Morgunblaðið - 23.02.2019, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 23.02.2019, Blaðsíða 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. FEBRÚAR 2019 Audi Q7 e-tron er umhverfismildur tengiltvinnbíll sem sameinar krafta dísilvélar og rafmagnsmótors með drægni allt að 56 km. (skv. NEDC). Verð frá 10.990.000 kr. Audi Q7 e-tron quattro Rafmagnaður Eigum nokkra Audi Q7 e-tron quattro hlaðna aukahlutum á einstöku tilboðsverði. Til afhendinga r strax! Söngskólinn íReykjavík Síðasta 7 vikna námskeið vetrarins hefst 4.mars og lýkur 3. maí Einnig er hægt að fá einkatíma í söng - fjöldi tíma samkomulag SÖNGNÁMSKEIÐ Nánari upplýsingar www.songskolinn.is /  552-7366 Allir geta fundið eitthvað fræðandi og skemmtilegt við sitt hæfi! • Fyrir fólk á öllum aldri: Sem undirbúningur fyrir frekara söngnám eða tómstundagaman fyrir söngáhugafólk • Kennslutímar:Morguntímar / Síðdegistímar / Kvöldtímar • Söngtækni:Raddbeiting / Túlkun / Einsöngur / Raddaður söngur • Tónmennt:Tónfræði / Tónheyrnarþjálfun / Nótnalestur Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Það eru spennandi tímar fram undan,“ segir Sigurður Þorgeir Jónasson, verslunarstjóri Toys- ’R’Us á Smáratorgi, þegar hann er spurður um framtíð verslananna hér á landi. Eins og kunnugt er var Top- Toy, danskt móðurfélag leik- fangakeðjunnar Toys’R’Us hér á landi og annars staðar á Norður- löndunum, úrskurðað gjaldþrota milli jóla og nýars. Síðan þá hefur verið óvissa um framtíð verslan- anna hér. Í upphafi árs var tilkynnt að verslanirnar yrðu opnar út jan- úarmánuð hið minnsta og við- skiptavinir hvattir til að nýta gjafa- kort meðan kostur væri á. Sigurður Þorgeir segir að tíð- inda sé að vænta í næstu viku. „Þá verður gefin út smá yfirlýsing. Við erum ekki að fara að loka. Meira get ég ekki sagt.“ Þrjár Toys’R’Us-verslanir hafa verið reknar hér á landi síðustu misseri; á Smáratorgi, í Kringlunni og á Glerártorgi á Akureyri. Sig- urður staðfesti í samtali við Morgunblaðið í gær að allar þrjár verslanirnar yrðu áfram opnar eftir að nýr aðili tæki við rekstrinum. „Þetta kemur betur í ljós í næstu viku,“ segir Sigurður. Danska móðurfélagið lagði fram gjaldþrotabeiðni í lok síðasta árs. Stjórn félagsins gaf þær skýr- ingar að ástæða gjaldþrotsins hefði verið slök jólaverslun. Reynt hefði verið að endurskipuleggja rekstur- inn en það hefði ekki tekist. Versl- unarkeðjan lýsti sig gjaldþrota í Bandaríkjunum síðasta sumar. Verða opnar áfram  Framtíð verslana Toys’R’Us á Íslandi kynnt í næstu viku Morgunblaðið/Árni Sæberg Framtíðin tryggð Verslanir Toys’R’Us á Íslandi verða opnar áfram. Guðrún Erlingsdóttir ge@mbl.is „Vetrarfríin eru hætt að koma for- eldrum jafnmikið á óvart og þau gerðu fyrstu árin. Fyrir foreldra, skóla og atvinnulíf er þetta orðið eðli- legur hluti af skólahaldinu,“ segir Hrefna Sigurjónsdóttir, framkvæmda- stjóri Heimilis og skóla, en hún seg- ir að mikil um- ræða hafi verið í samfélaginu á sín- um tíma um að tekin yrðu upp vetrarfrí í skólum líkt og gert var hjá öðrum Norður- landaþjóðum sem við berum okkur saman við. Hrefna segir að af og til komi upp umræða um að skólafríin geti verið streituvaldandi. Umræðan hafi verið háværari fyrstu árin þegar fríin komu foreldrum í opna skjöldu en það hefðu þau ekki átt