Morgunblaðið - 14.02.2019, Síða 26
26 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. FEBRÚAR 2019
VIÐTAL
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Við erum að fá algjörlega mögnuð brugg-
hús í heimsókn til okkar. Þetta verður mjög
spennandi hátíð,“ segir Ólafur Ágústsson,
einn skipuleggjenda The Annual Icelandic
Beer Festival sem haldin verður í áttunda
sinn í næstu viku. Hátíðin stendur frá
fimmtudegi til laugardags og er að þessu
sinni haldin í aðdraganda þess að þrjátíu ár
eru liðin frá fyrsta Bjórdeginum.
Helmingur gesta að utan
Þessi mikla bjórhátíð hefur frá upphafi
verið haldin á Kex Hostel við Skúlagötu en
verður nú færð í brugghúsið Ægisgarð úti á
Granda. Alls er búist við um fimm hundruð
gestum á hátíðina auk erlendra bruggara
sem kynna framleiðslu sína. Athyglisvert er
að tæpur helmingur gestanna er erlendur.
„Það er ótrúlega mikið. Þetta eru gestir
sem hafa vit á bjór, þetta er fólk sem keypti
sér miða í nóvember,“ segir Ólafur.
Færri brugghús en áður
Mörg þekkt brugghús frá Bandaríkjunum
sækja hátíðina heim að þessu sinni, til að
mynda Tired Hands, de Garde, Black Pro-
ject og Fonta Flora. Þá segist Ólafur vera
sérstaklega spenntur fyrir gestum sínum
frá New York; Other Half, Finback, KCBC
og Interboro. „Other Half er vel þekkt en
hin þrjú hafa verið mjög spennandi í þessari
Brooklyn-senu upp á síðkastið. Þau eru
hrikalega spennandi.“
En þó hátíðin sé vegleg og góðir gestir
komi að utan eru erlendu brugghúsin færri
en þau voru í fyrra. Þá voru alls 47 brugg-
hús bókuð til leiks en í ár eru þau 35. „Við
gátum ekki sinnt svona mörgu fólki og
ákváðum því að fækka aðeins. Við viljum
frekar hafa góðan kjarna svo við getum hitt
fólkið, spjallað og gert eitthvað fyrir það.“
Ólafur kveðst sömuleiðis spenntur fyrir
íslensku brugghúsunum enda vilji margir
sýna sig og sanna á þessum vettvangi. „Það
hefur svo margt gerst síðan í fyrra, það er
margt búið að breytast. Þetta er orðin
miklu flottari sena en hún var.“
Stoltir af hátíðinni
Og þar kemur einmitt að kjarnanum, til-
ganginum með þessari miklu bjórhátíð.
„Hugmyndin hefur alltaf verið að breyta og
bæta bjórmenninguna hér. Ég hef alltaf
haft sterkar skoðanir á þessu og hugsaði
sem svo að ef það bætast tíu manns við á
hverju ári sem kynnast góðum bjór og fatta
þetta, fatta það sama og ég hef fattað, þá
yrði ég ánægður. Það hafa bæst við miklu
fleiri en tíu ár hvert þannig að við erum
bara ógeðslega stoltir af þessari hátíð. Það
hefur tekist að breyta mynstri fólks sem
hafði viðgengist lengi og nú er til dæmis
ótrúlegasta fólk farið að drekka humlaða
bjóra. Ég hef alltaf sagt að ef þú býrð til
góða vöru, eldar góðan mat eða bruggar
góðan bjór, þá kemur fólk til þín. Á end-
anum fattar það hvað þú ert að gera. Og
það hefur gerst með bjórmenninguna á Ís-
landi. Hér er orðinn til traustur hópur og
hann er alltaf að stækka. Það skemmtilega
er svo að þetta hefur snjóboltaáhrif eins og
sést á því hvað úrvalið í ríkinu hefur auk-
ist.“
Hugarfarsbreyting
Ólafur bendir á að margir hafi lagt hönd
á plóg við þessa hugarfarsbreytingu er snýr
að bjór hér á landi. Má þar nefna fjölmörg
brugghús sem hafa sprottið upp á síðustu
árum og áhugaverða bjórbari. Í næstu viku
verður einmitt fjölbreytt dagskrá á bjórbör-
um í miðborg Reykjavíkur þar sem hægt
verður að kynnast forvitnilegum bjórum frá
erlendum brugghúsum á hátíðinni, jafnvel
þó fólk hafi ekki keypt sér miða á hátíðina.
Enn er þó eitthvað af lausum miðum í boði
á heimasíðunni Kexbrewing.is.
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Bjórhátíð Góð stemning hefur verið á bjórhátíðinni á Kex Hostel síðustu ár
en nú færist hún yfir í Ægisgarð úti á Granda. Hátíðin hefst á fimmtudag.
Morgunblaðið/Hari
Skál á nýjum stað Skipuleggjendur The Annual Icelandic Beer Festival fagna því að hátíðin verði haldin í Ægis-
garði í næstu viku. Frá vinstri eru þeir Hinrik Carl Ellertsson, Ólafur Ágústsson og Ólafur S.K. Þorvaldz.
Stoltir af breyttri bjórmenningu hér
Íslenska bjórhátíðin haldin í áttunda sinn í næstu viku Fjöldi erlendra gesta sækir hátíðina
Tekur ál, stál og ryðfrí
hnoð upp að 4,8mm.
LED ljós fyrir léleg birtuskilyrði.
Sveigjanlegt rafhlöðukerfi sem
virkar með öllum Milwaukee®
M12™ rafhlöðum.
Verð 59.900 kr. (með rafhlöðu)
M12 BPRT
Alvöru hnoðbyssa
fráMilwaukee
vfs.is
VERKFÆRASALAN • SÍÐUMÚLA 9, REYKJAVÍK • DALSHRAUNI 13, HAFNARFIRÐI • DALSBRAUT 1, AKUREYRI • S: 560 8888
Eltak sérhæfir sig í sölu
og þjónustu á vogum
Bjóðum MESTA úrval
á Íslandi af smáum
og stórum vogum
Um tugur íslenskra uppsjávarskipa
hefur undanfarið verið á kol-
munnaveiðum á alþjóðlegu haf-
svæði vestur af Írlandi. Afli þeirra
hefur glæðst síðustu daga og er
Hoffellið frá Fáskrúðsfirði nú á
landleið með um 1.600 tonn.
Á vef Loðnuvinnslunnar segir að
skipið sé með fullfermi og verði
væntanlega í heimahöfn á föstudag.
Siglingin er löng, um 680 mílur, og
tekur hátt í þrjá sólarhringa. Þetta
verður væntanlega fyrsta kol-
munnalöndun íslenskra skipa á
árinu, segir á vef LVF. Fyrr í vik-
unni kom norskt skip með kol-
munna til Neskaupstaðar.
Ljósmynd/Gunnar Hlynur
Á kolmunna Hoffellið á siglingu.
Á heimleið með full-
fermi af kolmunna