Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.02.2019, Blaðsíða 16
KNATTSPYRNA
16 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17.2. 2019
Hafi það ekki verið nægilega mikil nið-urlæging fyrir Gershom Cox, bak-vörð Aston Villa, að verða fyrir því
óláni að skora sjálfsmark eftir þrjátíu mín-
útna leik gegn Úlfunum á Dudley Road Gro-
und í Wolverhampton laugardaginn 8. sept-
ember 1888 var höfuðið bitið af skömminni
eftir leik þegar í ljós kom að þetta var að öll-
um líkindum fyrsta markið í deildarkeppni á
Englandi. Og þar af leiðandi í heiminum.
Aumingja Cox sá fram á að nafn hans yrði
um aldur og ævi brennimerkt í sögubæk-
urnar.
Og þannig var það löngu eftir að Cox sagði
skilið við þessa jarðvist. Að vísu ber ekki öll-
um heimildum saman. Sumir halda því fram
að útherjinn knái Kenny Davenport hafi
skorað fyrsta markið fyrir Bolton Wanderers
gegn Derby County og aðrir fullyrða að Fred
Dewhurst, miðherji Preston North End, hafi
rofið múrinn, gegn Burnley. Þetta misræmi
varð til þess að tveir forvitnir sagnfræðingar,
Robert Boyling og Mark Metcalf, fóru á stúf-
ana fyrir nokkrum árum til að rannsaka mál-
ið og leiða það til lykta í eitt skipti fyrir öll.
Leiknum seinkaði
Eftir mikið grúsk komust þeir að niðurstöðu.
Lengi vel var talið að leikur Úlfanna og
Aston Villa hefði hafist á undan öðrum leikj-
um þennan fyrsta dag mótsins, eða á slaginu
kl. 15. Samkvæmt fyrirfram auglýstri dag-
skrá í Midland Evening News 7. september
1888, sem sagnfræðingarnir grófu upp, átti
leikurinn hins vegar ekki að hefjast fyrr en
klukkan 15.30. Hafi leikurinn verið á áætlun
skoraði Cox markið á slaginu kl. 16. Boyling
og Metcalfe gera því raunar skóna að það
gæti hafa verið síðar en algengt var að leikj-
um seinkaði á þessum árum; stundum mættu
liðin sjálf of seint til leiks og oft og tíðum tók
langan tíma að koma áhorfendum inn á leik-
vanginn. Á flestum völlum var aðeins eitt
hlið.
Raunar telur Metcalfe nær útilokað að
flautað hafi verið til leiks á réttum tíma enda
ólíklegt að áhangendur Villa, sem flestir ættu
að hafa unnið til hádegis þennan dag, hafi
komist til Wolverhampton í tæka tíð. Menn
stigu sem kunnugt er ekki upp í bíla árið
1888. Og eins og góðra gestgjafa er siður
hafa Úlfarnir örugglega beðið átekta. Raunar
er þetta akademískt því sannað þykir að tvö
mörk hafi verið gerð fyrir klukkan 16, mörk-
in sem um er getið hér að ofan.
Leikur Bolton og Derby átti að hefjast á
sama tíma, kl. 15.30, en í umsögn um leikinn
í dagblaðinu Cricket and Football Field kem-
ur fram að honum hafi seinkað um korter.
Davenport skoraði markið eftir tveggja mín-
útna leik, sumsé klukkan 15.47, hafi Cricket
and Football Field ekki skjöplast. Það þýðir
að hann er fyrsti markaskorarinn í deildar-
leik í sögu knattspyrnunnar. Ekki Gershom
Cox.
Ólst upp á sömu torfu
Í Cricket and Football Field kemur fram að
markið hafi verið „fínt“, án þess að tilburðum
sé nánar lýst.
Raunar verður Cox að sætta sig við brons-
ið, þar sem mark Dewhurst fyrir Preston
kom eftir þriggja mínútna leik gegn Burnley
en sá leikur hófst ekki fyrr en kl. 15.50.
Hann hefur þá látið til skarar skríða fimm
mínútum á eftir Davenport og að minnsta
kosti átta mínútum á undan Cox sem rog-
aðist væntanlega með þessa þungu byrði æv-
ina á enda.
Davenport, sem alist hafði upp steinsnar
frá Pikes Lane-vellinum, eins og heimavöllur
Bolton hét á þessum árum, bætti fljótlega við
öðru marki en það var þó skammgóður verm-
ir þar sem Derby vann leikinn, 6:3.
Alls voru 23 mörk skoruð þessa fyrstu
helgi í sögu ensku knattspyrnunnar.