að gera ef foreldrar hefðu fylgst með skóladagatali barna sinna. „Breytingar taka tíma og nú er vetrarfrí í skólum komið á kortið,“ segir Hrefna og bendir á að það sé ekki á allra færi að geta verið með börnunum í vetrarfríi. Sumir eigi ekki frídaga á vinnustað og komist ekki frá vinnu af einhverjum orsökum. Aðrir hafi ekki efni á að taka sér frí eða skipta um umhverfi í skólafríinu. Að sögn Hrefnu eru vetrarfrí í skól- um á misjöfnum tímum, skólayfirvöld í hverju sveitarfélagi ákveði tímasetn- ingu þeirra. Í sumum skólum sé ekki vetrarfrí heldur hætti börnin fyrr á vorin og komist í sauðburð. Hrefnu finnst ekki ástæða til þess að vetrarfrí séu samræmd og miðstýrð frekar en margt annað í skólakerfinu. „Sveitarfélög hafa brugðist við vetrarfríum. Reykjavíkurborg er sem dæmi með metnaðarfulla dagskrá fyr- ir foreldra og börn sem tök hafa á að njóta frísins saman en einnig úrræði fyrir börn þar sem foreldrar hafa ekki tök á að vera með þeim.“ Umræðan hjá Heimili og skóla snýr í dag að sögn Hrefnu að áhyggjum af netnotkun barna, en mörg börn þekki ekki annað en rafræna veröld. For- eldrar leiti jafnvægis í þeim málum sem og milli vinnu og þess að sinna börnunum. Mörgum foreldrum finnist þeir ekki ná að sinna börnum sínum nóg og blikur virðast vera á lofti varð- andi vímuefnanotkun unglinga. „Við verðum að halda vöku okkar og missa ekki niður þann góða árang- ur sem náðst hefur,“ segir Hrefna. Reykjavíkurborg býður foreldrum og forráðamönnum upp á ókeypis frí- stund og menningu séu þau í fylgd barna. Auk þess verða skapandi smiðjur og samvera í öllum Borgar- bókasöfnunum meðan á vetrarfríi grunnskólanna í Reykjavík stendur, 25. og 26. febrúar. Á sumum söfnum stendur dagskráin yfir frá 23. til 26. febrúar. Fyrir fullorðna í fylgd með börnum er ókeypis á Kjarvalsstaði, Ás- mundarsafn, Hafnarhús, Árbæjar- safn, landnámssýninguna í Aðal- stræti, Ljósmyndasafnið og Sjó- minjasafnið. Í frístundamiðstöðvum er m.a. hægt að taka þátt í Ársel Escape, klifra í turni á útivistarsvæðinu við Gufunesbæ og elda pylsur úti. Fara í skíðafjör í Húsabrekku í Grafarvogi, fá sér kakó og kleinur og hlusta á góða tónlist. Í Laugalækjarskóla er boðið upp á fjölskyldubingó, frítt er í Fjölskyldu- og húsdýragarðinn milli 13 og 15 þar sem hægt er að prófa skylmó og föndra úr náttúrunni. Skartgripagerð er í boði í Tjörninni og í Miðbergi í Breiðholti er Mission Impossible-leikur, Just Dance og stingermót. Sögur af nautum og perl Borgarbókasafnið býður upp á skapandi smiðjur og samveru í öllum söfnum, m.a. er hægt að fara í hreyfi- myndamiðju í Árbæ og vísindasmiðju í Gerðubergi. Í Grófinni er boðið upp á bíó og perl. Í Kringlunni búningafjör, bingó og brandara, sögur af nautum í Sólheimum og spæjarasmiðju í Spönginni. Upplýsingar um viðburði í vetrar- fríi er að finna á reykjavík.is. Vetrarfrí Margt er í boði í vetrarfríi grunnskólanna í Reykjavík. Myndin er tekin af glöðum þátttakendum í hljóðfærasmiðju í liðnu vetrarfríi. Hrefna Sigurjónsdóttir Fjölskyldusamvera í skólavetrarfríi  Fullorðnir í fylgd barna fá frítt á söfn  Skólafríin hætt að koma á óvart og orðin eðlilegur hluti af skólahaldinu  Útieldun, perl, skíðafjör, skylmó, vísindasmiðja, stingermót og kleinur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.