Morgunblaðið - 14.02.2019, Síða 20
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. FEBRÚAR 2019
Við bjóðum uppá glæsilegar borgir allt árið í A-Evrópu. Tilvalið fyrir
hópa, fyrirtæki og einstaklinga. Veldu tímann og farðu þegar þú vilt
2, 3, 4 daga eða lengur. Verðlag er hagstætt bæði í mat
og drykk. Þá er hægt að gera góð kaup í hinum ýmsu
verslunum og mörkuðum. Við bjóðum upp á skoðunar-
ferðir fyrir hópa og fyrirtæki, svo og kvöldverði/veislur
í höllum, köstulum eða húsum frá miðöldum.
www.transatlantic.is Sími 588 8900
GLÆSILEGAR MIÐALDA
BORGIR Í A-EVRÓPU
Wrocalaw er ein mesta ferðamannaborg
Póllands. Wroclaw var kosin menningarborg
Evrópu 2016. Wroclaw hefur svo mikið uppá
að bjóða. Borgin er ægifögur menningarborg
með svo margt fyrir ferðamanninn sem gerir
hana svona vinsæla. Gamli bærinn er augna-
yndi með fagrann arkitektur frá fyrri tímum,
mikið er af söfnum og menningarviðburðir í
borginni hafa ætíð verið fjölbreyttir.
Miðaldaborg frá 12. öld. Gamli og nýji
tíminn mætast í borg sem ekki á sinn líka.
Gamli bærinn er frá árinu 1201 og er vernd-
aður af Unesco. Þar ber hæst kastalinn í
Riga, kirkja Sankti Péturs og Dómkirkjan.
Gamli bærinn í Riga er virkilegt augnayndi
hvert sem litið er og setur borgina á stall
með fallegri borgum Evrópu.
RIGA Í LETTLANDI
WROCLAW
TALLINN EISTLANDI
NOKKUR DÆMI UM BORGIR SEM VIÐ BJÓÐUM UPPÁ
Vilnius,
Budapest,
Gdansk, Krakow,
Varsjá, Bratislava
Vínarborg og
Brugge
Tallinn er ein allra fallegasta borg Evrópu
og er gamli bæjarhlutinn sá hluti borga-
rinnar sem mesta aðdráttaraflið hefur á
ferðamenn. Þar eru götur steini lagðar,
byggingar frá 11. öld sem hefur tekist að
varðveita ótrúlega vel. Þú ferð úr 21. öldinni
beint aftur í miðaldir. Þar sem Tallinn er best
varðveitta miðaldaborg N-Evrópu hefur
henni verið bætt við á heimslista UNESCO.
Smelltu á
notadir.benni.is
CHEVROLET SPARK
Raðnúmer 740223
Nýskráður: 2015 / Bensín
Beinskiptur / Ekinn: 131.000 km.
Verð: 990.000
Tilboð: 3.890.000 kr.
NISSAN QASHQAI TEKNA
Raðnúmer 740150
Nýskráður: 2018 / Dísel
Sjálfskiptur / Ekinn: 24.000 km.
Verð: 4.590.000
Tilboð: 1.690.000 kr.
SSANGYONG TIVOLI DLX
Raðnúmer 445312
Nýskráður: 2016 / Dísel
Sjálfskiptur / Ekinn: 146.000 km.
Verð: 2.190.000
Tilboð: 550.000 kr.
Tilboð: 2.690.000 kr.
SSANGYONG REXTON HLX
Raðnúmer 103564
Nýskráður: 2014 / Dísel
Sjálfskiptur / Ekinn: 129.000 km.
Verð: 3.190.000
HONDA CR-V ELEGANCE
Raðnúmer 445398
Nýskráður: 2016 / Bensín
Sjálfskiptur/ Ekinn: 106.000 km.
Verð: 3.490.000
Tilboð: 2.990.000 kr.
OPEL ASTRA NOTCHBACK
Raðnúmer 445468
Nýskráður: 2016 / Bensín
Beinskiptur / Ekinn: 72.000 km.
Verð: 1.990.000
Tilboð: 1.590.000 kr.
TOYOTA AYGO X PLAY TOUCH
Raðnúmer 150247
Nýskráður: 2014 / Bensín
Beinskiptur / Ekinn: 47.000 km.
Verð: 1.090.000
Tilboð: 890.000 kr.
HONDA CR-V ES
Raðnúmer 150251
Nýskráður: 2006 / Bensín
Sjálfskiptur / Ekinn: 160.000 km.
Verð: 790.000
Tilboð: 600.000 kr.
* Birt með fyrirvara um mynd og textabrengl.
Reykjavík
Krókháls 9 | Sími: 590 2035
NOTAÐIR BÍLAR
Skoðaðu úrvalið á notadir.benni.is
Reykjanesbær
Njarðarbraut 9
Sími: 420 3330
Opnunartímar:
Virka daga 10-18
Laugardaga 12-16
TI
LB
OÐ
4X
4
TI
LB
OÐ
4X
4
TI
LB
OÐ
TI
LB
OÐ
TI
LB
OÐ
TI
LB
OÐ
4X
4
TI
LB
OÐ
4X
4
TI
LB
OÐ
SSANGYONG TIVOLI HLX
Nýskráður: 2017 / Dísel
Sjálfskiptur / Ekinn: 3.000 km.
