Morgunblaðið - 14.02.2019, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 14.02.2019, Blaðsíða 26
26 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. FEBRÚAR 2019 VIÐTAL Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Við erum að fá algjörlega mögnuð brugg- hús í heimsókn til okkar. Þetta verður mjög spennandi hátíð,“ segir Ólafur Ágústsson, einn skipuleggjenda The Annual Icelandic Beer Festival sem haldin verður í áttunda sinn í næstu viku. Hátíðin stendur frá fimmtudegi til laugardags og er að þessu sinni haldin í aðdraganda þess að þrjátíu ár eru liðin frá fyrsta Bjórdeginum. Helmingur gesta að utan Þessi mikla bjórhátíð hefur frá upphafi verið haldin á Kex Hostel við Skúlagötu en verður nú færð í brugghúsið Ægisgarð úti á Granda. Alls er búist við um fimm hundruð gestum á hátíðina auk erlendra bruggara sem kynna framleiðslu sína. Athyglisvert er að tæpur helmingur gestanna er erlendur. „Það er ótrúlega mikið. Þetta eru gestir sem hafa vit á bjór, þetta er fólk sem keypti sér miða í nóvember,“ segir Ólafur. Færri brugghús en áður Mörg þekkt brugghús frá Bandaríkjunum sækja hátíðina heim að þessu sinni, til að mynda Tired Hands, de Garde, Black Pro- ject og Fonta Flora. Þá segist Ólafur vera sérstaklega spenntur fyrir gestum sínum frá New York; Other Half, Finback, KCBC og Interboro. „Other Half er vel þekkt en hin þrjú hafa verið mjög spennandi í þessari Brooklyn-senu upp á síðkastið. Þau eru hrikalega spennandi.“ En þó hátíðin sé vegleg og góðir gestir komi að utan eru erlendu brugghúsin færri en þau voru í fyrra. Þá voru alls 47 brugg- hús bókuð til leiks en í ár eru þau 35. „Við gátum ekki sinnt svona mörgu fólki og ákváðum því að fækka aðeins. Við viljum frekar hafa góðan kjarna svo við getum hitt fólkið, spjallað og gert eitthvað fyrir það.“ Ólafur kveðst sömuleiðis spenntur fyrir íslensku brugghúsunum enda vilji margir sýna sig og sanna á þessum vettvangi. „Það hefur svo margt gerst síðan í fyrra, það er margt búið að breytast. Þetta er orðin miklu flottari sena en hún var.“ Stoltir af hátíðinni Og þar kemur einmitt að kjarnanum, til- ganginum með þessari miklu bjórhátíð. „Hugmyndin hefur alltaf verið að breyta og bæta bjórmenninguna hér. Ég hef alltaf haft sterkar skoðanir á þessu og hugsaði sem svo að ef það bætast tíu manns við á hverju ári sem kynnast góðum bjór og fatta þetta, fatta það sama og ég hef fattað, þá yrði ég ánægður. Það hafa bæst við miklu fleiri en tíu ár hvert þannig að við erum bara ógeðslega stoltir af þessari hátíð. Það hefur tekist að breyta mynstri fólks sem hafði viðgengist lengi og nú er til dæmis ótrúlegasta fólk farið að drekka humlaða bjóra. Ég hef alltaf sagt að ef þú býrð til góða vöru, eldar góðan mat eða bruggar góðan bjór, þá kemur fólk til þín. Á end- anum fattar það hvað þú ert að gera. Og það hefur gerst með bjórmenninguna á Ís- landi. Hér er orðinn til traustur hópur og hann er alltaf að stækka. Það skemmtilega er svo að þetta hefur snjóboltaáhrif eins og sést á því hvað úrvalið í ríkinu hefur auk- ist.“ Hugarfarsbreyting Ólafur bendir á að margir hafi lagt hönd á plóg við þessa hugarfarsbreytingu er snýr að bjór hér á landi. Má þar nefna fjölmörg brugghús sem hafa sprottið upp á síðustu árum og áhugaverða bjórbari. Í næstu viku verður einmitt fjölbreytt dagskrá á bjórbör- um í miðborg Reykjavíkur þar sem hægt verður að kynnast forvitnilegum bjórum frá erlendum brugghúsum á hátíðinni, jafnvel þó fólk hafi ekki keypt sér miða á hátíðina. Enn er þó eitthvað af lausum miðum í boði á heimasíðunni Kexbrewing.is. Morgunblaðið/Styrmir Kári Bjórhátíð Góð stemning hefur verið á bjórhátíðinni á Kex Hostel síðustu ár en nú færist hún yfir í Ægisgarð úti á Granda. Hátíðin hefst á fimmtudag. Morgunblaðið/Hari Skál á nýjum stað Skipuleggjendur The Annual Icelandic Beer Festival fagna því að hátíðin verði haldin í Ægis- garði í næstu viku. Frá vinstri eru þeir Hinrik Carl Ellertsson, Ólafur Ágústsson og Ólafur S.K. Þorvaldz. Stoltir af breyttri bjórmenningu hér  Íslenska bjórhátíðin haldin í áttunda sinn í næstu viku  Fjöldi erlendra gesta sækir hátíðina Tekur ál, stál og ryðfrí hnoð upp að 4,8mm. LED ljós fyrir léleg birtuskilyrði. Sveigjanlegt rafhlöðukerfi sem virkar með öllum Milwaukee® M12™ rafhlöðum. Verð 59.900 kr. (með rafhlöðu) M12 BPRT Alvöru hnoðbyssa fráMilwaukee vfs.is VERKFÆRASALAN • SÍÐUMÚLA 9, REYKJAVÍK • DALSHRAUNI 13, HAFNARFIRÐI • DALSBRAUT 1, AKUREYRI • S: 560 8888 Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Bjóðum MESTA úrval á Íslandi af smáum og stórum vogum Um tugur íslenskra uppsjávarskipa hefur undanfarið verið á kol- munnaveiðum á alþjóðlegu haf- svæði vestur af Írlandi. Afli þeirra hefur glæðst síðustu daga og er Hoffellið frá Fáskrúðsfirði nú á landleið með um 1.600 tonn. Á vef Loðnuvinnslunnar segir að skipið sé með fullfermi og verði væntanlega í heimahöfn á föstudag. Siglingin er löng, um 680 mílur, og tekur hátt í þrjá sólarhringa. Þetta verður væntanlega fyrsta kol- munnalöndun íslenskra skipa á árinu, segir á vef LVF. Fyrr í vik- unni kom norskt skip með kol- munna til Neskaupstaðar. Ljósmynd/Gunnar Hlynur Á kolmunna Hoffellið á siglingu. Á heimleið með full- fermi af kolmunna
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.