Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.02.2019, Blaðsíða 12
Í
dag er stór dagur í mínu lífi, þar sem ég
hef leitað föður míns, Roberts Trevors
Smith, alla mína tíð. Sú leit bar loksins
árangur þökk sé Hlyni Smith.“ Það var
fyrir um ári sem Gunnar Smith, skrifaði
þessi orð á Facebook til vina sinna og vanda-
manna. Þá hafði Gunnar, eftir áratugalanga
leit, fundið út hver faðir hans var.
Sá sem komst loksins á sporið var sonur
Gunnars, Hlynur Smith, sem hafði sjálfur átt
þá ósk frá því hann var lítill strákur að pabbi
hans fyndi pabba sinn. Gunnar settist niður
með blaðamanni til að deila sögunni af því
hvernig hin langa leit tók loks enda.
„Ég er fæddur árið 1963 og ólst upp í Laug-
arásnum, á Kleifarvegi, hjá ömmu minni og
afa, Gunnari Halldórssyni útgerðarmanni og
Guðnýju Óskarsdóttur en þau voru bæði frá
Siglufirði og bjuggu þar þar til um miðja öld-
ina,“ segir Gunnar sem ætlar aðeins að rekja
forsögu sína.
Elst sjö systkina fór móðir Gunnars, Theó-
dóra Gunnarsdóttir, í örlagaríka ferð til Bret-
lands 19 ára gömul, þar sem hún réði sig til
starfa á hóteli í Newquay sem er á Cornwall-
skaganum. Þar kynnist hún ungum manni,
Breta að nafni Robert Smith, sem starfaði
sömuleiðis á hótelinu. Eftir að Robert og
Theódóra höfðu verið kærustupar í um eitt ár
sneri Theódóra aftur til Íslands, barnshafandi.
Þessa manns átti Gunnar eftir að leita í um
40 ár.
„Ég vissi alla tíð að faðir minn var breskur,
það var aldrei farið í felur með það enda lét
móðir mín mig fá eftirnafn hans sem eftir á að
hyggja kom mjög á óvart. Ég veit í raun og
mun aldrei vita nákvæmlega hvað varð til þess
að það slitnaði upp úr hjá þeim, einhverra
hluta vegna var þeim ekki ætlað að vera saman
en ég veit að engu að síður var sorg báðum
megin, hjá honum og henni yfir því. Mamma
giftist aftur, þegar ég var um tveggja ára,
gömlum æskufélaga frá Siglufirði, og eign-
uðust þau þrjú börn saman. Ég ólst hins vegar
alla tíð upp hjá móðurafa mínum og -ömmu og
var afar hændur að þeim.“
Kæmi áður en ég yrði 16
Fannstu fyrir föðurleysi sem barn?
„Já, ég gerði það. Aðstæður mínar breyttust
mjög snögglega þegar ég var tíu ára gamall,
1973. Á einu og sama árinu lést afi minn, sem
hafði verið mér eins og faðir, en aðeins nokkr-
um mánuðum áður hafði móðir mín misst eig-
inmann sinn í sjóslysi, frá þremur ungum
börnum, því yngsta tveggja ára.
Allt breyttist þá, amma og mamma báðar
búnar að missa eiginmenn sína og mjög ungur
þurfti ég standa svolítið á eigin fótum; var oft-
ast sendur í sveit á sumrin og ég fann þá veru-
lega fyrir því og hugsaði oft, hvort það hefði
ekki verið gott að geta leitað til föður míns,
hvar svo sem hann væri.
Mér hafði einhvern tímann verið sagt að
hann ætlaði að koma áður en ég yrði 16 ára og
hitta mig og ég hélt einhvern veginn í það. Ég
upplifði vöntun, af hverju kom enginn að sækja
mig.
Það má segja að leit mín hafi ekki hafist fyrr
en þau tímamót nálguðust og ekkert bólaði á
honum.“
Gunnar var ungur þegar hann kynntist eigin-
konu sinni, Ingibjörgu Jensdóttur, og um leið
eignaðist hann tengdaforeldra sem reyndust
honum afar vel og breyttu miklu fyrir líf hans.
