Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.02.2019, Side 24

Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.02.2019, Side 24
Hressandi martíní Espresso-martíní er góður drykkur til að fá sér í stað eftirréttar. Maður mundi ætla að kaffi og vodka færu ekki vel saman en í raun er þetta mjög góð blanda. Þeir sem eru við- kvæmir fyrir koffíni þurfa að gæta sín að drekka þennan ekki of seint um kvöld nema ætlunin sé að vaka alla nóttina. 50 ml vodka 35 ml kaffi- líkjör 25 ml, eitt skot, af kældu espresso-kaffi. klaki Hellið vodkanu, kaffilíkjörnum og kaffinu í kokkteil- hristara. Fyllið martíní- glas með klaka til að kæla það og fyllið hristarann líka með klaka. Lokið hristaranum og hristið af krafti, þannig myndast góð froða og drykkurinn verður ískaldur. Hellið í gegnum sigti í glasið. Má skreyta með kaffibaunum. 24 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17.2. 2019 MATUR Getty Images/iStockphoto Alltaf tími fyrir gott kaffi Kaffi er drykkur sem er í miklu uppáhaldi hjá mörgum en færri gera sér grein fyrir því að það sé hægt að elda úr því. Kaffibaunina er hægt að vinna á marga vegu og mögulegt er að nota kaffi, bæði malað og kolsvartan drykkinn, í fjölbreytilega matar- og drykkjargerð. Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is Kryddblanda fyrir kjöt Kryddblanda með kaffi fer vel með ýmsu kjöti. Þessi þurrblanda passar vel við svínakjöt, kjúkling, nautakjöt og lamb og fer sérlega vel á grilli. 2 msk púðursykur 4 tsk. malað kaffi 4 tsk. sjávarsalt 4 tsk. chiliduft ½ tsk. svartur pipar ½ tsk. laukduft ½ tsk. hvítlauksduft ½ tsk. möluð sinnepsfræ ½ tsk. reykt paprika ½ tsk. kanill ¼-½ tsk cayenne-pipar (má sleppa) Blandið öllu vel saman og passið að engir klumpar séu í blöndunni. Nuddið vel á kjötið sem þið ætlið að grilla og sparið ekki magnið. Látið bíða í 20-30 mínútur með blönduna utan á sér áður en kjötið er grillað. Þessi espresso-tónikdrykkur er sérstaklega frískandi og það er auðvelt að gera hann. 25 ml kaldlagað kaffi eða kælt espresso-skot 180 ml gott tónik klaki Fyllið glasið með klaka og hellið tónikinu yfir. Hellið kaffinu þarnæst varlega ofan í glasið. Skreytið eftir smekk með límónu eða agúrku. Frískandi tónik- drykkur

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.