Morgunblaðið - 14.02.2019, Side 44

Morgunblaðið - 14.02.2019, Side 44
44 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. FEBRÚAR 2019 Aðalfundur Össurar 2019 Athygli hluthafa er vakin á því að þann 6. desember 2017 voru viðskipti með hlutabréf Össurar hf. sameinuð í kauphöll Nasdaq Copenhagen. Þá var öllum hlutabréfum Össurar hf. sem voru til viðskipta í Kauphöll Íslands umbreytt í hlutabréf sem eru til viðskipta í kauphöll Nasdaq Copenhagen. Við umbreytinguna voru hlutabréfin færð á safnreikninga og frá þeim tíma hafa hluthafar ekki verið skráðir undir eigin nafni í hlutaskrá Össurar hf. Hluthafar sem vilja nýta atkvæðisrétt sinn á aðalfundinum þurfa því að afla fullnægjandi staðfestingar á eignarhlut sínum frá þeirri fjármálastofnun sem er með hlutabréf þeirra í vörslu. Hluthafar eru hvattir til að afla staðfestingar frá vörsluaðila sínum sem fyrst svo unnt sé að tryggja að atkvæðisrétturinn verði virkur á aðalfundardegi. Hluthafar geta nálgast dagskrá fundarins, fundargögn og nánari upplýsingar um aðalfundinn á heimasíðu Össurar hf.: www.ossur.com/investors/AGM Aðalfundur Össurar hf. verður haldinn í höfuðstöðvum félagsins að Grjóthálsi 5 í Reykjavík, fimmtudaginn 7. mars 2019 kl. 9:00 Maður hefur gengið undir manns hönd til að rökstyðja að þyrma beri Víkurgarði í mið- borg Reykjavíkur. Bar- átta fyrir friðun garðs- ins hefur verið áberandi á síðum Morgunblaðsins. Sagn- fræðingar, fornleifa- fræðingar, kirkjunnar menn, arkitektar og heiðursborgarar Reykjavíkur hafa beitt sér í málinu auk fjölmargra ann- arra. Alþingi er friðheilagt segir í 36. gr. stjórnarskrárinnar og má enginn raska friði né frelsi þess. Stórt og mikið hótel og veitingastaðir með til- heyrandi umferð ferðamanna og hóp- ferðabíla, mega með réttu teljast fela í sér röskun á þingfriði í andstöðu við ákvæðið. Ég hefi lagt fram á Alþingi þingsályktunartillögu um að fjár- málaráðuneyti verði falið, helst með samningum en með eignarnámi ef nauðsyn krefur, að tryggja ríkinu eignarhald á Landssímahúsinu eða eftir atvikum þeim hluta byggingar- lóðar sem tilheyrir Víkurkirkjugarði. Áður hefur verið bent á að friðhelgi Alþingis sé virt að vettugi með áform- unum og kærði forsætisnefnd Alþing- is deiliskipulag svæðisins til úrskurð- arnefndar umhverfis- og auðlinda- mála á sínum tíma. Kirkjugarður með þúsund ára sögu Fleiri rök hníga í átt til þess að rík- ið eignist Landssímahúsið eða eftir atvikum umráðarétt yf- ir Landssímareitnum. Má þar nefna þá stað- reynd að á Landssím- areitnum var um langan aldur kirkjugarður Reykvíkinga. Upphaf kirkjugarðs Víkur- kirkju má rekja hátt í 1000 ár aftur í tímann. Þar var jarðað fólk á seinni hluta 19. aldar. Löng saga friðunar Landssímareiturinn á sér langa sögu. Ríkisstjórnin greip á árunum 1965-66 inn í rás atburða sem ógnaði gamla kirkjugarðinum og kom í veg fyrir að mikil bygging, en álíka stór og sem næst alveg á sama stað og sú sem nú er áformað að þar hýsi hótel, risi sunnan við Landssíma- húsið. Skipulagsnefnd kirkjugarða, undir forystu Sigurbjarnar Ein- arssonar biskups og Kristjáns Eld- járns þjóðminjavarðar, hefði