Morgunblaðið - 14.02.2019, Síða 18
18 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. FEBRÚAR 2019
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
Ögmundur Jónasson, fyrrverandi al-
þingismaður og ráðherra, er nú
staddur í Tyrklandi þar sem hann
talar máli Kúrda og mannréttinda al-
mennt, eins og hann orðar það. Ög-
mundur kom til Tyrklands í byrjun
vikunnar og á mánudaginn hitti hann
forsvarsmenn HDP flokksins, Lýð-
ræðisfylkingarinnar, sem er flokkur
Kúrda, í Ankara. Þá hitti hann sömu-
leiðis fulltrúa mannréttindasamtaka
og verkalýðshreyfingar.
Ögmundur segir að fróðlegt en
jafnframt óhugnanlegt hafi verið að
hlýða á mál þeirra, en yfir 250 þús-
und landsmanna sitja í fangelsi af
pólitískum ástæðum og um 800 þús-
und hafa verið sviptir frelsi eða frelsi
þeirra takmarkað. Vakti það athygli
Ögmundar að margt fylgdarfólk
hans þurfti að tilkynna yfirvöldum
um ferðir sínar, sumir daglega og
aðrir tvisvar á dag.
Krafa um friðarviðræður
fangelsissök
Aðspurður segir Ögmundur að
engin svör hafi borist við beiðni hans
um fund með dómsmálaráðherra
Tyrklands, Abdul-hamid Gül. Í bréfi
Ögmundar var vakin athygli ein-
angrunarvist Öcalans, leiðtoga
Kúrda, en honum hefur verið haldið í
einangrunarfangelsi í tuttugu ár.
„Menn bíða þess nú hvort tyrk-
nesk yfirvöld sýni einhvern vilja til
að koma til móts við kröfur fólks sem
snúast fyrst og fremst um að rjúfa
einangrun Öcalans, óskoraðs leið-
toga Kúrda. Það er litið svo á að hann
sé lykillinn að friðarviðræðum, en við
skulum ekki gleyma því að krafan
um að taka upp friðarviðræður við
Kúrda og Öcalan er fangelsissök.
Nýlega leyfðu yfirvöld bróður hans
að hitta hann í fimmtán mínútur.
Fyrir það hafði enginn fengið að
hitta hann frá 2016 og hann hefur
ekki fengið að hitta lögfræðinga frá
árinu 2011. Þetta er alveg yfir-
gengilegt ástand,“ segir Ögmundur í
samtali við Morgunblaðið.
Dauði fyrirsjáanlegur
Í gær hélt Ögmundur ásamt sam-
ferðamönnum sínum til Diyarbakir í
Suð-austanverðu Tyrklandi en á þá
borg líta Kúrdar sem höfuðborg sína
í Tyrklandi. Þar hitti hann Leylu
Güven sem var á 98. degi sínum í
svelti til að mótmæla einangrun
Öcalans og pólitískum fangelsunum í
landinu. „Hún er alveg aðframkomin.
Dauði hennar er fyrirsjáanlegur,“
sagði Ögmundur en Güven var flutt á
sjúkrahús síðdegis í gær eftir að
henni hafði hrakað.
Ástandinu víða mótmælt
Ögmundur segir að vaxandi
spennu gæti í Tyrklandi vegna svelti-
mótmæla pólitískra fanga þar og
kröfunnar um að einangrun Öca-
lands verði aflétt og pólitískum föng-
um sleppt úr haldi. Á morgun, 15.
febrúar, verða einmitt tuttugu ár lið-
in frá því Öcalan var hnepptur í varð-
hald og settur í einangrun.
„Það er mikið að gerast núna. Í
ýmsum bæjum og borgum í Suð-
austur-Tyrklandi eru að hefjast mót-
mæli og samstöðufundir. Þeim fjölg-
ar sem eru í mótmælasvelti í fang-
elsum, þeir eru 318 núna en voru
talsvert færri. Fleiri eru líka í mót-
mælasvelti. Við heimsóttum í Strass-
borg 14 manns sem hafa verið í mót-
mælasvelti þar síðan um miðjan
desember.“
Ástandið í Tyrklandi „yfirgengilegt“
Ögmundur Jónasson talar máli Kúrda og mannréttinda í Tyrklandi Hitti Leylu Güven sem nálg-
ast hundraðasta dag sinn í mótmælasvelti Tveir áratugir frá því Öcalan var hnepptur í varðhald
Í Tyrklandi Ögmundur Jónasson talar máli Kúrda og mannréttinda í Tyrklandi. Til vinstri er hann við hlið Leylu Güven en til hægri í viðtali í gær.
