Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.02.2019, Blaðsíða 6
ERLENT
6 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17.2. 2019
Kvöldið áður en Ocasio-Cortez sór
embættiseið fór myndband af henni
að dansa í dreifingu á netinu.
Myndbandið sýndi hana dansa ber-
fætta á þaki og var tekið á háskóla-
árum hennar. Ef tilgangur birtingar
myndbandsins var að gera lítið úr
henni misheppnaðist það hrapallega.
Myndbandið hlaut góðar viðtökur á
samfélagsmiðlum og veltu flestir fyrir
sér hvað ætti að vera svona slæmt við
manneskju að dansa. Margir komu til
varnar fyrir hana og sögðu það bara
sanna að hún hefði alltaf verið svöl.
Leikarinn og grínistinn Kumail Nanjiani tísti í anda MeToo-
byltingarinnar um málið og velti þar upp tvöföldu siðgæði sem
mætir oftar en ekki konum og körlum. „Maður brýtur gegn konu
kynferðislega í háskóla: „Það er svo langt síðan!“ Kona dansar í há-
skóla: „Við verðum að kveikja í henni“.“ Ocasio-Cortez gerði bara
grín að þessu öllu saman og birti sjálf myndband af sér á Twitter
@AOC að taka nokkur dansspor á skrifstofunni. Myndbandið er nú
komið með yfir 20 milljón áhorf en rúmlega þrjár milljónir fylgj-
enda hennar voru duglegar að endurtísta myndbandinu.
Alexandria Ocasio-Cortezvann pólitískt afrek þegarhún sigraði sitjandi demó-
krata, áhrifamikinn í þokkabót, Jos-
eph Crowley. Þegar hún vann síðan
sigur á andstæðingi sínum, repúblik-
ananum Anthony Pappas, varð hún
yngsta konan sem hefur verið kosin
á þing í Bandaríkjunum, 29 ára göm-
ul. Hún vann með 78% atkvæða. Að-
eins ári fyrr vann hún sem barþjónn.
Hún er í kjölfarið orðin einhvers
konar pólitísk rokkstjarna og biður
fólk hana um sjálfur með sér hvert
sem hún fer.
Ocasio-Cortez lýsir sjálfri sér sem
Bronx-stelpu ættaðri frá Puerto
Rico en frá því að hún var kosin í
New York í nóvember hefur hún
orðið fyrir barðinu á gagnrýni frá
íhaldsfólki og ekki síður öfgahægri-
hópum.
Ruglað við nema
Hún hefur verið gagnrýnd fyrir fötin
sem hún klæðist, ekki síst þegar hún
fór í myndatöku fyrir blaðaviðtal í
tímaritinu Interview í tískufötum
sem voru í láni fyrir tökuna.
Eddie Scarry, blaðamaður hjá
íhaldssama blaðinu Washington Ex-
aminer, deildi mynd af henni í svört-
um aðsniðnum jakka þar sem hún
gekk um ganga þingsins með kápu í
hönd. Í tístinu sagði hann að þessi
jakki og kápa virtust ekki tilheyra
konu sem væri í peningavandræð-
um.
Margir svöruðu þessu á þann hátt
að það væri alveg mögulegt að vera
ágætlega klæddur og vera á sama
tíma málsvari verkamanna í landinu.
Ocasio-Cortez vakti síðan athygli
þegar hún klæddist hvítu til að
heiðra kvenréttindakonur og frum-
kvöðla úr hópi kvenna í stjórnmálum
þegar hún sór embættiseið.
Þegar hún fór fyrst á þingið á
kynningarfundi fyrir verðandi þing-
menn var henni ruglað saman við
nema að störfum eða stundum eigin-
konu nýs þingmanns.
Mest af gagnrýninni sem hún hef-
ur mætt tengist einmitt því að hún
falli ekki að ímyndinni um dæmi-
gerðan þingmann, passi ekki alveg
inn.
Kynnar Fox and Friends gerðu
grín að henni fyrir að segja að hún
hefði ekki efni á íbúð í Washington
áður en hún fengi útborgað og ef-
uðust um að hún ætti ekki fyrir út-
borgun.
Hún hefur líka sætt gagnrýni úr
eigin flokki eins og frá þá starfandi
þingmanninum Claire McCaskill frá
Missouri. Hún kallaði hana „skín-
andi, nýjan grip“ og sagðist ekki
skilja vinsældir hennar. Ocasio-
Cortez sagðist vera mjög svekkt yfir
þessum ummælum en benti á að
málflutningur McCaskill hefði ekki
hlotið hljómgrunn og hún væri á leið
úr embætti.