Raðnúmer 444819
Tilboð : 3.290.000 kr.
Verð: 3.590.000
TI
LB
OÐ
4X
4
Bílar með
reynslu!
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
100 ár eru liðin á morgun frá því
að elsta vátryggingaskírteini ís-
lensks tryggingafélags, sem enn er
í gildi, var undirritað. Það var þeg-
ar Sjóvátryggingarfélag Íslands
hf., sem nú heitir Sjóvá, gerði
fyrsta tryggingasamning sinn og
var hann við Jóhann Ólafsson &
Co. um sjóvár- og farmtryggingu.
Félagið tryggði vörur í flutningi
fyrir allt að 50.000 krónur með
gufuskipi og allt að 10.000 krónur
með segl- eða mótorskipi.
Hermann Björnsson, forstjóri
Sjóvár, og Auður Daníelsdóttir,
framkvæmdastjóri sölu- og ráð-
gjafasviðs Sjóvár, heimsóttu Jó-
hann Ólafsson & Co og afhentu
Jóni Árna Jóhannsyni, fram-
kvæmdastjóra fyrirtækisins blóm í
tilefni af 100 ára afmæli fyrstu og
elstu vátryggingar Sjóvár. Þá ætl-
ar Sjóvá að senda starfsfólki fyr-
irtækisins glaðning á föstudag í til-
efni aldarafmælisins.
„Mér var boðið í 100 ára afmæli
Jóhanns Ólafssonar & Co í október
2016. Þá vakti það athygli mína að
sjá þetta tryggingaskírteini á heið-
ursstað uppi á vegg þar sem það
blasti við öllum,“ sagði Hermann
Björnsson, forstjóri Sjóvár. „Sjóvá
hélt upp á 100 ára afmæli sitt í
fyrra og nú fögnum við 100 ára af-
mæli elsta vátryggingasamnings-
ins, sem félagið gerði 15. febrúar
1919 og tryggingin er enn í gildi.
Við viljum heiðra þetta langa og
farsæla viðskiptasamband.“
Hermann sagði að bæði félögin
hefðu haldið upp á þetta skírteini,
enda sé þetta fyrsti trygginga-
samningur um vörur í sjóflutning-
um sem gerður var á milli ís-
lenskra fyrirtækja. „Við getum
rakið viðskiptasögu margra okkar
góðu viðskiptavina, stórra og
þekktra fyrirtækja, marga áratugi
aftur í tímann en það verður ekki
lengra farið aftur en þetta því
þarna var upphafið. Við erum
ákaflega ánægð með samstarfið við
Jóhann Ólafsson & Co., það hefur
verið mjög farsælt og er gott og
gaman að minnast þess núna,“
sagði Hermann.
Ætlaði að taka 100 ár!
Jón Árni Jóhannsson, fram-
kvæmdastjóri Jóhanns Ólafssonar
& Co., er þriðji ættliðurinn sem
stýrir fjölskyldufyrirtækinu. Afi
hans, Jóhann Ólafsson, stofnaði
fyrirtækið ásamt tveimur öðrum
14. október 1916 og stýrði því allt
til dánardags 1963. Þá tók Jóhann
J. Ólafsson, faðir Jóns Árna, við
rekstri fyrirtækisins. Jón Árni tók
við framkvæmdastjórninni árið
2009.
„Það kom tryggingasölumaður
fyrir 2-3 árum og vildi gera okkur
tilboð í tryggingar. Ég sýndi hon-
um skírteinið og sagði að ég héldi
að ég tæki allavega fyrstu hundrað
árin hjá Sjóvá! Hann sagðist skilja
það og ef hann hefði vitað þetta þá
hefði hann sleppt því að koma,“
sagði Jón Árni.
Sjóvátryggingarfélag Íslands
var stofnað 20. október 1918 og hóf
starfsemi 15. janúar 1919. Á meðal
stofnenda var Sveinn Björnsson,
síðar fyrsti forseti lýðveldisins.
Eins og nafnið bendir til tók félag-
ið í fyrstu eingöngu að sér sér
sjóvátryggingar. Fljótlega varð
það fyrsta íslenska tryggingafélag-
ið til að bjóða upp á almenna vá-
tryggingastarfsemi. Sjóvátrygg-
ingarfélagið sameinaðist Almenn-
um tryggingum hf. árið 1989 í
Sjóvá-Almennar tryggingar hf. en
í daglegu tali er félagið kallað
Sjóvá.
Morgunblaðið/Hari
Tryggð Viðskiptavinir í eina öld. F.v.: Hermann Björnsson, Jón Árni Jóhannsson og Auður Daníelsdóttir.
100 ára gild trygging
Jóhann Ólafsson & Co. keypti trygginguna hjá Sjóvá-
tryggingafélagi Íslands, nú Sjóvá, þann 15. febrúar 1919
Morgunblaðið/Hari
100 ára Tryggingaskírteinið.