Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.02.2019, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.02.2019, Blaðsíða 34
34 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17.2. 2019 LESBÓK Jane Austen á meðal kvenna“ er yfirskrift fyrirlesturs sem AldaBjörk Valdimarsdóttir, dósent í almennri bókmenntafræði við Háskóla Íslands, heldur í Veröld á þriðjudag kl. 16.30. Þar ræðir hún um nýútkomna bók sína Jane Austen og ferð lesandans – Skáldkonan í þremur kvennagreinum samtímans, en verk Austen hafa aldrei verið vin- sælli en nú á tímum. Bókin byggist að stórum hluta á doktorsrannsókn Öldu um Austen, en hún lauk dokt- orsnámi frá Háskóla Íslands 2014. Í bókinni beinir Alda sjónum sínum að því hvernig ímynd Austen lifir áfram innan þriggja bókmenntagreina sem löngum hafa verið tengdar konum og njóta gríðarlegrar hylli, þ.e. í ástar- sögum, skvísusögum og sjálfshjálp- arritum. Hún fjallar um þessar þrjár bókmenntagreinar og hvernig hver um sig tekur upp afmarkaða þætti úr verkum skáldkonunnar um leið og þær einfalda og skýra ímynd hennar. „Í fyrirlestrinum mun ég beina sjónum mínum sérstaklega að sjálfs- hjálparmenningunni og hlutverki Austen sem leiðbeinanda, aðallega í lífi kvenna. Í sjálfshjálparbókunum sem ég rannsakaði er horft til Austen um ráðleggingar í samskiptum kynjanna og leitinni að ástinni,“ segir Alda og bendir á að sjónarmið höf- unda hafi verið að bækur Austen væru hentugar fyrir nútímakonuna þrátt fyrir að vera skrifaðar fyrir 200 árum. „Enda eru sjálfshjálparbækur í eðli sínu oft íhaldssamar þegar kemur að samskiptum kynjanna,“ segir Alda og tekur fram að hún skoði líka sjálfshjálparbækur þar sem lífssýn Austen auðveldar ein- staklingum að öðlast sjálfsþekkingu. „Leitin að sjálfsþekkingu og ást- inni fer reyndar oft saman. Þetta eru bækur þar sem Austen er lesin sem viskubrunnur hjá fólki sem á í erfið- leikum í lífi sínu. Þetta eru sjálfs- ævisögur og skáldsögur sem miðla leit að tilgangi, ekki síður en ferða- sögur þar sem farið er á slóðir Aust- en eða á tökustaði kvikmynda og sjónvarpsþáttaraða svo að hægt sé að komast í nánari tengsl við skáld- konuna Jane Austen með því t.d. að fara í sömu göngutúra og hún eða snerta borðið sem hún skrifaði við,“ segir Alda og bendir á að í slíkum bókum er lesandinn að styrkja tengslin við sjálfan sig og fræðast um leið. Tilfinningaleg sjálfsstjórn Að mati Öldu er sú heimspeki sem í bókum Austen býr að mörgu leyti andstæð nútímahugsunarhætti. „Austen leggur áherslu á mikil- vægi þess að stýra tilfinningum sín- um meðan samtíminn hampar hvat- vísi. Út frá sjálfshjálparkúltúrnum boðar samtíminn skyndilausnir en ekki tilfinningalega sjálfsstjórn sem Austen boðar í sögunum sínum þar sem skynsemi og ást fara saman í makavalinu. Þannig að þó ástin sé mikilvæg þá þarf skynsemin og rök- hugsunin að fylgja með líka,“ segir Alda og bendir á að Austen afhjúpi mannlegt eðli í bókum sínum. „Makarnir sem konurnar velja eiga það sameiginlegt að vera heið- arlegir og ábyrgir. Austen leggur áherslu á hluti sem farið hafa halloka í samtímanum, eins og hollustu, ábyrgð og skyldur. Við erum svo mikið í skyndilausnum og tilfinn- ingalegri dramatík. Það hvernig hún afhjúpar mannlegt eðli getur líka hjálpað okkur betur að skilja mann- eskjuna. Sem höfundur tekst hún á við hræsni, óheiðarleika, siðblindu og heimsku, oft með hliðsjón af sam- skiptum kynjanna,“ segir Alda og bendir á að forvitnilegt sé að skoða hvers vegna nútímafólk sæki jafn- mikið í bækur Austen og raun ber vitni. Femínistinn Austen „Þetta eru sögur af konum sem höfðu mjög lítil réttindi miðað við nútíma- konuna. Í bókum sínum hefur Austen mestan áhuga á þeim tíma í ævi kon- unnar þar sem hún var hvað valda- mest og gat tekið mikilvægar ákvarðanir um líf sitt, það er þegar hún hafði vald til að hafna eða játast karlmanni,“ segir Alda og bendir á að í því ljósi megi hiklaust skilgreina Austen sem femínista. „Auðvitað er hún lituð af því að hún tilheyrir allt öðrum heimi en okkar. Hún tilheyrir veruleika þar sem konur hafa ekki sömu réttindi og konur á Vesturlöndum í dag. En í bókum sínum beinir hún athyglinni að lífi, reynslu og hugsunarhætti kvenna. Henni tekst að búa til miklar bókmenntir úr kvennareynslu sem af karlveldinu er talin léttvæg, hvers- dagsleg og merkingarlaus.