Morgunblaðið - 14.02.2019, Síða 14

Morgunblaðið - 14.02.2019, Síða 14
14 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. FEBRÚAR 2019 Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Undirmeðvitundin segirfólki margt um sjálft sigog í draumum birtastokkur fólk, staðir og hlutir sem tákna ýmislegt í tilfinn- ingalífi okkar. Geta verið vísbending um það hvernig best er að vinna úr málum,“ segir sr. Arna Ýrr Sigurð- ardóttir, prestur í Grafarvogskirkju í Reykjavík, sem hefur unnið mikið með drauma í sálgæsluviðtölum. Í sálgæsluviðtöl hjá prestum kirkjunnar leitar fólk af ýmsum ástæðum. Sr. Arna leggur í upphaf máls síns áherslu á að prestar séu ekki sálfræðingar eða veiti fólki meðferð. Þeirra sé að vera hlust- andi, veita fólki stuðning og „koma í Krists stað“ eins og þetta er gjarn- an orðað. Að hlusta og sýna sam- hygð er mörgum mikils virði og get- ur gert fólki vandamálin auð- leystari. Jákvæðar martraðir Prestarnir nálgast þetta hlut- verk hver með sínu móti og Örnu hefur reynst vel að ræða við fólk um drauma þess. Í gegnum þá liggi oft leiðin að kjarnanum. „Stundum dreymir okkur lausnir á ýmsum vandamálum sem við erum að glíma við, það eru til margar þekktar sögur um slíkt,“ segir Arna. „Birtingarmyndir drauma eru annars margar. Sumir draumar eru endurspeglun af okkar daglega lífi, okkur dreymir eitthvað sem gerðist daginn áður. Er sá at- burður oft notaður sem efniviður fyrir undirmeðvitundina að koma ákveðnum skilaboðum á framfæri. Stundum fær fólk líka martraðir og þær hvet ég þau sem til mín leita að líta jákvæðum augum. Martraðirnar sýna það sem veldur þér mestu óör- yggi í lífinu; það sem þú óttast mest, og sem hugsanlega er hægt að sigrast á.“ Í ljósmóðurhlutverki Vinnu sína byggir Arna á kenn- ingum Carls Gustafs Jungs um samspil undir- og vökuvitundar. Samkvæmt þeim eru draumar tákn- ræn úrvinnsla manneskjunnar á veruleika sínum, til dæmis tilfinn- ingum, sjálfsmynd og afstöðu til lífsins alls. „Ég lít svo á að ég sé í nokkurs konar ljósmóðurhlutverki. Segi fólki ekki hvað draumar þess þýða, en hjálpa því að skoða þá og laða fram ákveðna túlkun á draumunum sem geta gagnast fólki. Í undirmeðvit- undinni býr oft mikil viska og í draumunum felast skilaboð. Ég tek þó skýrt fram að sálgæsla með þessum formerkjum er ekki draumaráðningar eins og flestir þekkja þær, heldur er þetta vinna með tilfinningar, segir Arna sem kynntist draumavinnu sjálf þegar hún var í viðtölum við Karólínu Stefánsdóttur, fjölskylduráðgjafa á Akureyri. Þá spurði Karólína skjól- stæðing sinn um drauma sína – og út frá því fóru þær saman að vinna með ýmislegt í sjálfsmynd og af- stöðu til heimsins út frá henni. Sjálfa dreymir mig oft að ég sé að missa af flugi eða eigi eftir nokkrar mínútur að stíga í stólinn og jarða manneskju sem ég veit engin deili á. Einnig að ég eigi að spila einleik á fiðlu með sinfóníuhljómsveit og þó kann ég ekkert á hljóðfærið, segir Arna og heldur áfram: „Að vera á síðustu stundu með allt í draumum tengi ég við þá ár- áttu mína að fresta hlutunum. Ég lifi alltaf svolítið á brúninni og segja má að draumarnir mínir endur- spegli það. Ef þig dreymir Siggu frænku sem var alltaf reið og bitur getur slíkt verið áminning til þín um þá sömu lesti, sem þú þarft að yfir- stíga.