Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.02.2019, Page 36
& Hip Hop: New York en hún hafði
vakið athygli á samfélagsmiðlum á
undan því fyrir að tala opinskátt um
líf sitt í súludansi. Hún gat síðan not-
að peningana til að fjármagna fyrstu
upptökurnar sínar.
Mikilvægt fyrir
minnihlutahópa
Í viðtalinu við i-D ræddi hún líka um
vinsældir „Bodak Yellow“. „Þegar
ég varð númer 1 þá vissi ég ekki að
engri konu hefði tekist það frá árinu
1998. Ég áttaði mig ekki á ekki
hversu mikilvægt það
væri fyrir samfélagið
og minnihlutahópa,“
sagði hún en konan
sem fór á topp
rappvinsældalist-
ans á undan henni
var Lauryn
Cardi B er fædd og uppalin íBronx-hverfinu í New Yorken faðir hennar er frá Dóm-
iníska lýðveldinu og móðir hennar
frá Trínídad. Sviðsnafn hennar
Cardi B er einvers konar útgáfa af
Bacardi, sem er rommtegund, sem
hún var kennd við. Cardi upplýsti í
viðtali við Jimmy Fallon að nafnið
hafi komið til af því að systir hennar
heiti Hennessy, eins og brandí-
tegundin, og aðrir hafi farið að kalla
hana Bacardi sem svar við því.
Samkvæmt tímaritinu i-D gekk
hún í Renaissance High School for
Musical Theater and Technology og
fór seinna í skóla á Manhattan. Hún
hætti í skóla til að fara að vinna til að
hjálpa til við að framfleyta fjöl-
skyldu sinni. Hún vann fyrst á mat-
sölustað en hætti þar 18 ára gömul
til að fara að dansa nektardans.
Nektardans leið
úr fátækt
Cardi sagði við tímaritið
að það hafi verið neyðar-
legt til að byrja með
en hún hafi kom-
ist yfir það og
einbeitt sér að
þéna peninga
til að
sleppa út
úr fátækt-
inni.
,,Þegar ég
var 22 ára
var ég búin að
safna 35 þús-
und Bandaríkjadölum í eins dals
seðlum,“ sagði hún. Hún sagði
mömmu sinni í fyrstu að hún væri að
passa og hjálpa ríkum hvítum
krökkum að læra heima. Hún var
sjálf í ofbeldisfullu sambandi á þess-
um tíma og sagði í viðtali við VLAD
TV árið 2016 að nektardansinn hafi
veitt henni fjárhagslegt sjálf-
stæði og hún hafi því getað far-
ið frá manninum, sem hún bjó
með. Í kjölfar nektardansins tók
hún þátt í veruleikaþætti VH1, Love
Hill með „I Like It“. Í kjölfar þessa
mikla smells gerði hún plötusamn-
ing upp á margar milljónir dala við
Atlantic Records.
Platan sem Cardi fékk Grammy
fyrir heitir Invasion of Privacy og
fór beint á toppinn á Billboard 200 í
Bandaríkjunum og sló nokkur
streymimet. Til viðbótar við nýju
Grammy-verðlaunin hefur hún
unnið þrenn AMA-verðlaun, níu
BET-verðlaun, Billboard-
tónlistarverðlaun og sett tvö
heimsmet skráð í Guinness-
metabókina. Hún hefur selt
fleiri en 34 milljónir platna
í Bandaríkjunum.
Miklar tekjur og
eyðsla
Þessi velgengni hefur
gert það að verkum að í
ágúst 2018 voru eigur
hennar metnar á átta
milljónir Bandaríkjadala.
Hún sagði í Twitter-
myndbandi sem nú er búið að eyða
að neysla hennar næmi um 250-300
þúsund dölum á mánuði. Tekjur
hennar eru um milljón dalir á mán-
uði, samkvæmt grein á vef Yahoo
Finance en þar er tekið fram að hún
eyði líka heilmiklu fé í að sjá fyrir
fjölskyldu sinni og ættingjum í
hverjum mánuði.
Hún fær tekjur frá ýmsu öðru en
plötusölu eins og t.d. auglýsingum
fyrir Pepsi og Alexu frá Amazon.
Hún er þekkt fyrir að vera dugleg að
Hún tók lagið „Money“ á
nýliðinni Grammy-hátíð.Ævintýraleg
saga Cardi B
Söngkonan Belcalis Marlenis Almanzar, betur
þekkt sem Cardi B, varð um síðustu helgi fyrsta
konan til að hljóta Grammy-verðlaun fyrir
bestu rappplötuna. Cardi B, sem er 26 ára, varð
heimsfræg þegar lag hennar „Bodak Yellow“
fór á topp vinsældalista árið 2017.
Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is
Cardi B tók við verðlaununum fyrir bestu rappplötuna á Grammy-verð-
launahátíðinni með Offset sér við hlið sl. sunnudag.
AFP
Hún er þekkt fyrir langar og beittar
neglur eins og þessar.
AFP
36 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17.2. 2019
LESBÓK
TÓNLIST Á hverju ári sameinast hljómasveitir sem áttu einn
smell á níunda áratugi síðustu aldar eða jafnvel tvo og halda
á tónleikaferðalag í Bandaríkjunum. Tónleikaferðalagið ber
nafnið Lost 80’s Live og voru skipuleggjendur að birta lista
yfir þátttakendur í ár, að því er fram kemur á vef Rolling
Stone. Þeirra á meðal eru Missing Persons, The Motels, John
Parr, The Vapors, Real Life, The Escape Club og A Flock of
Seagulls. Tónleikagestir munu því fá tækifæri til að heyra lög
á borð við „Wild Wild West“, „Turning Japanese“, „I Ran“,
„Send Me an Angel“, „St. Elmo’s Fire“ og „Only The Lonely“.
Kosturinn við þetta er að hægt er að heyra alla smellina á
einu kvöldi, engin sveitanna spilar mjög lengi, sem þýðir að
maður þarf ekki að hlusta á mörg leiðinleg lög sem enginn
þekkir og alls ekki nein ný lög.
Eins smells undur sameinast
Mike Score úr Flock of Seagulls á
níunda áratugi síðustu aldar.
FÓLK Rapparinn 50 Cent kveikti í Gucci-stutt-
ermabol til að mótmæla tískuhúsinu. Nýverið var
peysa frá ítalska tískuhúsinu tekin úr sölu því
hönnun hennar þótti minna á „blackface“
með stórum rauðum vörum. Gucci baðst
afsökunar og sagðist ætla að læra af at-
vikinu en rapparanum finnst það
greinilega ekki nóg.
50 Cent birti myndband af sér að
brenna bolinn á Instagram og skrif-
aði í myndatexta: „Ég ætla að losa
mig við allar Gucci-vörunar sem
ég á heima. Ég styð ekki lengur
þetta tískumerki.“
50 Cent kveikti í Gucci-bol
AFP
Á dreglinum á AMA-verðlaunahátíð-
inni í Los Angeles í október.
Í einstökum kjól
úr hátískulínu
Thierry Mugler
fyrir veturinn
1995 á Grammy-
hátíðinni. Hönn-
unin vísar í Fæð-
ingu Venusar,
frægt málverk eft-
ir Botticelli.
AFP
Gömul mynd af 50 Cent
í Gucci-bol á sviði.