“ Spurð hvort hún telji að Austen hafi getað látið sig dreyma um að verða sá áhrifavaldur sem hún er enn í dag 200 árum eftir andlát sitt svarar Alda því neitandi. „Það er ekki fræðilegur möguleiki á því að hana hafi grunað að hún yrði jafnmikið lesin og rýnd. Hún var augljóslega metnaðarfullur rithöf- undur, en heimildum ber saman um að hún hafi ekki verið upptekin af frægð og frama. Bækur hennar voru orðnar nokkuð vinsælar áður en hún dó, en það vissu fáir hver hún var þar sem hún skrifaði ekki undir nafni,“ segir Alda og rifjar upp að það hafi á tímum Austen ekki þótt eftirsóknar- vert fyrir konur að vera rithöfundar. „Í ljósi þess að Austen tilheyrði ekki höfundaklíku eða vel skilgreindi bókmenntakreðsu og var ekki að skrifa fyrir ákveðinn lesendahóp þá virðist hún hafa fengið pláss til að þroskast sem höfundur á sínum for- sendum. Að þessu leyti hefur hún verið frjáls og gat sagt þær sögur sem hana langaði að segja. Mögulega hafði þetta frelsi aftur áhrif á það hversu hratt hún þrosk- aðist sem höfundur,“ segir Alda og bendir á að Austen hafi verið ótrú- lega afkastasöm miðað við að hún lést aðeins 41 árs og skrifaði lítið sem ekkert þau ár þegar hún bjó í Bath og síðar þegar hún átti sér ekki fast- an samastað, allt fram til 1809. Lagði mikla vinnu í útlitið Jane Austen og ferð lesandans var valin fræðirit ársins í úttekt Árna Matthíassonar fyrir Morgunblaðið um síðustu áramót. Í seinasta mán- uði var bókin jafnframt ein tíu bóka sem tilnefndar eru til Viðurkenn- ingar Hagþenkis, félags höfunda fræðirita og kennslugagna, fyrir árið 2018. Í umsögn dómnefndar um bók- ina segir: „Ítarleg og áhugaverð rannsókn á ímynd Jane Austen í samtímanum og áhrifum hennar á kvennamenningu, einkum ástar- sögur, skvísusögur og sjálfshjálp- arbækur.“ Spurð hvaða þýðingu til- nefningin hafi segist Alda gleðjast fyrir hönd bókarinnar. „Hún er farin sína leið en ég vona að sem flestir geti notið hennar,“ segir Alda og tek- ur fram að hún hafi hugsað bókina sem grip sem höfðað gæti til breiðari hóps en rúmast innan akademíska samfélagsins, en sem fyrr segir byggist bókin á doktorsrannsókn Öldu. „Þegar kom að útgáfunni valdi ég að einfalda ákveðna hluti, stytta og þjappa til að gera bókina aðgengi- legri, enda á sumt af því efni sem á heima í doktorsritgerð ekki heima í fræðibók fyrir almennan lesanda. Ég hugsaði mikið um bókina sem prent- grip og lagði því mikla vinnu í útlit hennar og myndvinnslu. Ég vildi að þetta væri bók sem gaman væri að fletta og fannst því mikilvægt að hafa myndirnar í lit. Einnig langaði mig til að kynna Austen-iðnaðinn sem er auðveldara með ljósmyndum og myndatextum,“ segir Alda og bendir á að eðli málsins samkvæmt fjalli bók hennar að stórum hluta um dægur- menningu, ekki síður íslenska en er- lenda þar sem flestir þekkja vel þennan heim. „Henni tekst að búa til miklar bók- menntir úr kvennareynslu sem af karl- veldinu er talin léttvæg, hverdagsleg og merkingarlaus,“ segir Alda Björk Valdi- marsdóttir um Jane Austen. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Afhjúpar mannlegt eðli Alda Björk Valdimarsdóttir ræðir um skáldkonuna Jane Austen og hvernig ímynd hennar lifir áfram innan þriggja bókmennta- greina í fyrirlestri í Veröld á þriðjudag. Bók hennar um skáldkonuna var nýverið tilnefnd til Viðurkenningar Hagþenkis. Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is Í efri röð eru tvær myndir Cassöndru Austen af systur sinni, skissan til vinstri er frá um 1810 og vatnslitamyndin frá 1804. Í neðri röð er til vinstri skurðar- rista af Jane Austen eftir Everet A. Duyckink frá 1873 og andlitsmynd frá 1870.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.