í mars 1965 vakið athygli borgarlögmanns á því að lög heimiluðu ekki að þarna yrði reist mannvirki nema sam- kvæmt sérstakri undanþágu ráð- herra, að fengnu samþykki skipulags- nefndar kirkjugarða, fyrirrennara kirkjugarðaráðs. Ríkisstjórnin fjallaði á fundi sínum 9. september 1965 um nauðsyn þess að ekki yrði leyfð bygging norðan Kirkjustrætis, milli Aðalstrætis og Thorvaldsens- strætis. Leið slökkviliðs um garðinn Hafa verður hugfast að auk að- komu gesta þarf að huga að aðflutn- ingi ýmissa vara og vista til hótel- rekstrar. Fram hafi komið í fjöl- Vörn fyrir Víkurgarð Eftir Ólaf Ísleifsson Ólafur Ísleifsson Í Morgunblaðinu í gær birta Jón Baldvin Hannibalsson og Bryndís Schram opið bréf til RÚV. Þegar RÚV fjallaði um málefni Jóns Baldvins höfðu birst fjölmargar fréttir í ólíkum fjölmiðlum sem byggðust á frá- sögnum fjölda kvenna af samskiptum við Jón. Umfjöllun RÚV var vönduð og Jóni voru gefin mörg tækifæri til að koma sínum sjónarmiðum á framfæri, sem hann svo gerði í löngu viðtali í Silfrinu. Dagskrárstjórar og fréttastjórar telja sem fyrr að fréttagildi málsins hafi verið ótvírætt og er ekkert sem bendir til annars en að vinnureglur og siðareglur RÚV hafi verið virt- ar. Fjölmiðlar eiga að vera fulltrúar almennings og í því felst að þurfa að taka á erfiðum málum. Með um- ræddri umfjöllun var Ríkisútvarpið að sinna sínu hlutverki og skyldum. Um Ríkisútvarpið gilda sérstök lög sem svo eru áréttuð í þjónustu- samningi við mennta- og menning- armálaráðuneytið. Til að tryggja óhlutdrægni og sanngjarna máls- meðferð hefur RÚV einnig sett starfsfólki sínu ítarlegar frétta- reglur. Allt er þetta gert til að tryggja vandaðan fréttaflutning og dag- skrárgerð. Störf Ríkis- útvarpsins eru opinber og almenningur getur lagt sjálfstætt mat á þau en samkvæmt opinberum mælingum nýtur Ríkisútvarpið yfirburðatrausts meðal almennings. Ef ein- hver er ósáttur við til- tekin atriði í frétta- flutningi tekur RÚV fúslega við athugsemdum og svarar með formlegum hætti. Ef viðkom- andi er ósáttur við þá afgreiðslu sem hann fær er hægt að beina málinu til sérstakrar siðanefndar sem leggur sjálfstætt mat á fram- göngu starfsmanna RÚV en að auki má benda á að allir geta skotið mál- um til Blaðamannafélags Íslands. Ef Jón Baldvin og Bryndís telja á sig hallað hvet ég þau til að beina málum í þennan formlega farveg sem er til staðar fyrir þau eins og aðra. Svar við opnu bréfi Jóns Baldvins og Bryndísar Schram Eftir Magnús Geir Þórðarson Magnús Geir Þórðarson » Fjölmiðlar eiga að vera fulltrúar almennings og í því felst að þurfa að taka á erfiðum málum. Höfundur er útvarpsstjóri. Í jómfrúræðu minni á þingi 2017 gerði ég að umtals- efni veika stöðu lög- gjafarvaldsins undir liðnum ný vinnu- brögð á Alþingi. Til- efnið var að á nefnd- arfundi kom ónefndur gestur úr einu ráðuneytinu og varð að orði að þeir hygðust leggja fram frumvarp eft- ir áramót um tiltekið mál. Svo virðist sem gengið sé út frá því að frumvörp eigi sér fæðingarstað í ráðuneytum. Hér verður að hafa í huga að fullkomlega eðlilegt er að ýmis lög eigi sér uppruna í