Synd væri þó að segja að menn hafi fundið
netmöskvana þennan dag en engin net voru í
mörkunum á þessum fyrstu árum. Það hafa
örugglega verið uppgrip fyrir boltasækj-
endur.
Hvort lið um sig tilnefndi einn dómara og
greindi þá á stóð yfirdómari á hliðarlínunni
og skar úr um ágreiningsmál. Auk þess að
halda tímanum til haga.
Þekktu ekki leikmenn
Leikmenn léku í ónúmeruðum treyjum sem
gerði blaðamönnum erfitt fyrir, enda allur
gangur á því hvort þeir báru yfirhöfuð kennsl
á einhvern á vellinum, sérstaklega leikmenn
gestaliðsins. Fólk var ekki með myndir af
helstu sparkgoðum fyrir framan sig á degi
hverjum árið 1888. Þess utan voru blaða-
menn gjarnan látnir sitja fjarri völlunum sem
á köflum minntu raunar meira á kartöflu-
garða en knattspyrnuvelli.
Eitt hefur þó ekki breyst en samkvæmt
Cricket and Football Field var fyrsta marki
Davenports ákaft mótmælt vegna gruns um
rangstöðu.
Davenport hafði gengið til liðs við Bolton
frá Gilnon Rangers árið 1883 og lék alls í níu
ár með liðinu. Hann kom við sögu í öllum
leikjum Bolton á þessari fyrstu leiktíð og lék
tvo landsleiki fyrir England. Fáum sögum fer
af Davenport eftir að hann lagði skóna á hill-
una en hann sálaðist árið 1908, aðeins 46 ára
gamall.
Bolton flutti búferlum frá Pikes Lane yfir
á Burnden Park árið 1895 sem var heimili fé-
lagsins í 102 ár. Í dag leikur félagið sem
kunnugt er á Reebok Stadium. Langt er síð-
an Pikes Lane vék fyrir fjölbýlishúsum sem
standa nú þar sem fyrsta deildarmarkið í
knattspyrnusögunni var skorað.
Á ýmsu gekk í þjóðlífinu á þessum tíma en
sama dag og ensku knattspyrnunni var ýtt úr
vör fannst Annie nokkur Chapman myrt í
Whitechapel-hverfinu í Lundúnum. Hún var
annað fórnarlamb raðmorðingja sem hlaut
viðurnefnið Kviðristu-Kobbi eða Jack the
Ripper.
Þrjú ennþá í efstu deild
Tólf lið áttu aðild að þessu fyrsta Englands-
móti, öll úr miðlöndunum, þar sem vöggu
knattspyrnunnar er að finna. Þrjú þeirra
leika ennþá í efstu deild; Everton, Úlfarnir
og Burnley. Hin níu liðin voru Aston Villa,
sem hafði frumkvæði að því að deildin var
sett á laggirnar, Blackburn Rovers, West
Bromwich Albion, Bolton Wanderers, Accr-
ington, Notts County, Stoke City, Derby
County og Preston North End.
Þau stóru á nútímamælikvarða komu síðar.
Það var Preston North End sem fór með
öruggan sigur af hólmi á þessu fyrsta Eng-
landsmóti; hlaut 40 stig úr 22 leikjum en 2
stig voru gefin fyrir sigur á þessum tíma.
Aston Villa hafnaði í öðru sæti með 29 stig.
Preston vann átján leiki, gerði fjögur jafntefli
og tapaði ekki einum einasta leik. Það afrek
hefur aðeins einu sinni verið leikið eftir, árið
2004 þegar Arsenal fór taplaust gegnum mót-
ið. Þá voru leikirnir raunar orðnir 38.
Ekkert að (sjálfs)marka
Laugardagurinn 8. september
1888 var sögulegur en þá fóru
fyrstu deildarleikirnir í knatt-
spyrnu fram í miðlöndunum á
Englandi. Leikurinn átti eftir
að breiðast út um heiminn
eins og eldur í sinu. Í meira en
heila öld héldu menn að fyrsta
markið hefði verið sjálfsmark.
Svo var víst ekki.
Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is
Lið Bolton Wanderes í árdaga. Hringur hefur verið dreginn utan um Kenny Davenport, fyrsta
markaskorara sögunnar. Hann ólst upp steinsnar frá Pikes Lane-vellinum, heimavelli Bolton.
Gershom karlinn Cox.
Fyrstu Englandsmeistararnir,
Preston North End, fóru tap-
lausir gegnum mótið 1888-89.