þangað er fínt að fara ef menn sækjast helst eftir þorski.“ Veðrátta réði því mest og helst að Óli Björn skipstjóri hefur haldið sig á vesturmiðum síðustu daga. Þar er einnig frekar en annars staðar von um ýsu eins og Vísismenn þurftu að fá í vinnsluna. „Það er mjög æskilegt að hlutföllin séu kannski 55% þorsk- ur og á móti ýsa og annar meðafli. Ef maður er bara í þeim gula gengur hratt á kvótastöðuna og slíkt skapar ójafnvægi í öllum rekstri. Þó erum við á Vísisbátunum nokkuð vel settir með kvóta, í þorski jafnt sem öðru. Og aldrei gengi þessi sjósókn nema við hefðum frábæran mannskap, en á hverjum tíma eru fjórtán í áhöfn,“ segir Óli Björn. Forréttindi skipstjórans Fiskast hefur vel á hinn nýja Sig- hvat alveg frá upphafi. Í október og nóvember síðastliðnum var skipið á miðunum fyrir norðan og austan land, þar sem línubátaflotinn er jafn- an mikið á haustin. Var lagt upp á Sauðárkróki og seinna Djúpavogi í nóvember og í þeim mánuði veiddust alls um 580 tonn á bátinn. Slíkt er dágott. Sighvatur GK 57 kom inn í skipa- Stíft er sótt á Sighvati  Aflamet á línubát  165 tonn eftir sjö daga  Lögnin er 30 sjómílur og 44.000 krókar  Endursmíðaður reynist vel Skipstjórar Ólafur Óskarsson til vinstri og Óli Björn Björgvinsson í brúnni á Sighvati þegar stund var milli stríða. Ljósmynd/Óli Björn Sjómaður Björn Guðsteinsson með gogginn á lofti úti á miðunum í gær. Morgunblaðið/Sigurður Bogi 10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. FEBRÚAR 2019 HEKLA · Laugavegi 170-174 / Audi.is Verð 8.990.000 kr. Verð með aukabúnaði áður 10.040.000 kr. Afsláttur 1.050.000 kr. · Innfellanlegt dráttarbeisli · Leðurklætt aðgerðastýri með hita · Rafmagn í framsætum · Milano leðuráklæði · Rafdrifin opnun á afturhlera · Nálgunarvarar að framan & aftan · Bakkmyndavél · Audi Sound System 180W · 10 hátalarar · Dökkar rúður · LED aðalljós · 18” álfelgur · Mjóbaksstuðningur · Þriggja svæða tölvustýrð loftkæling Audi Q5 Design quattro Brauðostur á tilboði Nú færðu Brauðost 26% í sérmerktum umbúðum í næstu verslun! Skeifan 8 | 108 Reykjavík | sími 517 6460 | VersluninBelladonna Str. 38-58 Ný netverslun www.tiskuhus.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.