“ Til viðbótar við sálgæslu hefur Arna Ýrr fjallað um drauma á nám- skeiðum í Grafarvogskirkju og víð- ar. Eru þau námskeið í grunninn jafningjavinna hvar fólk greinir frá viðhorfum sínum og vitund og kryf- ur inntak draumanna til mergjar – sér til þekkingar og sálubótar. Einnig hefur hún haldið fyrirlestra um málefnið og verður einmitt einn slíkur í Grafarvogskirkju 20. febr- úar kl. 17.30. Sá fyrirlestur er öllum opinn og ókeypis. Mætum skuggahliðinni „Tákn í draumum eru ein- staklingsbundin,“ segir sr. Arna. „Að dreyma kött getur haft ólíka merkingu fyrir fólk með ólíkar tilfinningar og afstöðu gagnvart köttum. Alla drauma þarf því að túlka í samvinnu við manneskjuna sjálfa og út frá aðstæðum hennar og upplifunum. Þannig eru allir draumar einstaklingsbundnir, þótt í þeim geti líka birst tákn með algilda merkingu,“ segir Arna. „Við mæt- um til dæmis oft „skugganum“ okk- ar, sem er eiginlega skuggahlið okk- ar sjálfra, gjarnan manneskja af sama kyni og við sjálf, en á ein- hvern hátt skuggaleg eða ógnandi. Önnur tákn eru til dæmis hús eða farartæki, sem tákna gjarnan líf manns og aðstæður á einhvern hátt. Það að missa tennur eða neglur, að fljúga eða leggja á flótta eru líka þekkt tákn og skilaboð í draumum,“ segir Arna og bætir við að lokum: „Mikilvægast er að muna að sérhver manneskja er sérfræðingur í sínu lífi og sínum draumum, og í sálgæslu þarf jafnan að koma til móts við fólk á þess eigin for- sendum. Mannfólkið er eins ólíkt og það er margt.“ Draumarnir eru leiðin að kjarnanum Sálgæsla með sérstöðu! Draumar í svefni endur- spegla líf í vöku. Prestur í Grafarvogi vinnur með fólki í erfiðum aðstæðum og í samtölum fer hún óvenjulega leið. Morgunblaðið/Sigurður Bogi Prestur „Í undirmeðvitundinni býr viska,“ segir Arna Ýrr Sigurðardóttir sem stundar þó ekki draumaráðningar. Thinkstock.com Framsýni Tákn í draumum eru einstaklingsbundin og fólk er ólíkt. Margt er í deiglunni í Eyjum um þess- ar mundir en 1. janúar síðastliðinn voru hundrað ár frá því að Vest- mannaeyjar fengu kaupstaðarrétt- indi og verður þess minnst með ýms- um hætti út afmælisárið. Fyrr í þessari viku var opnuð sýning í Ein- arsstofu þar sem saga Eyjanna er skoðuð með augum grunnskóla- barna. Sérstakur hátíðarfundur í bæjar- stjórn Vestmannaeyja verður í dag fimmtudaginn, 14. febrúar. kl. 18 en þá er liðin rétt öld frá fyrsta bæjar- stjórnarfundinum. Fundurinn verður í bíósal Kviku, gamla félagsheimilinu við Heiðarveg. Ýmsir viðburðir tengd- ir afmælinu verða svo allt árið, en að- alhátíðin verður 5. júlí og tengd ár- legri hátíð þegar goslokanna árið 1973 er minnst eins og löng hefð er orðin fyrir. Nú á föstudaginn, 15. febrúar, verður bæjarstjórnarfundur unga fólksins í samstarfi við Grunnskóla Vestmannaeyja. Á sunnudaginn, 17. febrúar, verður svo málþing í bíósal Kviku; Nútíð, fortíð og framtíð Vest- mannaeyja – tækifæri og ógnanir. Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri setur þing- ið en frummælendur eru dr. Ágúst Einarsson, prófessor og fyrrverandi rektor Háskólans á Bifröst, sem talar um samspil atvinnulífs og menning- ar, Bjarnheiður Hallsdóttir, formaður Samtaka ferðaþjónustunnar, talar um tækifærin sem liggja í ferðaþjón- ustunni, dr. Hólmfríður Sveinsdóttir, frumkvöðull og stofnandi Protis ehf. á Sauðárkróki ræðir mikilvægi vís- inda og nýsköpunar í sjávarútvegi, Ásgeir Jónsson, adjunkt við Háskól- ann í Reykjavík og umsjónarmaður Haftengdrar nýsköpunar segir frá ný- sköpun og menntun í Bláa hagkerfinu og Tryggvi Hjaltason hjá CCP og for- maður Hugverkaráðs spyr Hvernig átt þú að tryggja að Vestmannaeyjar sigri framtíðina? Málþingsstjóri er Sara Sjöfn Grett- isdóttir, ritstjóri Eyjafrétta. 100 ára kaupstaðarafmæli í Vestmannaeyjum Hátíðarfundur og málþing um framtíðarmál Morgunblaðið/Sigurður Bogi Flug Fagur er Vestmannaeyjabær. Ágúst Einarsson Íris Róbertsdóttir Bláu húsin v/Faxafen Sími 553 7355 • www.selena.is • Selena undirfataverslun • Næg bílastæði Ný sundföt frá Panache

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.