Morgunblaðið - 14.02.2019, Side 35

Morgunblaðið - 14.02.2019, Side 35
FRÉTTIR 35Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. FEBRÚAR 2019 RÉTTURHLUTHAFA TIL AÐ FÁMÁL SETT ÁDAGSKRÁHLUTHAFAFUNDAROGKOSNING Hver hluthafi á rétt á því að fá ákveðin mál tekin til meðferðar á hluthafafundi ef hann gerir um það skriflega eða rafræna kröfu til félagsstjórnar með nægilegum fyrirvara til að unnt sé að takamál til meðferðar á fundinum. Þannig skulu óskir hluthafa liggja fyrir eigi síðar en 10 dögum fyrir fundinn, þ.e. fyrir kl. 16.00 mánudaginn 25. febrúar 2019. Nánari upplýsingar umþátttöku og atkvæðagreiðslu er að finna á heimasíðu félagsins. Á hluthafafundum fylgir eitt atkvæði hverri einni krónu í hlutafé. Eigin bréf félagsins njóta ekki atkvæðisréttar. Fundargögn verða afhent á fundarstað. Hluthafar sem ekki eiga kost á að sækja fundinn geta veitt öðrum skriflegt umboð eða greitt atkvæði skriflega. Þeim hluthöfum sem hyggjast nýta sér annan hvorn þessara kosta er bent á að kynna sér á heimasíðu félagsins hvernig þeir skuli bera sig að. Þar er að finna leiðbeiningar um skráningu og form skjala og hvernig þeim skuli skilað til félagsins. AÐRARUPPLÝSINGAR Endanleg dagskrá svo og öll skjöl sem lögð verða fyrir aðalfundinn, þ.m.t. ársreikningur félagsins og allar tillögur, verða hluthöfum tiltæk á heimasíðu félagsins og munu jafnframt liggja frammi á skrifstofu félagsins. Hluthöfum er bent á að skv. 63. gr. a. hlutafélagalaga skal tilkynna skriflega, minnst fimm dögum fyrir hluthafafund, um framboð til stjórnar. Tillaga tilnefningarnefndar félagsins um tilnefningar stjórnarmanna mun liggja fyrir tveimur vikum fyrir aðalfund. Endanlegar upplýsingar um frambjóðendur til stjórnar verða birtar eigi síðar en tveimur dögum fyrir aðalfund. Reykjavík, 13. febrúar 2018, stjórnOrigo hf. Allar nánari upplýsingar um aðalfundinn er að finna á origo.is AÐALFUNDURORIGOHF. 7.MARS 2019 KL. 16.00 í ráðstefnusal félagsins að Borgartúni 37 1 Skýrsla stjórnar um starfsemi félagsins síðastliðið starfsár 2 Staðfesting ársreiknings og tekin ákvörðun umhvernig fara skuli með hagnað félagsins á reikningsárinu 3 Tillaga stjórnar um lækkun hlutafjár vegna kaupa á eigin hlutum skv. endurkaupaáætlun sem felur í sér breytingu á grein 2.1 í samþykktum félagsins 4 Tillaga stjórnar um að breyta grein 5.1 í samþykktum félagsins þannig að stjórn verði framvegis skipuð 5mönnumog engum varamanni 5 Ákvörðun umþóknun til stjórnarmanna 6 Tillögur stjórnar um starfskjarastefnu (óbreytt) 7 Kosning stjórnar 8 Kosningendurskoðanda 9 Tillögur frá hluthöfum 10 Tillaga stjórnar umheimild til kaupa á eigin hlutum sbr. 55. gr. hlutafélagalaga 11 Önnurmál Samstarfsráðherrar Norðurlanda komu saman nýverið til fundar í Reykjavík þar sem samþykkt var framkvæmdaáætlun um hreyfan- leika fólks á milli landa. Er mark- miðið að gera fólki auðveldara að flytja til annars norræns ríkis til að starfa, reka fyrirtæki, stunda nám eða eiga þar heima. Var