Hvað vissirðu um föður þinn?
„Ég vissi í raun mjög lítið. Það var lítið talað
um hann og því sem mamma hafði átt frá hon-
um fargaði hún nokkrum árum eftir að það
slitnaði upp úr hjá þeim en systur hennar tókst
að bjarga einhverju undan, myndum og bréfum,
sem hún lét mig svo hafa þegar ég var um 10
ára aldur. Þau gögn hef ég ríghaldið í í áratugi,
örfáar myndir og bréf. Í þessum gögnum var
einnig heimilisfang sem var í raun það eina fyrir
utan nafn hans sem ég hafði til að leita eftir.“
Gunnar tínir fram 4 myndir sem hafa fylgt
honum alla tíð. Á einni þeirra er faðir hans, á
annarri situr prúðbúið fólk og börn við borð.
Það var ekki fyrr en á síðasta ári sem hann
fékk að vita að á myndinni væri föðursystir
hans að halda upp á afmælið sitt. Á þeirri
þriðju eru föðurforeldrar hans.
Gastu aldrei fengið frekari upplýsingar hjá
fjölskyldumeðlimum, afa eða ömmu, hér á Ís-
landi?
„Með afa, sem deyr þegar ég er þetta ungur,
fara án efa upplýsingar forgörðum. Hann var
yndislegur maður og reyndist mér afar vel en
þar hefði ég eflaust getað fengið upplýsingar
þegar leitin hófst. Móðir mín sagðist ekki hafa
frekari upplýsingar fyrir mig, eða vildi kannski
ekki að ég fyndi hann, ég get ekki getið mér til
um það og mun aldrei vita það héðan af en
móðir mín lést fyrir 7 árum. Þegar ég reyndi að
ganga á hana, sem ég gerði margoft, eyddi hún
talinu eða svaraði einhverju út í hött.“
Sonur Gunnars, Hlynur Smith, situr með
okkur í viðtalinu enda hefur hann verið föður
sínum til halds og trausts í leitinni síðustu árin
og sá sem að endingu komst á sporið. Hann
tekur undir og segist muna eftir að hafa reynt
að spyrja ömmu sína en ekkert orðið ágengt.
„Ég var mjög ungur þegar ég áttaði mig á því
að leit pabba míns að pabba sínum var stór
partur af tilveru hans. Ég man eftir pabba og
besta vini hans tala um þetta fram og aftur, þeir
voru í sambandi við spæjara og þetta var leitin
mikla sem litaði alla manns ævi. Það var þó ekki
fyrr en ég eltist sem ég öðlaðist þroskann til að
skilja hvað þetta skipti föður minn miklu máli
og fór sjálfur á stúfana. Enda var umhverfið
talsvert breytt þegar ég fór að leita; með inter-
netið og Facebook, en fyrir pabba þegar hann
var að leita ungur maður,“ segir Hlynur.
Fór ungur að skrifa bréf
Hver voru fyrstu skrefin í leitinni, Gunnar?
„Ég var ungur þegar ég fór að skrifa fyrstu
bréfin. Þau sendi ég á þetta heimilisfang sem
móðursystir mín hafði látið mig fá, heimilis-
fangið stóð á bréfi sem faðir minn hafði sent
móður minni, og þangað hélt ég áfram að
senda bréf öðru hverju næstu árin, sem ég í
fyrstu lét mig hafa að skrifa bara á íslensku
þar sem ég kunni lítið sem ekkert í ensku en
síðar sendi ég þau á ensku. Í þeim voru ýmsar
upplýsingar um mig, því í raun vissi ég ekkert
hvað faðir minn vissi um mig.
Nokkrum árum síðar ákvað ég að fara í
breska sendiráðið og athuga hvort þeir gætu
aðstoðað mig, enda ekkert grín að ætla að
finna einhvern í Bretlandi sem bar nafnið
Robert Smith – svipað og að leita að Jóni Jóns-
syni nema þarna er leitað í milljónasamfélagi.
