Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.02.2019, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.02.2019, Blaðsíða 13
ég mig fljótlega á því að það væri sennilega ekki fræðilegur möguleiki á að finna hann, og það þrátt fyrir tilkomu Facebook. Ég hugsa að síðustu árin sé ég búinn að skoða alla Robert Smith í heiminum sem eru með einhvers konar prófíl á netinu. Og reyndar ekki bara Robert Smith heldur líka alls konar Breta sem heita Smith, þeir eru ekkert fáir!“ segir Hlynur. Gunnar kímir og segir að þetta hafi oft verið mjög spaugilegt. Hlynur hafi ósjaldan hrópað upp yfir sig, límdur ofan í skjáinn; „Pabbi, sjáðu, hér er einn Smith, sjáðu hvað hann er líkur þér!“ Hlynur auglýsti margoft á breskum face- book-síðum, svo sem „missing people“ og setti inn þær myndir sem faðir hans átti í sínum fór- um og spurði hvort einhver kannaðist við and- litin og nafnið Robert Smith. Þar lenti hann á misvönduðu fólki enda svikahrappar jafnan til- búnir til að nýta sér viðkvæmar aðstæður. Einn harðsvíruðustu svikaranna gekk svo langt að segjast ekki aðeins hafa fundið Rob- ert Smith, og gaf þeim feðgum talsverða von, heldur sendi hann mynd af honum eins og hann ætti að líta út í dag; þar sem hann stóð hress og kátur í stofu. Síðar, þegar rýnt var í myndina kom í ljós að svikahrappurinn hafði fótósjoppað myndirnar sem Gunnar átti af föð- ur sínum og hinar svart hvítu myndirnar inn á og lét líta út fyrir að „Robert“ stæði í stofunni með þær fjölskyldumyndir í ramma fyrir aftan sig uppi á vegg. Og að sjálfsögðu fóru þá að berast beiðnir um meiri peninga, annars væri ekki hægt að ganga lengra. Að lokum lá mikið á að Hlynur myndi millifæra peninga því „Robert Smith“ væri svo veikur. „Þótt það væri vissulega högg að lenda í svona fólki þá fannst mér eftir þetta ég enn síður geta gefist upp, fannst ég hafa gert mig að hálfgerðu fífli og ég yrði bara að finna Rob- ert Smith fyrir pabba,“ segir Hlynur. „Ég var ófá kvöldin við tölvuna langt fram á nætur og eiginkona mín farin að kalla á mig að hætta þessu nú smástund og koma að sofa. Það komu tímar sem mér leið eins og þetta hlyti að vera bara allt skáldskapur. Það hefði aldrei verið til neinn Smith, Smith-fjölskyldan væri ekki til. Ég var heillengi að meðtaka það þegar það loks gerðist.“ Á réttri slóð Því einn daginn, gerðist það sem feðgarnir voru farnir að telja útilokað. „Þegar Hlynur tók upp þráðinn, og neitaði að gefast upp, var ég eiginlega búinn á því og hugsaði með mér að líklega fyndi ég hann aldr- ei,“ segir Gunnar en þó kom að þeim degi að Hlynur fékk skeyti frá manni sem skipti raun- verulega máli. „Maðurinn bauðst til að skoða málið fyrir mig og auðvitað tók ég því með varúð. Daginn eftir sendi hann mér að hann hefði ekki fundið neinn sem passaði nákvæmlega við upplýsing- arnar en einn Robert Smith hefði hann þó fundið nema að fæðingardagurinn var ekki sá sami og pabbi hafði úr fæðingarvottorði sínu. Hann sendi mér mynd af þessum tiltekna Robert og vinur pabba sagði strax: „Þú ert bú- inn að finna hann!“ Maðurinn sendi mér einnig slóðina á face- booksíðu eiginkonu þessa Roberts Smith, sem hét Salvadora, og ég hófst handa við að skrifa skilaboð. Ég var margsinnis búinn að skrifa skilaboð og eyða þeim aftur, skrifa og eyða til skiptis þegar ég ýtti bara á enter,“ segir Hlyn- ur. „Mér brá svo að hann hefði sent skilaboðin að ég bað hann strax í guðsbænum að taka þau aftur – sem hann þóttist svo gera,“ segir Gunn- ar og hlær. „Mér fannst þetta stór ákvörðun, því ég í raun vissi ekki hvað þau vissu. Vissi þessi kona yfirhöfuð að ég var til, um fortíð eiginmanns síns, við hverju gat ég búist?“ segir Gunnar en Hlynur sendi einnig skilaboð á konu sem var greinilega dóttir Salvadoru og væri því systir Gunnars. Það kom ekki svar í sólarhring og Hlynur var nærri farinn að sjá eftir öllu saman þegar svör fóru að berast, frá bæði Salvadoru, eigin- konu Roberts, og dóttur hans. Frá Salvadoru kom heil ritgerð. Faðirinn var fundinn og á því lék enginn vafi. Gunnar fékk sendar myndir sem faðir hans hafði átt og Gunnar aldrei séð; nokkrar af þeim Robert og Theódóru saman í Bretlandi, einnig mynd af Gunnari agnar- litlum. Faðir Gunnars var látinn, hafði látist 2012 en Gunnar átti fjögur systkini ytra. Og það sem kom honum mest á óvart; þau höfðu líka leitað hans. Höfðu beðið „Þau voru bara búin að vera að bíða, þau höfðu líka leitað. Það var ljúfsár tilfinning að þrátt fyrir að faðir minn væri látinn þá fann ég strax að þau höfðu alla tíð viljað tengjast mér,“ segir Gunnar. Eins og Gunnar hafði fjölskylda hans úti haft rangar upplýsingar. Að vera ekki með réttan fæðingardag á Robert Smith hafði breytt öllu fyrir leit að svo einföldu nafni. Einnig hafði Robert millinafn, Trevor, sem hefði breytt miklu að vita. Fjölskyldan úti var ekki með nafn Gunnars og þegar systkini hans fóru að grennslast fyrir um hann á Facebook og með hjálp Google höfðu þau talið að ef hann hefði verið nefndur eftir föður sínum, sem þau voru alls ekki viss um, eða hvort Gunnar vissi yfirhöfuð að hann ætti föður í Bretlandi, þá væri hann kenndur við Róbert; væri Róberts- son upp á íslenska háttinn. Ég var ungur þegar ég fór að skrifa fyrstu bréfin. Þau sendi ég á þetta heimilisfang sem móðursystir mín hafði látið mig fá, heimilis- fangið stóð á bréfi sem faðir minn hafði sent móður minni, og þangað hélt ég áfram að senda bréf öðru hverju næstu árin. Morgunblaðið/Hari ’Mér hafði einhvern tímannverið sagt að hann ætlaði aðkoma áður en ég yrði 16 ára oghitta mig og ég hélt einhvern veg- inn í það. Ég upplifði vöntun, af hverju kom enginn að sækja mig. Ljósmynd sem Gunnar eignaðist í fyrra og sá þá foreldra sína, Theódóru Gunnars- dóttur og Gunnar Smith saman í fyrsta skipti á mynd. Þau létust með 5 mánaða millibili, Theódóra lést 2011 og Robert 2012. 17.2. 2019 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.