þetta fyrsti fundur samstarfsráðherranna á for- mennskutíma Íslands. Sigurður Ingi Jóhannsson er sam- starfsráðherra Norðurlanda fyrir Ís- lands hönd. Í svari við fyrirspurn Morgunblaðsins segir Sigurður Ingi að mikill stuðningur sé innan Norður- landanna, bæði Norrænu ráð- herranefndar- innar og Norður- landaráðs, við þau áform að taka upp sameig- inleg rafræn skil- ríki sem gildi á NB8 svæðinu svo- nefnda, sem eru Norðurlöndin og Eystrasaltsríkin. „Það er hluti af pólitískum vilja að greiða götu íbúa Norðurlandanna milli landa, og gera lífið auðveldara og skilvirkara. Norðurlöndin hafa sett sér það sameiginlega markmið að vera samþættasta svæði í heimi, þar sem fólk og fyrirtæki geta auð- veldlega fært sig á milli, og rafræn skilríki eru hluti af því,“ segir Sig- urður Ingi en ítrekar að ekki sé ver- ið að taka upp ný rafræn skilríki, heldur snúist verkefnið um að Norð- urlöndin og Eystrasaltsríkin viður- kenni rafræn skilríki hvert annars. Þannig gætu Íslendingar notað þau rafrænu skilríki sem þeir notast við í dag gegnum farsímann. „Þetta gerir líf íbúa Norður- landanna einfaldara, ekki síst þeirra sem búa í öðrum ríkjum. Nú fer til dæmis töluverður tími hjá fólki sem er ekki með ríkisfang að fá kenni- tölu í því ríki sem það býr í. Það get- ur tekið langan tíma og verið krefj- andi,“ segir Sigurður Ingi og bætir við að þetta geti auðveldað lífið verulega fyrir þá mörg þúsund Ís- lendinga sem búi á hinum löndunum á Norðurlöndum, s.s. námsmenn. Bent er á í svari ráðherra að meira og minna öll opinber þjónusta sé orðin aðgengileg með rafrænum hætti, eins og skattframtölin, um- sóknir um skólavist, rafræna lyf- seðla o.fl. Nýtt fyrirkomulag er hlutfallslega talið mikilvægara fyrir Ísland en mörg önnur ríki þar sem svo margir Íslendingar búa í Skandinavíu. Einn- ig kæmi þetta sér vel fyrir Norður- landabúa búsetta á Íslandi og fólk frá Eystrasaltsríkjunum, þannig eru ríflega 4.000 Litháar hér á landi. Byrjar á þessu eða næsta ári „Spennandi verður að sjá hvernig þetta verkefni þróast. Mér segir svo hugur um að þegar þetta er komið í gagnið muni koma upp ýmis mál, en líka alls kyns möguleikar í þá veru að auka rafræna þjónustu við fólk,“ segir ráðherra. Vinnuhópur hefur verið að störf- um við undirbúning verkefnisins. Hefur Hagstofa Íslands m.a. átt sæti í þeim hópi. Taka þarf á ýmsum lagalegum og tæknilegum álita- málum en Sigurður Ingi segir þeirri vinnu miða vel. Ráðherraráð um stafræna væð- ingu, sérstakt ráðherraráð sem var sett upp tímabundið til að sjá um þau mál og fjármálaráðherra situr í, mun hittast á Íslandi í maí og fara yfir stöðuna. Vonir standa til að verkefninu verði hrint í framkvæmd í lok árs eða byrjun næsta árs. bjb@mbl.is Morgunblaðið/Árni Sæberg Fólk á ferð Auðvelda á för fólks á milli Norðurlanda og Eystrasaltsríkja. Auðvelda á för á milli Norðurlanda  Geti notað rafræn skilríki landanna Sigurður Ingi Jóhannsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.