ráðu- neytum, t.d. heildarlög um ein- staka málaflokka. Þrískipting ríkisvaldsins gerir ráð fyrir því að lagasetning sé í höndum löggjafar- samkomunnar þar sem að megin- stefnu eigi að fyrirfinnast upp- spretta, samning og samþykkt laga. Veik staða löggjafarvaldsins Margoft hefur verið bent á veika stöðu löggjafarvaldsins gagnvart framkvæmdavaldinu og áætlanir í stjórnarsáttmálanum um styrkingu þess eru dæmi um stöðuna eins og hún í raun er. Hingað til hafa áætlanir um styrk- ingu löggjafarvaldsins jafnan runnið út í sandinn og líklega er þannig komið nú að staða þingsins hafi sjaldan eða aldrei verið veik- ari miðað við hina rík- isþættina tvo, fram- kvæmda- og dóms- valdið. Hér þarf að vanda til verka og stjórnlaus fjáraustur er ekki rétta lausnin. Forgangsatriði verður að vera að efla getu þingsins og fasta- nefnda til raunveru- legrar lagasetningar og ekki síður stefnu- mótunar á ólíkum svið- um þjóðmála. Flest frumvörp koma úr ráðuneytum Staðreyndin er sú að flest þing- mál koma fullburða út úr ráðu- neytunum, sem sjá um samningu þeirra. Í nefndum Alþingis er farið höndum um málin, stundum gerð- ar viðbætur og síðan fer laga- frumvarpið eða ályktunin í gegn- um þingið, í flestum tilfellum lítið breytt. Þessi frumvörp og álykt- anir eru því unnin af fram- kvæmdavaldinu, ráðherranum og embættismönnum í ráðuneytunum. Á Alþingi fer þannig fram nokkurs konar yfirlestur á þessum afurðum úr ráðuneytunum. Hér er ekki gert lítið úr ýmsum lagfæringum sem þingið gerir á frumvörpum, sem er heilmikil og vönduð vinna. Lagasmíð innan ráðuneyta Svör ráðherra ríkisstjórnarinnar við fyrirspurnum mínum um fjölda starfsmanna sem vinna að gerð lagafrumvarpa berast mér þessa dagana og bera með sér að sú vinna er umfangsmikil og svo er einnig um aðkeypta sérfræðiþjón- ustu ráðuneytanna við frumvarps- smíð. Ég hafði áður skrifað um þá hugmynd mína hvort ekki væri einfaldast að flytja hluta af sér- fræðingunum úr ráðuneytunum til þingsins og spara þannig fjármuni. En sú hugmynd er kannski of ein- föld. Stefnumörkun umhverfis- og samgöngunefndar Í ljósi framangreinds verð ég að lýsa ánægju minni með það verk- lag sem umhverfis- og samgöngu- nefnd þingsins viðhafði um sam- gönguáætlun þar sem nefndin vann nánast frá grunni ítarlega stefnumótun í samgöngumálum landsins með það að markmiði m.a. að flýta framkvæmdum í sam- gönguáætlun og taka upp svokall- aða skoska leið í flugfargjalda- málum landsbyggðarinnar. Vonandi eru þessi vinnubrögð vísir að því sem koma skal, nefnilega að nefndir Alþingis komi með virkum og afgerandi hætti að samningu laga frá upphafi og móti stefnu sem þar komi fram. Þannig eiga nefndir Alþingis að virka og því fagna ég þessum vinnubrögðum. Samgöngunefnd mótar stefnu Eftir Karl Gauta Hjaltason » Vonandi eru vinnu- brögðin vísir að því sem koma skal, að nefndir Alþingis komi með afgerandi hætti að samningu laga og móti stefnu sem þar komi fram. Karl Gauti Hjaltason Höfundur er þingmaður og nefndarmaður í umhverfis- og samgöngunefnd. kgauti@althingi.is Allt um sjávarútveg

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.