Morgunblaðið - 14.02.2019, Side 25

Morgunblaðið - 14.02.2019, Side 25
FRÉTTIR 25Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. FEBRÚAR 2019 Ein kenning er að hörð veður hafi gert það að verkum að fuglinn hafi verið of þreyttur til að kaga eftir æti. Það stenst varla því veturinn mun ekki hafa verið sérlega harður og ef þetta hefði við rök að styðjast ætti fuglinn líka að hafa rekið ann- ars staðar á land. Þá hefur fuglinn ekki verið ataður í olíu eða grút, samkvæmt frétt AFP. Tegund í nokkurri hættu Á heimasíðu Náttúrufræðistofn- unar segir að langvía verpi allt í kringum norðurhvel jarðar. Hér verpur hún í um 20 byggðum og eru þær langstærstu í Látrabjargi og við Hornvík. Langvía er staðfugl að mestu en hingað leita auk þess fær- eyskir og breskir fuglar á vetrum. Íslenski langvíustofninn taldi um 690 þúsund pör 2006−2008 og hafði fækkað um 29% frá fyrra stofnmati kringum 1985. Fækkunin var mest suðvestanlands, töluverð á Vest- fjörðum og Langanesi, lítil breyting var í Drangey og Grímsey en fjölg- un í Skrúði og Papey. Langvía er flokkuð sem tegund í nokkurri hættu (VU), segir á heima- síðu Náttúrufræðistofnunar. Mengun Hermenn hreinsa fjörur í Hollandi í ársbyrjun eftir að flutn- ingaskip missti fjölda gáma. Samþykkt var einróma í bæjarstjórn Kópavogs í fyrradag að lækka laun bæjarstjórnarfulltrúa um 15%, eða sem nemur 53.094 krónum. Fara laun fulltrúanna því úr 353.958 krón- um í 300.864 krónur. Laun fyrir setu í öðrum nefndum og ráðum haldast hins vegar óbreytt. Laun bæjarfull- trúa hækkuðu síðast í fyrra, en þá voru þau hækkuð um 30%. Greint er frá ákvörðun bæjar- stjórnar í tilkynningu frá bæjar- félaginu, en þar er jafnframt tekið fram að laun bæjarstjóra hafi lækk- að um 15% í júní á síðasta ári að ósk bæjarstjóra. Kom hún í kjölfar um- fjöllunar um að laun bæjarstjórans höfðu hækkað um 612 þúsund krón- ur yfir árið, úr 1,9 milljónum upp í tæpar 2,5 milljónir. Með 15% lækk- un væru laun hans því um 2,1 millj- ón. Hafði Kópavogsbær áður fryst laun bæjarfulltrúa vegna umdeildra hækkana kjararáðs á þingfararkaupi í nóvember 2016, en sú ákvörðun hafði áhrif á laun bæjarfulltrúa í Kópavogi sem tóku mið af þingfara- kaupi. Í stað þess að fylgja fordæmi kjararáðs var þá sett af stað endur- skoðun á launakjörum bæjar- fulltrúanna og var niðurstaða þess á þeim tíma sú að laun bæjarfulltrúa myndu hækka um 30% í stað 44%. Morgunblaðið/Ómar Kópavogur Launalækkunin var samþykkt einróma í bæjarstjórn. Laun bæj- arfulltrúa lækkuð Samtök ferðaþjónustunnar (SAF) hafa vísað bílaleigunni ProCar ehf. úr samtökunum og fara fram á eft- irlitsúttekt til að eyða óvissu um sölu notaðra bílaleigubíla. Tilefnið er umfjöllun fréttaskýringarþáttar- ins Kveiks á RÚV í fyrrakvöld þar sem fjallað var um bílaleiguna ProCar ehf. Í þættinum kom fram að tugþúsundir kílómetra hafi verið teknir af akstursmælum í tugum bíla. „Forsvarsmenn umræddrar bíla- leigu hafa þegar gengist við brot- unum í yfirlýsingu. Er ljóst að um víðtæk brot er að ræða sem snúa að fjölda bíla um nokkurra ára bil. Samtök ferðaþjónustunnar for- dæma umrædd brot og árétta að auk þess að blekkja og brjóta alvar- lega á rétti einstaklinga og lögaðila sem í góðri trú hafa keypt notaða bíla af viðkomandi bílaleigu, skekkir slík brotastarfsemi samkeppnis- stöðu bílaleiga í landinu,“ segir í til- kynningu frá SAF í gær. Þar er áréttað að innan raða sam- takanna starfi fjöldi bílaleiga sem stundi ábyrgan og heiðarlegan at- vinnurekstur. „Ólíðandi er að brot eins fyrirtækis varpi óréttmætum skugga á allar bílaleigur í landinu. Samtök ferðaþjónustunnar standa fyrir fagmennsku og gæði og líða ekki brot sem þessi. Umrædd bílaleiga er aðili að SAF. Í ljósi alvarleika málsins hef- ur stjórn SAF ákveðið einróma að vísa fyrirtækinu úr samtökunum á grundvelli 5. gr. laga SAF þar sem segir að stjórn SAF geti vikið fél- aga úr samtökunum „vegna alvar- legs brots gegn lögum samtakanna, landslögum eða venjum er varða góða viðskiptahætti,“ segir þar enn- fremur. Leggja SAF áherslu á að stjórn- völd og eftirlitsaðilar hlutist til um að gerð verði eftirlitsúttekt hjá öll- um bílaleigum sem hafa starfsleyfi, með tilviljanakenndu úrtaki innan hverrar bílaleigu. Þar verði kannað hvort samningar um sölu á bílum í eigu bílaleiga séu í samræmi við kílómetratalningu í leigusamn- ingum. Bílaleigunni Procar vísað úr SAF  Farið fram á eftirlitsúttekt til að eyða óvissu um sölu notaðra bílaleigubíla

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.