Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.02.2019, Side 35
Eyþór Gylfason sendi á dög-unum frá sér ljóðabókinaHvítt suð. Þetta er fyrsta
bókin sem Eyþór gefur út, en
hann hefur birt ljóð hér og þar á
undanförnum árum og gaf út
ljóðasögubækur í tengslum við rit-
listarnám sitt. Hann segist hafa
byrjað að skrifa ljóð í mennta-
skóla, „örugglega til að fylla upp í
rokkstjörnukomplexana sem mað-
ur er með þegar maður er yngri
og ég hef vissulega ennþá, en
færði þá í eitthvað annað en að
verða tónlistarmaður.“
Viðbragð við einhverri
ástarsorg
– Eitt er að skrifa og annað að
gefa út.
„Vissulega og ég hef frestað því
frekar lengi vegna afhjúpunarótt-
ans. Það er erfitt að taka það
skref að maður sé orðinn rithöf-
undur, að líkamnast í þessu hlut-
verki.“
Ljóðin í Hvítu suði eru frá síð-
asta hálfu öðru ári eða svo, að
sögn Eyþórs. „Ég byrjaði að
skrifa þau vorið 2017 sem ein-
hverskonar viðbragð við einhverri
ástarsorg, og svar við einhverri
aðkallandi tómhyggju sem safnast
hafði upp í samfélaginu og virðist
vera ennþá. Og líka svar mitt við
trú okkar á tækni. Ég reyni að
skrifa reglulega, en hef ekki alltaf
tíma til þess, því miður. Ég geri
það eins oft og ég kemst að því að
það er eitthvað sem kallar á það.“
– Í ljóðinu Ástarsorg #59 segir
þú að það besta við minnið sé
hversu miklu við gleymum og í
öðru ljóði:
„Ég vil gleym-
ast með glys-
rokki níunda
áratugarins,
vinna á kassa
í kjörbúð með
löngu gleymdu
skáldi.“
„Það þarf
að taka á móti
öllu sem ger-
ist í þessum heimi sem einskonar
stoppistöð sem síðan máist út að
lokum.
Mörg ljóðanna byrjuðu sem
prósar sem fundu svo sinn farveg
sem niðurbrotnar ljóðlínur og
sögðu einhvern veginn meira
þannig heldur en að vera skrifuð í
belg og biðu. Það gefur hverju
orði meiri vigt þegar þau fá að
standa saman í styttri línum með
línubili á milli. Textinn fær aðra
merkingu og aðra vídd þegar hann
er brotinn niður á þennan hátt.
Sum ljóðin kölluðu á það en önnur
vildu halda sér í hefðbundnara
setningaformi.“
Leit að grunntóni
„Þessi ljóð eru unnin mjög mikið,
þau komu ekki fullgerð, heldur
þurfti ég að koma ítrekað að þeim
til að finna grunntóninn sem hvert
og eitt þeirra var að segja.“
Hönnun á bókinni er óvenjuleg,
en hún var í höndum bróður Ey-
þórs, Þórarins Freys. „Hann
hlustaði ekkert á mig þegar ég
sagði honum hvernig ég vildi að
kápan væri, sagði bara: já, já, ég
redda þessu. Svo þegar ég fékk
bókina í hendur varð ég stein-
hissa, en áttaði mig fljótlega á því
að þetta var miklu, miklu betra en
það sem ég hafði hugsað mér.“
Fyllt upp í
rokkstjörnukomplexa
Í nýrri ljóðabók, Hvítu suði, yrkir Eyþór Gylfason um ástarsorg, aðkallandi
tómhyggju sem safnast hefur upp í samfélaginu og trú okkar á tækni.
Árni Matthíasson arnim@mbl.is
Morgunblaðið/Hari
Hvítt suð er fyrsta
ljóðbók Eyþórs
Gylfasonar.
17.2. 2019 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 35
BÓKSALA 6.-12. FEBRÚAR
Listinn er tekinn saman af Eymundsson
1 Sextíu kíló af sólskiniHallgrímur Helgason
2 EldrauninJørn Lier Horst
3 Barnið sem hrópaði í hljóðiJónína Leósdóttir
4 RoðabeinAnn Cleeves
5 Hulduheimar 6 - gliturströndRosie Banks
6 Hulduheimar 5 - töfrafjalliðRosie Banks
7 Á eigin skinniSölvi Tryggvason
8
Rauður maður/svartur
maður
Kim Leine
9 SilfurlykillinnSigrún Eldjárn
10 Hagnýta pottaplöntubókinFran Bailey/Zia Allaway
1 Hulduheimar 6 - gliturströndRosie Banks
2 Hulduheimar 5 - töfrafjalliðRosie Banks
3 SilfurlykillinnSigrún Eldjárn
4 Markmaðurinn og hafiðMaria Parr
5
Risasyrpa Sögur úr
Andabæ
Walt Disney
6 Siggi sítrónaGunnar Helgason
7 Eyjan hans afaBenji Davies
8 Þitt eigið tímaferðalagÆvar Þór Benediktsson
9 Dagbók Kidda klaufa 10Jeff Kinney
10 Gallsteinar afa GissaKristín Helga Gunnarsdóttir
Allar bækur
Barnabækur
Ég er oft með margar í takinu, en
akkúrat núna er ég að lesa
Örlagaþætti eftir hann Sverri
Kristjánsson. Ég sá á
einhverjum þræði
umfjöllun um bók-
ina og einhver mælti
með því að allir læsu
hana svo ég dreif í
því, vegna þess að
ég var ekki með
neitt ákveðið annað í augnablik-
inu. Ég er að verða hálfnuð með
hana og ég hugsa að það hefðu
margir gott af því að lesa hana og
sjá hvernig þetta var áður fyrr.
Ég hef lesið lítið af því sem kom
út núna fyrir jólin, ég geymi það.
Þar sem ég vinn á bókasafni þá læt
ég gesti safnins ganga fyrir. Ég er
samt að lesa eina bók sem kom út
síðasta haust,
Norrænu goðin
eftir Johan Egerkr-
anz. Ég er svolítið í
fortíðinni núna,
kannski ég fari í
Njálu næst.
Ég er eiginlega
frekar að fletta Norrænu goð-
unum en að lesa bókina, hef hana
hjá mér við sjónvarpið og les svo
síðu og síðu. Ég er ekkert sér-
staklega fróð um norræna goða-
fræði þannig að það er ýmislegt
nýtt fyrir mér.
ÉG ER AÐ LESA
Elísabet
Ingvarsdóttir
Elísabet Ingvarsdóttir er bókavörð-
ur á bókasafni Árborgar.
VANTAR ÞIG STARFSFÓLK?
Suðurlandsbraut 6, Rvk | S. 419 9000 info@handafl.is | handafl.is
Við útvegum hæfa
starfskrafta í flestar
greinar atvinnulífsins
Traust og fagleg
starfsmannaveita
sem þjónað hefur íslenskum
fyrirtækjum í áraraðir