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
IC
E
8
7
5
16
0
2
/
18
Aðalfundur Icelandair Group hf. verður haldinn föstudaginn 8. mars 2019
á Hilton Reykjavík Nordica og hefst kl 16:00.
DAGSKRÁ FUNDARINS
1. Skýrsla stjórnar félagsins um starfsemi þess síðastliðið starfsár
2. Staðfesting ársreiknings og tekin ákvörðun um hvernig fara skuli með hagnað
eða tap félagsins á reikningsárinu
3. Ákvörðun um þóknun til stjórnarmanna
4. Tillögur félagsstjórnar um starfskjarastefnu
5. Kosning stjórnar félagsins
6. Kosning endurskoðanda
7. Tillögur um breytingar á samþykktum:
a. Lækkun hlutafjár – ógilding eigin hluta sem leiðir til breytinga
á 2. gr. samþykkta.
b. Lagt er til að komið verði á fót tilnefningarnefnd þar sem hlutahafafundur kýs
tvo fulltrúa og stjórn tilnefnir einn.
8. Kosning tveggja fulltrúa í tilnefningarnefnd
9. Heimild til kaupa á eigin bréfum
10. Önnur mál löglega fram borin
Réttur hluthafa til að fá mál sett á dagskrá hluthafafundar og kosning
Hluthafar eiga rétt á að leggja fram mál og/eða ályktunartillögur fyrir fundinn ef gerð
hefur verið skrifleg eða rafræn krafa um það eigi síðar en 10 dögum fyrir fund, þ.e. í
síðasta lagi kl. 16:00 þriðjudaginn 26. febrúar 2019. Hafi hluthafar krafist þess að
tiltekið mál eða ályktun verði tekin fyrir verða endanleg dagskrá og tillögur uppfærðar
á vefsíðu félagsins eigi síðar en þremur dögum fyrir aðalfundinn.
Hluthafar sem ekki eiga kost á að sækja fundinn geta veitt öðrum skriflegt umboð eða
greitt atkvæði skriflega. Þeim hluthöfum sem hyggjast nýta sér annan hvorn þessara
kosta er bent á að kynna sér hvernig þeir skuli bera sig að á aðalfundarvef félagsins,
www.icelandairgroup.is/agm
Þar er að finna leiðbeiningar um skráningu atkvæða, form skjala og hvernig þeim skuli
skilað til félagsins.
Á hluthafafundum fylgir eitt atkvæði hverri einni krónu í hlutafé.
Eigin bréf félagsins njóta ekki atkvæðisréttar.
Aðrar upplýsingar
Öll skjöl sem lögð verða fyrir aðalfundinn, þ.m.t. ársreikningur félagsins, tillögur að
samþykktabreytingum, upplýsingar um heildarfjölda hluta og atkvæðafjölda í félaginu
á boðunardegi sem og allar aðrar tillögur, eru hluthöfum tiltæk á aðalfundarsíðu
félagsins, www.icelandairgroup.is/agm
Hluthöfum er bent á að skv. samþykktum félagsins skal tilkynna skriflega, minnst sjö
dögum fyrir hluthafafund, um framboð til stjórnar. Skal framboðstilkynningum skilað til
stjórnar í síðasta lagi föstudaginn 1. mars 2019 kl. 16:00. Það sama gildir um framboð í
tilnefningarnefnd. Hægt er senda inn framboð á netfangið compliance@icelandairgroup.is
Sitjandi stjórnarmenn í Icelandair Group, að Ásthildi Otharsdóttur undanskilinni, hafa
lýst yfir vilja til að gefa kost á sér til endurkjörs á aðalfundi.
Endanleg dagskrá verður birt á heimasíðu félagsins tveimur vikum fyrir fundinn,
föstudaginn 22. febrúar 2019 kl. 16:00.
Atkvæðaseðlar og fundargögn verða afhent á fundarstað frá kl. 15:30.
Allar nánari upplýsingar um aðalfundinn er að finna á vefsíðu félagsins,
www.icelandairgroup.is/agm
Reykjavík, 14. febrúar 2019,
stjórn Icelandair Group hf.
AÐALFUNDUR
ICELANDAIR GROUP HF.