600% fjölgun fylgjenda
Það er greinilegt að boðskapur
hennar hefur hljómgrunn hjá
mörgum en fylgjendum hennar á
Twitter hefur fjölgað um 600% frá
því í júní. Hún er með 3,1 milljón
fylgjendur á samfélagsmiðlinum,
meira en Nancy Pelosi, leiðtogi
demókrata í fulltrúadeildinni, sem
er með 2,3 milljónir og er rétt á eft-
ir Joe Biden, með 3,3 milljónir. Do-
nald Trump Bandaríkjaforseti hef-
ur samt vinninginn með 58,2
milljónir.
Þingmaðurinn er ekki aðeins
virkur á Twitter en hún hefur strax
vakið mikla athygli á þinginu. Hún
telst til vinstrisinnaðra demókrata
og hafa hugmyndir hennar farið
hátt, sem er væntanlega ástæða
þess að andstæðingum hennar
fjölgar en þeir virðast hræðast rót-
tækar hugmyndir hennar. Hún vill
setja 70% hátekjuskatt á árstekjur
hærri en 10 milljónir dala en þessi
hugmynd hefur vakið mikið umtal.
Hún vill ennfremur m.a. tryggja að-
gengi að niðurgreiddri heilbrigðis-
þjónustu fyrir alla og tryggja fæð-
ingarorlof. Hún var að leggja fram
á þinginu tillögu sem kallst „Green
New Deal“, stefnu sem á að tryggja
grænni framtíð, skapa störf og tak-
ast á við ójöfnuð í landinu. Tíminn
leiðir síðan í ljós hvernig henni
tekst að framfylgja stefnumálum
sínum.
Pólitísk
rokkstjarna
Yngsta þingkona sögunnar í Bandaríkjunum,
hin 29 ára gamla Alexandria Ocasio-Cortez,
hefur vakið mikla athyli fyrir stefnumál sín.
Aðdáendur hennar kalla hana AOC en hún
hefur líka eignast marga valdamikla óvini.
Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is
AFP
Ungir mótmælendur láta taka mynd
af sér með Alexandriu Ocasio-
Cortez í kvenréttindagöngu í Wash-
ington, sem haldin var í janúar.
Úr dansmyndbandinu.
Í djörfum dansi?
CURACAO
Hollendingar ætla að setja upp miðstöð fyrir
neyðaraðstoð fyrir Venesúela á karabísku eyjunni
Curacao, sem er út af ströndum landsins. Þetta
er gert í samvinnu við Bandaríkin og Juan Guaido,
leiðtoga stjórnarandstöðunnar í landinu. Stjórnar-
andstaðan og
vestræn ríki hafa
krafi st þess að
Nicolas Maduro
forseti leyfi
sendingar með
hjálpargögnum
því neyðin sé
mikil í landinu.
KASMÍR
Að minnsta kosti 16 indverskir hermenn létust í indverska
hluta Kasmír í árás á fi mmtudag þegar sprengju var varpað
á tvær rútur. Tala látinna gæti hækkað. Kasmír hefur verið
skipt á milli Indlands og Pakistans frá því að löndin fengu
sjálfstæði. Uppreisnarmenn hafa barist fyrir sjálfstæðu
Kasmír eða sameiningu við Pakistan í 30 ár. Árásin er sú
mannskæðasta í rúm tvö ár.
RÚSSLAND
NOVAJA SEMLJA For-
eldrar eru hræddir við að
senda börn sín í skólann
vegna fjölda hvítabjarna
í Novaja Semlja. Stærsti
bærinn á svæðinu heitir
Belusja Guba og búa þar
um 2.500 manns en þar
hafa sést fl eiri en 50 birnir að undanförnu. Yfi rleitt eru um tíu birn-
ir í einu í bænum en þar hefur verið lýst yfi r neyðarástandi. Fólk
þorir varla út úr húsi en birnirnir hafa ráðist á fólk.
HOLLAND
HAAG Utanríkisráðherra Hollands, Stef Block,
birti mynd af sér með bláu skrímsli á Twitter. Loðna
skrímslið klæðist bol sem á stendur Brexit en það
er einmitt nafn skrímslisins. Skrímslið er hugarfóstur
ríkisstjórnar landsins sem ætlar að nota það til að ná
til hollenskra fyrirtækja. Tilgangurinn er að vekja athygli
á áhrifum Brexit, sérstaklega ef Bretland gengur út úr
sambandinu án samnings hinn 29. mars.