Þarna vissi ég ekki um millinafn hans. Um leið
fór ég líka að sækja fæðingarvottorð mitt en
þar kom fram nafn föður míns sem og fæðing-
arár hans og -dagur, svo ég gerði mér vonir
um að hægt væri að vinna með það.“
Það tók Gunnar tíma að herða sig upp og
fara í breska sendiráðið, en þar upplifði hann
um leið sár vonbrigði. Lítið var gert úr beiðni
hans, sendiráðið sagðist ekkert geta hjálpað,
það væri líklega búið að rífa þetta hverfi sem
heimili föður hans hefði staðið í.
„Þetta braut mig niður um tíma. Ég var svo
til stuðningslaus í þessari leit og þetta var
stórt skref, ég mun aldrei gleyma þessari ferð
og þeim dónaskap sem ég mætti þar sem ung-
ur strákur. Ég var hins vegar heppinn með
vini og þeir fóru að hvetja mig og aðstoða, við
réðum meira að segja einkaspæjara. Næstu
áratugir áttu eftir að einkennast af því að ég
tók skorpur í leitinni en hætti þess á milli því
leitin var eitthvað svo vonlaus.“
Sat fyrir utan húsið
Um þrítugt var Gunnar farinn að leita mark-
vissara. Þetta var þó á þeim árum áður en int-
ernetið kom til sögunnar, kringum 1990, og
var leit, sem í dag hefði verið aðeins léttari
vegna Facebook og slíkra tóla, þung í vöfum.
Vinur Gunnars, Guðni Guðfinnsson, var einn
þeirra sem voru honum innan handar og
hvöttu áfram og þeir leituðu á náðir fleiri en
eins einkaspæjara. Slík þjónusta var dýr og
komu þeir þar að lokuðum dyrum. Einn þeirra
fann fjóra sem gætu hugsanlega passað við
föður Gunnars en þegar á reyndi reyndist eng-
inn þeirra sá rétti.
„Ég hef leitað til flestra staða sem mér datt
í hug. Sent bréf á Alþjóðlega Rauða krossinn,
Hjálpræðisherinn þar ytra og maður otaði
sínum tota alls staðar. Eitt sinn lenti ég á
spjalli við Breta sem kom í ljós að hafði verið
í lögreglunni í Liverpool og hann bauðst til að
skoða þetta fyrir mig og var spenntur fyrir að
fara sjálfur á þetta heimilisfang sem ég hafði
og hann gerði það og bankaði upp á. Ég sat
hér heima á Íslandi, spenntur við símann, að
hann hringdi í mig þegar hann væri búinn að
fara og hvort eitthvað kæmi í ljós en engar
upplýsingar fengust, enginn þekkti Robert
Smith eða vissi hvenær hann hafði flutt út.
Ég er sjálfur mikill Tottenham-maður og ég
hef nokkrum sinnum farið út og heimsótt þess-
ar slóðir í leiðinni. Ég hef setið fyrir utan húsið
og það eru áratugir síðan ég gerði það fyrst.
En auðvitað var þetta bara eins og ætla að
finna nál í heystakki.“
Fékk áhuga með aldrinum
Hlynur hefur einnig setið með föður sínum
fyrir utan húsið, sem og hinir synir Gunnars;
Axel og Theódór sem hafa alla tíð sýnt leit föð-
ur síns mikinn áhuga.
„Þegar ég eltist og fór sjálfur að leita áttaði
Ævilangri
leit lokið
Þegar þú hefur eytt meira en 40 árum í leit að föður
þínum er stundin þegar þér er ljóst hver hann er og hvar
hann er niðurkominn ólýsanlegt og yfirþyrmandi
augnablik. Ævilöng leit Gunnars Smith að föður sínum
lauk á síðasta ári en eftir að hafa reynt allt í leitinni kom
sonur hans, Hlynur Smith, honum á sporið.
Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is
VIÐTAL
12 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17.2. 2019